Vísir - 09.12.1957, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir or annað
iestrarefni heim — án fyrirhafnar af'
yðar hálfu.
Sími 1-1G-60.
VfiSIR
Mánudaginn 9. desember 1957
Munið, að þeif, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sírni 1-16-60.
íóru á bílum til Austur-
lands í desember.
Það mun einsdæmi, að ekið sé yfir
Möðrudalsfjallgarða á jólaföstu.
Það mun nær einsdæmi að
bifreiðum sé ekið um J.btta
leyti árs yfir Möðrudalsöræfi,
en fyrir nokkrum dögum fóru
tveir menn á vegum flugmála-
stjórnarinnar með bíl austnr til
Egilsstaða. Voru það þeir Guð-
niundur Guðmundsson"'og fé-
lagi hans Kristján Kri&tófers-
Eon.
Tveir aðrir bílar fóru sömu
leið 4. desember. Lögðu þeir
þá af stað frá Möðrudal,
þar sem þeir urðu að bíða
eftir nýjum öxli í annan bíl-
jnn, sem bilað hafði í átökum
.við ófærðina.
Bílarnir eru frá verkstæð-
inu Segull h.f. í Reykjavík og
eru þrír af starfsmönnum fyr-
irtækisins með þá, þeir .Tón
Frímannsson, Þorkell Hjálm-
arsson og Páll Jóhannesson.
'Annað er verkstæðisbíll, yfir-
byggður Vibon og rútubíll. All-
mikil áhætta er að leggja bíl-
ana í þessa ferð, en nauðsyn-
legt er að koma þeim austur á
land áður en leiðin lokast al-
veg. Segull h.f. hefur tekið að
sér raflögn í sveitabæi á orku-
svæði Grímsár og þarf því
verki að vera lokið fyrir voi'ið,
þegar gert er ráð fyrir að stöð-
in verði tekin í notkun. Er raf-
virkjunum því nauðsyn að hafa
bílana. Það eru um 30 bæir
alls, sem Segull hefur tekið að
sér að ganga frá raflögn í.
Á þessum tíma árs bera ör-
æfin ekki þann svip sem sum-
arferðalangar kannast við. Veg
Srnir eru víða horfnir undir
fönn og allt líf virðist þurrk-
að út. Jafnvel harðgerðir fjalla
refir leita til byggða í leit að
æti. Og þrátt fyrir nútíma
tækni í baráttunni við náttúru
öflin, stendur ferðamanninum
í dag ógn af öræfunum í vetr-
arham, rétt eins og var fyrir
hundrað árum, jafnvel svo að
hraustur bóndasonur treystir
sér ekki að fylgja laglegri
vinnukonu milli bæja og er þá
mikið sagt.
Vísir innti Guðmund Guð-
JéB&skreyfingair
á Akicreyri.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Akureyri hefur nú Idæðzt jóla-
búningi, svo sem hún hefur jafn
an gert um þetta leyti á undan-
förnum árum.
Flestar verzlanir og stærri
fyrirtæki skreyttu sýningar-
giugga sína nú um helgina og
tvö fyrirtæki — annarra en KEA
komu einnig upp götuskreyting-
um með stórum bjöllum og jóla-
stjömum.
1 gær var margmenni á aðal-
götum bæjarins að skoða í sýn-
ingargluggana, enda veður hið
fegursta en nokkuð kalt.
mundsson frétta úr ferðalai
inu, sem í upphafi virt'ist harla
ævintýralegt. Akureyringar
hlógu að okkur og kölluðu það
barnaskap að leggja í slíka
ferð, en við héldum samt áfram
sagði Guðmundur, og gekk ferð
in vel þangað til við áttur eftir
ófarna 5 km að brúnni á Jök-
ulsá. Þá bilaði bíllinn og urðum
við að bíða í honum um nótt-j
ina. Alþýðublaðið taldi okkur|
af. Veður var gott en um 5;
stiga frost. Urðum við að snúa!
við til Akureyrar og þegar
gert hafði verið við bílinn, lögð
um við af stað aftur og nú gekk
betur, og komumst við viðstöðu-
laust að Grímsstöðum, en þá
var erfiðasti áfanginn eftir.
Frá Grímsstöðum lögðum við
af stað kl.7 að morgni og vorum
komnir í Möðrudal kl. 11 f. h. og
lögðum af stað upp á Möðrudals
fjallgarð og höfðum nú bæði
fylgdarmann, VilhjáJm bónda í
Möðrudal og stúlku úr Víðidal,
sem var að fara í vist niður á
Jökuldal, en hún hafð'i lengi
beðið ferðar yfir fjöllin.
Ógerningur var að fara eftir
veginum og þræddum við því
hryggi og auða bletti upp fjall
ið, eftir leiðsögn Vilhjálms.
Gekk ferðin sæm'ilega þangað
til vélin fór að hita sig. Kom þá
í ljós, að trissan fyrir viftu-
reimina hafði týnzt. Farið var
að rökkva og útlitið ekk’i
glæsílegt ef trissan skyldi ekki
finnast. En eftir nokkra leit
fundum við hana. Eftir þetta
var trissan alltaf að týnast og
tafði það ferð okkar, en til Eg-
'ilsstaða liomumst við með bíl-
inn. Þar verður hann notaður til
að ýta snjó af flugvellinum, ef
með þarf.
— Sáuð þið rjúpu eða refi?
— Engan ref, en ég skaut
fjórar rjúpur.
— Var mikill snjór á leið-
inni
— Ekki svo mjög, það hafði
hlánað og snjór'inn var meira
en jörðin harðfrosin undir, svo
Ihægt var að aka hvar sem var.
Bíffært austur
Snjóþæfingur er á vegum á
láglendi austanf jalls, en í upp-
sveitum er nærri autt.
Hvergi er það mikill snjór
á leiðinni að austan, að sé til
verulegs trafala fyr'ir bifreiðar.
í Kömbum var erfitt á kafla, en
það er eini staðurinn á allri leið-
inni yfir fjalJið, sem færð var
erfið. Á fjallinu sjálfu var
sæmilega greiðfært og fremur
lít'ill snjór, sem virtist fara
minnkandi er komið var niður
fyrir Kolviðarhól.
Flokkaglíman
háð í gær.
Flokkaglíma Reykjavíkur var
háð að Ilálogalandi í gær.
Keppt var í tveim þyngdar-
flokkum fullorðinna og drengja
flokki, og voru' keppendur alls
12 að tölu. Fjórtán höfðu verið
skráðir, en tveir forfölluðust
sökum veikinda.
Formaður íþróttabandalags
Reykjavíkur, Gísli Halldórsson,
setti mótið, en að því búnu hófst
glíman.
Úrslit í 1. flokki urðu þau, að
Ármann J. Lárusson bar sigur
úr býtum, hlaut 2 vinninga, og
næstur honum Kristján Heimir
bróðir hans, með 1 vinning.
í 2. flokki sigraði Hilmar
Bjarnason með 3 vinningum og
næstur varð Ólafur Bjarnason,
hlaut 2 vinninga. Allir framan-
taldir keppendur voru frá Ung-
mennafélagi Reykjavíkur.
í drengjaflokki var þátttakan
bezt, eða 5 talsins. Sigurvegari
varð Kristján Grétar Tryggva-
son, Á., með 4 vinninga, næstur
varð Guðmundur G. Þórarins-
son, Umf.R., með 3 vinninga og
þriðji Sigurjón Kristjánsson, Á.,
er hlaut 2 vinninga.
Að glímunni lokinni afhenti
Hermann Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Í.S.Í. verðlaunin.
14.000 kr.
stolið í nótt.
í nótt var brotizt inn í Verzl-
un Silla og Valda í Aðalstræti
og stoíið þaðan 14 þúsund krón-
urn í peningum.
Höfðu peningarnir verið
skildir eftir í skrifstofuoni inn
af verzluninni á laugardags-
kvöldið, en í nótt var brotizt
þar inn og peningarnir hirtir.
Ekki varð séð; að neinu hafi ver-
iið stolið af vörum.
Ölóður maður á ofsahraða.
Seint í nótt var bifreið ekið
með ofsahraða niður allan
Laugaveg, en ferðinni lyktaði á
gangstéttarbrúninni við Vestur-
ver og þar stórskemmdist bíll-
inn.
Lögreglumenn komu strax á
vettvang og náðu ökumannin-
um, sem brást hinn versti við
afskipti lögreglunnar. Varð hún
að beita manninn valdi, en hann
var hinn ódælasti, æstur mjög
og barðist um á hæl og hnakka.
Hann var flutur í fangageymslu
lögreglunnar.
Annar ölvaður ökumaður ók
bíl sínum út af Reykjanesbraut
aðfaranótt laugardagsins, en
náðist. Sömu nótt voru tveir
aðrir ölvaðir menn teknir í bíl
og fluttir í fangageymslu lög-
reglunnar.
'fc Fregn frá Rio de Janerio
hermir, að 7 verkamenn
bafi beðið bana af völdum
jarðlmins, er orsakaðist af
dynamitsprengingu.
Húsbriiiii á Þvervegs s gær.
Vatiisskortur torveldaði Slökkvi-
starfið.
SíðdegLs í gær varo mikill elds
voði að Þvervegl 28 hér í bænum.
Laust fyrir klukkan sex í gær-
kvöldi var slökkviliðið, kvatt á
vettvang vegna elds í timburhúsi
á Þvervegi 28, en það er stórt
einnar hæðar* timburhús með risi
og kjallara og bjuggu 11 manns
í þvi, bæði í kjallara, á hæðinni
og í risinu.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang var eldurinn talsvert magn-
aður orðinn, en slökkvistarfið
gekk seint og illa sökum vatns-
skorts. Var slökkviliðið á Reykja
víkurvelli einnig kvatt á vett-
vang, en samt tókst ekki að kæfa
eldinn fyrr en rishæðin var að
mestu leyti hrunin og gerónýt,
en hæðin mikið skemmd.
Að því er talið var, mun litlu
hafa verið bjargað af innan-
stokksmunum og heildartjónið
mikið.
Líklegt þykir að kviknað hafi
í húsinu út frá rafmagni og varð
eldsins fyrst vart i námunda
við ljósastæði á aðalhæðinni.
Eigendur hússins eru aðallega
Steinn Björnsson og fleiri.
1 moi'gun fór siökkviliðið að
seglasaumastofunni Ægi á Ægis
götu 1. Þar var þó ekki um elds-
voða að ræða, heldur um reyk,
sem mundazt hafði út frá olíu-
ofni.
Um helgina var slökkviliðið
kvatt nokkrum sinnum út vegna
þess að strákar höfðu safnað
saman rusli á ýmsum stöðum og
siðan kveikt í.
Aíísherjarverkfail á Kýpur, er
Sþ. hefja umræ&ur um eyna.
EOKA, Ieynfélag hermdar-
verkamanna á Kýpur, fyrir-
skipaði í gær allsherjarverk-
fall, er standa skyldi sólar-
hring, og átti það að Jhefjast
á miðnætti s.l.
Tilgangurinn var að leiða at-
hygli að baráttunni fyrir sjálf-
stæði Kýpur um leið og umræða
hefst á allsherjarþinginu um
Kýpurmálið.
Sir Hugh Foot, hinn nýi
landstjóri á eynni, flutti út-
varpsræðu í gær og bað menn
gæta stiljingar. Hann. kvaðst
hafa farið um alla eyna og tal-
að við menn af öllum stéttum
og hvarvetna mætt vinsemd og
alúð og hann væri ekki í vafa
um, að fólkið vildi friðsam-
lega lausn málanna, en á hinn
bóginn rikti svo mikill ótti í
hugum þess við EOKA og tor-
tryggni væri ríkjandi milli
Gi'ikkja og Tyrkja á eynni. All
an ótta og tortryggni yrði að
uppræta og væri þá von um
friðsamlegt samkomulag.
Fyrir allsherjarþinginu ligg-
Sprengfngar í sketfæra-
bírgðum í iandung.
Fregnir frá Jakarta herma,
að miklar sprengingar hafi orð-
ið í skotfærabirgðuni í Ban-
dung.
Varð hver sprengingin af
annarri í samfleytt 3 klst. Tjón
mun hafa orðið mikið, en nán-
ari fregnir um það eru enn
ekki fyrir hendi.
í Bandung er mikill fjöldi
Holler.dinga og hefur fólkið
verið æst mjög upp gegn þeim
í seinni tíð, eða síðan er stjórn-
in í Jakarta hóf hefndaraðgerð-
ir gagnvart Hollendingur út af
því, að ekki er sinnt kröfum
hennar varðand'i vesturhluta
Nýju Guineu, þar sem Hollend-
ingar ráða.
ur aðeins ein ályktunartillagæ
— frá Grikkjum. Averov utan-
ríkisráðherra Grikklands fylg-
'ir henrii úr hlaði.
Póiverjar heimta
freísi.
Pólskir rithöfundar á þingi í
Poznan hafa samöykkt ályktun
um fullt frelsi rithöfundum til
handa.
Ályktunin var send Gomulka
og lögð áherzla á, að virt væri
ritfrelsi rithöfunda og það í
engu skert, né nein réttindi
þeirra.
Kennan gagnrýnir
Yesturveldin.
Kennan, fyrrverandi banda-
rískur sendiherra í Moskvu
flutti erindi í brezka útvarpið
í gærkvöldi, og gagnrýndi
stefnu vestrænna bjúða vagn-
vart nálægum Austurlöndum.
Hanri kvað þær hafa átt að
sýna þjóðunum þar eystra og
Rússum líka, að þær gætu kom-
izt af án olíunnar í nálægum
Austurlöndum, en í stað þess
hefði verið mikill asi á mönn-
um að koma aftúr í gang um-
ferð um Súezskurð, eins og allt
væri undir samgöngum um
hann komið. í raun og veru
væri skurðurinn það alls ekki
— og hér hefði átt að fara aðr-
ar leiðir, og sýna þessum þjóð-
um öllum, að líf, velferð og
öryggi vestrænna þjóða væri
ekki undir olíu þeirra komin.
Útflutnings- og innflutn-
ingsbankinn í Washington
hefir lánað Spáni 8 millj.
dollara.