Vísir - 15.10.1958, Blaðsíða 12

Vísir - 15.10.1958, Blaðsíða 12
EEkfcert blað er édýrara f áskrift en Vísir, L>átið haua fœra yður fréttir •( annal lestrarefni heim — ás fyrirhafnar af yðar hálfo. j Simi 1-16-60. Miðvikudaginn 15. október 1958 Munið, afí þpiij sem gerast áskrifendor Ví“«s e£tir 10. hvers mánaðar. fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. öánægfa í Alsír vegna lyrirniæla de Gaulles. Salan ©g fuHtrúar borgara í Alsír ræða f rslan landstjóri Frakka í 'Álstr cg yfirhershöfiðngi þar ræðir í dag ástand og horfur í Alsír við De Gaulle forsætis- yúðherra og tvo ráðherra hans, hcrmálaráðherrann. Ennfremur eru væntanlegir til Parísar tveir varaforsetar Öryggis- nefndarinnar fyrir Alsír, báðir borgaralegrar stéttar menn. • Þeir eru þeirrar skoðunar, að of snemmt sé og of áhættusamt að rjúfa það samstarf sem stofnað var til s.l. vor milli hers og þjóðar til að ná því marki, að Alsír yrði óaðskiljan- legt frá Frakklandi, en því marki væri ekki enn örugglega náð. Þá segja þeir, að héraðs- öryggisnefndirnar og hinn sam- eiginlega Öryggisnefnd Alsír hafi gert stórkostlegt gagn, «kapað öryggi og einingu, en þó se þetta ekki enn á svo traust- um grunni, að tefla megi í heina hættu. Öryggisnefndin kom saman til fundar i gær og var mikið deilt, að sögn, en svo fór, að Massu, yfirmaður frönsku fall- hlífasveitanna lýsti yfir, að hann muridi hlýða De Gaulle og Þeir viija fá 875 dollara á viku. Stéttarfélag bandarískra far- þegaflugmanna gerir kröfu til stórhækkaðra launa fyrir flug- anenn, sem stjórna þotum. Halda þeir því fram ,að með vaxandi tekjum, er hljótf að leiða af því, að þotur verða teknar í notkun, verði þeir að krefjast meiri launa, enda sé stjórn slíkra flugvéla erfiðari en annarra. Fara þeir fram á 875 dollara vikulaun, en á sl. ári voru vikulaun bandarískra flugmanna 435 dollara. Geta niá þess í þessu sambandi, að hæstu laun flugmanna hjá BOAC nema 75 stpd. á viku eða rösklega 210 dollurum. hætta afskiptum af stjórnmál- um, og gekk af fundi og 11 liðsforingjar, er áttu sæti með honum í Öryggisnefndinni. Ákvörðun De Gaulle vel tekið í Frakklandi. Brezkum fréttariturum í París ber saman um, að ákvörð- un De Gaulle um að banna hernum öll afskipti af st.jórn- málum, hafi verið ákaflega vel tekið um allt Frakkland, — De Gaulle hafi þjóðina með sér í því máli sem öðrum, hún muni hlíta forystu hans. Styrki það afstöðu hans, að hann kemur fram af meira frjálslyndi en menn höfðu búist við. Ýmsir höfðu óttast einstrengslegar og einræðislegar tilhneigingar og ákvarðanir, en allur ótti í þá átt er hratt dvínandi. Erfiðleikar ekki að baki. En brezk blöð, eins og Times, sem segja, að De Gaulle hafi hér stigið djarft skref, fimm vikum fyrir kosningarnar í Alsír, telja ýmsa erfiðleika framundan. Tímes óttast eink- um afleiðingar þess, að eftir 4 ára borgarastyrjöld eru í raun- inni engir stjórnmálaflokkar til í Alsír, né neinar frjálsar stofn- anir, sem starfhæfar eru, nauð- synlegar þar sem hverfa á til algers lýðræðis og þingræðis. Blaðið vonar þó, að úr rætist, og byggir nokkra von á því, að leiðtogi útlagast j órnarinnar hefur ekkert látið frá henni koma, síðan er hún var form- lega stofnuð, nema það, sem ber samkomulagsvilja vitni. Daily Telegraph spyr hvort fást muni frambjóðendur í kosningunum fyrir Mohammeðstrúarmenn. Undir því sé mikið komið. Ella gæti komið í Ijós síðar, að De Gaulle yrði að horfast í augu við eitthvað svipað og Mac- mallan á Kýpur. SAS og Swissair nynda félag um fbgvélakaup og viðhald. Snnuaat verðu iéliitjin naiststicrsti pntueigundi i hciani. Einkskeyti til Vísis. K.höfn í gær. Svissneska flugfélagið (Swissair) og SAS undirrituðu á mánudag samkomulag um VÍðtækt samstarf og vekur það feikna athygli. Samkvæmt samkomulaginu liafa félögin samráð og sam- Starf um kaup og viðhald á farþegaþotum fyrir alls einn milljarð króna. Árið 1960 verða þessi tvö fé- lög sameiginlega næststærsti eigandi farþegaþota í öllum heiminum, þ. e. SAS hefir þá 12 Caravellis-þotur og Swiss- air 4. Þær geta flutt eftir stærðum, 71, 85 og 120 farþega. Samstarfið mun leiða til hag- kvæmari flugferða og aukinna möguleika til samkeppni. Svipað samstarf og hér um ræðir komst nýlega á milli ít- alskra og þýzkra flugfélaga. SAS og Swissair hafa samið um kaup á samtals 31 farþega- þotu og nemur það 10% af pöntunum á farþegaþotum í heiminum nú. Drengur meiddist á höfði. í gærkvöldi meiddist fjögra ára gamall drengur, Ólafur Arinbjarnarson, á höfði í bif- reiðaárekstri á Grensásvegi. Eina Vigfúsdóttir, sem ók bifreiðinni Ö-209, skarst nokk- uð í andliti við áreksturinn og voru þau flutt í Slysavarðstof- una. Hin bifreiðin, sem lenti í árekstrinum var úr Reykjavík. Á miðnætti í nótt kom bif- reiðastjóri á lögreglustöðina og skýrði frá því að ungverskur maður hefði orðið fyrir bifreið sinni á mótum Laugarnesvegar og Sundlaugavegar. Meiddist Ungverjinn á fæti og fór bif- reiðastjórinn með hann á slysavarðstofuna og tilkynnti lögreglunni síðan um atburð- inn. Konur innan vinnandi stétta í Bandaríkjuniun eru 22 milljónir (V3 vinnustétt- anna) og fer stöðugt fjölg- andi. IJfrslit í einmennings- keppni í bridge. Einmenningskeppni ■' Bridge- félagi Reykjavikur lauk í gær- kveldi. Sigurvegari varð Gísli Guð- mundsson og hlaut hann 406 stig. Annar varð Lárus Karls- son með 396 stig og þriðji Kristján Kristjánsson 394 stig. Sveitakeppni Bridgefélagsins hefst næstkomandi sunnudag og er spilað í Skátaheimilinu. Einmennihgskeppni • Bridge- félags kvenna er ný. lokið og sigraði í henni Margrét Árna- dóttir með 315 stigum. Önnur varð Anna Guðnadóttir 312 stig. Þriðja Kristín Þórðar- dóttir 308 stig. Fjórða Guð- björg Andersen 306 stig. — Fimmta Eggrún Arnórsdóttir. Næstkomandf mánudags- kvöld hefst tvímenningskeppni hjá félaginu og verður spilað í Skátaheimilinu. Þjóðviljinn... Framh. af 1. síðu. töluhækkun, sem orðið hefur, þegar liann talar við óbreytta launþega, en liann er eftir sem áður ákveðinn stuðnings- maður þeirrar stjórnar, ser.i vandræðunum veldur nieð úr- ræðaleysi sínu og vesal- mennsku. Kommúnistar eru valda- mestu mennirnir innan ríkis- stjórnarinnar og geta sagt hinum fyrir verkum, þegar þeir vilja. Þess vegna bera þeir ekki minni ábyrgð á því, hvernig komið er, en yfir- drepsskapurinn er slíkur, að þeir láta blað sitt skrifa eiris og þeir eigi enga sök á þvi, livernig koniið er. Framsóknarblöðin, Alþýðu- blaðið og Tíminn, eru hins- vegar feimnin við að ræða um vísitöluna, því að þatt láta- nægja að nefna hana í smá- klausum og ver hvort um sig alls 6 — sex — línuin til að segja frá tölunni, án þess að nefna nokkra hækkun í sam- bandi við hana. Ný stjórn í Libanon - með þáttöku falangista. I Libanon hefur verið mynduð fjögurra manna stjórn og er Karami forsætisráðlierra henn- ar, en hann hefur verið forsæt- isráðherra undangengnar vikur, síðan er stjórn var mynduð eftir forsetaskiptin. Samkomulag náðist, er nýjar hættur steðjuðu að, vegna þess að verkalýðsfélögin boðuðu alls- herjarverkfall og kröfðust þess, að verkalýðurinn gæti unnið við örugg skilyrði, en margir verka- menn hafa beðið bana við störf sín að undanförnu. t nýju stjórninni eiga sæti tveir Múhameðstrúarmenn og tveir kristnir, þ. e. Karami og höfuðleiðtogi falangista og rammasta andstæðingur hans, og tveir aðrir, hvor úr sínum flokki, báðir sagðir hægfara. Frá aðalskrifstofum beggja flokk- anna voru birtar áskoranir um stuðning við hina nýju stjórn. Síðari fregnir herma, að alls- rammasti andstæðingur hans, herjarverkfallið hafi verið aftur- kallað. Mannaskipti í viö- skiptamálaráÖnneyti. Þórhallur Ásgeirsson, ráðu- neytisstjóri, hefur verið kjör- inn í stjórn Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins til næstu tveggja ára. Hefur Jónas Haralz, hagfræð- ingur, verið settur ráðuneytis- stjóri í viðskiptamálaráðuneyt- inu í fjarveru Þórhalls. (Frá ríkisstjórninni). Um 400 manns hafa sótt listsýningu þá, sem Guðmundur Einars- son frá Miðdal opnaði á laugardag í sal sínum efst við Skóla- vörðustíg. Hann sýnir þar 65 listaverk af ýmsu tagi, vatnslita- myndir, olíumálverk og höggmyndir, og hefur aðsókn verið mjög góð, eins og tala gesta sýnir. Fullur þriðjungur verkanna hefur þegar selzt, eða 22 myndir, og er það góður vottur þess, að al- menningur fcann að meta list Guðmundar. Er sýningin opin daglega fyrst um sinn. — Myndin hér að ofan heitir „Smala- drengur“.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.