Vísir - 15.10.1957, Síða 5

Vísir - 15.10.1957, Síða 5
Sextán ára skóla- stúlka er sjálf látin segja sögu sina þrem árum seinna. Metsölubók i Dan- mörku og keppzt um að fá þýðingar af henni til útgáfu. Kvikmynd gerð eftir sögunni sýnd við látlausa aðsókn vik- um saman í Kaup- mannahöfn og viðar á Norðurlöndum. Mimtrtsmmma :5!SmiSSS£ &riðjudaginn 15. október. 1957 TlSIS Nýstárleg veiöistöö fyr- irhuguð í Skarðsvík. Það er fyrirdráttur með sterkum aflvélum í landi. Ámmsaman og raunar allt til jþess tima að dragnótaveiðar voru bannaðar með öllu i Lslenzkri landhelgi, var mikið veitt. af flat- ffiski á grunnmiðiínum umhverf- Is landið. Flatfiskurinn og þá sér- staklega skarkolmn er verðmeiri en annar sjávarfiskur og var því tek,julind fyrir sjómenn og skil- aði miklum gjaldeyri, auk þess sem fjöldi fólks í sjávarþorpum kringum landið hafði af því góð- ar tekjur að verka kolann til út- flutnings. í>að olli mikili röskun á af- komu fjölda sjómanna þegar dragnótaveiðar voru bannaðar. Dragnótaveiððar voru stundaðar á litlum vélbátum, sem margir hverjir voru ekki taldir lengur hæfir til sjósóknar á vetrarver- tið, en of litlir til síldveiða á sumrin, og hefðu þess vegna beð- ið rotnunar í fjörunni, ef drag- r.ótin hefði ekki komið til skjal- ánna. . Dragnótaveiðar, eins og þær fiðkuðust, verða ekki teknar upp áð nýju vegna ráðandi viðhorfs S landhelgismálum og þá sérstak- lega með tilliti til verndunar fiski miðanna. Skarkolinn liggur því S friði i þéttum breiðum á grunn- miðum og tugmilljóna verðmæti, sem liggur svo til við fætur manna er látið ósnert. Á Skarðsvík á Snæfellsnesi vaf i fyrra hafin veiði með fyrir-. drætti úr landi. Samkvæmt lands- lögum eru slikar veiðar heimilar. Þarna er ef til vill vísir að veiði- aðferð, sem koma skal. . Vísir snéri sér til Þorláks Jóns- sonar, sem unnið hefur að því að koma uþp í Skarðsvik veiðistöð sem er alveg sérstök sinnar teg- undar hér á landi. Eg hef heyrt að þú hefir á prjónunum all nýstárlegar út- gerðarframkvæmdir á Snæfells- rtesi. Leyfist mér i þvi tilefni að leggja fyrlr þið nokkrar spurn- íngar? Það er velkomið. Hefur þú látið útgerðarmál til þin taka um dagana? Ekki svo orð sé á gerandi. En ég hef jafnan haft mikinn á- huga fyrir þeim málum. Hvað kom til að þú fékkst áhuga fyrir veiðum við Snæfells- nes? - Skapti Sigurðsson útgm. frá Hrísey og siðar Siglufirði var fyrstur manna til þess að fræða mig um Skarðsvik. Þá Ingvar Pálmason skipstjóri. Síðar ýms- ír sjómenn. Mér héldu þá engin bönd og iór ég vestur til þess að sjá þetta með eigin augum. Siðan hef ég ekki getað gleymt Skarðs- vik og umhverfi hennár og geri aldrei. — Við Skapti fengum svo veiðirétt fyrir landi jarðarinnar Öndverðarnes, en þar er Skarðs- vík nyrzt og vestast á Nesinu. Hvað er það svo, sem þú 'Villt aðhafast þarna? - - - Mig langar til að koma upp veiðistöð við Skarðsvik í sam- ræmi við nýja timann. Rauðspettn, ýsan og þorsk- vrinn vaða þarna irni I torfum mrkinn hluta árs ýmist til skipt- is eða þá allt í eínum graut. Þetta er engin uppgötvun frá mimii hendi. Allir sjómenn við Breiðafjörð vita um hina fá- dæma fiskisæld víkurinnar. Hugmyndin er að draga fyrir þennan fisk með vélaafli frá landi í stað handaflsins áður. Það verður of langt mál, og ef til vill of snemmt, að tala um tilhögun og gerð þessarar stöðv- ar og netá. Ég er sannfærður um að aflvélin muni njóta sin þarna eigi síður en á öðrum sviðum. — — Veizt þú til þess að fyrir- dráttur með aflvélum sé stund- aður annars staðar? — Já — ég hefi sannfrétt að Rússar v;eiði á þennan hátt við Kaspiaháf og Svartahaf. Tyrk- inn er einnig sagður hafa tekið upp veiðiaðferð Rússa. — Er bygging þessarar væiði- stöðvar á Skarðsvík hafin? — Nei — til þess skortir mig f jármagn ennþá — og tryggingu fyrir því að veiðiaðferð þessi hafi lögvernd. Hinsvegar hefur nokkurskon- ar tilraunastöð verið komið upp þarna, fyrst og fremst til þess að afla ýmiskonar reynslu. — Sveinbjörn Finnsson hagfræð- ingur, félagi minn við þessar að- gerðir, hafði á hendi allar fram- kvæmdir í fyrrasumar. — Sú reynsla, sem þá fékkst, er raun- ar það eina sem fyrir liggur. Að minu viti hefur það þegar sýnt sig að hér er ekki um hugarburð að ræða heldur stór- virkt veiðitæki á réttum stað. — — Var þá ekki haldið áfram í sumar? Það var nú sannarlega ætlun- in. M/b. Björn frá Rifi var ráðið til veiðanna. — En strax á byrjunarstigi, og áður en hin eiginlega veiði hófst með land vélunum, og áður en ég komst vestur, stöðvaði landhelgisgæzl- an veiðarnar. — — Er þér kunnugt um rök- semdir fyrir þvi? — Að nokkru, en ég er ófús að ræða þær nú og hér. — Er það rétt, sem heyrzt hef- ur, að landhelgisgæslan sé þeirr- ar skoðunar að ekki megi kasta dráttarneti lengra frá landi en 60 faðma? — — Já — annars hefðum við ekki orðið stöðvaðir, — Það er lika vissulega sjónar- mið, sem ber að meta og virða fyrir sér, þótt þvi gæti verið hnekkt. Hins vegar eru þess víst engin dæmi á þessu landi að nokkur maður hafi nokkru sinni kastað neti sínu skemmra frá landi en hann gat og vildi, ef hann taldi það vænlegra til fanga. —- Þess ber og mjög að minnast að ákvæðin um 60 faðma lands- réttindin eru mjög gömul, — og er að finna í Grágás ef ég man rétt. En þá var ekki um neina fiskifriðun að ræða eða landhelgi í nútíma skilningi. — Það má því vera hverjum manni Ijóst að þessi ákvæði eru ekki sett til að takmarka athafn- ir manna við fyrirdrátt, heldur af alt öðrum ástæðum. — Mér er nær að halda að þarna kæmi nú fram — vissulega óaf- vitandi — oftrúin á bannið. — Ekki af illvilja, fremur af skyldu rækni. Ekki af víðsýni, fremur af skammsýni. — Máske er eitt- livert samband milli þess og þviliks, og þess að skortur er á nýjum fiski i Reykjavík og raunar öllu Suðvesturlandi. Öðruvisi mér áður brá. Ennþá sjást, sitt hvorumegin við Hellissand, víkur tvær. Krossavik og Keflavik. Vegna eðliskosta og þess að þá var ekki bannað að veiða áður fyrr héldu þessar litlu víkur lífinu í fjölda landsmanna um langan aldur. En á Hellissandi, alveg eins og í Reykjavík, er nýr fisk- ur að verða hrein munaðar- vara. — Þótt ég viti vel að ég fæ litlu eða máske engu til leiðar komið á minni Skarðsvík í bili er ég bjartsýnn á ástand og horfur. Þegar ofstjórnin er orðin nógu þreytandi hverfum við aftur til eðlis vors og einfaldleika, og verðum guðs lifandi fegin að fá að verða manneskjur að nýju. — — Tapaðir þú ekki stórfé á þ.vi að verða stöðvaður svona á byrjunarstigi í sumar? •— Ég á um nokkuð sárt að binda. En ég vil reyna að skilja og meta þá embættismenn, sem af heilum huga vilja halda uppi réttum lögum og reglum í land- inu, þótt þeim kunni að yfir- sjást einhverntima, eins og öðr- um dauðlegum mönnum. ~ — Var það ekki leigubáturinn þinn, mb. Björn, sem var tekinn að veiðum í landhelgi á Skarðs- vík í sumar? — Rétt er það, en sú veiðiför var mér óviðkomandi. — Hvað liggur þér mest á hjarta eins og nú standa sakir á Skarðsvik? ■— Að fá úr þvi skorið, tví- mælalaust, hver réttarstaðan er til veiðimanna, og liafa þá til- trú fjárveitingavalds og sjó- manna að veiðistöð þessi geti orðið í-aunveruleiki til gagns og gleði, en ekki draumsjón ein. —' Fyrsti skemmtifundur F. í. á haustinu. Fyrsta kvöldvaka Ferðafé- lags fslands á þessu hausti verð- ur n. k. föstndagskvöld í Sjálf- stæðishúsinu. Þar flytur dr. Sigurður Þór- ai'insson erindi um Rinarlönd og segir jafnframt frá ýmsu fleiru, sem fyrir augu hans bar í Þýzka- landi, en þangað var hann boð- inn til fyrirlestra halds s. 1. vor. Með erindi sínu sýnir dr. Sigurð- ur litskuggamyndir. Að loknu erindi dr. Sigurðar verður myndagetraun, þar sem áhorfendum gefst kostur á að reyna kunnáttu sína í landa- fræði og eru verðlaun veitt fyrir réttar ráðningar. Á eftir verður stiginn dans til kl., e. m. Kvöldvökur Ferðafélagsins hafa frá öndverðu átt miklum vinsældum að fagna meðal Reyk- víkinga og oftast komizt færri að en vildu. Um fyrirlesara kvöldvökunnar að þessu sinni-er það að segja að dr. Sigurður hef- ur jafnan þótt í röð gáfuðustu og snjöllustu fyrirlesara höfuðstað- ai'ins og kryddar oft erindi sín með skemmtilegum athugasemd- FORELDRAR: Raunhæfasta líftrygging barna yðar: Kuldaúlpan með VSD? geislanum M.s. „Gullfoss" fer frá Reykjavík í kvöld. kl. 8 f til Thórshavn, Hamborgar og Kaupmannahafnar. Farþegar eru beðnir að koma trl skips kl. 7. H.f. Elmskipafélag klmús

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.