Vísir - 15.10.1958, Blaðsíða 1

Vísir - 15.10.1958, Blaðsíða 1
12 síðui q i y á 12 síðut »8. árg. Miðvikudaginn 15. október 1958 228. tbl. Hvernig skyldi skapið vera í dag? Niðurskurður á 3 bæjum í Dölum, fé flutt á 7 Rannsókn fer fram á lungum slátraða f járins. Niðurskurður hefur verið framkvæmdur á fé á þremur hæjum í Dölum og fer nú fram rannsókn á lungum þessa fjár. Heyrzt hefur, að eitthvað sé gfrunsamlegt við féð á einum Jbænum. Orsök þess, að niðurskurður ■Var fyrirskipaður á þessum 3 bæjum er sú, að frá einum þeirra fannst mjög grunsamleg kind, |). e. frá iStóra-Skógi í Mið-Döl- «m, en hún var tekin frá í rétt- Um eftir fyrstu leitir. Hinir bæ- Irnir eru Harrastaðir, næsti bær Og Saurastaðir í Haukadal, en Eaongöngur eru miklar milli Saurastaða og hinna bæjanna, og átti þannig að reyna að gera ráðstafanir, sem reyndust nægi- Jegar. Fé af þessum þremur bæjum Var slátrað mánudag og þriðju- dag s.l. og er rannsókn á lung- «m fjárins ekki lokið. Skorið niður á 7 bæjum i fyrra. í fyrra fór fram niðurskurður á fé á 7 bæjum í Dölum og sett upp varnargirðing, og eru þeir þrír bæir, sem nú hefur verið skorið niður á, sunnan hennar, og Stóri-Skógur næstur henni. Á ofannefndum 7 bæjum var svo sauðlaust þar til á þessu hausti, er fé var keypt í þá af nýju, um 1300 lömb, sem keypt voru í tveimur hreppum á Vest- fjörðum. Bændur á niðurskurðarbæjun- um þremur frá þessu hausti, munu að líkindum kaupa fé inn- an héraðs. Aðrjf fjárflutningar til endur- nýjunar á sauðfjárstofni, en að ofan greinir munu ekki eiga sér stað á þessu hausti. -jíf Ludwig Criiwell, sem tók við stjórn Afríkuhersveita Þjóðverja af Rommel, er nú látinn 66 ára gamall. anpr Breta o þjóöa veiðisvæðum er óþolandi. Brðtí sakaðiir uæ aténtitjðsnir. Brezkur f lugmaður hefur verið fluttur frá Ástralíu til Englands, en hann er sakaður um að hafa Iátið óleyfilega í té upplýsingar. Hann starfaði í Edinborgar- flugstöðinni fyrir utan Ade- láide, en um hana fara fram flutningar til Woomera-til- raunasvæðisins, þar sém Bret- ar hafa reynt kjarnorkuvopn. Ekki er talið, að neitt erlent vald hafi fengið mikilvægar upplýsingar fyrir milligöngu mannsins. Flestir enn j karfa.“ Flestir islenzku togararnir stunda enn karfaveiðar af kappi, enda aflast ágætlega, og karfinn nú vænn og feitur. Sækja togar- amir aflann á Nýfundalandsmið- in. ,Ef eitthvað dregur úr afla má þó búast við, að einhverjir fari að aíla fyrir þýzkan markað — ef hátt verð helzt þar, en þang- að berst ekki nægur fiskur og vilja menn því fá fiskfarma. Blaðið hefur heyrt, að Jón Þor- láksson muni selja á þýzkum markaði innan tíðar. Ekki eru upplýsingar fyrir hendi .sem stendur hvort fleiri afla fyrir Þýzkalandsmarkað. Meðan skjót- ur og góður afli helzt á hinum nýfundnu miðum út af Nýfunda- landi mun vera freistandi að halda þeim áfram i lengstu lög. HWaréttiirtni? ræ&ur, 03 norjkir eru hrakttr á ferott, ssgja Norlsnep. Vilja taka málið upp hjá S. þj. Frá fréttaritara Vísis. — Osló í gær. Það lítur nú svo út að norskir fiskimenn verði hraktir af liinum alþjóðlegu fiskimiðum. Togarar allra þjóða virðast fara eftir einu lögmáli, rétti hins sterka og brjóta reglur sem til þessa hafa tíðkast á hafinu. Ástandið er svo alvarlegt að það verður að taka það til umræðu á þingi Sameinuðu þjóðanna. Það eru ekki aðeins brezku togararnir við ísland, sem sýna yfirgang og frekju, brjóta lög og gera tilraunir til manndrápa með því að reyna að sigla línu- báta í kaf. Hið sama á sér stað við Vestur-Grænland þar sem portúgalskir togarar sópa upp veiðarfærum Norðmanna og við Bjarnareyjar láta hinir rússnesku togarar greipar sópa ef svo má að orði komst. Norsk- ir bátar sem fyrir mánuði síðan komu þaðan sögðu að hræðilegt hefði erið að sjá .hina voðalegu tortímingu sem fylgi rán- yrkjunni. Umhverfis togarana var yfirborð sjávarins hvítt af dauðum smáfiski, en mokað hafði verið út af togurunum. Þegar Rússarnir koma. Norskir sjómenn, sem voru á reknetaveiðum á „Norska hafinu“ — hafinu milli íslands og Noregs — hafa þá sögu að segja að þegar rússneski síldveiðiflotinn komi með tog- ara sína eða reknetaskip, sé ekki um annað að gera en að draga upp veiðarfæri sín og hypja sig á brott, eða eiga á hættu að tapa öllum veiðar- færunum. Ástandið hefur vernsnað mjög á þessu ári og færist yfir- gangur stórþjóðanna í vöxt Kafbátar sveima við Ástralíu. Það hefir komið fyrir hvað eftir annað undanfarna mán- nði, að vart hafi orðið við ó- kcnnda kafbáta umhverfis Ástralíu. Um sl. helgi tilkynntu fjórir menn yfirvöldunum í Adelaide, öð þeir hefði séð stóran kafbát tim 50 mílur fyrir sunnan borg- ána. Hafa kafbátar aldrei sézt á þeim slóðum við strendur landsins áður. Flotanum hefir verið.falið ,að kömast að þjóð- ♦rni kafbátanna. Þfóðvilfinn stórfelldu kvartar nii hækkun á yfir hinni vísitölunni. Kommúnistar eiga þó mesta sök á hvernig komið er. Þjóðviljinn hefur það fyrir aðalfyrirsögn á fyrstn síðu í dag, að vísítala framfærslu- kostnaðar sé komin upp í 217 stig. Jafnframt tilkynnir blaðið, að vísitalan „Hefur hækkað mn 13 stig á einum mánuði og 25 stig siðan efnahag:slög- in voru sett.“ Blaðið segir ennfremur, að þessar tölur gefi nokkra hugmynd um það, hversu stórfelld dýrtíð hefur siglt í kjölfar ,,bjarg- ráðanna", því að frá því í vor hefur vísitalan hækkað um 13 af hundraði, sem er meðal- liækkun vísitöluvaranna. Vita þó allir, að hækkim þeirra vara, sem ekkert tillit er tek- ið til við útreikning vísitöl- unnar, er miklu meiri, svo að dýrtíðin hefur aukizt mun meira en hægt er að gera sér grein fyrir með því að ein- biína á risltöiuna. Þegar Þjófh’iljinn skrifar þannig, er hann að skrifa fyr- ir verkamenn, sem bera skarð an hlut frá borði vegna að- gerða ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, sem komm- únistar á þingi og í stjórn konuministaflokksins styðja, meðan húsbændum þeirra er liagur í að liafa menn í ríkis- stjórn Islands tii að gæta þar liagsmuna sinna. Afstaða hins lilýðna kommiínista er því í rauninni sú, að liann þykist vera óánægður með þá vísi- Framh. á 12. síðu. með hverjum mánuði sem líður. Ástandið er orðið óþofandi. Gamlar hefðir og friðsamleg sambúð á veiðisvæðunum þekk- ist ekki, þegar stórþjóðirnar senda þangað fiskiflota sína. Það er aðeins einn réttur sem ræður og það er hnefarétturinn. Yfirgangur í björtu. Er Norska hafið orðið og lít- ið? spyrja Norðmenn. Ástæðan fyrir því er sú, að þar hafa tíðum undanfarið átt sér stað árekstrar milli Rússa og Norð- manna, sem stunda þarna rek- netaveiðar. Rússarnir leggja yfir netin okkar, jafnvel í bjartviðri þegar allir belgirnir eru sjáanlegir. Ef dimmt er skjóta þeir eldflaug frá bátun- um og stefna eldflaugarinnar á að gefa til kynna þá stefnu sem þeir hyggja leggja net sín. Norskir línubátar, sem voru við ísland í sumar hafa tapað veiðarfærum svo tugum þús- unda króna skiptir vegna yfir- gangs brezkra togara og stund- um hefur það komið fyrir að Norðmenn hafa orðið að flýja til að bjarga lífi sínu. BOAC-flugvélar enn stöðvaðar. Verhinlliö ÓlÖOfl&fjt, Brezkir verkaiýðsleiðtogar gera í dag tilraun til þess að fá til lykta leitt iiið ólöglega verk- fall hjá 4000 starfsmönnum BOAC í flugstöðinni i Lontlon. Watkinson samgöngumálaráð- herra hefur þegar skorað á verk- fallsmenn að hverfa aftur til vinnu og það hefur einnig gert stjórn þeirra eigin félags. Allar flugvélar BOAC, sem fara áttu frá London, eða koma þangað, hafa stöðvast. Verkfallið getur haft þau á- hrif, að dagleg áætlunarflug í Cometflugvélum geti ekki hafizt 14. n. m. eins og ráðgert er.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.