Vísir - 02.12.1955, Qupperneq 6
«r
VISIR
Föstudaginn 2. desember 1955.
Guðbjörg Christensen.
Mín nite ^arord.
D A G B L A Ð
Ritstjóri: Hersteinn Pálsson.
Auglýsingastjóri: Kristján Jónssoa.
Skrifstofur: Ingólfsstrœti 3.
AigreiÖsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1663 (fimm linur).
CTtgefanái: BLAÐAÚTGÁFAN \lSER H.F.
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiöjan h.f.
UmmæSi Pearsons.
Utanríkisráðherra - Kanada, Lesíer Pearson, var fyrir
skemmstu í ferðalagi um Sovétrikin. Heimsótti hann þá og
3 æddi að sjálfsögðu við mestu valdamenn þar eystra, Bulganin
og Krusjev, og þeir fóru ekki dult með skoðanir sínar eða
íyrirætlanir, að því er sambúðina við lýðræðisþjóðirnar snértir.
Hefur Pearson skýrt svo frá, að þeir hafí ekki farið í launkofa
með það, að-tilgangur kommúnásta væri að leggja Atlantshafs-
bandalagið að velli eða gera það óvirkt, en menn geta svo gert
sér í hugarlund, hvert mundi verða næsta skref, þegar lýðræðis-
þjöðimar hafa verið sviftar þessum skildi, sem hefur hrætt
kommúnista frá árás.
Þetta virðist ærin sönmm þess, að engin breyting hafi orðið
á hugarfarí kommúnista, tr.cia þótt þeir hafi brosað og Játið
vinalega á höfuðleiðtogafundinum, sem haldinn var í Genf í
júlímánuði. Af látæði þeirra þá þóttust margir geta ráðið, að
þeir hefðu tekið nýja stefnu, að þeir ætluðu að ganga til samn-
jnga um vandamálin eins og heiðvirðir menn, svo að sifelldum
ótta um nýja styrjaldir og ólýsanlegar ógnir mundi senn verða
létt af mannkynínu.
Upp úr þessu fóru meim aS tala tun „andann frá Genf“, og
að hann numdi brevta ástandinu í heiminum mjög til hins betra,
upp kynni að renna Fróðafriður. En það kom fljótlega á daginn,
að kommúnistar höfðu ekkert: breytzt. Má vera, að rétt sé að
segja „sem betur fer“ í þessu sambandi, því að ef þeir hefðu
ekki sýnt íljótlega, að hugarfar. þein-a og fyrirætlanir væru
óbreytt,. hefðu ýmsir ef til vill sofnað næsta fast og ekki varað
eig á því, að hættan er óbreytt.
Síðari Genfarfundurinn — fundur utanríkisráðherranna
fjögurra — fór 'út urn þúfur. eins og öllum er kunnugt. Mörg-
um Urðu vonbrígði að því, þar sem gert hafði verið ráð fyrir,
að „andinn frá Genf“ muxidi liía lengur en aðeins fáeinar vikur.
Þó gerðu aðrir ráð fyrir, áð þannig mundi fara á fundi þessum,
þvi að ummæli Molotövs á þingi Sameinuðu þjóðanna og bréf
Bulganins til Eisenhowers,: gáfu ótvírætt í skyn, að ekki mundi
nást samkorriulag við komm'únista nema með einu móti, að
lýðræðisþjóðirnar slökuðu hvarvetna til og gengju að skil-
yrðum einræðisríkjanna.
Það er ekki hægt að segja, að síðari Genfar-fimdurinn hafi
verið gagnslaus. Hann gerði það gagn, að hann færði mörgurn
trúgjörnum og hrekklausum heim sanninn urn það, að hin
brosandi andlit, sem menn fengu ao sjá á kommúnistuni í Genf
í júlí í sum'ar, voru ekki hinar réttu ásjónur þeirra. Hann
sannaði, að kommúnistar hyggja á heimsyfirráð nú sem fyrrum,
þrátt fyrir bros sín og blíðmælgi. Hann minnti þess vegna lýð-
ræðisþjóðirnar á það, að ekki er enn hægt að taka á sig náðir
í þeirri trú, að ekki sé hætta á því, að tekið væri hús á frið-
sömura mönnum og þeir hnepptir í ánauð. Það verður þess
vegna að'hafa lÖgreglu áfram til að bægja frá hættunni af
óaldarmönnum. Sú lögregla er bandalag Atlantshafsþjóðanna,
<>g löngun kommúnista til að gera það áð engu er einmitt bezta
sönnun þess, áð þeir vilja enga lögreglu, til þess að geta farið
sínu fram. Það væri ógæfa, etf vilji þeirra fengi fram að ganga.
Skattamál Sambandsins.
T Tæstiréttur hefur nú kveðíð upp úrskurð vegna kæru út af
skattam.álum Sambands íslenzkra samvimiufélaga, og komst
dómurinn að þeirra niðurstöðu, að ekki megi leggja meira en
327 þús. króna velíuútsvar á .utanfélagsviðskipti félagsins, þai-
se.m. nettóhagnaður af þeim mun aðeins hafa verið þessi fjár-
hæð. það. ár, sem miðað er-við'. Hmsvegðr: munu þessi viðskipti
Sambandsins háfa numið liðlega 230 milljónum króna.
Þetta sýnir, að lög þau, Sem á sínum tírna voru sett um
skattlagningu samvinnufélaga eru orðin svo úrelt, að engu tali
tekur. En hitt er einnig ljóst, að þeim mun lengri tími sem
Þður, þar til gerð verður breyting á þeim, þeim mun meira
erður hallað á þá, sem keppa við sambandið eða kaupfélögin.
Það er vegna þess óréttlætis, sem ríkir í skattamálunum, að
Sambandið hefur að heita má getað ráðizt í hvaða framkvæmdir
•sem því býðjir við að horfa, meðan aðrir aðilar í landinu, sem
njóta ekki sömu fríðinda,. geta ekkertaðhafzt, af því að hendur
þeirra eru bundnar m. a. skattalögunum. Slíku ranglæti verður
að hnekkja, og alþingi á ao sjá sóma sinn í að gera þáð hið
Guðbjörg Christensen, fædd
Kristófersdóttir, andaðist í
Bispebjerg Hospital 9. nóv. sl.
og vantaði þá 16 daga upp á 64
ára aldur.
Guðbjörg er fædd hér í
Reykjavík 2.5. nóv. 1891. For-
eldrar hennar voru þau sæmd-
arhjón, Kristófer Bárðarson og
Astríður Jónsdóttir, en enduðu
æviskeið sitt við hin hörmu-
lega bruna á Bergþórugötu 16,
22. október 1937, sem mörgum
mun minnisstæður.
Guðbjörg sáluga fluttist al-
farin til Kaupmannahainai
1921, og giftist þar eftirlifand:
manni sínurrt, Karl Christen-
sen, módelsmið.
Áður en hún fór til Danmerk-
ur var hún lengi verzlunarmær
hér í bæ, bæði hjá S. J. Hen-
ningsen og Agli Jacobsen.
Engin börn eignuðust þau
Guðbjörg og Karl, en tvö börn
eignaðist hún hér á landi, dreng
og stúlku. Stúlkan, sem er
Hulda Dagmar Gunnarsdóttir,
ólst upp hjá foreldrum Guð-
bjargai', en drengurinn ólst
upp hjá henni i Höfn, og er nú
giftur þar.
Öll þau ár, sem Guðbjörg var
í Kaupmannahöfn, langaði
Bridgekeppni
kvenna lokið.
Tvímenningskeppni Bridge-
félags kvenna er nú Jokið og
urðu þær Ása Jóhannsdóttir og
Kristín Þórðardóttir hlutskarp-
astar með 615 stig.
Spilaðar voru alls 5 umferðir
og fara hér á.eftir nöfn og stig
16 efstu. tvímenninganna:
Asa Jóhannsdóttir — Kristin
Þórðardóttir 615 stig, Ingibj.,
Oddsdóttir — Margr. Jensdótt-!
ir 578, Rósa ívars — Sigr. Sig-
geirsdóttir 577, Eggrún Arnórs-
dóttir — Kristjana Steingríms-
dóttir 573,5, Ásta Flygenring —-
Ebba Jónsdóttir 571,5, Ásgerður
Einarsd. — Laufey Arnalds 568,
Hugborg Hjartard. Vigdís Guð-
jónsdóttir 566,5, Elín Jónsd. —
Rósa Þorsteinsd. 562,5, Soffía
Theodórsd. —-Viktoría Jónsd.
561.5, Dagbjört Bjarnadóttir —
Lilja Guðnadóttir 555, Hu.Ida
Bjarnad. — Unnur Jónsdóttir
554.5, Guðríður Guðmundsd. —
Ósk Kristjánsd. 552, Hanna
Jónsd. —, Sigr. Jónsd. 551, Anna
Aradóttir — Lufey Þorgeirsd.
.551, Anna Guðnad. — Þorgerð-
ur Þórarinsd. 545, Rannveig
Þorsteinsd. — Sigurbjörg Ás-
björnsdóttir 539 stig.
hana mikið ti.l að heimsækja
ísland aftur, en aJdrei gat orð-
ið af því, og hygg eg, sem þess-
ar línur skrifa, að aðalorsökin
hafi legið í hertöku Danmerk-
ur á stríðsárunum seinni, því
að sá þrautatími lamaði mjög
bæði atvinnulíf og efnahag
fólks þar, og þó ekki sízt taug-
amar.og kjarkinn. Hygg eg, að
Guðbjörg hafi aldrei borið sitt
barr. eftir þann hildarleik.
En nú. eru. allar jarðneskai-
þrautir liðnar hjá, og biðjum
við, aðstándendur hennar og
vinir, algóðan Guð að leiða sál >
hennar að þroskalindum kær-
leikans og guðdómsins í hinu
eilifa riki sínu, þar sem engar
þrautir þekkjast.
Svo bíðum við, vinir hennar,
héma megin litla stund, unz
\úð fáum að sjá hana aftur bak
við gröf og dauða.
Loftur Bjamason.
raeÖ hettum kr.
125.00.
PopiiitkápTir
fcsilegir kjéiar
Fall&fgar blássnr
í feíkua úrvaíi.
NiNON
Eankastræti 7.
Sláturfélagið opnar nýja,
fulíkomna kjötverzlun.
Sláturféiag Suð.urlands . opn- j
aoi í morgun nýja verzlun að
Bræðraborgarstíg 43 i R.eykja-
vík. Er verzlunin ein hin glæsi-
legasta sinnar tegundar í bæn-
um og búin öll.um fullkomnustu
áhöldum og tækjum. Á bak við
verzlunina eru vinnuherbergi,
frystiklefi og kæliklefi og rúm-
gott eldhús. ,
Var um tima í athugun, að1
hafa .sjálíaígreiðslufyrírkomu-
lag í verz-luninni, en horfið var
írá því að sinni, þ.ar eð slíkt
verzlunarstai-f byggist alger-
lega á irmpökkuoum vörum, en
pökkun kjötvai-a er hér enn ó-
iullkomin m. a. af gjaldeyris-
ástæðum. Heíír Sláturfélagið í
huga að hef ja fullkpmnari pökk
un kjötvara á framleiðslustað
en hér hefir þekkzt hingað til,
enda þai-f sérstaklega góðar
umbúðir til þess,’ að pakkaðar
kjötvörur þorni ekki og versni,
þar til þeirra er neytt.
í hinni nýju v.erzhm mun
vei ða hið fjölbreyttaáta. úrvál.
Þá er jólamánuðurinn geug-
nn í garð bg liofjast þá scr-
cennilegar annir þess mányðar.
em einkennast af ys ogþys og
óskápiegum liraða, eins og allir
eigi lífið að leysa út af einhverju,
sem þó enginn vc.it hvað er.
Helgi jólanna og hátíðleiki er að
kafna undir áhiiga fyrir verzl-
un og viðskiptum, sem nær há-
marki sinu í þessum lokahián-
uði almanaksársiris. Allir, sein
eitthvað þvkjást hafa að bjóða,
liugsa sér gott til glóðarinnar i
jólamánuðinum, því þá er fé
helzt laust fyrir og flestir eyða
þá meira en þeir a'tluðu og á-
reiðanlega meira en þeir liafa
efni á. En hvað nm það, þannig
vilja menn hafá það og því verð-
ur ekki breytt.
Fyrsti snjórinn.
Og fyrsíi snjór vetrarins lell
fvrsta desember ti.1 þess- að
minna menn á sig, cnda þótt vcð-
ur hafi verið frekar sumarlegt
uridanfarið. En það eru yngsta
kynslóðin, litlu borgararnir, sem
kunna að meía fvrsta snjóiriri.
Því með snjónum opnast marg-
ar nýjar leiðir tii þess að deiká
sér, hnoða bolta, búa til snjó-
karla, renna sér á slcða o. s, frv-
Varð þess auðvitað strax vart,
þvi hvarýétna mátti sjá krakkaná
draga á eftir sér sléða sínu, jafn-
vel þótt snjórinn hyldi tæplega
jörðina. En tækifærið verður að
riota þegar það gefst, hugsa
börnin, og eru fljót að ákveða
sig. .
Skapar vandamal.
En sleðaferðir barnanna i
bænum skapa vandamál, sciu
oftast er þó reynt að ráða fram
úr, en það er liættan á þvi að
þau verði fyrir trafala fvrir um-
ferð og siys geti stafað af leik
þeirra. Yenjulega hefitr sú leið
vérið farin og reynzt bezt, að
ákveða einhverjar götur eða
götuhhita, þar sem börnin geti
óhindrað leikið sér með sleðana
og án þess að vera eilíílega i yf-
irvofandi hættu. Þáð þarf að sjá
fyrir þessu nú eins og úður og
belra að gera það fyrr en slðar.
SJys hafa verið tíð af þvi að börn
hafa farið ógætilega, en það gera
börn alltaf, og veröur að miða
allar ráðstafanir við að koma
í veg fyrir þau íncð þá forséndu
fyrir augum.
Glöð andliti
Gaiuan er að virða fyrir sér
börnin, sem leika sér í snjó i
fyrsta skipti á vetrinum, Það eru
glöð andlit, sem verða fyrir aug-
rim manns. Ahugion og ákufiun
er ririkill, því nú þarf margt að
gera. Eu af leiknum hafa börnin
gott, og útivistin er þeim holl.
Það er áreiðanlegt, að betra ráð
er.ekki til en aðskapa börnunum
athafnasvæði, éf vinna á að þvi
að koma í veg fyrir að þau fari
sér að voða vegiia umferðarinri-
ar. Hitt verður aldrei hægt, að
varna því, að börnin' renni sér
á sleðum. — kr.
Verzhinarstjór-i er Gtiðjön Guð-
jónsson, sem lengi hefir verið
aðstoðar-verzlunai-stjóri í Mat-
ardeildinin í Haínai’stræti,
Skarphéðinn Jóhannsson,
arkitekt, skipulagði og teiknaði
innréttingar, en Ingibjartur
Arnórsson, húsasmiðameistai'i,
og Húsgagnavinnustofán Björk
smíðuðu þær. Guðmundur J6n-
asson sá-um málningu og R-aJ-
neistl h.f. um raítæki og raf-
lagnir.