Vísir - 19.09.1958, Síða 3
Föstudaginn 19. september 1958
V í S I R
3
Rœktun njtfaskóga
Jiéi*. þegar staðrejnd,
Á Hallormstað hefur verið unnið að
skógrækt í meira en hálfa öld.
Yi&éesH stbö SH&sssiízi
shófjav vörð.
Á Hallormsstað’ er kominn upp sá vísir að nytjaskógi að
ekki verður lengur efast urn að hér á landi eru skilyrði til
ræktunar barrskóga. Á Hallormsstað hafa jólatré verið ræktuð
cg þau fyrstu seld þaðan fyrir 3 eða 4 árum. Þaðan hafa tré
verið seld í girðingarstraura og úr stærstu trjánum þar myndi
,vera hægt að fletta borðvið livenær sem er úr þessu.
Á Hallormsstað er stærsti sam
íelldi birkiskógur Islands, um
€50 hektarar að stærð og þar
hefur verið unnið að skógrækt
lengur en víðast hvar annars-
staðar á íslandi, eða um rösklega
hálfrar aldar skeið. Þar er nú ár-
íeg framleiðsla trjáplantna á
þriðja hundrað þúsund og 25—
30 manns vinna þar á hverju
vori að skógræktarstörfum, þann
tímann sem mest er að gera.
• Fréttamaður Vísis kom að Hall
ormsstað í sumar og skoðaði þá
skóginn og græðireitina undir
leiðsögn Sigurðar Blöndals skóg-
árvarðar, sem hefur nú síðustu
árin haft umsjón skógarins og
gróðrarstöðvarinnar með hönd-
um. Þar ríkir mikil snyrti-
mennska hvar sem augum er lit-
ið og allt gert til þess að fegra
landið sem unt er.
Stærsti
skógur landsins.
— Hvað er skógurinn stór?
— Hallormsstaðaskógur er 650
hektarar að stærð og er talinn
stærsti samfelldi skógur á Is-
landi. Þórðarstaðaskógur í
Fnjóskadal mun vera af svipaðri
stærð, sagði Sigurður.
— Hvenær hófst skógrækt á
Hallormsstað?
— Árið 1903 og hefur þeirri
starfsemi verið haldið áfram ó-
slitið síðan. En um gróðursetn-
ingu að verulegu ráði var þó
ekki að ræða fyrr en fyrir um
það bil áratug. Síðan hefur gróð-
ursetningin aukist þar ár frá ári
rriest þó undanfarin þrjú ár.
— Og í hverju er aðalstarfið
fólgið?
— Það er við græðireitina, en
þar getum við með þeirri stærð,
sem nú er á þeim, framleitt á
þriðja hundrað þúsund plöntur
á ári.
Nær 30 manns
að starfi.
— Það er margt fólk, sem vinn
ur við gróðrarstöðina?
-— Það er flest á vorin, stund-
um allt að 30 manns þegar flest
er, en fækkar þegar líður á sum-
arið. Mest eru það stúlkur sem
vinna við græðireitina.
— Hvernig er útlit og horfur
með vöxtinn eftir sumarið?
— Það er ekki hægt að segja
að viðrað hafi vel. Maímánuður
var úr hófi kaldur, enda þótt við
slyppum við frost. Vegna kuld-
anna var mjög erfitt að athafna
sig og afgreiðsla plantnanna
miklu seinni en venjulega.
1 júní og júlí var mikið sólfar
og óvenjulegir þurrkar. Það var
reyndar í maí líka. Á öllu þessu
tímabili var naumast hægt að
segja að kæmi dropi úr lofti, og
undir venjulegum kringumstæð-
um er þetta mjög óhagstætt fyrir
trjárígktina.
Sinn eigin
veðurguð.
-— Hvernig fóruð þið að?
■— Sem betur fór komu þessir
þurrkar ekki að sök í græðireit-
unum, því við höfum eignast á-
gætt vökvunarkerfi og þess-
vegna getum við ráðið nokkuð
yfir „veðrinu" sjálfir. Það má
fullyrða að þetta vökvunarkerfi
hafi komið að góðu liði í sumar,
enda eru ágæt höld á plöntunum
fyrir bragðið.
— Hver verður helzta plöntu-
uppskeran eftir sumarið?
— 1 sumar verður það aðal-
lega birki og ýmsar grenitegund-
ir, en annars er það nokkuð mis-
munandi frá ári til árs.
— Er mest af plöntuframleiðsl-
unni gróðursett þar eystra?
— Því miður er því ekki þann-
ig varið. Það er mikill minn
Jólatré í Hallormsstaðaskógi. Eftir 10—15 ár mun framleiðsla
jólatrjáa innanlands fullnægja þörfum landsbúa.
hluti — í mesta lagi þriðjungur
af framleiðslunni, sem við gróð-
ursetjum hér. Á þessu ári höfum
við gróðursett á Hallormsstað
um 40—50 þúsund plöntur, mest
norskt greni. Hitt er allt sent
suður á land.
Fimmtiu ára
greni.
— Gefst grenið vel hjá ykkur,
og hver er svo ætlunin með þvi
þegar það stækkar?
— -Það vill svo vel til að við
eigum hér á Hallormsstað 50 ára
gömul rauðgrenitré, sem sýna
það að þau dafna hér ágætlega
og hafa náð góðum vexti. Eg
geri mér von um að rauðgreni
verði sú trjátegundin, sem við
gróðursetjum hér hvað mest á-
samt síberíulerki. Báðar þessar
trjátegundir dafna hér vel.
Þá má ennfremur geta þess
að rauðgrenið hefur þann kost
að við fáum fyrr af því nytjar
en af nokkurri annarri greni-
tegund, Það er vegna þess að það
er aðal jólatréð okkar.
— Eruð þið byrjaðir að selja
jólatré nú þegar?
— Ekki er því að leyna a-ð við
erum byrjaðir á sölu jólatrjáa,
þótt.í litlum stíl sé, enda enn af
litlu að taka. Þannig höfum við
undanfarna þrjá vetur látið
Seyðisfjarðar. og Neskaupstað
jólatré í té, auk lítilsháttar jóla-
trjásölu til einstaklinga.
Innlend
jólatré.
— Getið þið aukið jólatrjásölu
á næstu árum?
— Ekki að neinu ráði fyrst um
sinn. Hinsvegar byrjuðum við í
sumar að gróðursetja í sérstaka
teiga, þar sem ætlunin er að upp-
skera verði í framtíðinni ein-
göngu jólatré. Og að 10—15 ár-
um liðnum eigum við Islending-
ar ekki að þurfa að flytja inn
jólatré framar. Þau eiga að verða
innlend framleiðsla og þannig
nokkur sparnaður á gjaldeyri.
Skógur til annarra
njrija.
— Þetta verða sem sagt fyrstu
nytjarnar af barrskógi á Islandi?
— Já, og næsta stigið er svo
framleiðsla á efni í girðingar-
staura.
•—Eruð þið nokkuð byrjaðir é
því?
-— Við höfum selt ofurlítið af
girðingarstaurum úr lerki. Það
er hérna á Hallormsstað vísir a?
lerkiskógi, 20 ára gömlum. Hann
er tæpur hektari að stærð og
trén allt að 11 metra há. Úr
þessum lerkiskógi höfum við
sennilega fengið sem næst 3
þúsund girðingastaura, sem
eftir núverandi verðlagi myndi
vera um 10—15 þúsund krónur
að verðmæti.
— Hvaða fleiri not verður svo
unnt að hafa af íslenzkum barr-
skógi?
— Þriðja stigið í ræktun nytja
skóga myndi verða efni í trönur
eða fiskþurrkunarhjalla. Við eig-
| um nú þegar i Hallormsstaða-
| skógi 35 ára gamalt lerki, sem •
er af þeirri stærð er henta (
myndi til slíkra nota.
Loks er fjórða stigið fram-
leiðsla á trjám til borðviðar. Hér
Þegar veðurguðirnir láta þurrka herja viku eftir viku og mánuð
eftir mánuð svo að a.llur' grcðnv ’mrnar r" skrælnar tekur
skógarvörðurinn á Hallormsstað til sinna ráða, býr til sitt eigið
veður, svo að gróðurinn megi dafna. Eér sést hið nýja vökvunar-
kerfi í fullum gangi og hefur bað gefizt með hreinum ágætuin
í sumar.
Nytjaskógur á Hallormsstað felldur. Þetta eru 20 ára gömul
lerkitré sem scld verða í girðingarstaura.
eru til hálfrar aldar grenitré, fá
að visu, sem hafa náð þeirri
stærð, sem hægt myndi að flétta
úr þeim borðviði.
Ekki lengur
skýjaborgir.
— Þú telur með öðrum orðum
möguleika á ræktun nytjaskóga
hér á landi?
— Talið um ræktun nytjaskóga
á Islandi er ekki lengur innan-
tóm slagorð, draumórar eða
■ skýjaborgir. Þetta er þegar orð-
in staðreynd.
Enn er að visu óreynt hversu
viða er hægt að rækta nytjaskóg
á Islandi, en vafalaust er það
mjög víða og á næstu 10—20 ár-
unum verður skorið úr um það
hvar skilyrði eru fyrir hendi í
þessu skyni, því þegar hafa til-
raunir verið gerðar með gróður-
setningu barrtrjáa i flestum, ef
ekki öllum, sýslum landsins.
ir víðskiptastríð haflð miili
Rússa og iúgdsiava.
Rússar hætta hveitisendingum.
Fregnir lierma nú, að Rússar
Iiafi hætt liveitisendingum sinun
til Júgóslavíu.
Samkvæmt samningi þeim
sem gerður var milli landann?
skuldbundu Rússar sig til af
senda 200.000 tonn af hveiti ár
lega til Júgóslavíu. Það va:
blaðið Borba, sem skýrði frá
þessu og nokkra athygli vakti.
að í beinu framhaldi af þessari
fregn kom frásögn af því að
Rússar byggjust nú við metupp-
skeru hveitis. Gera nú ýmsir ráð
fyrir því, að yfirvofandi sé við-
skiptastríð milli Rússa og Júgó-
slava, ekki ósvipað því sem Stal-
ín skelti á eftir atburðina 1948.
Rúmur fjórðungur af útflutn-
insvörum Júgóslafa fer til landa
undir yfirráðum Rússa, og mik- (
ið af því eru vörur, sem enginn
markaður er fyrir á Vesturlönd-
um.
En Rússar eru ekki einir um
að draga úr viðskiptum við Júgó-
slavíu. Kínverjar hafa þannig
dregið tii baka pantanir sínar á
tóbaki. Nú 'um nokkui-t skeið
hefur kínverska sendiráðið í
Júgóslavíu staðið fyrir út-
breiðslu tímarits, sem hefur haft
það fyrst á dagskrá að skrifa nið
um Titó.
Það má nú ga-nga út frá þvi
sem vísu, að Bandarikin muni
auka efnahagsaðstoð sína við
Júgóslaviu, og muni þar jafnvel
fara inn á svið, sem áður voru
háð samskiptum Júgóslaviu við
Rússa.