Vísir - 01.09.1958, Side 8

Vísir - 01.09.1958, Side 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann fœra yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. WXBMX. Munið, að þeir, sem gerast áskrifendux Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. r/ Mánudagimi 1. september 1953 Síiasta tilraun til ai koma á sættum í landhelgisdeilunni án árangurs í gær. Bandaríkjastjórn mun að síðustu hafa stungið upp á 6 mílna landhelgi. Togurum skipað að fara inn fyrir linuna í nótt. . Það heyrðist til enskra togara og varðskipa í gær- Itvöldi, þegar klukkan var að verða níu, að brezk íreigáta tilkynnti togurum, sem voru undan Vestfjörð- um, að ekkert samkomulag hefði náðzt í landhelgis- málinu, svo að engin breyting yrði á fyrirætlunum um að fara inn fyrir 12 mílna mörkin, og veiða í hinni nýju iandhelgi. Eftir því sem bezt var vitað, voru freigátan og togararnir, sem hún hafði samband við, stödd undan Kópanesi, en þar munu brezkir togarar helzt telja aflavon um þetta leyti árs. Fréttaritarar, sem hér hafa verið undanfarna daga, höfðu haft spurnir af 7—10 brezkum togurum á þessum slóðum, og var vitað um nafn á sumum þeirra eu öðrum ekki. Benda allar líkur til þess, að svæðið við Kópanes verði hetzta „innrásar- svæðið“ fyrir „flotann ósigrandi“. Ekki verður annað sagt en að allur „stríðsundirbúningur“ brezkra togaraeigenda hafi verið hinn broslegasti, eins og hann hefur birzt í fréttum upp á síðkastið. í fyrstu var sagt, að hvorki meira né minna en 200 brezkir togararar mundu verða sendir inn fyrir nýju friðunarmörkum; hvað mundu íslendingar gera þá? Það var greinilegt, að íslendingar áttu að verða hræddir, er þeir fréttu að siglur brezkra togara ættu að verða sem skógur úti fyrir ströndum landsins. En Bretar voru fljótir að slá af, því að eftir aðeins fáeina daga voru þeir búnir að koma togaratölunni, sem innrásina átti að gera, niður í aðeins 100 Togarar fá aðvaranir. Um klukkan tíu í morgun' lieyrðu þeir, sem fylgdust með samtölum á sjóuum — viðræður brezkra togara við varðskip og svo framvegLs — að xslenzku varðskipin voru farin að gefa brezku togur- unurn aðvaranir. Undan Kópa nesi eru um þessar mundir 14 togarar, og hafa íslenzku varðskipin tilkynnt þeim, að þau séu innan íslenzkrar land lielgi, og þau muni verða tek- in og skipstjórarnir dregnir fyrir dómara, þegar þau komi næst S íslenzka höfn eða hætti sér inn fyrir 3ja mína land- helgina af einhverjum sök- um. Keniiu’ þetta heim við upplýsingar þær, sem Vísir liafði fengið hjá foi’sætisráð- lierra og sagt er frá annars staðar í blaðinu. — Erlendar fregnir herma, að 40 brezkir togarar séu þegar í landhelgi, og 60 á leið til landsins'. og hefur slík afsláttarpólitík ekki þekkzt s.l. 20 ár. En Bretar töluðu ekki lengi um að senda 100 togara gegn íslenzkri landhelgi, því að fyrir fáeinum dögum höfðu þeir komið fjöldanum ofan í 70—80 skip. Og ekki var öllum af- slætti lokið, því að þegar brezk- ir blaðamenn, sem hér eru eins og mý á mykjuskám, höfðu spurnir af skipum á laugar- dagsmorguninn, voru þeir bún- ir að koma tölunni ofan í 42 skip, þegar klukkan var aðeins ellefu um morguninn, en þeg- ar farið var að bregða birtu í gærkvöldi var engin leið að nafngreina nema 7—10 skip undan Kópnum. Vísir treystir sér ekki til að fullyrða, hversu mörg skipin voru þar í morgun fyrir innan friðunarlínuna, en væntanlega kemur það á dag- inn fyrr en varir. í tilkynningu brezkra tog- araeigenda í gær um „innrás- ina" var sagt, að farið yrði í þrem hópum, og mundu þeir allir halda sig milli 4ra og 12 mílna línanna, Hver skipahóp- ur mundi dreifa sér á 30 mílna svæði milli landhelgislínanna, og hverjum fylgdi freigáta, sem ætti að geta komizt til hvaða skips í hópum sem væri á að- eins 25 mínútum, ef eitthvað kæmi fyrir. Það þrönga svæði, sem tog- arahóparnir -eiga að vera á, táknar, að þeir munu lítt geta athafnað sig við veiðar, nema þeir séu þeim mun færri, og eru allar líkur til þess, að heildar- talan sé ekki nema brot af þeim 200, sem Bretar töluðu um í fyrstu. Orðsending í Washington. Á laugardagskvöidið vor.u Framhald á 5. síðu Á annari myndinni sést vel kjölfar „Russels“, þegar freigátan beygir í veg fyrir „AIbert“, og eltir hann fil „Óðins“. — A hinni: „Óðin hefur stöðvast hjá H.M.S. Russel. — Skipiu lágu saman góða stund og skipst var á kveðjum. HMS Palliser mann- aði fallbyssurnar. Hindraði þannig töku veiðiþjófs. Eftir rúmlega eiit barzt Vísi eftirfarandi frá Landhelgis- gæzlunni: Eftir þeim upplýsingum, sem landhelgisgæzlan hefur, er i dag mjög svipaður fjÖldi er- lendra togara á grunnslóðum við Island og algengt er um þennan tíma árs. Við breyt- inguna á fiskveiðitakmörkun- um xir fjórum í tólf sjómílur síðastliðna nótt x'arð hins vegar sú breyting á, að að minnsta kosti þeir belgiskir og þýzkir togarar, sem vitað var urn ná- lægt fjögurra sjóinílina fak- mörkunum 5 gærkvöldi, höfðu mörkin í morgun. Hins vegar er1 vitað um um það bil 15 brezka1 togara, er í nótt söfnuðust sam- 1 an undir vernd fjögurra brezkra herskipa og eins hirgða skips á þremur nánai tilteknum svæðum á milli fjögurra og tólf sjómílna takmarkanna. Eitt þessara svæða er iit af Dýra- firði, annað norður af Horni og hið þriðja fyrir Suðausturlandi, xnilli Hvalbaks og lands, en þar var dimmviðri í niorgun og því erfitt um athuganir. Á hinum stöðunum var bjartviðri, og voru flestirf togaranna út af JDýrafirði. Snenxma í nxorgun flutí sig úf fyrir 12 sjómílna tak höfðu varðskipixx aðgerðir gegn þessum togurum, en þá beitti eitt brezkra herskipið stras: valdi til þess að liindra að vrarð- skipið kæmist að sökudólgnum. Gerðist það með þeim hættí, að brezka freigátan „Palliser“ kom á mikilli ferð með mann- aðar fallbyssur og sigldi á milli varðskipsins og landhelgis- brjótsins, þannig að varðskipið komst ekki að togaranum. Til frekari árekstra hefur ekki komið, en hinsvegar hafa náðst nöfn og númer allra þeirra brezkra landhelgisbrjóta, sem eru að gera tilraun til að veiða innan hinna nýju takmarka og verða mál þeirra tekin fyrin eins og venja er. Þessa dagana stendur yfir í Listamannaskálanum mál- verkasýning Hafsteins Aust- manns. Sýningin var opnuð s.l. föstu dag og sýnd eru um 50 málverk og vatnslitamyndir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.