Vísir - 14.01.1957, Blaðsíða 12
i»elr, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1GG0.
VÍSIB er ódyrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í sima 1660 og
gerlst áskrifendur.
Mánudaginn 14. janúar 1857
Mý stfórii á Bretlandi.
i.7aa vaidi mesin úr hægra am\
fbkksins.
Harold McMillan lagði í gær
leið sína til Buckinghamhallar,
skömmu efíir komu Elisabetar
dröttningar frá Sandringham,
og lagði ráðherralistann fyrir
hana. Féllst hún á listann og
var birt um það opinber til-
kynning seint í gærltvöldi, og
listinn bii tur nokkrum klukku-
stundum síðar.
Gagnstætt því, sem búist var
við, var Butler' ekki skipaður
utanríkisráðherra, og yfirleitt
er litið svo á, að McMillan hafi
■treyst hægri arm flokksins með
vali ráðherra sinna, og að fylgt
verði áfram ákveðinni stefnu
varðandi nálæg Austurlönd.
Butler er innanríkisráðherra,
Thornycroft fjármálaráðherra,
Duncan Sandys landvarnaráð-
herra og Sir Percy Miller, iðju-
höldur, orkumálaráðherra, og
er það nýtt embætti, og felur
auk meðferðar raforkumála í
sér meðferð kjarnorku í þágu
iðnaðar.
Ráðherrar þeir, sem fara með
samveldis- og nýlendumál, eru
hinir sömu og áður.
I fréttatilkynningum frá
meginlandinu, þar sem stuðst
er við umsagnir fréttaritara í
Lundúnum, er komist svo að
orði m. a., að hér sé um sam-
stillta íhaldsstjórn að ræða,
sem eigi meginstyrk í hægri
armi íhaldsflokksins og í einni
fregn er svo að orði komist,
að hér sé ný Edensstjórn við
aðra forystu.
Bulganin forsætisráðherra
Ráðstjórnarríkjanna hefur sent
McMillan skeyti og óskað hon-
um til hamingju af því tilefni,
að hann tekur við stjórnarfor-
ystunni.
Spárnar reyndust rangar.
Spárnar um val ráðherra
reyndust flestar rangar. Und-
antekning er val Thornycrofts
sem verzlunarmálaráðherra, er
þykir mjög athyglisverð, þar
sem hann er talinn hlynntur
(frjálsari viðskiptum og vilja
létta skattabyrði almennings.
Um Sir Percy White er það tek-
ið fram, að hann hafi verið
mikill samverkamaður McMill-
ans, er hann var að hrinda í
framkvæmd hinni frægu áætl-
un sinni um 300.000 ný hús, er
hann var húsnæðismálaráð-
herra. Athygli vekur, að ýmsir
ráðherrar, sem búizt var við að
fengju mikilvægari- embætti,
verða kyrrir í sínum gömlu emb
1 ættum. Head hermálaráðherra
á ekki sæti í stjórninni, né
Lloyd George og Sir Walter
| Moncton, sem fá sæti í lávarða-
deildinni, eins og Sir Percy Mil-1
; ier. — Butler er innsiglisvörður
' og leiðtogi flokksins í neðri mál
j stofunni, eins og hann áður var.
I Undirtektir.
j Þar sem nokkurra klukku-
j stunda dráttur varð á því, eftir
1 að tilkynningin um að Elisabet
drottning hefði fallist á nafna-
i listann, að hann var opinberl.
| birtur, eru umsagnir enn af
skornu skammti, en í þeim
umsögnum, sem um er kunn-
ugt, er lögð áherzla á, að hægri
öflin í flokknum muni nú
í flestu marka stefnu flokks-
ins, einkum út á við.
Leiðtogi, jafnaðarmanna
Gaitskell flutti ræðu um helg-
ina vestra, og lagði mikla á-
herzlu á, að hann befði sam-
starf við Nato og Bandaríkin
að leiðarljósi. — Varaleiðtogi
flokksins, Griffith ílutti ræðu
í Birmingham í gær, og ræddi
nauðsyn breyttrar utanríkis-
stefnu rikisstjórnarinnar.
104 millj. hjólbarða
á s.l. ári.
Á síðasta ári framlciddu
gúmmíverksmiðjur Bandaríkj-
anna 101 milljónir bílahjól-
barða.
Áætlað cr, að framleiðslan á
þessu ári verði 111 milljónir
barða, en gúmmínotkun í land-
inu er ■ 1,5 millj. lestir. Eru
62% af þessu gerfigúmmí.
IHikill áróður tií
Arabs.
Útvarpsstöðvar Sovétríkj-
anna beina fleiri útvarpssend-
ingum til annarra ríkja en
stöðvar í nokkru ööru landi.
Mesta áherzlu leggja kom-
múnistar á að leiða Araba í
allan sannleika, því að um
áramótin jukust útvarpssend-
ingar til þeirra um hálfa elleftu
klukkustund á viku. Arabar
eru sýnilega í náðinni hjá
Kremlverjum.
Maðurirui innan um br'kahlaðana á myndinni er sagður afkasta-
mesti höfundur Bandaríkjanna. Hann hefur ritað 37 bækur, 52
leikrit og 350 smásögur. Hann skrifar einkum um lífið í land-
búnaðaihéruðúm vesturríkjanna, en er sjálfur borgarbúi. •
TritsKn veitSr Eisenhower lið.
Skorar á þing og þjóð að sam-
þykkja tillögur hans.
Truman fyrrverandi Banda-
"íkjaforseti hefur skorað á þjóð
þingið að samþykkja tillögur
Eisenhowers forseta varðandi
aálæg Austurlönd.
Segir hann, að í rauninni sé
ekki um annað að velja, þótt
tiliögurnar hefði þurft að vera
víðtækari, en þar fyrir ættu
þær að fá fullan stuðning þings
og þjcðar.
Truman leggur til, að í á-
framhaldi af tillögum Eisen-
hower verði:
1. Lagt bann á alla hertækja-
flutninga Rússa til nálægra
Austurlanda.
2. Gæzlulið Sameinuðu þjóð-
anna við Súezskurð eflt og
haft þar, unz búið er að koma
Ber hann sáttaorð milli
Breta og Egypta?
Malik. utanríkisráðlierra
Líbanoiis, lieimsækir Londoii.
Malik, utanríkisráðherra Li- ’
banons, er nú staddur í Lund-
únum, og er hann fyrsti leið-1
togi . arabiskrar þjóðar, sem j
komið hefur til Bretlands, eftir
að Bretar og Frakkar hófu að-
ge: íj:: slnar 'í Egyptahandí í
október.
Malik, sem kom við í Kairo
og ræddi við Nasser, ræddi
einnig við gríska stjórnmála-
menn, mun ræða við McMillan
forsætisráðherra, áður en hann
heldur áfram ferð sinni til New
York, en þar mun hann sitja
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna.
Malik sagði við fréttamenn,
að Nasser hefði tillögur Eisen-
howers forseta til athugunar,
en mundi ekki láta neitt uppi
um afstöðu sína til þeirra, fyrr
en hann hefði fengið nánari
upplýsijngar og athugað þær
betur.
Malik kvað svo að orði, að
vissulega myndi verða erfitt að
ná samkomulagi um vandamál-
in, en á vettvangi stjórnmál-
anna ætti allt af að miða við
það, að friðsamleg lausn gæti
fengist, hversu erfið sem málin
væru viðfangs.
Sir Ivon Kirkpatrick, skrif-
stofustjóri i brezka utanríkis-
ráðuneytinu, hafði boð inni fyr-
ir Malik í gær.
Sennilegt er talið, að Malik
kunni að bera sættarorð milli
Breta og Egæpta.
á tryggu framtíðarskiulagi um
rekstur Súezskurðar.
3. Þess gætt í hvívetna, að
aldrei komi til þess aftur, að
neitt verði aðhafst, er fæli
bandamenn Bandaríkjanna frá
þeim.
Áskorun Trumans vekur
feikna athygli, ekki sízt þar sem
hann og ýmsir leiðtogar demo-
krata hafa, auk þess sem þeir
hafa gagnrýnt harðlega utan-
ríkisstefnu Bandaríkjanna í
tið Eisenhowers, einnig talið
tillögur hans varhugaverðar,
en nú hefur Truman tekið þá
afstöðu, að mikill ávinningur
sé að þeim, með þeim sé stefnt
í rétta átt;
Magga Dan hefur Eokið
10.000 m. séglingu.
Magga Dan, sem Ienti í mtkl-
um hrakningum af völdum ís-
reks, er hún nálgaðist ákvörð-
unarstað við Weddellsjó á suð-
urskautslandinu, hefur að lík-
indum komist þangað í gær, að
aflokinni 10.000 mílna siglingu
frá Lundúnum.
ísrek mun ekki hafa tafið
skipið seinustu sólarhringa, og
nokkuð tafði það för skipsins
eftir að hrakningunum í ísnum
lauk, að skjóta varð seli, þar
sem birgðir kjöts, sem sleða-
hundunum voru ætlaðar, voru á
þrotum.
Magga Dan flutti nýjar birgð
ir suður á bóginn, bæði í stað
þeirra sem glötuðust á s.l. ári,
svo og til leiðangursmanna
þeirra, sem ætla þvert yfir meg
inlandið um suðurskautið,
Svo virðist sem kvensokk-
arnir séu alveg að eyðiBeggja
taugarnar í Þjóðviljanum.
Endurtekur hann á sunnu-
daginn fullyrðingar síuar um
það, að sokkarn;r hækki ekki
i verði. En reiði blaðsins er
svo mikil út af hinum óþægi-
legu staðreyndum um sokka-
verðið, að það ræðst með
persónulegum svívirðingum
á Björn Ólafsson og sægir að
firma hans, Þórður Sveinsson
& Co. hf., þurfi að selja gaml
ar nylonsokkabirgðir, sem
nú eigi að selja með upplogn-
um söguburði um verðhækk
un ■ sokkanna!! Vesal;ngs
kommúnistarnir. Ekki er ein
báran stök!
Vísir hefur spurst fyrir um
það hjá Þ, S. & Co. hversu
miklar hirgðir þeir eigi af
nylon- eða perlon-sokkunii
og fékk það svar, að birgðir
firmans af þessum sokkum
hafi verið uppseldar fyrir
miðjan desember svo ekki
Iítur út fyrir að mikið hafi
verið óseljanlegt.
Þetta illgirnis og heimsku-
bragð kommúnistablaðsins á
hendur B. Ó. verður því
heldur Iítil sönnun um að
ekki muni hækka sokkaverð-
ið.
Kvenþjóðin í Iandinu veit
að kommúnistarnir hfa sett
mestu nauðsynjavöru henn-
ar í hæsta luxustoll og með
því móti taka þeir margar
milljónir úr vasa íslenzkra
kvenna á þessu ári.
Meistaraflokks-
keppni TBK hafin.
Sl. fimmtudag var spiluð
fyrsta umferá í sveitakeppni:
meistaraflokks, í Tafl- og
bridgeklúbbnum. Leikar fóru
þannig að sveit Hjalta Elías-
sonar vann sveit Daníels Mark-
ússonar, sveit Agnars ívars
vann sveit Konráðs Gíslason-
ar, sveit Zophoníasar Bene-
diktssonar vann sveit Ragn-
ars Þorsteinssonar, sveit Jóns
Magnússonar vann sveit Ólafs
Ásmundssonar, sveit Guð-
mundar Sigurðssonar og sveit
Ingólfs Böðvarssonar gerðu
jafntefli.
Næsta umferð verður spiluð
fimmtudaginn 17. þ. m. Þá
hefst einnig einmenningskeppni:
fyrir þá, sem ekki eru í meist-
araflokkskeppninni. Þátttak-
endur í einmenningskeppn-
inni eru beðnir að tilkymia sig
til Jóns Magnússonar, sími
80213. Spilað verður í Sjó-
mannaskólanum.