Vísir - 09.10.1957, Page 12
Kkkert bla5 er édýrara I áskrift en Vísir.
liátið hann færa yöur fréttir «g annað
yðar hálfn.
Síml 1-18-60.
Munið, aa peir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðil
ókeypis til mánaðamóta. I
Miðvikudaginn 9. október 1957
Uppgripa afli í þorskanet
í ísafjarðardjúpi.
Einn bátur fékk 23 Sestir i Iieiining neta
sinna, annar fékk 17 iestir í 20 net.
r Frá fréttaritara VLsis,
\ ísafirði i morgun.
1 Isafjarðardjúp var hér áðnr
f yrr kölluð guUkista Vestfjarða,
«?n um langt árabil hefnr mönn-
um ekki fundizt það bera þetta
nafn með réttu, en nú er lykill-
xim að gullkistunni fundin og
feann er þorskanetin.
Uppgripaafli er nú í þorska-
:e.et í Djúpinu og má því helzt
líkjá við aflahrotu á vetrarvertíð
yið Suðurland. I fyrradag fékk
t. d. einn bátur 23 lestir og hafði
þá ekki dregið nema helming
netanna. Annar bátur fékk í gær
17 eða 19 lestir í 20 net og eru
slíks engin dæmi hér um slóðir.
Alls eru 13 bátar, sem þessar
veiðar stunda, sjö bátar héðan
frá Isafirði og sex bátar frá
Faxaflóahöfnum. Afli aðkomu-
toátanna hefur verið heldur meiri
vegna þess að þeir eru með fleiri
:net, allt upp i 70 net á bát og auk
]>ess hafa þeir lagt ýsunet, en í
j:iau hafa þeir fengið talsvert af
etúdungsfiski, sem festist ekki í
líinum stórriðnu þorskanetum.
Netaveiðarnar eru beint fram-
íiald af tilraunum bræðranna
Steingríms og Kristjáns Péturs-
sona frá Hjöllum í Skutulsfirði,
en þeir hófu þessar veiðar með
jgóðum árangri i sumar, eins og
Visir hefur áður skýrt frá.
Heildaraflinn af netjafiski var
» 14 ái*eksíi*ai*
Skýrslur lögreglunnar í
JReykjavík um árekstra 1956
foera 4»að með sér, að á gatna-
mótum Hverfisgötu og Rauðar-
'árstígs urðu alls 14 árekstrar.
Þrjú tilfelli fjalla um á-
hekstra af þeim sökum, að að-
albrautarréttur Hverfisgötu
liefur ekki verið virtur og í
ollum tilfellum hafa bifreiðar
Itomið norður Rauðarárstíg.
Fjórir árekstrar hafa orðið,
Or bifreið hefur reynt að aka
fram úr annari í námunda við
gatnamótin. Tveir af þeim
Ktafa af því, að bifreið, sem á
wndan ók, sveigði til hægri inn
í Þverholt um leið og önnur
Setlaði framúr,
Okumenn minnist þess, er
þiér akið á þessum slóðum.
að vísu ekki nema 300 lestir um
síðustu mánaðamót, en veiðin
hefur aukizt stórlega síðan. Fisk
urinn, sem veiðist er legufiskur,
sem ekki hefur tekizt að veiða á
færi eða línu og er því þarna um
að ræða vérðmæti úr sjó, sem án
netanna hefðu aldrei náðzt.
1 fyrstu var veiðisvæðið mjög
takmarkað en nú hafa bátarnir
lagt netin víða um Djúpið með
ágætum árangri.
Frétzt hefur að þrír bátar frá
Sauðárkróki hafi aflað vel í
þorskanet út af Drangey í Skaga
firði. Netaveiðar um þetta leyti
árs hafa hingað til ekki tíðkast
á þeim slóðum.
Bandarískur þmg-
tKsiur væntanlegur.
í fyrri hluta næstu viku er
væntanlegur hingað til lands
einn af mestu áhrifamönnum í
utanríkismálum Bandaríkjanna.
Er það öldungadeildarþing-
maðurinn Theodor Francis
Green. Er hann formaður utan-
ríkismálanefndar öldungadeild-
arinnar. Mun hann dveljast hér
í tvo daga.
Ætlar hann að heimsækja öll
þátttökuríki Atlantshafsbanda-
lagsins og langar til að sjá með
eigin augum, hverju Atlantshafs
bandalagið hefur áorkað og hvað
gera beri til að styrkja samstarf
vestrænna þjóða.
Hann mun dveljast hér í tvo
daga og mun ganga á fund for-
ráðamanna þjóðarinnar. Héðan
fer hann til Osló.
Tréð grætur og dregur
ur hita.
í suðurríkjum Bandaríkjanna
eykst til mikilla muna ræktun
sérstakrar trjátegundar, sem
„grætur“.
Vatn drýpur af laufi trjáteg-
undar þessarrar, svo að sjá má,
hvernig rignir úr því, þegar
veður er kyrrt. Er mjög sval-l
andi að vera undir greinum'
þess í hitum, og því keppast:
menn nú við að rækta tré þessi.1
Á þýzkri vörusýningu, sem stendur yfir í Frankfurt um þessar
mundir, er m. a. tæki það, sem hér sézt og notað er til þess að
sýna sjónvarpsmyndir á tjaldi og mó á þaim hátt gera þær 15
sinnum stærri en þær eru í sjónvarpstækiiui sjálfu. Þeíta er þó
kostnaðarsöm skemmtun ennþá, því tækið kostar 2890 þýzk
mörk.
Aðeins 15,1% bifreiða
reyndust hafa rétt Ijós.
Alls voru 2726 bifreiðir skoðaðar
og ljós 1726 stillt.
Fylgi kommúnista í Noregi
að fjara út.
Hafa nií aðeins eitt þingsæti í Stórþinginu.
tírslit kosninganna til norska
Stórþingsins urðu þau, að Verka-
r.ýðsflokkurinn lilaut 78 þingsæti
af 150 — einu fleira en áður og
|ók atkvæðafylgi sitt úr 816 þús.
Uipp í 848 þús. rúmlega,
Fylgishrun kommúnista varð
lafnvel enn meira en búizt hafði
verið við (yfir 33%) og hafa þeir
ínú aðeins einn fulltrúa á þingi,
en höfðu áður 3.
Þlngsætafjöldi annarra flokka:
Bændaflokkurinn 15 (14), Hægri-
flokkurinn 29 (27), Kristilegi-
þjóðfl. 12 (14), Vinstrifl. 15 (15).
Verkalýðsflokkurinn hlaut
48,2% atkvæða, jók fylgi sitt um
3,6%, en fylgi Bændafl. jókst um
9.4%. Hægrifl um 0,7%, en fylgi
kommúnista, Kristil.þjóðfl. og
Vinstrifl. minnkaði, en kommún-
ista langsamlega mest sem að
ofan getur.
Ökeypis ljósastillingum, sem
tryggingarfélög og félag bifreiða
eigenda gengust fyrir í sambandi
við lunferðarvikurnar, er nú lok-
ið og voru alls skoðaðar 2726
bifreiðir.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá fóru ljósastillingarnar fram
á 10 bifreiðaverkstæðum hér í
bænum og var stöðug aðsókn
þann tíma, sem þær stóðu yfir.
Af áðurnefndum fjölda bif-
reiða, sem skoðaðar voru, reynd-
ust aðeins 412 eða 15,1% hafa
rétt stillt Ijós, þegar þær komu
til athugunar, og er sú staðreynd
athyglisverð og vissulega til á-
minningar fyrir aðra bifreiðaeig-
endur um að láta huga að Ijós-
um bifreiða sinna.
Á verkstæðunum voru stillt
Ijós 1726 bifreiða, en 588 reynd-
ust þurfa umfangsmeiri viðgerð
en unnt var að framkvæma
á staðnum án þess að almenn
stilling íeíðist verulega. Var eig-
endum þeirra bifreiða því gerð
grein fyrir i hverju ímuðsynleg
Fíatbíllinn koin á
númer 246.
morgun i
Berkla-
Dregið var í
merkjahappdrætti
varnadagsius.
Dregið var urn Fiatbifreið,
gerð 1957, Vinningurinn kom á
nr. 246,
viðgerð yrði fólgin og og þeir
hvattir til að Ijúka henni fljótt.
Forráðamenn umferðarmál-
anna eru mjög ánægðir með það,
hve margir bifreiðaeigendur
komu með bifreiðir sinar til skoð
unar og telja niðurstöðurnar
iiafa sýnt fram á, að þessum
þætti umferðaröryggisins þurfi
að gefa enn meiri gaum en gert
hefur verið. Hyggja þeir á ýms-
ar ráðstafanir í því sambandi.
Á morgun kemur hingað til
lands í boði guðfræðideildar Ilá-
skóla íslands, prófessor dr. theol.
Hai Kocli frá Kaupmannahöfn.
Dr. Koch var skipaður prð-
fessor í kirkjusögu við Kaup-
mannahafnarháskóla árið 1937,
en hafði lokið doktorsprófi 1932
með vörn ritgerðar um Origen-
es kirkjuföður. Hefur hann gefið
út ýmsis rit kirkjusögulegs efn-
is, aðallega úr danskri kirkju-
sögu, auk fjölda ritgerða. Kvænt-
ur er hann Bodil Ivoch, sem
einnig er guðfræðingur að
mennt og nú kirkjumálaráð-
herra Dana.
Hér mun dr. Koch væntanlega
flytja þrjá opinbera fyrirlestra,
einn um Konstantínus mikla
mánudaginn 14. þ.m. kl. 10 f.h.,
og tvo um kirkjuna í veraldlegu
umhverfi nútímans miðvikudag-
inn 16. og föstudaginn 18. þ.m.
kl. 10 f. h. Öllum er heimill að-
gangur að fyrirlesturum þess-
um,
Þann 20 þ. m. kemur hingað
prófessor dr. theol. Bent Noack
á vegum lútherskra heimssam-
bandsins. Hann varði doktorsrit-
gerð sina við Árósaháskóla 1948,
en var skipaður prófessor í Nýja
testamentisfræðum við Kaup-
mannahafnarháskóla 1955. Hann
mun dveljast hér á landi til 3.
des. næstkomandi; og starfa sera
sendikennari við guðfræðideild
Háskóla íslands.
„Góðar fréttir“ að
pundið hækkar.
. Thomycoft fjármálaráðherra
Bretlands sagði í gær, að það
væri „góðar fréttir", að staða
sterlimgspunds væri að eflast.
En hann bætti því við, að fram
undan væri barátta, sem yrði
löng, að koma peninga og efna-
hags- og atvinnumálum á örugg-
an grundvöll. Það verður erfið-
ara að fá fé til framkvæmda
sagði hann og það verður til-
gangslaust að halda áfram að
krefjast æ hærra kaups. Allir
jtöu að leggja hart að sér, en
allir myndu liagnast á því, að
lokum.
Pal Beakö tefSir fjölteflí vi5
50 naaos annað kvöld.
Sdðœsta, ffjjöltefli hatas hér d höffa&">
staömman aö pessu siwani.
Pal Benkö, alþjóðlegi skák-
nieistarinn frá Ungverjalandi, er
dvalið liefur hér á landi sem póli-
tískm’ flóttaimaður siðan heims-
meistaramótí stúdenta í skák
lauk siðast 5 júií, er nú senn á
förum til Bandaríkjanna, þar
sem hann liyggst setjast að.
Benkö hefur sem kunnugt er
tekið þátt í skákmótum hér með
góðum árangri, varð efstur á
skákmótinu íHafnarfirði um dag
inn og annar á stórmóti Taflfé-
lags Reykjavíkur. Auk þess hef-
ur hann teflt f jöltefli með glæsi-
legum árangri bæðl norðanlands
og sunnaa,
Annað kvöld verður efnt til
fjölteflis í Silfurtunglinu við
Snorrabraut og mun Benkö tefla
þar við allt að 50 manns. Verður
þetta væntanlega síðasta tæki-
færi skákáhugamanna hér í höf-
uðstaðnum til að þreyta kapp við
hinn ungverska snilling, því eng-
ar líkur eru á að fjöltefli hans í
Reykjavík verði fleiri að þessu
sinni. Hins vegar mun í ráði að
hann skreppi til Selfoss og tefli
þar um næstu helgi.
Fjölteflið annað kvöld hefst kl.
8 og eru þeir, sem vilja tefla við
Benkö, beðnir um að taka töfl
með sér.