Vísir - 30.03.1957, Blaðsíða 7

Vísir - 30.03.1957, Blaðsíða 7
Laugardaginn 30. marz 1957 VtSIB r $ • • • • • • • • • X ANÐNEMARNUi • • • • • EFTIR RUTH MOORE • • • 11 ...... • •••••: Annað gat hann ekki sagt. Karólína sagði ekkert. Beta skríkti og hoppaði kringum Edda. Hendur Edda urðu kyrrar. — Bíddu, mamma! Kara, komdu hingað og taktu kjólinn þinn. Hann var sá eini, sem kailaði Karólínu Köru. Henni hafði alltaf verið illa við það. Hún stóð og starði á hann svörtum, stórum augum. Hvað er að þér? Viltu ekki silkikjól? — Þú hagar þér svo einkennilega! hreytti Karólína út úr sár. — Hvað er að þér. Höfum við nokkuð verið að hnýsast í íórur þínar. — Komdu og sæktu kjólinn þinn, Kara, sagði Eddi blíðmáll. Hún snerist á hæli og hljóp burtu. Eddi hrópaði á eftir henni. — Komdu hingað og sæktu kjól- inn þinn eða ég hendi honum í hausinn á þér. þrjózka bikkjan þín! Hann snögg þagnaði, því að Elísabet hafði risið úpp óg slegið hann með flötum lófanum á munninn. Hún sló hann ekki fast, en hann roðnaði og það kom glampi i augu hans. — Jæja, mamma, sagði hann. Ég vissi, að við yrðum ekki á ■eitt sátt, þegar ég kæmi heim. En að það yrði svona fljótt hefði mér samt ekki dottið í hug. — Ég hef verið þolinmóð við þig af því þú varst veikur. En ég leyfi þér ekki að formæla stúlkunum. — Sjáðu nú til, mamma. Ég er orðinn eldri en tíu ára. Ég er orðinn fullorðinn. Og ég hef farið um heiminn. Þetta er mitt hús. Þáð er vissra fyrir þig að hafa það í huga. —Æ, þegirðu. Ég held þú hafir ekki látið undir höfuð leggjast að minna mig á það. Taktu húsið. Það er enginn að banna þéir það. En leggstu nú niður og hvíldu þig. — Ég hef sagt þér, að ég er búinn að hvíla mig nóg. Og ég vil ekki að neinn segi frá því að ég sé kominn heim. Og það er eins gott þið fáið að vita það hvað skeður ef Jake Ring- gold nær í mig. Jake Ringgold, hugsaði Natti. Hann kannaðist við það nafn, en gat ekki áttað sig almennilega á því. Jú, nú mundi hann það.' Hann hafði heyrt þetta nafn í skipasmíðastöðinni, þegar hann var að vinna þar hjá Moses Brown. Þar hafði verið maður, sem lét mikið yfir sér og Moses hafði sagt: „Hann heldur, að hann sé Jake Ringgold.“ En það var nú ekki mikið sagt með því.! — Nær í þig? sagði Elísabet. Hún hafði allt í einu numið staðar, en hún var á leið út með ’bakkann. — Ef einhver ætlar að koma hingað og gera upp- steit fær hann að komast að raun um, lögin vernda heiðarlegt fólk. | — Ó, guð minn góður, mamma! Lögin! I — Beta! sagði Elísabet. — Farðu niður og farðu að vinna eldhússtörfin. Við erum orðin á eftir tímanum. Ég kem rétt strax. i Hún horfði á Betu meðan huri tók upp kjólana sina og gekk hikandi til dyra. — Ég sagði þér að fara niður, Beta, en ekki rétt fram fyrir dyrnar. Rödd hennar var mjúk og blíð, en ákveðin, Natta leið illa og hugsáði um, hvernig móður sinni mundi liða. — Eruð þið enn þá vond við Betu? sagði Eddi. — Það breyt- ist nú bráðlega. — Segðp okkur hvað hefur komið fyrir þig, Eddi og farðu svo að sofa. J=Ö k*vö»l*d*v»ö*k*u»B»n*i — Það er allt j lagi með mig. Ég fer á fætur eftir einn eða tvo daga. Hann lá lengi með lokuð augun. Hann þagði svo lengi, að þau héldu, að hann væri sofnað- ur. Elísabet hélt áfram að taka til í herberginu. Hún benti Natta að fara út úr herberginu. Og loks byrjaði Eddi að tala. Það var eins og hann hefði verið lengi að hugsa þessa sögu. — Kvöldið, sem ég fór héðan, fyrir þremur árum, fór ég til Boston. Þar hitti ég mann að nafni Fig Frazer. Við vorum saman á timburskipi til Englands. Við vonam alltaf saman eftir það. Við urðum að lokum góðir sjómenn og fórum til Skógrækt ríkisiits. Verð á trjáplöritum vorið 1957 Sliogarpfnn tur: Birki 3/0 ... Birki 2/2 ... Skógarfura 3/0 .. Skógarfura 2/2 . Rauðgreni 2/2 . .. Blágreni 2/2 .. . Hvítgreni 2/2 . .. Sitkagreni 2/2 . . . Bergfura 3/0 ... Garðptiin tur: Birki 50—75 cm. Birki undir 50 cn Birki limgerði . . Reynir 60 cm. og Reynir 40—60 cn Silfurreynir .... Sitkagreni 2/3 .. Sitkagreni 2/2 .. Blágreni 2/3 .... Hvítgreni 3/2 . . Rauðgreni 2/3 .. fíunitar: Þingvíðir ........... pr. stk. kr. 5,00 1 Gulvíðir ...................... — — — 4,00 Ribs .......................... — — — 10,00 Sólber ........................ —--------10,Ö0 Ýmsir runnár.......... pr. stk. kr. 10,00—15,00 Skriflegar pantanir sendist fyrir 25. apr. 1957, Skógrækt ríkisins, Grettisgötu 8, eða skógarvörðunum, Daníel Kristjánssyni, Hreðavatni, Borgarfirði; Sigurði Jónassyni, Laugábrekku, Skagafirði; Ármanni Dalmannssyni, Akur- eyri; ísleifi Sumárliðásyni, Vögium, Fnjóskadal; Sigurði Blöndal, Hallormsstað og Gaiði Jónssyni, Tumastöðum. — Skógræktarfélögin taka einnig á móti pöntunum á trjá- plöntum og sjá flest um dreifingu þeirra til einstaklinga á félagssvæðum sínum. pr. 1000 stk. ki. 500,00 — — — — 1.000,00 — — — — 500,00 — — — — 800,00 — — — — 1.500,00 — — — — 1.500,00 — — — — 2.000,00 _ _ _ 2.000,00 — 600,00 ........... pr. stk. kr. 15,00 i............. — — — 10,00 .............. — — — 3,00 yfir........ — — — 15,00 í............. — — — 10,00 .............. — — — 15,00 ...... — — — 25,00 .............. — — — 15,00 ........... — — — 20,00 ........... — — — 20,00 .............. — — — 15,00 i 3 « Á lítilli kaffistofu í San Di- egó í Kaliforníu, gekk um beina alúðleg^ ung stúlka, sem hafði þann sig, að sýna ölium hlýíegt viðmót er í kaffistofuna komu. Um tvegga mánaða skeið kom þangað maður á hverum degi og fekk sér bolla af kaffi. Gerða var vingjarnleg við hann eins og alla aðra, en ekkert þar fram yfir. Svo var það dag nokkurn, er hann stóð upp frá kaffiboll- anum sínum, að hann lagði um- slag á borðið og sagði við Gerðu: „Þetta eru aðeins nokkrir drykkjupeningar handa þér.“ Síðan fór hann og kom ekki aftur. Þegar Gerða opnaði urrislagið sá hún, að í því voru miklir peningar. Sem sé upp- hæð_ sem nemur 180 þúsundum í íslenzkum krónum. ★ Þegár Filipus prins var í heimsókn í Nýju Guineu í vet- ur héldu nokkrir höfðingjar honum veizlu er hann var að halda á brott. Þeir færðu honum að skilnaði töfrakeðju úr fögr- um skeljum. Hann hélt langa ræðu og þakkaði gjöfina og sagðist ætla að gleðja konú sína, drottninguna með henni, er hann kæmi heim. Þá hvíslaði einn höfðinginn í eyra honum: Ef eg má ráðleggja ýður herra,, þá myndi eg heldur selja fest- ina hérna, þér getið fengið fyr- ir hana sex svín — eða fjórar konur! ★ Húseigandinn hringdi dyrá- bjöllunni hjá Andersens hjón- unum og Andersen kom til dyra. — Sambýlisfólk yðar heíir borið fram kvörtun vegna háv- aða úr íbúð yðar í gærkveldi. — Það þykir mér leiðinlegt, en það stóð þannig á, að kona mín og eg héldum upp á gull- brúðkaup okkar. — Jæja, þá látum við það gott heita í þetta sjripti, en lát- ið það bara ekki koma fyrir aftur. Skólablað Menntaskólans í Reykjavík, 3. tbl. þessa árgangs, er nýkomið út. Fþ’tur það margskonar skemmtiefni, greinar, ljóð og á- gætar teikningar. Skólablaðið er vélritað og er ritstjóri þess Pétur Stefápsson. 5. b^kk. ■•na.RÚ-tj.a^eoa- DLstf. by Unltcd Fo*tuf Byndtoate. Intr. Núma lá fallinn og Tarzan rak upp ógurlegt siguróp, siguröskur ap- ans. Stúlkan varð hrædd og dýr eyði- merkurinnar spruttu á fætur er þau heyrðu þetta hræðilega öskur og héldu að nýr voðalegur óvínur værf kominn í land þeirra. f. /?. SuwougkA -TARZAN 050'!'

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.