Vísir - 23.12.1957, Side 5
Máirudaginn 23. desember 1957
VÍSÍR
Skarði á Skarðsströnd, er Eng-
lendingar drápu. Einar prestur
Hafliðason, sem. verið hefúr
lengi biskupsumboðsmaður og
önnur hönd Jóns skalla, einkum
er á leið ævi biskups, hefur efa-
laust ráðið miklu um stjórn
staðar og biskupsdæmis á Hól-
um. Hann hefur verið nákunn-
ugur Þórði presti á HöskUlds-
stöðum og líklega ráðið mestu
um það, að honum var falið það
vandasama og ábyrgðarmikla
starf að vera ráðsmaður stað-
arins og Hóladómkirkju (1385
eða fyrr). Til þess starfa voru
ekki valdir aðrir en fyrirklerk-
ar, reyndir að hagsýni og dugn-
aði, því verkefnið var umfangs-
mikið og margþætt og reyndi
mjög á hyggindi, þekkingu og
dugnað þess er með fór. Virðist
svo að jafnan hafi farið vel á
með þeim prestunum Einari' og
Þórði.
Nvr biskup á
Hólastað.
Tvö ár liðu frá því Jón biskup
skalli lézt til þess að nýr bisk'up
settist á Hólastað. Eigi var sá til
kjörinn af prestum Hólabisk-
upsdæmis eða öðrum Norð-
lendingum en vígður ög sendur
af páfanum í Róm. Biskup þessi
hét Pétur Níkulásson, talinn
danskur að ættemi. í fylgd með
honum var útlent þjónustulið,
vígðir menn og sveinar og er
talið með nöfnum í annálum
(Flateyjarannál). Einn prestur
íslenzkur er þár tilnefndur og
hét Jón Magnússon. Hann hefur
komist í kynni við biskup ýtra,
komið sér í mjúkinn hjá honum
og slegizt í för með honum til
íslands. Biskup braut skip sitt
fyrir sunnan land, allir menn
héldust, en fjárhlutur ekki. Reið
biskup norður að Hólum með
liði sínu og tók við embætti
,,og játuðu allir honum hlýðni
lærðir og leikir“ (Lögmanns-
annáll). Þess geta og annálar,
að séra Einar Hafiðason hafi
haldið officialisstarfi, og allri
sinni makt og var í mestum
kærleikum víð biskup. Hélt
séra Þórður Hólaráðum (Fiat-
eyjarannáll). Þess er getio að
heldur var fátt með biskupi
og séra Steinmóði Þorsteins-
syni. Hann var prestur á Gi;enj-
aðarstað, stórauðugur, höfðingi
og skörungur. Er liklegt að
hann hafi lítt lotið biskupi eða
knékropið honum en svo er áð
sjá, að vel hafi samist með þeim
er frá leið. Segja annálar að
biskup léti hann halda sínum
völdum og störfum. Pétur bisk-
up virðist hafa verið dugandi
maður og rækt vel embætti sitt.
Hann hélt skóla á Hólum og réði
til kennara og skólameistara,
Böðvar djákna, sem annars er
ókunnur maður. Hann visiter-
aði allar kirkjur í biskupsaæm-
inu oa skráði máldaga þeirra. I
þeim förum vígði hann Hösk-
uldsstáðakirkju, sem fyrr segir.
Dómkirkjan íýkur.
Dómkirkjan á Hólum var þá
um aldargömul og að iíkindum
tekin mjög að hrörna. Hún
fauk fjórða dag jóla 1394 og
braut Eilla niður i grunn. Biskup
lét þegar bj'ggja aðra kirkju.
Heíur hún verið * traustlega
byggð og sterkviðuð, því hún
Framh. á 8. síðu.