Vísir - 04.01.1957, Blaðsíða 9

Vísir - 04.01.1957, Blaðsíða 9
Föstudaginn 4. janúar 1957 VÍSIR Stiftta sagam ... Frah. af 4. síðu: „Auðvitað," sagði Ramabu, þótt hann botnaði hvorki upp né niður í þessu. Hann leit í kringum sig. Þetta var í fyrsta sinn að hann kom i heimsókn til Dorsons, og sá nú að hann bjó í húsi, sem stóð ekki að baki hans, er var það bezta í öllum dalnum. Það vissi ekki á gott að Ramabu neitaði að þiggja kvöldverð. Giri hafði verið að safna hnetum og þegar hún kom til baka, sagði Dorson henni að setjast. Hann var reiður og helti sér yfir hana og spurði hana hvort hún væri að vinna I að því, að hann yrði rekinn á burt? Hún varð skömmustuleg og hengdi haus. I „Eg var heimskur að lofa þér áð stíga inn fyrir mínar dyr,“ hrópaði hann. Næstu daga sagði Giri ekki orð, nema hann yrti á hana, og, hló aldrei. Eftir heimsókn Ramábus fór Dorson ekki í þorpið um Krið, því hann vonaðist til að orð- rómurinn um úrið myndi þá fyrr eyðast. Hann tók til óspiltra málanna og stækkaði hús sitt til þess að Giri gæti fengið her- bergi, og honum væri þá síður hætt á lausmælgi hennar. í fyrstu ætlaði hann einungis að bæta við skýli fyrir Giri, en hin1 listræna taug í honum náði yfir' hendinni. Og eftir þrjár vikur hafði hann lokið verkinu, ogj hafði hann þá fjögra herbergja hús til umráða, sem var lang- fullkomnasta húsið í dalnum. Til samanburðar var hús höfð- ingjans hreysi. En þegar hann skýrði félaga sínum frá því, að nú gæti hún búið í húsinu líka, hristi hún höfuðið. ‘ | „Þessi kona í, Port Moresby. Þú elskar hana ennþá?“ . Dorson var dauðþreyttur er hann horfð á Giri þar sem hún stóð fyrir framan hann sem ímynd æskuþróttar og lífsgleði. Hann var á báðum áttuny en þó ekki tilbúinn að fórna sein- ustu sjálfsvörninni. „Eg elska hana,“ laug hann. „En hún ber enga ást til þín, held eg,“ sagði hún kænsku- lega. „Það er sannleikurinn í mál- inu.“ „Hvers vegna gleymir þú henni þá ekki?“ Dorson leit umhverfis sig, og þ'ar sem hann hafði logið einu sinni varð hann að bæta annari lygi við. „Eg get það ekki.“ „Þú ert naikið flón,“ sagði Giri, og gekk þá burt. í þetta sinn kom hún ekki aft- ur; og þegar dagar liðu og Dor- son hafði ekki annað að hlusta á en tifið í úrinu, fóru tómu her- bergin í húsinu að fara í taug- arnar á honum. Hann vann í garðinuny en það bætti ekkert úr. Síðan fór hann að vinna að vatnsleiðslunni. Hann þóttist viss um að ein- hverjir myndu koma í heim- sókn, er því verki væri lokið. Og hann átti kollgátuna, þótt vopnið snerist í höndum hans, því hann hafði ekki áttað sig á barnalegum hugsunarhætti Ramabu. Hann leiddi vatnið inn í húsið og í gegnum það og út í Framh. Sildveið ítilrau nlr.. Frh. af 4. s. ganga síldarstofnsins við SV- land, — vitneskju, sem ógerlegt er að afla með rannsóknum á sýnishornum þeim, er að jafn- aði eru tekin af afla rekneta- bátanna því að net þeirra eru of stórriðin fyrir smærri síldina. Þrátt fyrir hin erfiðustu veð urskilyrði verður að teljast, að mjög mikilvæg reynsla hafi fengizt með tilraimum þessum, er vel gæti orðið til þess að valda straumhvörfum í síldveiðum þjóðarinnar. Skylt er að þakka Bjarna Ingi- marssyni og skipshöfn hans fyrir frábæran dughað og hug- kvæmni, sem aldrei brást þrátt fyrir margvísleg vonbrigði og erfiðleika vegna hamfara nátt- úruaflanna. Tel ég sjálfsagt að fela sama manni stjórn fram- haldstilrauna, er gera ætti við fyrsta tækifæri og eigi síðar en á næsta hausti. Nauðsynlegt er að láta gera nýja nylon-vörpu með tilliti til nýfenginnar reynslu, því að margir gallar komu í ijós við’ notkun nylonvörpunnar. Þess má að' lokum geta, að togarinn Neptúnus fór i stutta veiði- og tilraunaferð m.eð nylon- vörpuna eftir að leigutimi stjórn- valdanna var útrunninn. Hafði vörpunni verið breytt nökkuð í landi og ný og traustari fóðring, sett í hinn stórriðna belg. Vegna veðurs varð þó ekkert úr veiði-j tilraunum. Að endingu segir Ægir, . að i'étt þyki að geta þess, að veiði- tilraun þessi var gerð að tillögu milliþinganefndar í sjávarút- vegsniálúm, sein kosin var á síðasta Alþingi -til þess að at- huga um tæknilegar og við- skiptalegar umbætur í sjávarút- veginum. Formaður nefndarinn- ar er Gísli Jónsson, fyrrv. alþingismaður. Sjávarútvegsmálaráðui\eytið og Fiskimálasjóður báru kostnað- inn af tilraununum, sinn helm- inginn hvor. 1 TILKYMIIVG Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið með skírskotun til 35. gr. 1. um útflutningssjóð o. fl. að ítreka áður gefin fyrirmæli um verðmerkingu á vörum í smásölu, sbr. til- kynningu verðgæzlustjóra nr. 18/1956. Mun framvegis gengið ríkt eftir því að þessum fyrir- mælum sé fylgt. Reykjavík, 3. jan. 1957. VerðlagssIjÓNiui Gufuketill GufuketiII 5% ferm. til sölu. Efiaalaugin Björg Sími 3237. Stórt fyrirtæki óskar að ráða stúlku, til símavörzlu aðallega. Nokkur vélritunarkunnátta þó nauðsynleg. Og karlmann vanan bókfærslu. — Tilboð, er greini frá fyrri störfum og ‘ menntun umsækjanda leggist inn í pósthólf 635 fyrir 10. þ.m Ævintýrið í minkaræktinni. Ævintýrið í minkaræktinni er á „enda leikið senn“, segir í norsku blaði. Verð á minkaskinni hefur verið mjög hátt, það hefur ver- ið „gullöld á sviði minkafram- leiðslunnar", en nú búast menn við verðið fari mjög að iækka. I blaðinu segir ennfremur: Það er engin furða, þótt minkakápur séu dýrar. Minka- skinn kostar 150—300 kr, norskar og það þarf 70—80 skinn í kápuna. Hráefnis í þessa skraut- og skjóiflík kost ar þannig 20—25 þús. kr. norskar og svo eru vinnulaun- in 5—5 þús. kr. Og þegar menn heyra, að „ekta“ minkaskinns- kápa kosti 50—60 þús. kr. norskar þarf enginn að furða sig á, að fáir hér í landi (þ. e. í Noregi) hafi efni á að eign- ast slíkar flíkur. Bezt að auglýsa í Vísi vantar til eldhússtarfa. — Uppl. millí kl. 5—7. Adloii Aöalslræti 8 Sími 6737. Systur methafar í búðahnupli. Systur þrjár 1 Noregi munu hafa sett met í hnupli í sölu- búðum. s.l. haust og fram eftir vetri, cða (þar til þær voru tcknar úr umferð. Játpðu þær allt á sig, en húsrannsókn leiddi i ljós, að þær höfðu stolið eftirfarandi: Kjólum í tugatali, mörgum pilsum, stól, barnafatnaði, borðlöppum, brúðum, vindl- ingakveikjurum og glæpasög- um, „líkjörsettum“> hönzkum, ávaxtasettum, öskubikurum og straujárnum o. m. fl. Vörun- um stálu þær í Osló, Litla- hamri og víðar -— og voru birgðirnar í stuttu máli svo miklar, að þær systurnar hefðu getað opnað verzlun. ★ Pakistan hefur skotið Kas- mir-málinu til Öryggisráðs- ins og krefst skjótrar af- greiðslu. Ævintvr H. C. Atidersen ♦ Vondi strákurinn , , Vii' ■> 1 Einu sinni var reglulega gamalt og gott skáld. íOvöid nokkurt var hræðilegavont verður úti og regnið lamdi utan húsið, en gamla skáld- inu leið vel íyrir framan ofninn í stofunni sinni. „0 hleyptu mér inn“ heyrðist veik bamsrödd fyrir utan dyrnar. Barnið barði á hurðina og grét, en regmð rann í stríðum straumum úr loftinu og vindurinn ham- aðist á gluggunum. Gamla skáldið stóð á fætur og opnaði dyrnar. kyrir utan var lítill drengur og hann var alveg nakinn og vatnið rann úr ljósa hárinu hcgis. Gamla skáldið tók í hönd hans og leiddi hann í stof- unaog sagði: „Komdu mn til mín. Eg skal gefa þér epli því þú ert indæll dreng- ur“. Það var hann líka og leit út eins og engill. Dreng- urinn hélt á boga, en hann vúr or$inn skemmdur af regninu. Gamla skáldið hit- aði vín handa honum svo honum hitnaði og kinnar hans urðu rjóðar og hann stökk upp og dansaði um gólfið. „Þú ert fjörugur drengur“, sagði gamla skáldið. „Hvað heitir þú?“ spurði skáldið. „Eg heiti Amor. Þekkir þú mig ekki? Þarna liggur boginn minn og af honum er ég duglegur að skjóta, það getur þú ver- ið viss um. Nú er bogmn þurr og ég ætla að reyna hann.“ Svo lagði hann ör á streng og skaut gamla- manninn í hjartastað. „Þú sfæmi strákur", sagði gamla skáldið cg grét, því örin hafði sært hann. „Svei hvað Amor er slæmur strákur. £g skal segja öll- um góðum börnum hvað hann er slæmur, svo þau geti varað sig á honum og leiki sér ekki við hann, því hann gerir þeim íllt. Já nú þe’kkir þú Amor og veizt að hann er slæmur strákur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.