Vísir - 04.06.1958, Blaðsíða 12

Vísir - 04.06.1958, Blaðsíða 12
F '-cfcerí bíftS «r idýrara f áikrlft ea Vfilr. IJiffl? kxan f»ra yður fréttir «g annað — án fyrirhafnar if y#ar hálfo. ðfml l-K-80. Muniðj að þeir, sem gerasí áskrifendnr j Vísla eftir 10. hvera mánaðar, fi blaSif ákeypis til mánaðamóta Sími 1-16-60, Miðvikudaginn 4. júní 1958 SH. framleiddi 53,250 Eestir á sl. ári. FrannleiðsBan fdy yfir 60.Ö0H iesti'r á síðustu vertsð. Aðalíundur Sölumiðstöðvar hraði'rystiliúsanna var haldinn liér í Reykjavík í síðustu viku. Framleiðsla írystihúsa þeirra, eem eru innan vébanda SH. nam á síðasta ári 53.250 lestum og fikiptist hún svo sem hér segir: Lestir. Flök 42.337 Heilfrystur flatfiskur 1.907 Fryst hrogn 753 Fryst síld til útflutnings 4.943 Skötubörð og háfur 92 Rækjur og humar 57 Dýrafóður, fryst 644 Söltuð þunnildi 2.277 Söltuð roð 540 Annaðist S.H. sölu á öllum þessum afurðum auk þess sem hún seldi nokkurt magn af söltuðum hrognum, fiskimjöli og lýsi, en þessar vörur eru fram leiddar í stórum stíl af félags- ^ mönnum S.H. auk saltfisks og skreiðar. • l i Þá var og þess getið, að á þessu ári hefði framleiðsla auk- izt, svo að hún er nú komin yfir 60.000 lestir miðað við frystar vörur. Helztu markaðslöndin fyrir frystar vörur voru þessi á árinu 1957, og fór eftirfarandi magn frá frystihúsum S.H.: Sovétríkin 25.210 lestir Bandarikin 8.740 — Tékkóslóvakía 7.560 — Austur-Þýzkaland 5.290 -r- Bretland 1.530 — Svíþjóð 720 — Holland 400 — Jón Gunnarsson framkvæmda- ctjóri flutti greinagóða skýrslu um markaðsviðhorfið, en þar er þess m. a. getið, að eftirspurn eftir fiski fyrir Bandaríkjamai-k- ABdarafjnæli „béksalans”. Nýlega átti aldarafmæli „The BookscIIer“, mánaðarrit brezka bókaiSnaðarins. Það er hið merkasta rit. Stofn andi þess var Josep Whitaker — en hann var og stofnandi og höfundur Whitaker’s Almanack, sem heimskunnugt er. Sagt er, að félagar hans hafi talið hann vart með öllum mjalla, er hann gerði ráð fyrir, að The Book- seller yrði 100 síður, en eftir ,tvö ár voru þær orðnar 240. Þetta mánaðarrit er einstætt meðal brezkra tímarita vegna hins margháttaða fróðleiks, sem það flytur um bækur. Lei kli ú ssijóri fær Fúlkakross. Forseti íslands hefur í dag, að tillögu orðunefndar, sæmt Thorvald Larsen, leikhússtjóra, stórriddarakrossi hinnar ís- lenzku fálkaorðu. (Frá orðuritara, 3. júní). að hefur verið svo mikil, að ekki hefur verið unnt að fullnægja. henni, þar sem skort hefur fisk fyrir þann markað. Einnig ræddi Jón Gunnarsson um fiskréttaverksmiðju, sim S.H.. rekur í Bandaríkjunum. Verksmiðja þessi framleiðir ýmsa tilbúna fiskrétti, sem eru mjög þægilegir fyrir húsmæður og hefur starfsemi hennar auk- ist mikið, og nam framleiðslan 1500 lestum á s.l. ári, og seldist hún fyrir 1.260.000 dollara. Einnig skýrði Jón Gunnarsson félagsmönnum frá alvarlegum kvörtunum sem borizt hefðu á framleiðsluna og taldi að nauð- synlegt yrði að koma á nú þegar sterku ríkismagni á allan fersk- fisk, sem landað yrði til vinnslu hér á landi. Stjórn S.H. var öll endurkos- in, en hana skipa þessir menn: Elías Þorsteinsson, formaður, Einar Sigurðsson, varaformaður, Ólafur Þórðarson, ritari, Sigurður Ágústson, meðstj. Jón Gíslason, meðstj. Þotur flugu yfir rússneska togara. Sovétstjórnin hefir sent Bandaríkjastjórn mótmælaorð- sendingu út af því, að Banda- rískar flugvélar hafi flogið yfir flota rússneskra togara að veið- um úti fyrir ströndum Austur- Kanada. Svar mun hafa verið sent við þessari orðsendingu og hefir það ekki verið birt, en tekið hefir verið fram af hálfu Bandaríkjaflotans, að flugvél- ar flotans fari iðulega í eftir- litsflug yfir öllum siglingaleið- um til Bandaríkjanna og stund- um sé nauðsynlegt að fljúga svo nálægt skipum, að unnt sé að glöggva sig betur á, um hvaða skip sé að ræða. Þð voru orustuþotur úr Bandaríkjaflotanum, sem flugu yfir togarana. A alþjóðasýningunni í Brussel er vitanlega allt Ijósum skrýtt er kvölda tekur og ljósadýrðin sögð ótrúleg. Þessi mynd cr frá ensku dcildinni á sýningunni, tckin að kvöldlagi. Eldhúsdagsumræðurnar: Sundrung og vesæld stjórnar- innar fær ekki dulizt lengur. Eldhúsdagsumræðunum á A1 þingi lauk í gærkveldi og verð- ur ekki annað sagt en málflutn ingur Sjálfstæðismanna hafi borið af bæði kvöldin. Jón Pálmason tók til máls fyrstur þeirra í gærkveldi og dró m. a. upp mjög glögga mynd af fyrirhyggjuleysi núverandi fjármálaráðherra í fjárstjórn ríkisins, sem haft hefur hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir allt efnahagslíf landsins. Ingólfur Jónsson sýndi fram á það með glöggum rökum, að hagur þjóðarbúsins hefði bæði inn á við og út á við farið stór- um versnandi í tíð vinstri stjórn arinnar og væri nú svo komið, að algjört öngþveiti blasti við. Gunnar Thoroddsen gerði landhelgismálið m. a. að um- talsefni og taldi deilur stjórn- arflokkanna um það mikils- verða mál mjög ámælisverðar. Lagði hann áherzlu á nauðsyn þess að við völdum taki ný og samhent ríkisstjórn, sem þjóð- in geti borið traust til. Umræðurnar hafa í heild sinni varpað mjög skýru ljósi á sundrungu og vesaldóm ríkis- stjórnarinnar og stuðnings- flokka hennar, svo að naumast getur dulizt nokkrum manni lengur. Psrísarbúar safna gulli — og kartöfhim. Þeir vilja vera við öllu búnir, ef illa skyldi til takast. Erienoir nants- styrkir bjóíast. Ríkisstjórn Spánar hefur lieit- ið íslenzkum stúdent eða kandi- dat styrk til háskólanáms á Spáni frá 1. október 1958 tJ 30. jiiní 1959. Styrkurinn nemur 18000 pes- etum nefnt tímabil. Ef náms- maður æskir, mun honum verða útvegaö húsnæði og fæði í stúd- entagarði gegn venjulegu gjaldi. Styrkþegi þarf hvorki að greiða innritunar- né skólagjald. Menntamálaráðuneyti Tékkó- slóvakiu hefur boðist til að veita tveim íslenzkum stúdentum námsstyi-ki háskólaárið 1958-- 59. Annar styrkurinn veitist til verkfræðináms, en hinn til náms i slavneskum fræðum (tékk- neskri tungu og bókmenntum). Styrkirnir eru hvor um sig að fjárhæð 600 tékkneskar krónur á mánuði. Umsóknir um styrki þessa sendist menntamálaráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjar- götu, fyrir 1. júlí næstkomandi. Menntamálaráðuneytið 28. maí 1958. Norrænn byggingadagui í Osíó. Dagana 15.—17. september nk. heldur Norrænn byggingar- dagur (Nordisk byggedag) ráðstefnu sína í Osló og er það í 7. skipti, sem ráðstefna N. B. D. er haldin, en hefir verið á fjögurra ára fresti í höfuðborg- um Norðurlanda til skiptis. Að þessu sinni verða einkum tekin fyrir tvö verkefni byggingar- iðnaðarins, sem nú eru mjög ofarlega á baugi, þ. e. bygging smáíbúðarhúsa og heildar- skipulag byggingarfram- kvæmda (totalprojektering). í sambandi við ráðstefnuna verð ur opnuð byggingariðnaðarsýn- ing, hin stærsta sem haldin hefir verið á Norðurlöndunum til þessa, með helztu tækni- nýjungum og fjölbreyttum byggingarefnum. Þeim, sem áhuga hafa, er heimil þátttaka í ráðstefnu þess. j ari. Allar upplýsingar eru veittar á Ferðaskrifstofu rík-is- I ins og hjá ritara fslandsdeildar I samtakanna, Gunnlaugi Páls- syni, arkitekt, Borgartúni 7. Þátttöku ber að tilkynna fyrir I 15. júní nk. i (Frá fslandsdeild N. B. D). Þótt Charles de Gaulle Iiers- höfðingi hafi tekið við stjórn- artaumunum í Frakklandi með samþykki meiri hluta þingsins, óttast margir, að enn kunni upp úr að sjóða, svo að um muni. Þetta kemur meðal annars fram í því, að þeir, sem hafa einhver auraráð, leitast við að safna að sér gulli, og til dæmis hafa „Nopoleon-ar“ verið sér- staklega vinsæiir undanfarna daga. Eru það ekki myndir af keisaranum heldur gullmynt sú, sem við Napóleon mikla er kennd, og um helgina var svo komið, að fyrir slíkan pening voru greiddir 4000 pappírs- frankar (um 195 ísl. kr.). En menn vilja safne mira en þessum gullpeningum, því að menn leitast einnig við að kaupa ómótað gull, sem hægt er að fá keypt í stöngum. Er hægt að fá slíkar stengur, sem vega eitt kíló, en kaupendur mega ekki vera alveg aura- lausir, því að kílóið af ómótuðu gulli er komið upp í 540.000 franka, sem nemur meira en 21 þús. ísl. kr. (á gamla geng- inu). Og loks safna Frakkar kart- öflum — þeir, sem hafa ekki efni á að kaupa bæði gull og j matvæli. Kartöfluskortur hefir ;verið tilfinnanlegur í París að jundanförnu, og menn eru von- ; daufir um, að de Gaulle hafi i svo mikinn áhuga fyrir kartöfl- jum, að hann kippi slíkum smá- , munum í lag, þegar stjórnmálin toga í hann úr hinni áttinni. Fulltrúaráð Heimdallar. - Mjög áríðandi fundur í Va! höll í kvöld kl. 8,30.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.