Vísir - 04.04.1956, Síða 3

Vísir - 04.04.1956, Síða 3
/ Miðvibudaginn 4. apríl 1956. VÍSIR ■3*0* Yerstu Hollywood- leikarar árslns. „The Harvard Lampoon“ fceitir elzta slcopblað Banda- sríkjanna, en þetta blað hefir löngum haft horn í síðu kvik- myndaborgarinnar Hollywood. Blaðið segir nýlega að lík- lega sé almenningur jafntrú- gjarn og heimskur og sumir vilja vera láta ef dæma má eftir kvikmyndasmekk hans. í því sambandi greinir blaðið frá nokkrum leikurum og mynd- urn sem það telur hið versta á árinu, en hafi samt náð mikilli hylli. Versti leikarinn er Kirk Douglas, sem lék í myndunum f,IJlysses“ og „The Indian Fighter“. Versta leikkonan er Debbie Reynolds, en hún lék í myndunum „Hit the Deck“ og „Susan Slept Here“. Robert Mitchum er sagður hafa leikið eins og fábjáni í myndinni „Not as a Stranger“, en myndin sjálf fyrir neðan allar heilur. Chaplin móðgar menn vestra og eysfra. Fyrir nokkru móðgaði Charlie Chaplin yini sína bæði- amstan og vestan hafs. Meðal annars á hann áð hafa sagt þetta: „Eg mún sjá uny að framvegis verði aldrei nein af myndum mínum sýnd í Banda- ríkjunum. Eg vil alls ekkert hafa saman við Ameríku að sselda, og eg færi þangað ekki, þó að sjálfur Jesús Kristur yrði kjörinn forseti þar.“ Þetta féll að sjálfsögðu vinum hans aust- an tjalds í geð, en síðan sagði hann við Rússa, um leið og hann hafnaði tilboði þeirra um kaup á einni mynd sinni: „Þið gleymið, að þið eruð ekki að fást við kommúnista, heldur kapitalista.“ Honum höfðu verið boðnir 25.000 dollarar fyrir myndina. Skopteikarinn Danny Kaye útiagaflokki Hróa Hattar. ..Mirðfiíliil** sögd Maeö beztii myndum iiaais. Hallgrímur Lúðvígsbou lögg. skjalaþýðandi í ensku og þýiku. — Sími 80164. Danny Kaye er af mörgum talinn mestur kvikmynda- skopleikari vorra tíma, og ber margt til. Kímni hans virðist ná ík yfir tíma og rúm, og hún á sér eng- in landamæri. Kaye lætur jafn- vel að leika bráðfyndinn nú- tímamann, svolítið klaufalegan en þó ævinlega elskulegan, og hitt að sveifla sér aftur í aldir. Fyrir nokkru er lokið við kvikmynd, þar sem efnið er sótt aftur í aldir á Englandi. Hún gerist á miðöldum, tímum hirðfífla og hraustra drengja, fagurra kvenna, æsilegra bar- daga. Myndin heitir „Hirðfífl- ið“ (The Court Jester)t og þarf ekki að orðlengja það, að enn hefir Kaye skrifað nýtt blað í frægðarsögu sína. Efni myndarinnar er, að sögn, ekki ákaflega stórfeng- legt, og skrítlurnar og skrípa- lætin rista ekki djúpt, en það, sem Kaye gerir í myndinni er með hinu ósvikna handbragði smllingsins, og enn sannar hann, að snilld hans er ekki bundin neinum sérstökum tíma. í myndinni er Kaye látinn vera fyrrverandi trúður í fjöl- leikaflokki, sem gengur í lið með Hróa hetti og útlögum hans, en þeir hyggjast steypa af stóli konunginum, sem ranglega hefir sölsað undir sig konung- dóm. Ætla útlagarnir að sjá svo um, að litli konungurinn, koín- barnt nái rétti sínum. Nú gefur það auga leið, að Danny Kaye er ekki mikill stríðsmaður, svo að honum er falið það hlutverk að gæta jbarnsins og um leið sanna, að það sé réttborið til ríkis. Inn í þetta er fléttað ævin- týri innan konungshallarinnar um fimmtu herdeild, en þar er Kaye í gérfi fíflsins, sem menn gruna ekki um græsku. Alls konar kátlegir hlutir gerast, og Kaye flækist í hinar mestu ó- göngur, en einhvern veginn tekst honum að komast út úr þeim öllum. Fleiri góðir leikarar koma hér við sögu, en þetta er fyrst og fremst mynd Danny Kayes, og hefir hún orðið mjög vinsæl erlendis. Frank Sinatra sagður jafn vinsæll og forðum. Hann prófar Gary Cooper hef- ur enn kvenhyfli. Gary Cooper, sem sagt er, að sé orðinn 62ja ára gamall, nýt ur enn geysilegrar hylli Sbjá kvenfólkinu. Upp á síðkastið hefir hann oft sézt með Anítu Ekberg, feg- urðardrottningunni sænsku, sem nú er í Hollywood. Sagt er, að hann hafi þar méð bolað vini sínum, Frank Sinatra, sem er ékki nema 37 ára, úr leik, en hann var mikill aðdáandi ung- frú Anítu. Aníta Ekberg kom til Holly- wood eftir að hafa sigrað í feg- urðarsamkeppni og byrjaði þar sem fyrirmynd ljósmyndara fyrir 12 dollara á dag. Ekki alls fyrir löngu fékk hún 85.000 dollara fyrir leik sinn í mynd- inni „Zarak Khan“. Frank Sinatra þykir gott dæmi um það, hvernig menn öðlast mikla frægð í Hollywood og sem söngvari, og halda henni. Að vísu eru talsvert skiptar skoðanir um leikara þenna, og sennilega er af sú tíð, er við borð lá, að ungar stúlkur féllu í öngvit við að sjá hann og heyra. En hvað um það, þá er Sinatra enn með hæst launuðu leikurum og söngvurum vestan hafs. Nýlega lék Frank Sinatra í nýrri mynd, sem heitir á frum- málinu „The Tender Trap“, og meðan á töku hennar stóð, spurði blaðakona í Hollywood hann að því, hvernig hann færi að því að halda vinsældum sín- um. Ekki kvaðst Sinatra hafa neina sérstaka „uppskrift", en lét þó meðal annars þá skoðun smuii. hvað, sem gat bægt frá þeirat áhyggjum.“ Sagt er, að þeir, sem vinnj með Sinatra við kvikmynda- gerð, fullyrði, að hann sé mesta ljúfmenni, sem komi flestum í gott skap. Hann þurfi ekki ann- að en að raula lag, og þá komist allir í sólskinsskap. j Þótti hafa óvand- að orðbragð. Peter Ustinov, einn kunnasti skapgerðarleikari Breta, segir frá kátlegu atviki, sem nýlega kom fyrir á Sikiley. Þar var verið að taka mynd, sem nefnist „Flækingurinn“ (The Vagrant). Leikflokkurinn var í sífelldu peningahraki, og eitt sinn lenti í harðri rimmu milli aðstoðarleikstjórans, sem einnig hefir smáhlutverk með í ljós, að það hefði gefizt vel höndum og nokkurra aukaleik- Audrey Hepurn sögÓ lubbalega klædd. Audrey Hepburn er sögð ætla að setja á stofn kvikmyndafélag, ásamt manni sínum, leikaran- um Mel Ferrer. Hins vegar þykir Parísar- blaðinu „France Soir“ ekki mÍKÍð til klæðaburðar hennar koma, því að þar mátti nýlega lesa: „Audrey Hepburn gérigtir í of síðri kápu og of flötum skóm, og maður skyldi ætla, að svartir sokkar hennar væru upprunnir á ómagahæli“. MAGNtTS THORLACIUS hæstaréttarlögmaður. Málflutningsskrifstofa Aðalstræti 9. — Sími 1875. að sytfgja fyrst fyrir börnin sín, áður en hann léti taka söngv- ana á plötur. Sagði Sinatra, að umboðsmenn hans hefðu stundum ráðið sér frá því að syngja irin tiltekin lög, en þá hafi krakkarnir sagt, að hann skyldi samt gera það, og allt hafi gengið vel. Síðan sagði Sinatra: „Eg held, að eg hafi ekki breytzt mikið, en hins vegar hafa tím- arnir breytzt. Þegar ungu stúlkurnar fögnuðu mér sem ákafast, voru styrjaldartímar, ara. Leikstjórinn, sem vap klæddur prestsskrúða, valdl aukaleikurunum hin háðuleg« ustu orð, og er hann lét dælunS ganga, ók þar framhjá biskup; 'éitfri. Biskupnum ofbauð orð-< bragð „prestsins“, og tók. sig þegar til.og skrifaði kirkjuyfir« völdunum á staðnum harðorti bréf vegna framferðis þessaí „þrest's", og krafðist þess að sS kæmi á sinn fund til þess 'afl hann gæti persónulega talað yfir hausamótunum á honum og veitt honum hinar þyngstu á- og þá þurftu þessir krakkar eitt-1 kúrur! íarnas GóSir Islendingar liknið IiörnuriUm, sem sjúk eru. Knupiö lÍM'intfsims — Glæsilegir vmningár. — Miðarnir verða seldir í bifreiðinni og á áður auglýsíum stöðum og hjá Hringskonum, þangað til dregið verður 1. sumardág._____________________ B*ept áð ÍBiMtjisjsíM í Vísi Ranði laeriiin í Rnhr, uðu að leggja niður vopn, þótt gagnbyltingin hefði verið kveð- in niður með allsherjarverk- fallinu, og settu ýms skilyrði um að gætur yrði hafðar á því, að hernaðareinræði yrði ekki sett á laggirnar. Her stjórnar- innar barðist við þá og í lið með honum gengu hermenn úr Eystrasaltshernum, er rétt áð- ur höfðu fylgt Kapp og Lútt- witz að málum. Voru þeir á augabragði orðnir gallharðir stjórnarsinnar. Eg hélt til Essen. Höfðu verkamenn hluta borgarinnar á valdi sínu. Þeir reyndu að halda uppi reglu og hótuðu ræningj- um lífláti, en þó sá eg einu sinni tvo menn með hin rauðu arm- bönd „rauða hersins" skotna, er þeir reyndu að ræna verzlun eina. Annars var oft erfitt að gera greinarmun á ráni og löghaldi, því að „rauði herinn“ var búinn að vera í hernaði um tíma og þarfnaðist bæði vista og fatn- aðar. Fyrirliðarnir rituðu á blað fyrirskipanir um, að menn þeirra skyldu fara í búðir og fá ýmsár birgðir afhentar, en kaupmenn tóku því illa, því að þeir höfðu engar tryggingar Ijpár bví, að stjórnin mundi síðar greiða fyrir þau viðskipti. Af því leiddi þá5 að „rauðu hermennirnir“ tóku þegjandi það, sem þeir þörfnuðust. Einn af foringjum þeirra sagði mér, að hann ætti fullt í fangi með að koma í veg fyrir, að þeir tækju meira en þeir mættu. Eg heyrði ógreinilega vél- byssuskothríð. „Vígstöðvarnar11 voru handan við Altenessen, eitt af úthverfum Essen. Eg leitaði uppi aðalbækistöðvar „rauða hersins", en þær voru í veitingahúsi um mílu vegar frá Altenessen-j árbrautarstöðinni. Veitingastoían var íull af rauðliðum. Þeir kunnu ekki við að vera kallaðir „hermenn“, vildu láta kalla sig „rauðliða“ eða „vopnaða öreiga“. Þeir köll- uðu ríkisherinn „grænliða", „Noske-liða“ eða „Noskíta“ eftir Noske hermálaráðherra. Mennirnir voru afskaplega óhreinir og þreytulegir, Sumir sátu én aðrir lágu steinsofandi uppi á borðum. Þeir, sem voru vakandi, drukku bjór, reyktu eða störðu bara sljófum, þreytu- legum augum fram fyrir sig. Við og við stóðu tveir eða þrír menn á fætur og sögðu: „Við förum til vígstöðvanna“. Síðan gengu þeir út með byssu um öxl. Aðrir komu inn í veitinga- húsið í þeirra stað. Að því er virtist komu þeir og fóru þegar þeim þóknaðist. Eg fór út og gekk í áttina til tyúar einnar, sem barizt var um. Við og við heyrðist í sprengjum úr sprengjuvörpu, sem þeir „grænu“ höfðu. Þéss á milli heyrðust riffilskot á stangli og einstaka sinnum gjömmuðu hríðskotabyssur rík- ishersins. Menn fóru æ ýárlegar eftir því sem nær dró brúnni, því að alltaf mátti búast við þvít að einhver kúlan væri svo ósvífin að hæfa mann. En alít gekk slysalaust og eftir skamma stund fór eg aftur til aðal- bækistöðvanna. Þar hitti eg yfirhershöfðingja „rauða hers- ins“. Hann var verkamaður, vopnlaus, órakaður, óþveginn, rauðeýgður og dasaður af Svefnleysi. Hann var að ávíta yfirniann hermannanna tveggja, sem staðnir höfðu verið að rán- um áður um daginn og skotnir.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.