Vísir


Vísir - 21.03.1957, Qupperneq 5

Vísir - 21.03.1957, Qupperneq 5
Fimmtudaginn 21. marz 1957 VÍSIB Ulbricht og Grotewohl óttaslegnir vegna frelsishreyflngar meða! stúdenfa og menntamanna A.Þ. Þær fregnir berast frá Aust- ur-Þýzkalandi, að mikil ólga sé nú meðal háskólastúdenta. Eru vopnaðar sveitir kommún- ista — svonefndar „heimavarn- arliðssveitir“' — á verði við alla háskóla landsins. í einu kunnasta blaði Bret- lands, News Chronicle, sem er frjálslyt blað, hefir Georg Vine skrifað grein um samtök stú- denta og háskólakennara, en þau samtök komu til sögunnar eftir byltingartilraunina í Ung- verjalandi sl. haust. Hafa þessi samtök orðdð til þess, að Stalínistinn Walter Ulbricht er dauðskelkaður orð- inn og allir heLztu menn komm- únista aðrir, og eru i hinum mesta vanda staddir. í Leipzig er eitt höfuðvirki frelsissinna. Þar hafa stúdentar rætt um það á fundum sínum, að kollvarpa kommúnistastjórn inni, og kom þar mjög fram, að stúdentar vilja taka sér sænska jafnaðarmenn til fyrirmyntí 1 •. Þegar kaupstefnan var hald- in flykktust þúsundir ferða- manna, einkum kaupsýslu- menn_ til Leipzig, og lögreglan greip til ýmiskonar ráðstafana og var engu líkara, en að vald- hafarnir óttuðust. að eitthvað líkt mundi gerast og í Poznan. Baðst lausnar. Einn af hinum kommúnist- isku prófessorum við háskól- ann, Bloch, hefir nýlega beðist lausnar frá störfum. Hann var prófessor í heimspeki. Lét hann i ljós and-mai’xistiskar skoð- anir og var víttur fyrir. Er hann var á leið í háskólann til þess að halda fyrirlestur, mætti hann flokki vopnaðra komún- ista. Stúdentai\ sem með hon- um voru, hvöttu hann til þess að ögra þeim, og hétu honum liðsinni. ,,Við skulum berjast viS þá,“ sögðu þeir, en Bloch hélt þá heimleiðis og skrifaði bréf til háskólans og baðst lausnar frá störfum. I Þegar Krúsév afneitaði Stal- ín og kenndi honum um mistök hins liðna, tóku Austur-Þjóð- Iverjar trúanleg loforð um 'meira frjálsræði — ekki sízt margir í hópi menntamanna og [stúdenta. ( Nú hafa menn sannfærzt um, hvers virði þau loforð voru. Og |Ulbricht og Grotewohl óttast i mentamennina og stúdentana —- því að þeir vita, að fjöldi iverkamanna mundi hlíta for- ’ystu þeirra, ef í harðbakka 'slægi. Harich-málið. | Valdhafarnir hafa gripið til þess ráðs, að ofsækja menn, sem áður voru í miklum met- j um. Einn þeirra var Wolfgang Harich 36 ára gamall skóla- kennari, sem hefir verið komm- I únisti alla sína tíð. Hann var sakaður um gagnbyltingai’- starfsemi og dæmdur í 10 ára | þrælkunarvinnu. — Örlög hans (eiga að vera öðrum mennta- mönnum umhugsunarefni. Þann j ig ályktuðu valdhafarnir, sem þorðu ekki að leyfa öðrum , blaðamönnum en austurþýzku fréttastofunar og aðalmálgagns kommúnista að vera viðstaddir réttarhöldin. I Ekki eins og í I Búdapest. í En menn búast ekki við, að hið sama gerist og í Búdapest. Menn hafa ekki enn gleymt hvernig byltingin 17. júní var bæld niður — og Rússar hafa enn 400.000 manna her i Aust- ur-Þýzkalándi. Um tvennt getur ekki verið neinn vafi: 1. Grotewohl-Ulbricht stjórn- in hefir ekki raunverulega fylgi nema lítils hluta þeirra 17 milljóna manna, sem byggja A.-Þ. Þeir stjórna í skjóli rauða hersins. 2. Tólf ára þrotlaus barátta til þess að gerá æskulýð A.-Þ. að traustum áhangendum kommúnista hefir mistekizt. Rússar vita, að því meira sem frelsishugsjónirnar ryðja sér til rúms í landinu, því erf- iðara kann að verða að hindra sameiningu Þýzkalands á grund velli, sem er Ráðstjórnarríkj- unum óhagstæður. Þess vegna, og vegna þess að þeir búa nú ekki við sama öryggi og þeir áður gerðu í Póllandi, telja þeir sig' hafa enn meiri þörf fyrir að halda Austur-Þýzkalandi og herða þar tökin, hvar sem þeir telja nokkra hættu á ferðum. Samvinnutryggingar hafa nú tekið upp nýjar ,.Hehnilstrygg- ingar“t sem ætlað er að gefa hinum almennu borgurum sem mesta tryggingavernd í dag- legu lífi og á heimilum. Fyrir gjald sem er mjög lágt, er hægt að fá, auk brunatrygg- ingar á húsmunum, víðtæka tryggingu á allskonar skemmd- um lausafjármuna, ábyrgðar- tryggingu fyrir heimilisfólkið og slysatryggingu fyrir hús- móður. Er þessi trygging alger nýjung hér á landi en hefir náð miklum vinsældum í öðrum löndum. Sem dæmi um hina nýju tryggingu má nefna þetta: Ef innbú í steinhúsi er bruna- tryggt fyrir 100.000 kr. kostar það 180—225 kr. Ef tekin er 100.000 kr. heimilistrygging í staðimr, kostar hún 325 kr. og nær yfir bruna á lausafé öllu, tjón af sprengingum, eldingum, flugvélahrapi, vatnsskaða, inn- broti, snjóflóði, ráni, þjófnaði á reiðhjólum eða barnavögnum, tjón af fjarvist vegna bruna; veitir farangurstryggingu á- byrgðartryggingu alls heimilis- fólksins (barn brýtur rúðu eða heimilismenn valda tjóni ann- ars staðar) og loks er slysa- og lömunartrygging fyrir hús- móðurina. Sérstaklega er það athyglis- vert, að húsmóðir er með heim- ilistryggingu tryggð, ef hún verður fyrir slysi eða lömun, 10.000 kr., ef hún deyr 100.000 kr., ef hún verður fyrir algerri örorku. Bretar hafa framleitt tæki, sem getur unnið af liárfínni ná- kvæmni þótt því sé stjórnað úr nokkurri fjarlægð, og kalla þeir tækið „hinn fullkomna þjón“. — Myndin skýrir sig sjálf, en tækið var annars fundið til þess að taka upp og „meðhöndla“ , tæki og annað sem verður fyrir geislaverkunum í kjarnorku- verinu í Haiwell, og var þetta eitt af beun tækjum, sem Elisa- betu drottningu og maimi hennar voru sýnd í heirnsókn þeirra. Dauðinn á vegunum. Hundar valda fieiri slysum en drukknir menn. Arið 1955 urðu 216,681 umferðars,!ys i Bretlandi. Hekla eins og hún leit fyrir gosið i marz 1947. Eftir viku eru rétt 10 ár liðin frá því gosið hófst, en í kvöld hefur Ferðafélag íslands ákveðið að minnast þessara miklu náttúruhamfara með sýningu á Heklukvikmynd þeirra Árna Stefán isonar og Steinþórs Sigurðssonar á skcmmti- fundi í Sjáirstæðishúsiiiu. — Kvikmyndin er stórkostleg og verður ógleymanleg þeim sem séð hafa. Eins og í flestum öðriun lönd- um er mest nm nmferðarslys í Bretlandi iun simmrmánuðina, enda er þá mest umferð á þjóð- vegúnum og þá sérstaklega í strandhéruðunum í kringum baðstaðina. Heildarskýrslur fy'rir árið 1956 hafa enn ekki verið birtar, en ekkert bendir til að hlutföllin á milli hinna ýmsu slysaorsaka hafi breytzt á undanförnum ár- um. íbúatala Bretlandseyja jókst árið 1955 um 0,25% en ökutækj- um fjölgaði um 11,25% á árinu og umférðin er talin hafa aukist um 10% frá árinu áður. Árið 1955 var tala umferðar- slysa 10,75% hærri en árið áður og er það því svipað og aukn- ingin í umferðinni nemur. Hins- vegar slösuðust og létust 12,5% fleiri í umferðaslysum en árið áður og er það í sjúlfu sér alvar- legt mál. Þá er það athyglis- vert við slysaskýrslurnar. að fleiri sleppa nú með tiltölulega lítil meiðsli en áður var. Talið er að ástæðan sé sú að vegna mikilla þrengsla á aðalumferða- vegunum verði ökumenn að draga úr hraðanum nauðugir viljugir — og verði árekstrar því ekki eins harðir og ella. Mánuðina júní til ágúst láta um 500 manns lífið í umferðar- slysum í Bretlandi. Tala ökutækja í Bretlandi \’ar rúmar 6 milljónir í árslok 1955. Talið er, að þessi ökutæki mundu ekki komast fyrir á veg- unum, ef þau væru öll í umferð samtimis. Ef taldir eru allir aðalþjóðvegir, svo og þeir vegir, sem þar í landi eru kallaðir B- vegir, mundi hvert ökutæki ekki hafa nema tveggja metra vegar- spotta til umráða, eða með öðrum orðum: Það er ekki rúm fyrir ökutækin á þessum veg- um. [ Á árinu 1955 urðu 216.681 um- ferðarslys í Bretlandi. Ef athug- að er, hvernig slvsin flokkast I eftir orsökum, kemur í ljós, að 137.228 ent að kenna gáleysf. ^ ökumanns, en 7187 slys eru að I kenna bilun á ökutækjum. í ; þessum tölum eru hjólreiða- menn meðtaldir. 16.000 slys áttu rót sina að rekja til þoss að ökumennimir „tóku rangar Hægribeygjur“, en 14.400 urðu af ógætilegum akstri á vegamótum. Hundar áttu sök á 2.6S0 um- ferðarslysum og er þetta athygl- isvert; en önnur dýr, svo sem hestar, ollu 13S6 slysum., Aftur á móti eru aðeins 934 slys talin eiga rót sína að rekja tit áfengisneyslu ökumanna, en 3S4 til áfengisneyslu gangandi fólks og loks ollu drukknir far- þegar í bifreiðum 171 slysi. Þoka og dimmviðri hafa valdið 1.132 slysum og snjóalög og hálka 5850 slysum. Þess ber að gæta, þegar töl- urnar um slys af völdum áfeng- is eru athugðar, að i Bretiandi gilda önnur ákvæði um þessi brot en hér. Þar er ekki refsað fyrir það, þótt ökumaður aki bifreið undir áhrifum áfengis, nema ölvun ökumannsins sé aðalorsök slyss. Enginn svoköll- uð blóðrannsókn er viðhöfð í Bretlandi. Lögreglan telur, að ölvun við akstur sé oftar orsök slysa en skýrslur sýna. Hins- vegar er ekki talið, að slysunt af ölvun ökumanna hafi fjölgað undanfarið og ekki er litið svo á, að mikil brögð séu að brot- um á þessu sviði. Flest slys eru af völdttm bif- ! hjólamanna, og hefur tala þess- j ara slysa aukist nijög mikið.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.