Alþýðublaðið - 10.01.1958, Side 1

Alþýðublaðið - 10.01.1958, Side 1
Bæjarmálastefna Aljþýðuflokksins. - II. Aðstaða togaraútgerðar og vélbáta verði stórbætt Skipakví byggí og smábátahöfn. BRÝNUSTU VERKEFNI bæjarstjórnar Reykjavík- ur á næsta kjörtímabili telur Alþýðuflokkurinn vera þessi í útvegsmálum: Aft auka og efla framleiðslustarfsemina i bænum, bæfti meðal einstaklinga, félaga og bæjarfélagsins. — Verði í þéssu skyni unnið að eftirfarandi: a) Tryggt verði, að til Reykjavíkur komi réttiátur hluti þeirra 15 togara, sem alþingi hefur samþykkt, að smíðaðir verði, og þeir gerðir út héðan. b) Bæjarútgerð Reykjavíkur verði efld og skipakostur hennár aukinn og endurnýjaður. c) Hraðað verði byggingu fullkomins aðgerðar- og hrað- frystihúss fyrir bæjarútgerðina, svo að unnt verði að hagnýta sem bezt þann sjávarafla, sem togarar útgerð- arinnar afla. Verði í þessu smbandi kannað, hvort unnt sé að koma á samstarfi milli bæjarútgerðarinnar og útvegsmanna í bænum um byggingu slíkrar vinnslu- stöðvar. d) Aðstafta togara- og vélbátaútgerðarinnar til athafna í ReykjavíkurKöfn verfti stórbætt og þessari útgerð fengift aukið athafnasvæði og þannig sköpuð skilyrði fyrir hagkvæmari vinnuaðferðum og bættri nýtingu. Byggft verði sérstök smábátahöfn, þar sem vélbátar af ýmsum stærðum geta legið hlið við' hlið. e) Hafizt verði handa um byggingu skipakviar, sem geti tekið allt að 3500 tonna skip, og þannig gert mögulegt að framkvæma hér allar meiri háttar viðgerðir á skipa- stól landsmanna, auk þess sem slík þurrkví er nauð- synleg, svo að unnt sé að efla hér stálskipasmíði og gera hana að fastri atvinnugrein í bænum. Þingboðskapur Eisenhowers: hoSar verkfall á bátunum Á að hefjast föstudaginn 17. þ. m. hafi samningar ekki tekizt þá. SJÓMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR hefur boðað vinnu- stöðvun á vélbátaflotanum frá og með 17. þ. m. eða næstkom- andi föstudegi, Kafi' samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Boðað var til fundar bátasjó- manna innan Sjómannafélags Reykjavíkur á sunnudaginn var. Átti þar að taka afsiöðu til samningstilboðs um kjör báta- sjómanna, bæði fiskverðssamn- inginn, kauptrygginguna o, fl., þar á meðal það atriði, aö gera skyldi upp sérstaklega fyrir línuvertíðina og sérstaklega fyr ir netavertíðina. sKosnmpskrifsfofa Alþýðuflokksins Képavogi. ALÞYÐUFLOKKURINN s S hefur opnað kosninga- s Sskrifstofu í Kópavogi. Er S S hún í Alþýðuliúsinu, Kárs- S S nesbraut 21. Fólk er beðið S ) að lita inn og láta í té all- S ar þær upplýsingar, s að gagni mega koma. sem ^ S S n Að fyrir eigin styrk skapa öryggi og grundvöll fyrir sannan frið Þing norska Al- þýðuflokksins. ÓSLO, fimmtudag (NTB). Þing norska Alþýðuflokksins hófst í dag. Formaður hans, Einar Gerhardsen, setti þingið og drap á að nýlokið væri kosningum og öll ástæða væri til fyrir flokkinn að gleðjast yfir úrslitum þeirra. Síðan talaði ritarinn, Hákon Lie um þingkosningarnar, og Ulrik Olsen, ríkisráðsfulltrúi um nýja skipun bæja- og sveita- stjómarmála. Síðan voru um- í’æður. Á morgun talar m. a. Gerhardsen forsætisráðherra um horfurnar í stjórnmálum 1958. eru þau verkefni, sem mest kalla að." WASHINGTON, fimmtudag. — Eisenhower Bandarikja- forseti flutti í dag þinginu boðskap sinn og talaði í 43 miii- útur. Var boðskap hans mjög vel tekið og hann oft og lengi hylltur. Fjallaði forsetinn um liag ríkisins og ræddi þá eink- um landvamamál í Ijósi framfara þeirra, sem orðið liafa í Sovét í smíði eldflauga. og gervitungla. Við eigum nú fyrir liöndum tvö verkefni, sagði Eisenhower: Annað er að öðlast öryggi fyrir eigin styrk, hitt að skapa grundvöll fyrir sannait frið. Þetta tvennt er meir áríðandi en allt annað nú og því mun boðskapur- minn verða helgaður þessum viðfangsefnum. SAMNINGSTILBODIÐ FELLT Það eina, sem hlaut sam- þykki fundarins, var síðast- nefnda atriðið, en bæði fisk- verðssamningurinn og kaup- tryggingin voru felld. Stóðu sjómenn mjög fast á einu atriði til viðbótar þessu, því, að þeir fengju frítt fæði, en það höfðu þeir farið fram á fyrir samn- ingsgerðina. MATSVEINAR BOÐA VERKFALL Þá hefur matsveinadeild SMFÍ boðað verkfall frá sama tíma fyrir hönd matsveina á vélbátaflotanum. Það félag er landsfélag. MACMILLAN FÆR ENN BRÉF FRÁ BULGANIN. LUNDÚNUM, fimmudag. — (NTB.) Harold Macmillan, for- sætisráðherra Breta, hefur nú fengið nýtt bréf frá Bulganin, f orsætisráðherra Ráðst i órnar- ríkjanna. Brezka utanríkisráðu neytið upplýsti í dag, að Sei- wyn Lloyd utanríkisráðherra hafi veitt því viðtöku í dag, en forsætisráðherrann er sem kunnugt er í ferð á Indlandi. Bréf þetta, sem sovézki sendi- herrann í Bretlandi, Jakob Mal- ik, afhenti, er skrifað á rúss- nesku og er ekki styttra en 18 síður og auk þess 19 síðna við- bót. í bréfinu er fjallað um öll þau deilumál, sem nú eru uppi milli stórveldanna. Verður það sent Macmillan þegar það hefur verið vandega þýtt. SÉQUSTU fréttir af þessum bréfaskriftmn Bulganins herma að sovétstjórnin hafi sent rík- isstjórnum 19 ríkja, þar á með- al. allra Atlantsliafsbandalags- ríkja, bréf og stungið upp á ráð stefnu forsætisráftherra ríkj- anna til dæmis í Geneve, og skulj þar f.jallaft urn lieimsmál- in. Ráftstefna þessi myndi verða haldin innan eins eða tveggja mánafta. Bréf Bulgan’.ns í heild sinni hefur ekki verið birt á Vesturlöndum, en Moskvuút- Framhald á 8. síðu. Eisenhower sagði meðal ann ars í ræðu sinni, að Rússar Shéldu uppi „algjöru“ köldu stríði. Eina svarið væri að berj- ast fyrir algjörum friði, Hann varaði við ofmati á getu sinni hernaðarlega þannig að gæti haft í för með sér að ekki væri fylgzt nægilega vel með, en jafnmikla yfirsjón kvað hann vanmat á herstyrk Bandaríkj- anna. Skjöldur landvarna okk- ar er land-, sjó- og f'ugherinn, sem er búinn fyrsta flokks vopn um og komið fyrir á herfræði- lega mikilvægum stöðum í heiminum. Það, sem fyrst og fremst kemur í veg fyrir strið í dag, er árásarstyrkur fiug- og sjóflughersins, sem getur svar- að árás svo gjöreyðing hljótist af fyrir árásarríkið. Jafnvel þótt við gerðum ráð fyrir skyndiárás gegn flugstqðvum okkar með því, sem það myndL draga úr hæfni okkar til að end- urgjalda, myndu sprengjuflug- vélar okkar eigi að síður kom- ast af stað nógu margar til að slíkt gæti orðið. Þetta er ekkert leyndarmál, hver ríkisstjóra veit þetta. ! ELDFLAUGAR Forsetinn ræddi síðan um eldflaugar og langdræg flug- skeyti og kvað það senniiegt, að þar væru Rússar komnir lítið eitt lengra, en lýsti þeirri sann. Framhald af 2. síftu. Fastaráð NATO: Franska svarbréfið til Bulganins Ijær máls á forsælisráðherrafundi, eflir undirbúning. Vamagli við því, sem gerðist eftir Genfarfundinn 1955. Ekki minnzt á ekki-árásarsamning í svari Breta. PARÍS og LONDON, finnntudag. (NTB-AFP), — Fasta- ráð Nato keraur saman á fstudag til nýrra umræðna um svarið við bréfi Bulganins, sein hann sendi Natoríkjunum fyrir jól. í París segja áreiðanlegar heimildir, að uppkastið að franska svarinu hafi verið endurskoftað svo, að það sé nú uppbyggi- legra. Hafa bæði Gaillard og Pineau unnið að endurskoft- uninni. skilur því eftir opnar djrr fyrir öðrum málum. ' YfirJeitt verða svörin frá Vesturlöndum að vera í sam- ræmi við lokayfirlýsingu NA- TO-ráðstefnunnar fyrir jólin. Það er því ástæða til að ætla, að Vesturlönd muni fallast á, að Framhald á 7. síðu. F. U. J. í Rvík heldur fund um bæjarmál. Frummælandi verður Liiðvík Gizurarson stud. jur. FÉLAG UNGRA JAFNAÐARMANNA í Reykjavík heldur íélagsfund næstkomandi þriðjudagskvöld kl. 9 siðdegis í Al- þýðuhúsinu vift Hverfisgötu. Fundarefni: Bæjarmál. Frum- mælandi: Lúðvík Gizurarson stud. jur. — Fundurinn verftur nánar auglýstur í blaftinu síðar. Þar sem fyrra uppkastiö vís- aði meira eða minna óákveðio til möguleikanna á utanríkis— ráðherrafundi um afvopnunar- málin, útilokar hið nýja svar j ekki möguleikana á funcii for- sætisi''áðherranna, svo íremi slíkur fundur sé undirbúinn af utanríkisráðheiTum og útlit sé fyrir jákvæöum árangri. ÖFUGT VIÐ 1955 Þetta er þveröfug aðferð við þá, sem höfðu var 1955, er for- sætisráðherrarnir á fundinum í Genf urðu sammála um viss mál, en utanríkisráðherrarnir á fundi um haustið komust að raun um ósamlyndi í öllum at- riðum. Þótt minnzt sé í franska svarinu á fund æðstu manna, er ekki kveðið á um þau mál, sem ræða skuli. Ekki er heimtað, að af\ropnunarmálin verði rædd og HELSINKI, fimmtudag. - (NTB—FNB.) Ástandið í fjar- málum Finna er nú orðið svo voveiflegt, að tekið heíur verið til alvarlegrar athugunar, að fresta greiðslu ýmissa gjalda þar til síðar, sagði forsætisráð- herranna í þingræðu í kvöid. Til þessa hefur ríkisstjórnini gripið til margvíslegra aðgerða til að koma í veg fyrir sjóð- þurrð, en ástandið vivðist æ fara versnandi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.