Vísir - 12.06.1957, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 12. júní 1957
VÍSIB
• •
• •
• •
• •
X
*
ANÐNEMARNUi
• •
*
@i
EFTIR •
IU TH MOOSIE •*
*••••
......
•••••;
Þetta borgaði sig. Maður getur ekki haft allt eins og maður
helzt kýs. Ef honum svipar til móður sinnar — reyndar föður
síns líka, hugsaði hún og minntist Joel Ellis — þá á uppeldið
sinn þátt í því og hann getur ekki gert að því.
Henni hafði fundizt, að það, að setjast að á þessari ókunnu
strönd og reisa þar heimili, væri framtak þeirra beggja, og
hennar þáttur í því væri sízt minni en hans. Hún lagði eins
ha!rt að sér og raun bar vitni; hún gat séð að jaínvel í utan-
hússtörfum, sem hann taldi sér einum tiíheyra, var hún tals-
verð hjálparhella. Vissulega var ýmislegt, sem aðeins hann
gat gert. Það var líka allt í lagi, hún óskaði engrai hlutdeild-
ar í þeim störfum. En við skipulagsatriði — eins og til dæmis
innréttingu heimilisins — hefðu ráð þeirra beggja komið að
gagni, ef hann aðeins hefði viljað ræða málið fyrirfram. í stað
þess hafði hann vikið henni til hliðar rétt eins og ódælli systur,
en þannig hafði hami ætíð umgengist hana heima, þó nú væri
erfiðara að sætta sig við það.
Af þessu leiddi, að eldstóin var of lág og sömu sögu var að
segja af niðurfallinu, þau urðu bæði hokin af að bogra yfir
því. En þegar hún vakti athygli hans á þessu meðan á bygg-
ingunni stóð, tók hann það óstinnt upp sem hverja aðra gagn-
rýni og hélt ótrauður áfram, þar til hann hafði lokið verkinu
r.ákvæmlega eins og hann ætlaði sér í upphafi. Hann var svo
stoltur af því, þegar því var lokið, að hún lagði algjörlega
árar í bát. En hún velti því fyrir sér, hve langt mundi líða
þangað til hann lyki við að færa eldstóna og niðurfallið þannig
að ekki ylli bakverkjum, — ef hann þyrfti að gera það.
Þessu var eins háttað með vinnuna utanhúss. Hann hlustaði
alls ekki á eina einustu tillögu hennar. Einu áhrifin, sem þær
virtust hafa á hann, komu stöku sinnum í Ijós nekkrum vikum
eftir að hún hafði borið þær fram, en þá átti harm til að láta
sér „detta þær í hug“ sjálfur og þá voru þær stórkostlegar. Og
hann komst í sólskinsskap yfir sniili sinni.
Hún gizkaði á að þetta væri viss tegund af tvíeggjuðu hóli.
Enginn vildi liggja undir stöðugu hrósi. Aðeins stundum, fannst
henni, stundum gat það verið til gleði.
Henni mundi hafa gengið betur að umbera þetta, ef hann
hefði haldið sig frá hennar störfum, úr því hann kærði sig
ekki um hennar hlutdeild í því, er að honum snéri. En þegar
hann var innanhúss, var hann með nefið ofan í öllu, daginn út
og daginn inn með allskyns uppástungur um eldhúsmálefni —
hvernig fara hefði mátt betur að einhverju/ eða hvers vegna
hún gerði ekki þetta eða hitt. Hví hún hengdi ekki eldhús-
áhöldin upp þarna? Stundum voru uppástungur hans góðar og
hún færði sér þær 1 nyt. Sú um eldhúsáhöldin hafði þó ekki
verið það, en hún var gerð að loknu löngu og erfiðu dagsverki.
Svo hún fór að henni engu að síður og setti áhöldin þar sem
hann hafði lagt til; og í fyrsta sinn sem hann kom nálægt þeim,
rak hann ennið harkalega í stóra koparketilinn, i’étt eins og hún
háfði vitað að hann mundi gera, og bölvaði hroðalega.
Þegar maður er ein með einhverjum, eins og nú var, hugsaði;
hún í uppreistarhug, verður þó að ætlast til þess, að báðir aðilar I
hagi sér eins og menn. Ekki aðeins annar fullorðinn, sá eini,
sem allt veit, hagandi sér eins og hinn væri ekkert nema krakka-
kjáni. Það gerir mann svo asnalegan.
Andartak velti hún því fyrir sér, hvernig það mundi vera að
búa með Natta, ef hún ekki elskaði hann, og hún sá ömurlega
mynd Ijótra og óbærilegra leiðinda standa sér fyrir hugskots-
sjónum. Sú mynd gerði hana skelkaða, næstum verr á sig
komna en skógarflækingurinn hafði gert um daginn, og hana
hryllti við.
æli afgreiðsluborð
til sölu.
Síld & fiskur
Bergstaðastræti 37.
|tim taka á leigu
litfa mótordrifna steypuhrærivé!
Upplýsingar á skrifstofu Hamars h.f., sími 1695 eða
hjá Bjarna Jónssyni, sími 2885. ,
AUGLÝSING
Öll brunatryggingafélögin hér á landi hafa athugað
tjónareynslu sína á innbúi í hinum ýmsu bvggingaflokkum
íbúðarhúsa, og þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til
eldsvarna víðsvegar um landið.
Með tilliti til þessara athugana hafa félögin ákveðið
brunatryggingataxta fyrir iimbú í steinliúsum frá 1%0 til
2,15^0, og í tunburhúsum frá 2.75// til 5.35%0.
Á sama hátt hafa verið ákveðin iðgjöld fyrir heimilis-
tryggingar, en miðað við kr. 100.000,00 tryggingafjárhæð
eru iðgjöldin í steinhúsvm frá kr. 300,00 til kr. 325,00 og
í thnburhúsum frá kr. 475,00 til kr. 635,00.
; * i .
irafiatrygglngafélögín á íslandi
KENNI bifreiðaakstur. —>
Nýr bíll. Uppl. í síma 1687.
SVARTUR kettlingur með
hvíta bringu og tær er týnd-
ur. Vinsamlegast skilist að
Flókagötu 1. (348
GULLARMBANÐ, mjótt,
tapaðist í Hlíðunum á hvita-
sunnudag. Finnandi góðfús-
lega hringi í 4835. Fundar-
laun. (398
KRÓMUÐ úlnliðsfesti
(merkt) tapaðist fyrir
nokkru. Vinsaml. gerið að-
vart í síma 81447. (372
HANDPRJONUÐ krakka-
húfa tapaðist sl. miðviku-
dag á Miklatorgi, Finnandi
vinsaml. hringi í síma 7931.
(382
RAUÐ ÚLPA tapaðist á
Klambratúni 1 gær. VinsamL
skilist á Hrefnugötu 7, (417
TAPAZT hefir silfurbúinn
tóbaksbaukur, merktur: V.
Þ. 1955. Vinsamlega hringið
í síma 81299. Fundaidaun.
(410
Nýlegur
amerískur bílt
með sjálfskipíara, helzt
Chevrolet óskast. Stað-
greiðsla. Uppl. í síma 2335.
NÆRFATNAÐUR
karlmanna
og drengja
fyrirliggjamdL
LH. Muller
Tekið á móti flutningi tif
Hvammsfjarðar og Gilsfjarðar-
hafna árdegis á morgun. i
£ (£. Sumuqks “ "I" A K Z Æ
2377
injj. tajai K.ccourrovKiu. nc.—m V s. fíc.w.i.
[Distr. by Unlted Feature Synciicate. It.c.
Bister tók stóran sopa úr áfengis-
flösku. Látrnn þá vera eins þrjóska
eins og þeir vilja því á morgun
munu þeir allir deyja, Taktu þessa
dós, Wezil. Við þurfum að ná í meira
úr hellinum áður en þú heldur þíná ji'píf'' '?
síðustu messu. Mer.nirnir skildu
brátt. Tarzan beið þar til þeir voru(
báðir horfnir út í skóginn. Nú vai*
tækifærið til að rannsaka kofann, j