Vísir - 15.10.1958, Page 9

Vísir - 15.10.1958, Page 9
MiSTÉfcadaginn 15. október 1958 VlSIB Hveragerði og Ölfus. Á fyrstu síðu, 1. dálki, í Vísi er í dag frásögn um vinnu stóra jarðborsins austan Hellis- heiðar. Er fyrirsögnin: „Illa gengur að bora í Hveragerði“, og í greininni stendur, að bor- inn sé „nokkru fyrir innan Reykjakot í Hveragerði“. Með þessum línum vildi eg mega benda ykkur blaðamönn- um á að Reykjakot er enn, eins og það alltaf hefur verið, í Ölf- usi, — þ- e. í Ölfus-hreppi, — ■en ekki í Hveragerði, — þ. e. í Hveragerðishreppi. Jafnframt mælist eg til þess ajð þið leið- réttið þessa missögn þannig, að lesendur blaðsins og aðrir, sem vilja taka eftir því, og vilja vita betur, fái rétta hugmynd um örnefnið Hveragerði og viti' yfir hversu mikið svæði það nær. Upphaflega tók örnefnið að- eins yfir lítið hverasvæði rétt neðan við beitarhúsin frá Vorsabæ (sá bær er næstur vestan við Varmá), sunnan undir austurendanum á ás þeim, er liggur í austur frá Mosunum, en það heita hraun- brekkurnar norður af Kömbun- um. En Kambar heita 2 hamra- hnúðar norður að Núpa-klett- unum, og kemur Hellisheiðar- vegurinn af heiðinni fram á nyrðri Kambinn; þar stendur nú útsýnisskífa Ferðafélags ís- lands. Liggur vegurinn eins og hann er nú, strax norður af Kambinum og er, þegar efstu, löngu brekkunni sleppir, kom- inn norður á Mosana. Eftir þeim liggur hann svo þar til hann snar-beygir suður af ásn- um, niður í Kamba-brekkurn- ar. — Ásinn hefur lengst af verið nefndur: Hamarinn. Á hverasvæði þessu var, þegar eg sá þennan stað fyrst skömmu eftir síðustu aldamót, mest báberandi stór hver, — líklega um 15X30 metrar, sporöskjulagaður, og minnir mig að hann væri nefndur Bláhver, þar sem vatnið virtist vera bátt að lit. Vatnið í hon- um var oftast alveg kyrrt, þó komu öðru hvoru á það smá loftbólur hér og þar, sem sprungu jafnharðan. En vatnið gerði ýmist að hækka svo að úr hvernum rann lækur, — til austurs þar sem hverasvæðis- vatnið leitar enn til árinnar, — <eða lækka, svo að lækurinn þornaði. Það var eins og að hverinn andaði, og það reglu- lega á um 5—6 mínútum. En utan við þennan hver, aðallega með brekkunni að norðan við hann og svo vestur fyrir voru nokkrir mikið minni hverir, tiltölulega smáar holur, sem kraumaði og vall í. — Þetta svæði hét Hveragerði, og lá gamli ferðamannavegurinn yf- ir það suðaustanvert; en vaðið var þarna á Varmá rétt fyrir ofan Beykjafoss. Upp með Varmá, í gilinu og ut frá því á báða vegu, var — og er — nóg af smærri og stærri hverum, svo og upp hjá Reykjum (þar var Lifli-Geysir stærstur og merkastur þótt lítt sjái fyrir honum nú), og allt inn hjá Reykjakoti, — á leið- inni þangað er gosholan Grýta norðan undir austurenda Ham- arsins. En ekkert af þessum hverum tilheyrði Hveragerði. Þegar farið var að reisa sum- arbústaðina þarna voru þeir aðallega settir í kringum Blá- hver, mest í hallann suður og austur af hvernum, og vatnið þaðan notað til að hita þá með. Siðan var farið að grafa, og enn síðar bora, eftir hitanum víðar og veita vatninu lengra til notkunar. Þá var byggðin ekki lengur í því forna Hvera- gerði, en hélt nafninu. Bláhver hvarf alveg. Þar er nú mestur leirleðju-slakkinn og ljótagti hluti svæðisins, en áður var þarna sérkennilegt land og fallegt. Fyrir nokkrum árum var þessi nýja byggð klofin frá Ölfushreppi og Hveragerðis- hreppur myndaður. Mun hið litla land hans allt tekið úr landi Vorsabæjar kannske lítill vestasti hlutinn frá Yxnalæk) og ráða eldri jarða-landamerki bæði að austan og norðan, þ. e. Varmá að austan þangað norð- ur, er landamerki voru áður milli Vorsabæjar og Reykja- kots inni á sléttunni norður af Hamrinum. Munu þau áfram vera landamerki milli Reykja- kots og Hveragerðishrepps. Reykir þar sem nú er Garð- yrkjuskóli ríkisins og Reykja- kot, þar með Gufudalur, sem er nýbýli (fárra áratuga) úr Reykjakotslandi, eru því áfram í Ölfushreppi, en ekki í Hvera- gerði. , / Af þessu er ljóst, að það cr ekki ennþá farið að bora með stóra bornum í Hveragerði. Þessi skipting Hveragerðis- hrepps úr Ölfushreppi er svo augljóslega og landslagslega afar kjánaleg að eðlilega dettur engum ókunnugum annað í hug en að öll kvosin milli fjalla tilheyri Hveragerðishreppi. Því er eðlilegt að kveðið sé svona að orði eins og gert er í greininni. Úr því að nauðsyn þótti á því að skipta hinni nýju byggð út úr Ölfushreppi hefði átt að gera það hreinlega með einni línu úr nyrðri Kambinum austur í landamerkin milli Reykja og Valla (eða Gljúfurholts); láta svo gamlar landamerkjalínur haldast upp um Reykjafjall og áfram norður í mörk á milli Ölfuss og Grafnings. Að vestan hefðu svo mörkin getað komið suður um hrygginn á Ástaða- fjalli og í Kambinn nyrðri. Þetta er hin eðilega merkja- lína um Hveragerðishrepp sem öllum, er líta landssvæðið, virðist sjálfsögð og kalla því allt þar innan: í Hveragerði, þótt það sé ekki rétt. 8. sept. 1958. St. Bj. Loftleiðir hafa flutt 21.241 í ár. Á þeim 9 mánuSum, sem liðn- ir eru af árinu, hafa Loftleiðir flutt 21.241 farþega milli landa og hefur betri árangur náðst í rekstri félagsins nú en nokkru sinni fyrr. í sumar hefur félagið haft 3 Skymaster flugvélar í förum á áætlunarleiðum sínum milli Bandaríkjanna og meginlands Evrópu um ísland — og hafa að jafnaði verið farnar sex ferð- ir í viku milli álfanna. Þó að það sé einni ferð færra í hverri viku en í fyrrasumar, hafði fé- lagið um síðustu mánaðamót flutt nær 7 hundruð farþegum fleira en á sama tíma í fyrra. Þykir það mjög vel af sér vikið, að geta annað slíku með svo fáum flugvélum, en skýr- ingin liggur í því, að flugvél- arnar hafa löngum verið full- skipaðar á öllum leiðum og sæta nýting verið um 10 hundraðs hlutum betri en í fyrra. Þessi árangur hefur víða vak- ið talsverða athygli og hans m. a. verið getið í erlendum flug- málatímaritum, þar sem einnig Stofnað samband Dýraverndunar- félaga ísSands. Fimm félög stofnuðu sambandið. Sunnudaginn 28. sept. s.l. komu saman í Reykjavík full- trúar þeirra fimm dýravernd- unarfélaga, sem nú eru starf- andi hér á landi, til þess að stofna samband sín á milli. Til þessa stofnfundar boðaði stjórn Dýraverndunarfélags fs- lands, samkvæmt ákvörðun síðasta aðalfundar félagsins. Formaður Dýraverndunarfélags íslands, Þorbjörn Jóhannesson, setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna. Gat formaður þess, að allt frá stofnun félagsins 1914,hefði það verið markmið þess að stuðla að stofnun sam- taka meðal landsmanna um dýravernd,. og þar sem litið væri oft á Dýraverndunarfélag íslands, sem heildarfélag allra landsmanna, en önnur dýra- verndunarfélög væru starfandi, þá vildi félagið afnema þennan misskilning og taka upp náði samstarf við hin félögin, til þess að efla dýraverndunarstörfin. Borið var undir atkvæði, hvort það væri vilji fundar- manna að stofna samband dýra- verndunarfélaga. Samþykktu allir fulltrúar félaganna að stofna sambandið. Var þá kos- inn fundarstjóri Þorbjörn Jó- hannesson og ritari Þorgils Guðmundsson. Ritari Dýra- verndunarfélags Islands, Þor- steinn Einarsson, las og skýrði drög að lögum sambandsins, sem hann og ritstjóri Dýra- verndarans, Guðmundur Gísla- son Hagalín, höfðu samið að til- hefur verið vakin athygli á því, að félagið stæði traustum fótum fjárhagsltga, þó að það nyti engra opinberra fjárframlaga, eins og gerist um mörg þeirra flugfélaga, sem halda uppi á- ætlunarferðum yfir Norður-At- lantshafið. hlutan stjórnar Dýraverndun- arfélags fslands. Við umræður um lagaupp- kastið komu fram ýmsar breyt- ingatillögur. Fundurinn samþykkti lög fyrir sambandið. í lögunum er gert ráð fyrir að dýraverndun- arfélög séu starfandi í hverju sveitar- og bæjarfélagi, en með an svo er að í flestum þeirra eru engin slík félög, þá geti einstaklingar í byggðarlögum, þar sem dýraverndunarfél. starfa ekki, verið félagar í sam- bandinu. Samþykkt var að sambandið léti einnig náttúru- vernd til sín taka. Nafn félags- ins var samþykkt að skyldi vera Samband Dýraverndunarfélaga íslands. í stjórn sambandsins voru kosnir sjö fulltrúar. Þótti fundinum rétt, að fyrst um sinn meðan störf sambandsins væru að mótast, ætti öll stjórn Dýraverndunarfélags íslands sæti í stjórninni ásamt tveim fulltrúum úr nágrenni Reýkja- víkur. í fyrstu stjórn Sambands Dýraverndunarfélaga íslands eiga sæti: Þorbjörn Jóhannesson, Þor- steinn Einarsson, Björn Gunn- laugsáon, Þorbjörn Bjarnar, Skúli Sveinsson, Þórður Þörð- arson og Vagn Jóhannsson. í varastjórn voru kosnir: Tómas Tómasson og Björn Jó- hannssori. í lok fundarins voru rædd ýmiss málefni dýraverndunar. 1 Þau félög, sem standa að stofnun Sambands Dýravernd- unarfélaga íslands eru: Dýraverndunarfélag Akur- eyrar, Garðahrepps, Hafnar- fjarðar, Reykjavíkur, Skaga- fjarðar. Félagar í þessum dýravernd- unarfélögum eru alls rúmlega 300. Manstu eftir þessu Heimsmet í þolflugi fyrir þyrlur var sett í Hartfort, Connecticut, þann 6. maí 1941, þegar Igor Sikorsky var á lofti í 1 klst., 32 mín. og 26 sekúndur í þyrlu, sem liann hafði sjálfur teiknað. Sikor- sky, sem er frægur fyrir teikningu og smíði flugvéla, byrjaði umfangsmiklar tilraunir með VS-300 flugvél sína árið 1933 og tókst ári síðar að framlciða fyrstu byrluna, sem hagkvæmt var að nota i viðskiptalífinu. Flugmaðurinn sat mjög framaríega í þyrlunni, sem knúin var 75 hestafla hreyfli. — Síðan hefur Sikorsky smiðað nokkrar gerðir þyrlna, er reynzt hafa ágætlega. Alþjóðadómstóllinn í Haag var settur á fót bann 18. apríl 1946 í Friðarhöll- 'inni har í borginni. Á h^r að ofan sjást nokkrir fremstu Iögfræð'ingar heims, sem kjörnir hafa verið til setu í dómstólnum og sitja liér og hlýða á málflutning í fyrsta deilumálinu, er kom fyrir dómstólinn. Það var deila Stóra-Breílands cg Albaníu um Korfu- sundið. Dómararnir 15 eru valdir af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og Öryggisráðinu, án tillits til þjóðernis, en engir tveir mega vera frá sama landi. Kjörtímabil beirra er níu ár. Þann 21. september 1952 vann sund- garpurinn Florence Chadwick það afrek að verða fyrst kvenna til að synda yfir Catalina-sundið í Kyrrahafi úti fyrir strönd Súður-Kaliforníu, en það er 21 mílu breitt. Hér sézt hin bandaríska sundkona koma upp úr sjónum að sundinu loknu skammt frá San Pedro. Tími hennar var 13 klst., 47 mínútur, 32 sekúndur. f sjónum við hliðina á henni er fréttámaður sjónvarpsstöðvar einnar, sem sjónvarpaði frá sundinu. Áður hafði ungfrú Chadwick, 31 árs gömul, sett mörg met, m.a. synt yfir Ermarsund í báðar áttir.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.