Vísir - 30.05.1958, Page 11

Vísir - 30.05.1958, Page 11
j'ostudaginn 30. maí 1908 ' i£v VlSI B 11 Knattspyrna: KR. Reykjavíkurmelstarí. Valgerður Árnadóttir Hafstað. Vaigerðar Á. HafstaB. Málverkasýning Valgérðar Áraadóttur Hafstað var opnuð í gærkyöldi í Sýningarsalniun i vgeis opin írá kl. 1 til 77 e.h. Ingólfsstræti að viðstödduni fjölda gesta. Nokkrar myndir eru þegar seldar. Sýningin opnar kl. 1 í dag fyrir aðra gesti og er opin til kl. 10 i kvöld en verður fram iiPÍ •'/t'MViV* Pantaðar trjaplöntur verða að sækjast fyrir hádegi á laugardag á Grettisgötu 8. Skógræktarfélag Reykjavíkur. Skógrækt ríkisins. NÝKOMIÐ RÚÐÖGLER 3 m.m. og 4 m.m. Selt í heilum kössum. á BfYHJAVÍH SKRIFSTOFUSTÚLKA ÓSKAST Opinber stofnun óskar eftir að ráða skrifstofustúlku nú þegar. Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, óskast sendar afgreiðslu blaðsins merktar: „S/“ fyrir 1. júní n. k. I gærxvöldi fór fram úrslita- leikurinn í Reykjavíkurmóti meistaraflokks. Áttust þar við K.R. og Fram og lauk leiknum með sigri K.R. 2:1, sem tryggði sér þar með titilinn: „Bezta knattspyrnufélag Reykjavíkur : 1958“, í Margt manna var á vellinum, og er langt síðan jafnmargir áhorfendur hafa verið við- staddir leik milli tveggja reykviskra liða. Leikurinn var fjörugur og spennandi, en einkenndist nokkuð af taugaspenningi, eins og títt er um úrslitaleiki. Framarar gerðu fyrsta mark- ið, og var þar að verki Björgvin miðherji, sem skoraði með skalla eftir góða sendingu frá Skúla Nielsen. K.R.-ingar jöfn- uðu snemma í síðari hálfleik úr vítaspyrnu, sem Gunnar Guð- mannsson skoraði örugglega úr. Sigurmarkið skoraði svo Ellert Schram með glæsilegri koll- spyrnu í bláhornið. K.R.-ingar voru vel að sigr- inum komnir. Þeir börðust eins og ljón allan tímann, þrátt fyrir að þeir yrðu fyrir því óhappi, að tveir þeirra beztu manna yrðu óvirkir vegna meiðsla. Þórólfur Beck varð að yfirgefa leikvanginn í fyrri hálfleik, og Gunnar Guðmannsson meiddist í síðari hálfleik og gat lítið beitt sér eftir það. Framarar hafa mikla breidd í meistaraflokki; sagt er, að þeir geti stillt upp tveimur jafngóðum liðum. Liðið, sem þeir tefldu fram á móti K.R. var ekki það sterkasta, að mínu áliti. Maður saknaði Grétar Sig- urðssonar og Rúnars Guð- mannssonar. Beztu menn K.R. voru Gunn- ar Guðmannsson, sem var jafn- framt bezti maður vallarins, meðan hann gekk heill til skóg- ar, og Garðar Árnason fram- ^ vörður, sem lék af Iagni og viti allan tímann. Framliðið var nokkuð jafnt j með Henrik framvörð og Guð- I mund Óskarsson sem beztu menn. Karl Bergmann var einnig nokkuð drjúgur. Það má segja um K.R.-inga, að nú vænkist hagur Strympu. í fyrra voru þeir ekki nema Hársbreidd frá því að falla nið- ur í 2. deild, en nú skjóta þeir öllum knattspyrnuliðum höfuð- jborgarinnar aftur fyrir sig. Þetta má eflaust þakka því, að nú hafa þeir fengið Óla B. Jónsson aftur sem þjálfara. K.R. hlaut 8 stig í mótinu, skoraði 12 mörk gegn einu. Fram hlaut 6 stig, Valur 4, Vík- ingui' 1 og Þróttur 1. Dómari í leiknum var Ingi Eyvinds. Ó. H. H. Frakkland - Frh. af 1. siðu. átt neinn þátt i því, sem hers- höfðingjarnir í Alsir tóku sér fyrir hendur og ekki reynt að hafa þar áhrif á gang mála, og loks lýsir De Gaulle yfir, að hann taki þvi aðeins við völd- um, að hann fái meirihluta þings til stuðnings við sig og stjórn sína. Afstaða Rússa. Talsverða athygli vekur, að Voroshilov forseti Sovétríkj- anna notaði tækifærið í gær- kvöldi í móttöku í finnska sendiráðinu, til þess að láta í ljós álit sitt á De Gaulle. Ha'nn sagði, að hann hefði ástæðu til að ætla, áð meira illt en gott myndi af því leiða, fyrir Frakkand, ef De Gaulle tæki forustuna. En finnska frétta- stofan, sem birtir tilkynningu um þetta, segir hann hafi bætt við, að ef hann reyndist vinur Frakklajids yrði að fallast á hann. Kristinn 0. Guðmundsson hdl. Málflutningur — Innheimta — Samningsgerð Hafnarstræti 16. — Sími 13190. 2-3 duglega menn vantar strax til handfæraveiða á stóran og góðan bát. Uppl. í kvöld og annað kvöld í síma 50456 og í dag og á morgun í síma 1-1452. „Valdataka“. Meginfréttir allra brezkra blaða í morgun og ritstjórnar- greinar eru um Frakkland og horfurnar þar. Times segir, að svo hafi virst í gær, sem það gæti aðeins orðið nokkurra klukkustunda bið á því, að borgarastyrjöld brytist út í landinu, en er leið að kvöldi hafi jafnaðarmenn verið orðnir mjög hikandi, og þótt óvissa ríkti þá um afstöðu þeirra, hefðu líkurnar verið meiri fyr- ir, að þeir sættu sig við De Gaulle, þar sfem ágreiningurinn milli ílokkanna, sem De Gaulle- , telur orsök öngþveitisins, virt- ist ætla að leiða til hernaðar- legrar íhlutunar við forustu hershöfðingjanna í Alsír. —> Blað verkamanna Dailey Her- ald birtir ritstjórnargrein, sem. það nefnir „Valdataka“. Þar segir, að margir þeirra, sem hefðu átt að verja lýðræðið, hefðu gefist upp. Ennfremur segir þar, að ekki sé fordæmi fyrir því í sögunni, að ríkis- forseti hafi sent þjóðþingi slíka úrslitakosti sem Coty, en þeir hafi í fáum orðum verið: De Gaulle — 1 cða borgarastyrjöld. De Gaulle — eða eg biðst lausnar. Hótanirnar frá Alsír. Manchester Guardian segir, að þegar hótað var frá Alsír, að drepa sérhvern þann, sem vildi verja núverandi lýðræðis- fyrirkomulag, hafi Coty forseti beitt öllu áhrifavalda sínu til þess að fallist væri á, að De Gaulle tæki forustuna, og þann- ig væri tekin hinn betri kostur. af tveimur illum. -— Scotsman segir, að það muni ekki draga úr hættunni af borgarastyrjold, að De Gaulle taki við, heldur. auka hana. Eiturbikarinn. Daily Telegraph telur sig hafa ástæðu til að ætla, að sumir jafnaðarmenn a. m. k. vilji samfylkja með kommún- istum gegn De Gaulle — en til þessa hafi þeir alltaf neitað, að drekka úr þeim eiturbikar. — Afleiðingar slíkrar samfylking- ar yrðu geigvænlegar. Daily Mail telur hinsvegar, að De Gaulle geti látið sem kommún- istar séu ekki til, er hann geng- ur fyrir þjóðþingið. Enn sé von um, að friður haldist og nú ættu hvatningsorðin ekki leng- ur að vera Lifi De Gaulle, held- ur Lifi Frakkland. mm KSÍ-KRR-ÍBR Einn af stérleikjnm ársins cr á morgun, laugardag kl. 5,30 á Melavellinum. ík — Akraiies Bómari: Hannes Sigurðsson. — Línuverðir: Ingi Eyvinds og Halldór Sigurðsson. Verð aðgöngumiða: Síúka kr. 30,—, sæti kr. 20,—, stæði kr. 15,—, barnamiðar kr. 3,00. Sala aðgöngumiða hefst á laugardag. Athugið, að mótabækur K.R.R. fást í sælgætisturninum á íþróttavellinum, Bókabúð Blöndals, í Vesturveri og Bókabúð Braga Brynjólfssonar. MOTANEFNÐIN.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.