Vísir - 23.12.1957, Side 12
12
Vf SIR
Mánudaginn 23. desember 1957
fylgir og fylgt hefur að fornu
og nýju .... svo framt, sem
hún andaðist úr sótt er þá gekk
um landið“. Það er víst að
Þingeyjarklaustur átti Ytri-Ey
síðar og má því telja bréf þetta,
örugga heimild þess, að Valdís
hafi látist um veturinn og dk-
legt að ekki hafi orðið langt
milli hennar og séra Þórðar. En
þessi gjöf hennar er gefin tveim
dögum siðar en þau gerða upp
reikninga sína, hún og séia
Þórður „bóndi hennar“.
Bjöm Þórðarson
og Valdísar
í reikningsskaparbréfi þeina
Þórðar prests og Valdísar er
hún skýlaust kölluð barna-
móðir hans. Hafi þau átt börn
á lífi er ekki vafi á því að und-
ir þau bar arfinn eftir foreldra
sína. Nú er allt óvíst um börn
þeirra Þórðar prests og Valdís-
ar, hvað lifði af þeim og hver
þau voru. Verður þar helzt að
ráða af líkum og óljósum heim-
ildum í fornbréfasafni. Þó þykj-
ast ættfræðingar (Steinn Dofri
og fleiri) vissir um að minnsta
kosti þrjú börn séra Þórðar, sem
nefnd eru í fornum heimildum.
Arngrímur, Jón og Ingiríður.
Er líklegast að Valdís hafi verið
móðir þeirra.
Arngrímur Þórðarson bjó á
Marðarnúpi í Vatnsdal, auðug-
ur maður að löndum og lausafé
og efalaust mikils háttar. Hann
átti Steinunni dóttur Hrafns
lögmanns í Lönguhlíð (Skriðu)
Bótólfssonar hirðstjóra Andrés-
sonar. Arngrímur andaðist á
langaföstu árið 1392, segir
Flateyjarannáll, en skipti á
arfi eftir hann fóru fram á
heimili hans 5.—9. jan. 1393.
Á því bréfi sézt að Arngrímur
og Steinunn hafa átt þrjú börn
og efalaust ung þá, Hrafn, Ól-
öfu og Ingibjörgu. Við skiptin
er séra Þórður og tók til varð-
veizlu arf sonarbarna sinna.
En Steinunn ekkja Arngríms
lifði enn um hríð og giftist Þor-
grími Sölvasyni.
í annálum er stiklað nokkuð
á harmsögu hennar og hefur
dr. Jón Jóhannesson prófessor
fjallað um það mál rökvíslega
í útvarpserindi.
Jón Þórðarson var prestur,
fyrst norðanlands og þá m. a.
ráðsmaður á Reynistaðar-
klaustri, en síðar á Skarði á
Landi að því er talið hefur verið.
Ingiríður (Inga) Þórðardótt-
ir er talið að fylgt hafi Einari
presti Þorvarðssyni í Gríms-
tungu og á Holtastöðum. Hann
ættleiddi börn sín þrjú, Magn-
ús, Arngrím og Guðrúnu, 2. júní
1401 og má ætla að þau hafi þá
verið ung. Verður nú ekkert
fullyrt um þetta fólk.
Hvernig sem því hefur verið
varið um börn séra Þórðar eru I
mestar líkur fyrir því, að þau
hafi ekki lifað föður sinn. Því
svo virðist helzt að arfur eftir i
hann hafi fallið til útarfa. í
bréfinu frá 16. okt. 1409, sem
gert var á Þingeyrum og fyrr
hefu verið vitnað til um eignir
séra Þórðar segir svo:
„En Guðrúnu Særhundsdótt-
ur höfðu fallið í arf og til fullr-
ar fjórðungurinn í burt úr
öllum arfi þeim, sem féll eftir j
áðurgreindan Þórð prest, eftir
því, sem úrskurðarbréf Rafns
lögmanns Guðmundssonar þar
um gjört vottar.“
Guðrún þessi hefur verið tal-
QLbiLf jol! Alþýthibrauðgerðin h,f.
QUiLfjóM f -JJD Fiskbúðin Laxá, Grensásvegi 26.
jot! Kexverksmiðjan Frón h.f.
jótl
Kexveritsmiðjan Esja h.f.
Glíl, jitt f ■zÆJD Katla h.f.
(jteáit jót!
Verzlunin Þingiiolt — Kjötbúðin, Grundarstíg 2.
QtÁLf jót! Timburverzlunin Völundur.
QL&Lf jót! ,»*»», i L ; Verzlunin Drífandi, Samtúni 12.
QteÉitey jót! Efnalaug Vesturbæjar. Vesturgötu 53.
C'jleílley jót!
Islenzk-erlenda verzlunarfélagið,
Garðastræti 2
in bróðurdóttir Þórðar prests,
dóttir Sæmundar Þórðarsonar
verður séð, yfir landamærin
miklu. Eftir lá',,morð ljár“ er
á Skarði á Landi. Hún var gift þau höfðu af mikilli elju sam-
Jóni Ófeigssyni og bjuggu þau an dregið, en gátu ekki notið-
í Brautarholti á Kjalarnesi.
Hverjir þeir voru, aðrir erf-
ingjar Þórðar prests en Guðrún
Sæmundsdóttir, er hvergi greint
og skal ekki reynt að leiða
líkur þar að. Alls óvíst er einn-
ig hverjir erfðu Valdísi Helga-
dóttur, barnamóður séra Þórð-
ar.
Bæði féllu þau fyrir morð-
englinum mikla, svarta dauða,
líklega nærri' samtímis og
hverfa niðjalaus að því er bezt
lengur en lífið
heimi hér.
entist þeim í