Vísir - 26.07.1958, Side 12
Ekkert blaS er ódýrara i áskrift en Víslr.
LátiS hana færa yður fréttir og annað
iettrarefnl heim — án fyrirhafnar al
yðar hálfn. ;
Súni 1-16-60.
Laugardaginn 26. júlí 1958
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendoi
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaCið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
* y
Iranskeisari velur ser
drottningarefni.
Hún er 18 ára og hefir stundað nám í
í>að er nú almennt álitið, að
Iranskeisari hafi valið sér nýja
eiginkonu. Er hér um að ræða ^
Þetta er Lilly Mythra Fallah,
væntanlegur arftaki Sorayu.
18 ára gamla íranska stúlku,
LiIIy Mythra Fallah.
Hún hefur verið kölluð heim
til Teheren frá skóla þeim sem
hún sólti í Surrey á Englandi.
Gert, er ráð fyrir að í næstu
viku íljúgi hún til Parísar til
þess að velja sér brúðarkjól.
Það var fyrir fjórum mánuðum
síðan að faðir stúlkunnar, Reza
Fallah, sem er einn af hinum
auðugu yfirmönnum olíu-
vinnslunnar í íran, var boðað-
ur á fund hins 38 ára gamla
keisara. Þar tjáði keisarinn
Falla.h að dóttir hans væri með
al þeirra sem höfð væri í huga
sem væntanlegur arftaki Sor-
ayu á drottningarstóli. — Þó
skyldi stúlkan halda áfram
námi sínu í Englandi unz end-
anleg ákvörðun hefði verið tek-
in í málinu.
Fyrir tveimur vikum síðan
var einkabifreið íranska sendi-
ráðsins ekið upp að dyrum
sk'ólans í Surrey, og ungfrú
Fallah fór með honum. —
Skömmu síðar flaug hún til
heimalands síns. Gert er ráð
fyrir að vali keisarans verði
vel tekið meðal þegna landsins,
en eins og kunnugt er hefur
hann tvívegis verið giftur áður.
Óperusöngvari, fegurðar-
drottning og silfurlampa-
handhafi á síld.
Hörgull á herruen og síid.
Símtal við Raufarliöfn í gær-
kvöldi:
— Eru þeir að fá hana?
— Nei, hingað hefur engin síld
borizt siðan um helgi. Það er
ekki útlit fyrir að verði veiðiveð-
ur næsta sólahring. Sama leið-
inda veðrið, rigningar súld og
kuldi en ekki mjög mikill vindur
hér, en strekkingur úti.
— Eru mörg skip inni?
— Líklega tíu skip, þau komu
sum af vestursvæðinu því þeir
gera ráð fyrir að fá síld þegar
hægir. Það hefur mælzt mikil
síld hér fyrir austan, en hún
kemur ekki upp meðan brælan
er.
— Er dauft yfir mannskapn-
um?
— Síður en svo, en það er ekk-
ert að gera meðan síldin kemur
ekki, en menn eru vongóðir. Nú
bíða menn eftir annarri hrotu
eins og kom um daginn. Á þess-
um átta dögum höfðu margir
miklar tekjur. Sumar stúlkurnar
söltuðu í 200 tunnur eða meira
og höfðu 5—6000 krónur. Það er
hægt að bíða nokkra daga eftir
annarri eins upphæð finnst þér
þáð ekki?
Það eru aðeins þeir sem fást
við veiðar sem hafa biðlund.
— Getur verið, en hér kennir
margra grasa.
— Nokkur sérstæð?
— Varla, í síld eru menn á-
þekkir útlits í síldargalla með
tunnustafla að baki sér, en við
höfum samt óperusöngvara.
-— Hvern?
— Demets og lika fegurðar-
drottningu, það er að segja eina
sem hefur verið krýnd auk allra
hinna, sem koma til greina.
— Hver er fegurðardrottning-
in?
— Bryndís Schram. Hún vinn-
ur hér á plani.
— Er þarna fleira af frægu
fólki?
— Leikara, meira að segja
silfurlampa handhafa Robert
Arnfinnsson.
— Hvað um skemmtanir?
— Það er ball annað hvert
kvöld, en þegar bátarnir eru
ekki inni er skortur á karlmönn-
um dansinn.
— Hvernig væri að hafa
dömufrí?
— Nei, alls ekki dömufrí, eins
og ástatt er.
□ Rafniagnsnotkun á Norður-
irlandi er injög vaxandi, eink-
nm í sveitunum, enda lagt
mest kapp á rafvæðingu þar.
f sveitunum bættust við 1900
heimili, sem fengu rafmagn
1951.
Bræla fyrir
Norðan.
Frá fréttaritara Vísis —
Siglufirði í gæi’kvöldi.
Það er stöðugur straumur
skipu inn fjörðinn, og svo hefur
verið í allan dag, enda er ekl:i
útiit fyrir batnandi veður. 1 dag
hellTIgndi og svo kalt var að
það hefur gránað í í.iöll.
Mörg skip hafa legið við Gríms
ey í norðaustan brælunni og beð-
ið, en nú koma þau inn til að fá
sér olíu vatn og vistir. Þeir lóð-
uðu síld á Grímseyjargrunninu,
en það þýðir ekkert að bíða þar
þvi hún kemur ekki upp fyrr en
veðrið lægir.
Það er orðið mannmargt á göt-
unum, og ef að lík.um lætur verð-
ur fjör i tuskunum í kvöld.
Frjálsar íþróttir:
eisfaramót Islands ná
ifvorjjÍB‘ Simnast sk E31 í Stalik*
háSsná s eífgaíst.
Sprengjuárás
í Aden.
Brczkar orrustuþotur liafa
skotið í rúst höfuðstöð upp-
reistarforsprakka í norðan-
verðu Aden.
Hann hafði notað hús sitt
sem höfuðbækistöð. — Vopna-
birgðir fékk hann frá Yemen.
„Svarti tindurinn“
sigraður,
Fjallamenn frá Bretlandi og
Pakistan liafa klifið Rakoposhi-
tind í Karakoram-keðjunni,
sem er vesturliluti Himalaja-
fjalla.
Tindur þessi (Rakaposhi
þýðir svarti tindur) er 8500
metrar á hæð, og einn hinn
hæsti á þessum slóðum. Leið-
angursmenn höfðu gert þrjár
árangurslausar tilraunir til að
klífa hann, er það tókst um
síðir í hvassviðri og hríð.
□ Beinar fiutningaskipasam-
göngur eru mjög að aukast
milli Beifast og ástralskra
liafna. Kom stórt ástralskt
flutningaskip beint til Belfast
með farm fyrir skömmu. Var
það Stentor, 11 þús. lesta skip.
Flutti það stærsta far.m sem
nokkru sinni liefur komið
jiangað beint frá Ástralíu.
Mikil viðskiptaaukning milli
landanna er ráðgerð.
Meistaramót íslands í frjáls-
nni íþróttum fer fram i dag,
sunnudag og mámidag. Er hér
um að ræða aðalúrtökuksppnina
fyrir Evrópumölstaramótið í
frjálsum íþróttum sem háð verð-
ur í Stokkhólmi í ágúst.
Mótið hefst í dag kl. 2 og verð-
ur þá keppt í 200 m hlaupi, 800
m hlaupi og 5000 m hlaupi, Iiá-
stökki, kúluvarpi, 400 m grinda-
hlaupi, spjótkasti og langstökki.
Annar dagur mótsins verður
sunnudagurinn og hefst mótið
þá á undankeppni í stangarstökki
kl. 8, en sjálf aðalkeppnin hefst
kl. 8.30 og verður þá einnig
.keppt í 100 m hlaupi, kringlu-
kasti, 110 m grindahlaupi, 400
m hlaupi, þristökki og sleggju-
kasti. Vilhjálmur Einarsson mun
ekki taka þátt í mótinu, þar eð
hann og da Silva flugu til Sví-
þjóðar í fyrramorgun til þess að
taka þar þátt í mótum nú r.:u
helgina.
Mánudagurinn er síðasti dagur
Meistaramótsins og verður bá
keppt bæði í 4x100 og 4x400 m
boðhlaupum, 3000 m hindrunnr-
hlaupi og fimmtarþraut. Mótið
hefst kl. 8 á mánudagskvöld.
Eins og sagt var áður hér um
að ræða úrtökukeppni fyrir
Evrópumeistaramótið, og þótt
aðeins 5 Islendingar hafi enn náð
hinum tilskilda lágmarksárangri
sem settur var til hliðsjónar við
val keppenda á mótið, þá bendir
allt til þess að 8—9 íslendingar
fari til þeirrar keppni. Hvort svo
verður og hverjir það þá verða
kemur í ljós nú um helgina. Má
því búast við harðri keppni í
flestum greinum, enda verða þar
mættir til leiks 80 keppendur og
eru þar á meðal flestir af
fremstu íþróttamönnum lands-
ins.
Vinnustöðvun 220.000
manna yfirvofandi í Noregi.
Kemur tll framkvæmda 23. ág., takist
samningar ekki fyrir þann tíma.
Frá fréttaritara Vísis.
Osló í fyrradag. —
Til vinnustöðvunar kann að
koma í Noregi í næsta mánuði,
er nær til 220,000 manna, þar
sem kaup- og kjarasamning-
um, sem nú eru í gildi, hefur
verið sagt upp af Landssam-
bandi verkamanna.
Verkföll hefjast að loknum
vinnudegi 23. ágúst, hafi nýir
samningar ekki tekist fyrir
þann tíma.
Uppsögn samninga nær enn
sem komið er ekki til þeirra,
sem starfa við raforkuver og
stöðvar, við dreifingu á olíu og
benzín, né flutningaverka-
manna og starfsmanna SAS.
Þotur, sem flytja 1S0 farþega,
brátt í notknn.
llfliimar sJúMvirkinai ..sallra veðra“
Iriaflingartadijiiii].
Frá Buffalo er símað, að lent
liafi verið þar stórri farþega-
þotu (Boeing 707), án þess að
snert væri við neinu í stýris-
klcfanum.
Flugvélin hefur þrívegis lent
í þessu mánuði og voru notuð
sjálfvirk tæki til löndunar, sem
eiga að koma að fullum notum
hvernig sem viðrar. Þessi tæki
(automatic all-weather land-
ing' system) eru framleidd í
verksmiðjum Bell Aircraft
Corporation.
Flugvélar af þessari gerð eru
ætlaðar til notkunar sem flutn-
ingaflugvélar heimsálfa milli
og verða teknar í notkun á
þessu ári. Þær geta náð 960 km.
hraða á klst. og flutt 180 far-
þega, séu þær innréttaðar til
farþegaflutninga.
Samkomulagsumleitanir
vegna verðlagsvísitöu hækkun-
ar milli Landssambandsins og
Vinnuveitendafélagsins stóðu
skammt, eins og búist hafði
verið við, og krafðist Land-
sambandið hækkunar í sam-
ræmi við hækkun vísitölunnar,
sem er komin yfir 160 stig, en
samkomulag var um, að ekki
skyldi krafist kauphækkunar
meðan hún færi ekki þar fram
yfir, en hún er nú 160,4 stig.
Af hálfu Landssambandsins var
| farið fram á kauphækkun sem
nemur 25 aurum á klst. vegna
verðlagshækkunarinnar, en
þeirri kröfu var hafnað um-
j ræðulaust af vinnuveitendum
og samkomulagsumleitunum
þar með slitið.
Sáttasemjari ríkisins mun
hafa gert ráð fyrir þessu, þar
sem hann hefur boðað aðila á
sinn fund þegar á mörgun
(föstudag).
í blöðunum kemur sú skoð-
un, að vitanlega sé allra von,
að deilan leysist án þess að til
vinnustöðvunar komi, — það
sé knýjandi nauðsyn vegna
efnahagsástandsins. — Blöðin
telja einnig, að báðir aðilar séu
fúsir til einhverra tilslakana,
svo að samkomulag náist.
Vinnustöðvunin mundi ná til
meginþorra kaupþega í land-
inu.