Vísir - 17.04.1957, Blaðsíða 7

Vísir - 17.04.1957, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 17. apríl 1957 vísœ 5- Skíðamót íslands hefst í kvöld með skíðagöngu. Aökomufólk streymír unnvörpum tH Akureyrar. Frá fréítaritara Vísis. — Akureyri í morgun. Skíðamót íslands hefst í Hlíð- arfjalli við Akureyri kl. 17.45 í dag og setur Hermann Stef- ánsson formaður skíðaráðs ís- ■íands mótið, en sjálf keppnin ihefst kl. 18.00 með 15 km. skíða göngu. Strax á eftir hefst 10 km. ganga fyrir keppendur 15 og 1G ára að aldri. Á morgun, kl. 14.00 hefst keppnin í stórsvigi karla, en seinna um daginn verður keppt í 4x10 km. boðgöngu og flokka- svigi. Á laugardaginn verður keppt í bruni karla og kvenna og, stökki í norrænni tvíkeppni. Á páskadag verður keppt í svigi karla og kvenna og 30 m. göngu, en á mánudaginn lýkur mótinu með stökkkeppni í öll- um flokkum. Mótsstjóri er Hermann Sig- tryggsson. Mikill fjöldi aðkomufólks, keppendur, áhorfendur og' skemmtiferðafólk streymir nú til Akureyrar, en þátttakendur I eru samtals á 2. hundrað í skíða! mótinu; gestur mótsins verður austuríski skíðagarpurinn Toni Spiess. Mótið hefur verið undirbúið eftir beztu föngum. Áætlunar- íerðir verða úr bænum á móts- stað með stuttu millibili alla dagana meðan keppni fer fram. bæjarbúa og gesti, bæði á Hót- el KEA og viðar. Kvikmjmda- húsin vanda og til mynda sinna og m. a. verður kvikmyndin Morgunn lífsins eftir skáldsögu Kristmannssonar sýnd í Nýja Bíó. Nýjar árásir í París. Meim vopnaðir vélbyssum gerðu árásir í gær á nokkrar kaffistofur i Paris, þar sem Alsírmenn ven,ja komur sinar. T\'ær slíkar árásir voru gerðar í fyrrakvöld. — 1 árásum þess- um hafa 4 til 5 menn beðið bana, en allmargt særst. Hafnarbíó: Lady Godiva. „Lady Godiva“ — kvikmynd- in, sem sýnd er í Hafnarbíói, — er frá Universal-Internationel og er tekin í litum, við leik- stjórn Arthurs Lubins, en aðal- hlutverkið leikur hin fagra Maureen O’Hara. Kvikmyndin gerist um 1100 á Englandi og byggist á alkunnri sögulegri frá sögn. Þá var sá siður að hegna konum með því að láta þær ríða naktar um borgarstræti, og þannig átti að hegna Lady Godivu, en Leofric lávarður hafði gengið að eiga hana í trássi við bann konungs, og kvaðst hún mundu gera það, fullviss þess, að enginn maður í Coventry mundi vera á göt- um úti eða líta út úr glugga til að horfa á auðmýkt hennar. Reyndist það og svo, en þeim hjónum voru gefnar upp allar sakir. Hassloch sigraði úrvalið naumlega í fjörugum leik. Hassloch sigraði úrvalið naum- Iega i fjömgum leik. Þýzka handknattleiksliðið Hassloch lék annan leik sinn að | Hálogalandi í gærkvöld og þá við úrval úr Reykjavikurfélög- unum. Var leikur þessi ekki siður spennandi en leikur þeirra' við í. R. og eins og þá, unnu i þeir með aðeins tveggja marka J mun. » Að þessu sinni var leikur þeirra öllu sterkari og betur samstilltur, enda hafa þeir nú vanizt húsinu að nokkru leiti. markvörður varði mjög vel og bægði frá mörgum hættum. Þjóðverjarnir jöfnuðu íljótlega og höfðu yfir það sem eftir var hálfleiksins, en þá stóö 7 : 5. Síðari hálfleikur byrjaði á tveim mörkum frá Hassloch og var Stahler þein-a hættulegasti maður, en i þessum leik bar hann af og sýndi yfirburði í leik. Jón Erlendsson skoraði tvö mörk i röð fyrir úrvalið og hleypti við það nýju fjöri i leilc- Á kvöldin verður efnt til skemmiana fyrir keppendur, Páskavaks, sem kirkjukór Langholts- sóknar gengst fyrir, verður hald in í Laugarneskirkju á skír- dagskvöld kl. 9. Þetta er í þriðja sinn, sem kórinn heldur slíka kirkjusamkomu. Kórinn syngur að þessu sinni tíu iög eftir innlenda og erlenda höfunda. — Þá flytur Þórir Kr. Þórðarson, dósent, stutt erindi, er hann nefnir Musterið í fortíð og nútíð. HAFNARFJAKBARKIRKJA Mafnarfjaröarkirkja Skýrdags- Skýrdagskvöld: altarisganga kl. 8,30. Föstudagurinn langi: messað kl. 2. Páskadgur morg- unmessa kl. 9 f. h. Sólvangur 2. páskadag messað kl. 1. Bessa- staðir páskadag: messað kl. 11 árdegis. Kálfatjörn páskadag messað kl. 2. Séra Garðar Þor- steinsson. Mjálkurbúðir verða opnar á morgun og föstu- dag til kl. 12 á hádegi, á laugar- dag til kl. 2, lokað er á páska- dag, en opií til hádegis á ann- an. H j álpræðisherinn fær góðan gest um páskana. Er það Aslrup Sannes ofursti frá Noregi. Mun hann tala hér og ;!yngja á fundum. Ú tvar psdagsk r áin fyrir bænadagana hafði ekki borizt þegar biaðið fór í press- pna í dag. Úrvalsliðið stóð sig með mikilli prýði og áttu ailir ágætan ieik. Það sem gerði gæfumunin var, að vörnin var nokkuð laus á köflum, enda erfitt að ná full- kominni samstillingu með ein- staklingum, sem lítið eða ekkert hafa leikið saman áður. Þjóðverjarnir léku af sömu hörku og siöast, en landarnir gátu oft ekki stillt sig og svör- uðu i sömu mynnt. Er því ekki hægt að segja að leikurinn hafi verið fagur að sama skapi og hann var spennandi, en dómar- inn, Hannes Sigurðsson hélt leik- mönnum niðri með nákvæmum dómum. Var sýnilegt, að Þjóð- verjunum mishkaði dómarnir sem fvrr, en hér litum við á handknattleikinn sem íþrótt, ekki „rugby", og það verða þeir að sætta sig við. Ég átti kost á að taia við Þýzkan blaðamann, sem er i fylgd með liðinu og spurði hann nokkuð um álit hans á hand- knattleiknum hér og dómum. Hann kvað hvorki handknatt- leikinn né dómarana vera „Inter- national", eða á alþjóðamæli- kvarða, er. .viðurkenndi, að að- stæður okkar, lélegar sem þær væru, réðu þar nokkru. Sagði hann, að sá leikur, sem Þjóð- verjarnir sýndu, væri hinn al- þjóðlegi og af því tagi, sem leik- inn er í heimsmeistarakeppnr inni. Ef svo er. ef þetta er alþjóð- leg túlkun, má ég þá heldur biðja um okkar útgáfu, sem for- dæmir alla hörku og ruddaskap.; Fyrsta mark leiksins skoraði Stahler mjög íallega, en Þórir ‘jafnaði fjTÍr úrvalið. Karl Jó- hannsson skoraði næsta mark og gaf úrvalinu forskot. Gunnar inn (9:7). Hassloch bætti við sínu tíunda, en Þórir svaraði fyrir hina. Aftur skorar Hass- loch (11:8), en nú koma Þor- lejfur, Þþrir og Matthías, skoi-a hver sitt mark og jafna við mik- inn fögnuð áhorfenda. Nú voru aðeins sex minútur eftir af leik og hraðinn rnjög mikill. Hass- loch skorar tvö i röð, en Þorleif- ur borgal’ með sérlega fallegu marki (Í3 : 12). Aftur munar tveim mörkum, en nú minnkar Gunnlaugur bilið með Þrurau- skoti af löngu færi. Vörn úrvals- ins fékk ekki ráðið við leikni og hraða: Þjóðverjanna og enn ná þeir tveggja marka forskoti. Jón Erlendsson skorar fallega (15 : 14), en siðasta rnark leiks- ins skorar Staliler og Hassloch sigrar enn með tveggja marka mun, 16 : 14 að þessu sinni. Eins og fyrr segir var Stahler bezti maður Ilasslocli, en hann naut sem fyrr góðrar aðstoðar Korn, sem einnig er mjög góður leikmaður. Fyrii’liðinn, Arno Sceurer gerir margt fallegt og byggir vel upp, þótt eklci beri mikið á honum. Einnig má segja honum til iofs, að hann er prúð- asti maður liðsins. Bezti maður úrvalsins var Þorleifur Einars- son, sem gerði margt mjög lag- legt, auk þess sem hann var mikil driffjöður og byggði vel upp. Að öðru leyti var liðið mjög jafnt, ef til vill helzt til þungt á köflum, en leikmennirnir eru flestir stórir og stæðiiegir, sem sagt vel hæfir til að taka á móti þeirri hörku, sem mó'therjarnir sýndu. Mörk Hassloch skoruðu: Stahl-1 er 8, Korn 5, Heinz Scheúrer 2 og Arno Scheúrer 1. C*aiíið vðar í íiuia! B IIVAC A verndar tennur yðar í 8 klst. — Þetta heims- þekkta svissneska tannkrem er nú komið á íslenzka markaðmn. BINACA, sem ryður sér æ meira til rúms í Evrópu og víðar, er fyrsta tannkremið, sem hreinsar tennurnar með 100% árangri og heldur hinum bakteríueyð' andi áhrifum sínum í 8 klst. eftir burstun tannanna. BINACA tannkrem er framleitt í hinm heimsfrægu rannsóknarstofn- umn CIBA S.A. í Sviss. — Reynið- BINACA strax í dag og sann- færist. — Einkaumboð' FOSSAR H.F Box 782. Sími 6105 Mænusóttarbólusetning í Reykjavík Allir Reykvíkingar 45 ára og yngri eiga nú kost á bólusetmngu gegn mánusótt. Bólusett verður í Heilsuvérndarstöðinni við Barónsstíg daglega til mánaðamóta kl. 9—1 1 og 4—7, ncma laugardaga kl. 9—11. ínngangur frá Bafónsstíg, norðurdyr. Gjald fynr öll 3 skiptin er 30.00 kr., sem greiðist við fyrstu bólusetmngu. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Mörk úrvalsins skoruðu: Jón Erlendsson og Þorleifur 3 hvor, Gunnlaugur, Þórir og Matlhías 2 hver, Karl og Heinz 1 hvor. Á undan þessum leik fór fi'am leikur í kvennaflokki milli úr- vals og „pressu". Sigraði úrvalið með yfirburðum, 13 : 3. Danski handknattleiksþjálfarinn, Val- borg Kolste lék með úrvalinu og vilja „pressustúlkurnar“ ekki beint samþykkja þessi úrslit. Hafa þær slcorað á úrvalið til annars leiks og er vel líklegt að úr honum geti orð'ið i sam- bandi við leiki Þjóðverjanna. K o r m á U r. Vcðrið í morgun: Rvík SV 6, 2. Síðumúli NNA 4, 1. Stykkishólmur SV 4, 1. Galtarviti SV 6, 1. Blönduós SV 5, 2. Sailt&rkrókur SV 5, 2. Ak- ureyri S 4 4. Grímsey VSV 5, 4. Grímsstaðir á Fjöllum SV 4, 1. Raufarhöfu SV 5, 4. Dala- tangi SSV 4, 6. Horn í Horna- Fimmburar fæð- ast og deyja. Fimmburar fæddust á laug- ardag í bæmun Rosendaal í Ilollandi. Börnin — tvær telpur og þrí: drengh' — dóu öll skömmu efti fæðinguna, er átti sér stað fi 6. mánuði meðgöngutíma. Öl). vógu böi'nin 400—800 gr. við fæðinguixa. Móðirin er við góðo. heilsu. firði SV 7, 4. Stórhöfði í Vest- mannaeyjum VSV 8, 2. Þing- vellir VSV 4, 2. Keflavíkur- flugvöllur VSV 6, 1. — Veður- lýsing: Alldjúp lægð milli Vest- fjarða og Grænlands. Önnu lægð um 1800 km. suðvestur i lxafi á hreyfingu norðausiur. — Veðurhorfur, Faxaflói: Suð- vestan stinningskaldi nxeö' hvössum éljum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.