Vísir - 26.06.1957, Qupperneq 5
Miðvikudaginn 26. júlí 1957
visnr
Farmannadeilan frá sjón-
armiði útgerðarfélaganna.
Fréttatilkynmng um bréfa-
skipti varðandi deiluna.
Vegna villandi fréttatilkynn-
ingar frá samninganefnd far-
manna í dagblöðunum í dag,
varðandi samningsuppsagnir,
viljum vér undirrituð samtök
taka fram eftirfarandi:
Kjarasamningar stéttarfélaga
þeirra yfirmanna á farskipum,
sem nú eiga í verkfalli, voru
uppsegjanlegir tvisvar á ári 1.
júni og 1. desember og þá með
þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Til þess að samningarnir gætu
fallið úr gildi 1. desember s.l.
þurfti þvi að segja þeim upp
fyrir lok ágústmánaðar s.l. „Upp
sögn“ fór ekki fram fyrr en með
b'réfi dags. 29. september s.l. og
þá miðað við 1. jan. en ekki 1.
des. Þrátt fyrir að uppsögnin
væri miðuð við annan dag en
ákveðið var í samningnum töldu
útgerðirnar ekki rétt að neita að
taka uppsögnina gilda og kusu
nefnd til viðræðna við farmenn
og óskuðu eftir að fá kröfur far-
manna í hendur.
Á fundi 19. des. eða 11 dögum
fyrr en farmenn ætluðust til, að
samningar féllu úr gildi höfðu
þeir ekki enn tilbúnar ki-öfur
sínár til breytinga á samningn-
um.
Fyrrgreind viðræðunefnd út-
gerðanna skrifaði 19. des. s.l. svo
hljóðandi bréf til Farmanna- og
fiskimannasambands Islands:
„15. nóvember s.l. vorum
við undirritaðir á fundi fyrir-
svarsmanna H.F. Eimskipa-
félags Islands, Skipaútgerðar
ríkisins, Skipadeildar S.I.S.,
Jökla h.f. og Eimskipafélags
Reykjavikur h.f. kosnir í
nefnd, til þess að annast við-
ræður við fulltrúa Vélstjóra-
félags Islands, Stýrimanna-
félags Islands og Félags ís-
lenzkra loftskeytamanna um
viðhorf í sambandi við fram-
komna kjarasamninga þess-
ara aðila.
19. nóvember s.l. komu að-
ilar. saman á sinn fyrsta fund
að frumkvæði okkar. Á þess-
um fundi kom fram sú skoð-
un okkar, sem ekki var mót-
mælt af hálfu gagnaðila, að
framkomin uppsögn sé and-
stæð ákvæðum kjarasamn-
inganna. Hins vegar létum
við þess getið, að svar skipa-
félaganna um það, hvort upp-
sögnin yrði tekin gild, þrátt
fyrir allt, kynni að vera undir
. ,-því komið, hvaða breytingum
yfirmenn hugsuðu sér að
koma fram-á gildandi samn-
ingum.
Fulltrúár yfirmanna tóku
•fram, að félög þeirra létu nú
fara fram athugun á því,-
hverjar kröfur þessar ættu
að vera, og myndi greinar-
gerð um það efni væntanlega
geta legið fyrir eftir svo sem
vikutima, og myndi þá verða
‘ hægt að skýra skipafélögun-
um frá því, hverjar kröfurnar
yr'ðu.
15. þessa mánaðar hefur
Farmanna- og f iskimanria-
'sámband Islands, f.h. nefndra
, l’riggja félaga skrifað skipa-
félögunum bréf, þar sem ósk-
að er eftir svari um það,
hvort margnefnd uppsögn
yrði viðurkennd. Hafa skipa-
félögin falið okkur, að svara
þessu bréfi, með því, að enn
sé ekki lokið þeim viðræðum,
sem okkur var falið að ann-
ast við yfirmennina. Viljum
við hér með ítreka þær yfir-
lýsjngar, sem fram komu af
okkar hálfu á áðurnefndum
fundi 19. nóvember s.l., að
svar við spurningunni í bréfi
yðar kann að vera undir þvi
komið, hvaða kröfur eru fyrir
hugaðar. Sjáum við okkur
því ekki fært að gefa ákveðið
svar fyrr en yfirmenn Tiafa
skýrt frá kröfum sinum eins
og heitið var af þeirra hálfu
á margnefndum fundi. ~
Virðingarfyllst,
Björgvin Sigurðsson (sign)
Guðm. Ásmundsson (sign)
Ingólfur Jónsson (sign)
Guðjón Einarsson (sign).“
Hinn 15. febrúar s.l. skrifaði
Vinnuveitendasambandið Far-
manna- og fiskimannasamband-
inu eftirfárandi bréf:
„Vér leyfum oss hér með að
vísa til bréfs fulltrúa H.F.
Eimskipafélags Islands,
Skipaútgerðar rikisins, Skipa
deildar S.Í.S., Jökla h.f. og
Eimskipafélags Reykjavikur
h.f. til yðar dags. 19. desem-
ber 1956 varðandi kröfur Vél-
stjórafélags Islands, Stýri-
mannafélags íslands og Fé-
lags íslenzkra loftskeyta-
manna til breytinga á kjara-
samningum þessara aðila.
Þar sem oss hafa ekki bor-
izt kröfur þessar, eru það
vinsamleg tilmæli vor, að oss
verði sendar þær svo fljótt
sem verða má, til þess að við-
ræður um þær geti hafizt sem
fyrst.
Eins og yður er kunnugt
standa nú yfir samningar við
Sjómannafélag Reykjavikur
um kaup og kjör háseta og
kyndara, og teljum vér æski-
legt, ef unnt er, að samning-
ar yfirmanna á skipunum
yrðu endurskoðaðir á sama
tíma.
..■ti
Virðingarfyllst,"
Farmanna- og fiskimannasam-
bandið svaraði þessu 20. febrúar
s.l. þannig:
„Vér viðurkennum móttöku
heiðraðs bréfs yðar dags. 15.
þ.m., varðandi tilmæli yðar
um að Vélstjórafélag Islands,
Stýrimannafélag Islands og
Félag íslenzkra loftskeyta
manna sendi yður kröfur sín-
ar um breytingu á gildandi
kaup- og kjarasamningum
' þeirra við útgerðarfélög far-
skipanna.
Vér höfum komið þessum
tilmælum yðar á framfæri
hjá stjórnum nefndra sam-
bandsfélaga og hafa svör
þeirra verið samhljóða á þá
leið að með þvi að uppsögn
þeirra á samningunum á s.l.
hausti, miðað við 1. jan. 1957,
hafi af yður og viðkomandi
útgerðarfélögum ekki verið
talin lögleg og mundi ekki
tekin gild, ef um ágreining
yrði að ræða, þá telji félögin
tilgangslaust að setjast að
samningaborðinu.
Á félaga- og stjórnarfund-
um téðra sambandsfélaga hef-
ir .verið samþykkt að segja
upp gildandi kaup- og kjara-
samningum miðað við 1. júni
þ.á., með þeim fyrirvara, sem
enginn ágreiningur getur ris-
ið út af, og geta þau því eigi
breytt þeirri ákvörðun úr
þessu.“
Öllum ætti því að vera Ijóst,
að það var á farmönnum en ekki
á útgerðunum sem strandaði, að
t
kröfur farmanna fengjust rædd-
ar, þar sem útgerðirnar fengu
kröfurnar ekki í hendur, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir og óskir,
enda er það mála sannast, að
kröfurnar voru ekki tilbúnar
fyrr en um mánaðamótin apríl-
maí s.l. og bárust útgerðunum
ekki fyrr en 3. maí.
Reykjavík, 25. júní 1957.
Vinnuveitendasamband Islands,
Vinnumálasamband samvinnufé-
laganna.
GLERULL
nð-
í mottum til einangrunap a m
stöðvarkötlum og rörum .
fyrirhggjandi.
i. Þorláksson & Norðmann h.f.
Bankastræti 1 1.
Norskir sjómenn sigruðu
um daginn í kappróðri á
björgunarbátum í Nevv
York — L áttrmda skipti.
MYNOI KOnk
ÍLIA FYMR
okkor-m
JÍtLAaA EISÉNHOVA'ERS
FORSFTA OK CAaNK«/AAtT
AFVöPNuNARf FTlRLÍT
Síldin...
Framh. af 1. síðu.
austan Færeyja lágu nú um 50
til 60 mílum austar en í fyrra.
I efstu 50 metrum Atlantssjávar-
ins undan Noregsströndum er
kaldara en 1956. Á 100 metra
dýpi er hitadreyfingin svipuð og
í fyrra. Samanburður á hitastigi
í 20 metra dýpi og síldarmagni
leiddi í ijós, að mjög mikið síld-
armagn var á mótum Atlants-
sjávarins norðaustan Eæreyja,
Mjög mikið síldarmagn fannst
á svæðinu milli 66 gráðu og 68
gráðu N.br. og 6 til 10 gráðu
VI. Mikið síldarmagn fannst á
64 gráðu N.br. milli 6 og 10
gráðu VI. og einnig miili 65
gráðu og 67 gráðu N.br. og 10
og 12 gráðu VI. Annarstaðar
fannst allmikið síldarmag^i á
takmörkuðum svæðum og er það
sýnt á kortunum sem útbýtt
verður. Lega sildarsvæðisins
norðaustan Færeyja var áþekkt
þvi sem var 1955 en þó er síld-
arsvæðið öllu stærra nú. Á haf-
svæðinu austan íálanás 65 gráðu
til 68 gráðu N.br; og 6 gráðu til
12 gráðu VI. fannst' meira sildar-
magn í vor en á undanförnum
árum. Á þessu ári eins og í fyrra
fannst. meira síjda|rmagn i vor
en á undanförnum árum . Á
þessu ári eins og i íyrra fannst
mikið sildarmagn um 68 gráðu
N.br. bg 14 gráðu VI., norðaust-
ur af Langanesi.
Hvað átumagnini. t /.rtí »nð-
víkur sýna gögn ra^nsóknar-
skipanna Prófessor Mesjatsevs
og Ægis, að átumagnið reyndist
meira nú en í fyrra í mið- og
austurhluta Noregsþafs og und-
an vestur og norðvesturströnd
Islands.
Einarsgarður við
Laufásveg.
I gær fór fram athöfn S
Gróörarstöðinni við Laufásveg-
inn, þar sem garðinum var gefi®
nafn — Einarsgarður — af til-
efnj 90 ára afmælis Einars
HelgaSonar garðyrkjumanns,
sem kom garðinuni upp.
Einar Helgason er einn af
frumherjum á sviði garðræktar
í landinu og liggja eftir hann.
ómetanleg störf, ekki sízt méð
þeirri fræðslu, sem hann veitti
almenningi, í bókum , sínum
„BjárkirV og „Hvannir“.
í gær voiu 90 ár liðin frá því
Einar fæddist og í tilefni af því
var garðinum gefið nafnið
„Einarsgarður". Fór fram há-
tíðleg athöfn í garðinum, þar
sem Gunnar Thoroddsen borg-
arstjóri flutti erindi og minnt-
ist Einars Helgasonar og braut-
ryðjendastarfs hans í þágu
garðræktar í landinu. Að því
búnu lýsti Hafliði Jónsson garð
yrkjuráðunautur Reykjavíkur-
bæjar endurbótum og brevtir.g-
um sem gerðar hafa verið á
garðinum að undanförnu, eða
frá því bærinn tók við honum
árið 1943. Á einstöku stað, er
komið fyrir nafni Einars og ár-
tölunum 1867—1957 með blóma
skrauti, sem Sigurður Albert
Jónsson garðyrkjumaður hefur
gert.
Ymsar breytingar aðrar hafa
vei'ið gerðar á gai'ðinum og eru
hiriar smekklegustu í hvívetna.
Á sl. ári átu Bandaríkja-
menn 17.4 pund af sælgæti
á hvert mannsbaru — 800
gr. meira vn 1953.
HALLÓ
STÚLKUR!
Ungan bónda við Akureyri
vantar stúlku eða ráðs-
konu. Uppl. í síma 81985
kl. 6—8.