Vísir - 23.12.1957, Side 1

Vísir - 23.12.1957, Side 1
12 SSÐUR^ AUKABLM1 A 12 SIÐUR AUKABLAÐ 47. árg. Mánudaginn 23. desemjber 1957 300. tbl. Magnús Jónsson, Syðra-Hóll á /4. cld 'i ií*Vi U i •'Jí W.'Ji W.'Ji W'J Islenzkt fornbréfasafn er stórkostleg og stórmerkileg ruslakista. Þar ægir öllu sam- an, dómum, kaupbréfum, vitn- isburðum, samningum, kirkna- máldögum, kaupmálum og alls- konar gerningum um hin marg- víslegustu efni. Það er ótæmandi brunnur þeim, sem stunda vilja mann- fræði, menningar- og hagsögu miðalda vorra, ef ekki skortir elju og þolinmæði að leita, meta og rannsaka. Mörg eru þar sprekin aðgæzluverð, í því timburreki, sem þangað hefur verið dregið að landi af tímans stóra sjó eins og Fornólfur skáld orðaði það. Geipilegur grúi manna kemur þar við sögu og allur fjöldinn gersamlega ó- kunnur af öðrum heimildum. Margir koma aðeins einu sinni fyrir, nefndir svo sem af hend- ingu, eða teknir sem vottar að einhverjum gerningi. Á þeim verða engar reiður hentar að jafnaði. Fyrir stöku manni er nokkur grein gerð og aðrir koma sv<-> oft fyrir að nokkra vitneskju má um þá fá. Sú verður reyndin, ef vandlega er að hugað, að ótrúlega mikið má lesa til fróðleiks úr forn- bréfasafni um menn og sögu 14. og 15. aldar, þess tímabils, sem fátækast er að öðrum sögu- legum heimildum, og minnst er um vitað. Til þessa fróðleiks verður að grafa með kostgæfni og vakandi athygli. Oft kemur annað upp en búist var við. Gamlar og grónar kennisetn- ingar falla í rúst og reynast þjóðsaenir eða tilgátur einhvers sagnamanns fyrri tíma. Ný og óvænt sannindi um menn og sögu hinna myrku alda rísa upp er rótað er í hinum mikla haugi fornbréfasafnsins. Bréfin eru samtíma heimildir og oftast ó- véfengjanleg. Eitt er athyglis- verðast. Langflest bréfin eru eignarheimildir, kaupbréf, kaupmálar og þess háttar, er varða eignir manna. Heimildir er þær varða hafa verið geymdar og varðveittar af ein- stakri umönnun og vakandi að- gæzlu. Klerkur var fjár- málamaður. Einn af mestu virðingamönn- um í prestastétt norðan lands á síðari hluta 14. aldar var séra Þórður Þórðason á Höskulds- stöðum. Hann kemur mjög við skjöl og gerninga á fjórða tug ára, unz hann lézt í svarta dauða, sennilega snemma á ári 1403 og mun þá hafa verið roskinn maður, varla yngri en nokkuð á sjötugsaldri. Því nær öll sú vitneskja, sem um hann er hægt að fá er í þriðja bindi fombréfasafnsins, skjölum sem þar eru prentuð. Auk þess er hann lítillega nefndur í Flateyjarannál. Því nær allt, sem út úr skjöl- um má lesa um þennan fyrir- klerk kemur á einhvern hátt við fjármál og ýmiss konar kaup- skap. Oft er hann vottur að kaupsamningum og yfirlýsing- um um eignir, ítök og hlunn- indi. Sjálfur er hann mjög við verzlun riðinn og kaupir eink- 'r í ‘ y>< Höskuldsstaðir tum jarðir eða hefur jarðakaup. Hann sveimar mest um Húna- vatnsþing og Skagafjörð og kemst yfir jarðir í þeim héruð- um báðum. Um það er lauk var hann maður stórauðugur að löndum og lausum eyri. Jafn- framt því, sem Þórður prestur jókst að efnum fór hann vax- andi að vegtyllum og mann- virðingum og gekk föstum og öruggum skrefum upp þrepin til álits og valda, unz hann gekk hið næsta Hólabiskupi sjálfum um völd og virðingu. Er vafa- laust, að mikið hefur verið í manninn spunnið og honum fleira hent en auðsöfnun og fjárgæzla. Líklegt er að hann hafi verið göfugra manna og ættstór, borinn til efna og erfða, efalaust gáfaður maður og metnaðargjarn, ríklundaður og' skörungur í skapi. Óvíst um œttir klerks. Um ætt Þórðar prests og upp- runa eru nú ekki til neinar ó- yggjandi heimildir, en líkur nokkrar hefur Steinn Dofri ættfræðingur leitt að því í riti sínu Bútar úr ættarsögu íslend- inga á fyrri ölduni, að faðir hans hafi verið Þórður Loftsson Þórðarson á Völlum Andrésson- ar. Það er karlleggur Oddaverja. En móðir hans væri' Guðrún Illugadóttir á Geitaskarði í Langadal Gunnarssonar Klængs sonar, systir séra Þorsteins er kallaður var skarðssteinn. Ijln varla verður þessi ættfærsla sönnuð og verður að svo komnu að teljast getgáta, sem ekki er ósennileg. Alls óvíst er hvenær séra Þórður fæddist, en ætla má að það hafi verið nálægt 1330. Sama er að segja um vígsluár hans og hvenær hann varð prestur á Höskuldsstöðum. Hvort tveggja er ókunnugt. Ekki finnst hans getið í forn- bréfasafni fyrri en 11. sept. 1369. Þá er hann vottur ásamt tveim prestum öðrum og tveim leikmönnum að bi’éfi þar sern talin eru ítök, hlunnindi og landamerki Marðarnúps í Vatnsdal. Sú jörð varð síðar eign Arngríms Þórðarsonar, sem telja má víst að hafi verið sonur séra Þórðar. Efnamenn sóttust eftir jörðum. Um daga Þórðar prests sóct- ust efnamenn mjög eftir því að koma fé sínu í jarðir, því þær voru tryggastar eignir og arð- mestar. Landleiga var há, ekki lægri en svaraði tíu af hundr- aði í vexti af jarðarhundraði. Ekki verður um það sagt, hve margar jarðir séra Þórður átti um það lauk, en víst er, að þær voru ekki fáar. Kaupbréf hafa varðveizt fyrir jörðum er hann keypti á árunum 1384—1392,. eða eignaðist á annan hátt. Eft- ir þeim að dæma virðist hann einkum hafa keypt jarðir fyrir lausafé. Það var háttur efna- manna er gnægð höfðu af því og náðu þá oft góðum og hag- kvæmum kaupum. Þegar skyggnst er eftir, í fornbréfasafni, jarðakaupum séra Þórðar, vei’ður fyrst fyrir að 10. des. 1384 er hann kom- inn mjög Þórði presti. Þorgeir Brandsson, sem einnig er oft með séra Þórði og Þorkell Ól- afsson, sem lítt kemur við gerninga. Ekki er ólíklegt að það hafi þótt nokkrum tíðindum j sæta að slíkt höfuðból sem Geitaskarð, skyldi vera selt fyr- ir lausafé, allháu verði að vísu, því stóreignamenn og höfðingj- ar, eins og Bjarni Kolbeinsson hefur verið, létu að jafnaði ekki vildisjarðir af hendi, nema góö- ar fasteignir kæmu á móti. Og varla hefur Bjarna skort lausa- fé. Annars er fátt kunnugt am Bjarna þennan og Hallóttu Fálsdóttur móður hans, sem viðstödd var kaupsamninginn og samþykkti hann. Landamerki voru til greind. Næst er það, að 24. júlí 1387 er Þorgils nokkur Ólafsson og Þorgerður Grímsdóttir kona Hólar í Hjaltadal. inn að Auðkúlu í Svínadal og á þar kaup við Bjarna Kolbeins- son Benediktssonar ríka Kol- beinssonar Auðkýlings. Voru þessir langfeðgar allir auðmenn og miklir fyrir sér og áttu Auð- kúlu, er var þeirra höfuðból. Skyldi greitt á þrem árum Bjarni seldi hér Þórði presti þrjá fjórðu hluta í Geitaskarði í Langadal og Buðlunganes allt fyrir hálfan sjötta tug hundraða og skyldi greiða í lausafé. Það var ákveðið með þessum fríðleika: Tuttugu kú- gildi, tuttugu hundruð í vað- málum, hálft hvort, vöru og hafnarvoðum, fimm hundruð í hrossum, fimm hundruð í grip- um og fimm hundruð í slátrum. Lúkist á þrem árum. Hvert hundrað, sem ekki lýkst á fyrsta ári standi með 12 álna leigu (það er 10% vextir). Vottar að þessu bréfi voru Andrés Finn- bogason prestur í Bólstaðarhlíð og. Bergsstöðum í Svartárdal, Þorsteinn Bergsson, er nit kemur við bréf á þessum árum og virðist hafa verið handgeng- hans komin að Höskuldsstöðum og selja þar Þórði presti eign- arjörð sína, Finnsstaði á Skaga- strönd, í viðurvist fimm votta, er allir voru leikmenn. Jarðar- verðið skyldi greitt í lausafé, fimmtán kúgildi, þriðjungaríé og fimmtán hundruð í vaðmál- um, skilmálar sömu og við Geitaskarðskaupin. Þegar talað er um þriðjungarfé er átt við það, að sinn þriðjungur kúgild- anna skyldi vera kýr, ásauðar og geldfjárkúgildi. En að fornu lagi jafngiltu sex ær loðnar og lembdar og tólf sauðir vetur- gamlir eða átta sauðir tvævetrir gallalausri mjólkandi kú. Að bréfalokum lýsa hjón þessi, Þorgils og Þorgerður að áður hefðu þau selt séra Þórði alla jörðina Þverá í Hallárdal og hann þeim, svo peninga fyrir greinda jörð lagt, sem þeim vel nægði. í kaupbréfinu eru ná- kvæmlega tilgreind Iandamerki Finnsstaða, svo og hvalskipti og ítak í Spákonuíell gegn skyldu. Harrastaðir er næsta jörð norðan við Finnsstaði. Það kom brátt í ljós að landamerki þau, sem talin voru í kaupbréfinu, reyndust ekki átölulaus milli

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.