Vísir - 19.12.1957, Blaðsíða 3

Vísir - 19.12.1957, Blaðsíða 3
VÍSIB Fimmtudaginn 19. desember 1957 JÖLA- NORÐRA Mesta stórvirki einstaks manns á þessari öld! Skriðuföll og snjóflóð I—II eítir Ölaí Jónsson. Eí skrifa ætti rækilega um bókina, þyrftu það að gera sérfróðir, menn á ýmsum sviðum. Skriðuföll og snjóflóð inn á livert heimili. i Einar E. Sæmundsen: Sleipnir Saga um hest og eigendur hans væri réttnefni á þessari bók. Hestar eiga sinn lífsferil og sín ör- lög engu síður en menn. Einar E. Sæmundsen var mikill hesta- maður, mannþekkjari og skáld. Þess vegna hefur honum tekizt að rita þessa áhrifamiklu og sannfróðu skáldsögu um sambúð íslendinga við þarfasta þjón sinn í margar aldir, — hestinn. Sleipnir er sérstætt verk og fagurt í íslenzkum bókmenntum. f Merkasti skáldsagnaviðburður ársins er Sól á náttmálum eítir Guðmund Gíslason Hagalín. Sól á náttmálum fær afburðagóða dóma. Sól á náttmálum er bók eldri sem yngri kynslóða. Sól á náttmálum er áhrifamesta bók Hagalíns til þessa. Islenzk bygging Ritstjórn: Benedikt Gröndal Texti: Jónas Jónsson er fyrsta bók, sem gefin er út um íslenzka byggingar- Iist. Fjallar hún um ævi og starf Guðjóns Samúelssonar, sem í meira en aldarfjórðung var húsameistari ríkisins. Guðjón leiddi íslenzka byggingarlist inn í öld steinsteypunnar og fékk það stórbrotna tækifæri að teikna flestar fyrstu stórbyggingar, sem þjóðin hafði efni á að reisa. Hann teiknaði Reykjavíkur- apótek og Landsbankann í hinum hefðbundna stíl Evrópu, en Jeitaði síðan inn á nýjar brautir til að finna íslenzka húsagerð. Hann gerði tilraunir til að varðveita burstir gömlu torfbæjanna í varanlegu efni, og hann sótti fyrirmyndir að byggingum sínum og skreytingu þeirra beint í stuðlaberg og fjallstinda hinnar tignarlegu íslenzku náttúru. Guðjón Samúelsson var einn af mestu og sérstæðustu listamönnum þjóðarinnar. Hann skap- ' . aði fyrsta kaflann í íslenzka byggingarsögu á stein- steypuöldinni, kafla sem er þáttur í menning- í arsögu þjóðarinnar á þessari öld. 200 myndir og teikningar af íslenzkum húsum. Síðasta bindi stórmerks ritsafns — } Hrakningar og heiðavegir IV. Allir þurfa að eignast þetta bindi, sem ber augljóst merki ekki aðeins Pálma Hannessonar og Jóns Eyþórssonar, heldur og rit- snillinga í stéttum bænda og blaðamanna. Forspár og fyrirbæri Dulargáfur Kristinar Helgadóttur Kristjánsson eru Jandskunn- ar. Forspárhæfileikar hennar munu þó verða taldir einhverjir þeir mestu, sem heyrzt hefir getið um. Elínborg Lárusdóttir færði bókina í letur af sinni alkunnu smekkvísi. í kili skal kjörviður eftir Guðmund Gíslason Hagalín Æviminningar M. E. Jessens, vélskólastjóra, skráðar á hinn meistaralega hátt Guðmundar. Þetta er um leið lýsing og saga innreiðar vélaaldarinnar á íslandi. 1 kili skal kjörviður er kjörbók allra sjómanna og Reykvíkinga. Athugið að sumar bækurnar eru að verða uppseldar! NORÐRI Um Island til Andesþjóða eftir Erling Brunborg Fáir menn geta stært sig af því að liafa farið um frumskóga Amazonsvæðisins á fleka eða eintrjánungi, en nokkur liluti bók- arinnar fjallar um slíka för eftir þverám Amazon. Þetta er ein skemmtilegasta ferðabók, sem komið hefur út hér á landi. j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.