Alþýðublaðið - 15.01.1958, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 15.01.1958, Qupperneq 3
Miðvikudagur 15. janúar 1958 Alþýðtiblaðií 3 Alþýöubioöiö Útgefandi: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsingastjóri: Ritstj órnar sín-.ar: Auglýsingasírai: Afgreiðslusími: Aðsetur: AlþýSuflokkarinn. Helgi Sæmundsson. Sigvaldi Hjálmarsson. Emilía Samúelsdóttir. 14901 og 1490 2. 1 4 9 0 6. 1 49 0 0. AlþýðuhúsiS. Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8—10. iJ fsmarkið dauðamerkið OPT hafa andstæðingar Alþýðuflokksins 'haldið þvi fram, að hann væri deyiandi eða iafnvel dauður. Sá mál- flutningur heyrist sjaldan í kosningábaráttunni að þessu smni. Orsökin liggur í augum uppi. Alþýðuflokkurinn genguv einhuga og samtaka til baráttunnar. Landsmenn hafa falið honum úrsiitavald í íslenzkum stjórnmálum. Víg- staða hans í bsejarstjórnarkosningunum er iíka óvenju góð. Bvaðanæva fréttist af því, að hann sé í sókn. Hér í Reykja- vík er öllum sanngjörnum mönnum ljóst, að aukin íhlutun Alþýðuílokksins er vinnustéttum höfuðborgarinnar rnikil nauðsyn. Hann er líklegur til að hemia öfgarnar til hægri og vinstri og stöðva gegndarlaust kapphlaup Sjálfstæðis- flokksins og kommúnista um ofstiórn og óstjórn bæjarins. •Þess vegna er honum trúandi fvrir úrslitavaldi í Reykjavík á næsta kiörtímabili bæjarstjórnarinnar. Þetta vita and- stæðingarnir. Og þess vegna stendur þeim ótti af Alþýðu- flokknum. Þjóðviljinn reyndj á dögunum einu sinnj enn að rifja UPP .gamla sönginn um dauðamerki Alþýðuflokksins, en sá málflutningur var laus við' að vera borginmannlegur. Þjóð- viljinn sagði orðrétt um Alþýðufiokkinn: „Hann þolir ekki marga álíka „sigra“ í verkalýðsmálum og í Iðju og Tré- smiðafélaginu í fyrra . . .“ Og svo kom gusa um vonda menn í Aiþýðuflokknum, óalandi og óferjandi hægri krata. Fyrst- ui' í þeirri upptalningu eins og allaiafna var Áki Jakobs- son, fyrrverandi ráðherra Sósáalistaflokksins, en nú er hann sennilega versti maður á íslandi að dómi samherianna forð um daga! Víst er sú kenning til, að hægt sé að sigra sig dauðan og þess vegna hófs þörf í flestuni greinum. Hitt liggur í augum uppi, að Alþýðuflokkurinn megi sæmilcga við þau „dauðamerki“ una, að hafa komizt til áhrifa og valda í Iðju og Trésmiðafélagi Reykjavíkur. Allt öðru niíVii gegnir uni kommúnista. Þjóðviljinn ætti til dæmis að spyrja félaga Björn Bjarnason hvort hann teljj bæri- legra að vinna Iðiu eða tapa henni. Maðurinn þekkir livort tveggia aí reynslu. Vafalítið myndi liann heldur kjósa sér til handa ,.dauðamerki“ Alþýðuflokksins i l'é- laginu en „lífsmark“ komniúnista. Og ekki væri nema kurteisi að spyrja Halldór Pétursson að þessu sama. Hann hcfur iðulega ritað og talað um feigöarstríð Al- þýðuflokksins unz lianri hraktist burt frá brurinu fyigi- skjölunum i Iðiu. Síðan lifir hann og starfar í k.yrrþey. Reiði Þjóðviljans í garð Alþýðuflokksins stafar af því, au hann eigi allt of margra kosta völ um samstarf við aðra flokka. Þetta er Alþýðuflokknum ekkert vandamál. Harm lætur málefni ráða úrslitum þess með hverium hann vinn- ur á hverium tíma. En kommúnistar búa báglega í þessu efni. Þeir grátbiðia andstöðuflokkana að vinna með sér, samfylgjast sér og innlimast sér. Þær bónorðsferðir hafa stundum borið árangur. En nú er af sú öldin. Nú fást engir til faðmlaga við kommúnista nema Málfundafélag jafnað- armanna, sem er pólitískt lík, þó að' eftir sé að færa dánar- tilkynninguna í bækur. Afstaða Alþýðuflokksins til kommúnista er skýr og ó- vefengjanleg. Ef samstarf tekst ekk; um málefni alþýóu- stéttanna og verkalýðshrevfingar með þessum flokkum og til aflburða kemur eins og þeirra, er gerðust á síðasta þingi Alþýðusambands íslands, þá heldur baráttan um ágrein- ing’sefnin áfram. Og Alþýðuflokkurinn getur sannarlega unað henni. Þióðvilianum hefur missýnzt um úrslitin i Iðju og Trésmiðafélaginu. „Liífsmarkið“ er Alþýðuflokks- ins en ,,dauðamerkið“ kommúnistanna. Spyrji mennirnir bara Biörn Bjarnason og Halldór Pótursson, ef þeir vilja ekki trúa Alþýðublaðinu. Þar er um að ræða aðila, sem þekkja þetta dálítið af persónulegri reynslu. Björn og Hall- dór eru varla svo pólitiskt dauöir, að Brynjólfur til dæmis nái*ekki sambandi við þá með öllum sínum miðlum. Auglýsið í Alþýðublaðinu öfn ver Tillögur dönsku nefndarinnar. í ÞVÍ SKYNI að reyna að stuðla að jákvæðri lausn deil- unnar um íslenzku handritin, var 16. september 1957 mynd- uð nefnd áhugamanna í Kaup- mannahöfn. Formaður hennar er Bent A. Koch, ritstjóri, Kaup mannahöfn og aðrir nefndar- menn H. Dons Christensen, biskup í Rípum, cand. mag. 3. Haugstrup Jensen, lýðháskóla- stjóri, Hilleröd, Edv. Henrik- sen, bókaútgefandi. Khöfn, G. Sparring-Petei'sen, prófostur, Khöfn, og A. Riehard íMöller, hæstai’éttarlögmaður, Kahöfn. Einn lið'ur í stai'fi nefndar- innar var að semja tillögu, sem í dag, mánudag, var afhent H. C. Hansen, foi'sætis- og utan- ríkisráðherra, Jörgen Jörgen- sen, menntamálai’áðherra, svo og formönnum bingflokka stjórnmálaflokkanna í Dan- mörku. Jaíníramt afhenti nefndin á- lit. sem 18 danskir áhrifamenn standa að, bar sem stjórnmála- mennirnir eru hvattir til að hefja viðræður um handritin og ef til vill leggja til grund- vallar tillögur 16.-september- nefndarinnar. í tillögunum, sem ekki hafa verið birtar opinberlega lið fyr- ir lið, segir, að íslenzk hand- rit í opinberum dönskum söfn- um eigi að afhenda Islandi að gjöf og að breyta skuli skipu- lagsskx'á Árnasafns, þannig að íslendingar hafi meirihluta- vald (overvejende indflydelse) í stjórn stofnunarinnar og að safnstjórnin hafi rétt til að koir.a handritunum þar fyrir, sem hún álítur að skilyrði séu til að uppfvlla ákvæði skipu- iagsskrárinnar um varðveizlu þeirra og not. Með tilvísun til ritgerðar prófessor, dr. jur et ph’l. Alf Ross í Ugeskrift for Retvæsen sl. ár leggur nefndin til, að lit- ið sé á safnið sem sjálfseignar- stofnun, og að það verði þessi sjálfseignarstofnun, sem flytji handritin til íslands. Þau hand- rit Árnasáfns, sem nefndin hugsar sér þannig flutt til ís- lands, eru handrít, sem eru skrifuð af íslendingum. fvrir íslendinga og á íslandi (skrev- et af, for og i Island), þó þann- ig, að stungið er upp á, að sá hluti safnsins, sem notaður er, meðan unnið er að hinni miklu íslenzk-dönsku orðabók, verði kyrr í Danmörku, þar til vinn- an við orðabókina er á enda, þó ekki lengnr en 20 ár. Nefndin leggur þannig til, að handrit í dönskum söfnum séu afhent að gjöf til Islands, og það er vegna þess, að þau kom- ust í eigu Dana, þegar Island hevrði undir dönsku krúnuna. og eftir sambandsslitin er þeii’ra eðlilega heimili á ís- landi. Til stuðnings tillögunni um breyting á skipulagsski’á Árna- safns, þannig að handritin vei’ði flutt til íslands, vill nefnd in benda á í fyrsta lagi, eins og það er orðað: „óumdeilanlegan siðferðilegan rétt íslendinga“, í öðru lagi á þau sjónarmið, sem px'ófessor Ross hefur kom- ið fram með, en samkvæmt þeim á Kaupmannahafnarhá- skóli engan eiginlegan eignar- j i’étt á safninu, heldur aðeins jneimild til að stjórna bví í ! samræmi við mark og mið skipulagsskrárinnar. j í tillögu nefndarinnar segir að lokum: -----— Það er skoðun okk- ar, að jákvæð lausn þessarar ! gömlu deilu um handritin muni ekki verða aðeins mikils virði fyrir sambúð íslands og Dan- merkur, en einnig fyrir nor- ræna sámvinnu. um leið og hún gæti verið gott fordæmi þess, hvernig tvær þjóðir geta með skilningi hvor á garð annarar ieyst viðkvæmt, þjóðernislegt vandamál, og því eru bað ein- di'egin tilmæli okkar, að hand- ritamálið verði nú tekið fyrir til endanlegrar lausnar. | í álitsgerð þeirri er 18 dansk ir áhrifamenn sendu jafniramt stjórninni og stjórnmálaflokk- unum, er hvatt til þess, að við- Framhald á 8. síftu. ( Utan úr heimi ) owers UPPLÝSINGAR Eisenhow- ers um ástandið í Bandaríkjun- um fá yfirleitt góðar móttökur í bandarískum blöðum. Einna harðastri gagnrýni sæta þær í „New York Times“. Telur blaÓ ið að helzti kostur ræðunnar hafi verið boðskapur forsetans um að þegar sltyldi hafizt handa og sú áherzla, sem hann lagði á friðarvopnin, — fyrst og fremst efnahagslega’aðstoð. — umfram strí'ðsvopnin, í samhand: viö varnir Bandaríkjanna og hins vestræna heims. Hins vegar hafi bað fyvst og fremst skort í ræðuna, að næg áherzla væri lögð á mikilyægi þess að grípa til skjótar og Imit miðaðra aðgerða nú, þegar Nú vilii banöaríska þjóðin bretta upp ermarnar og taka Bandaríkjunum ríður almest á. tafarlaust til henainni. jafnvel þótt það kunni að kostr. hana erfiði og svita og senniiega nokkuð af blóði og tárum, ■ — svo fremi sem ekki verði efast um að rússneska ógnunin sé eins alvarleg og af er lálið. segja þeir í „New York Times“. „New York Herald Trinune“ telur hins vegar að ræðan hafi verið gædd áhrifamætti og traustvekjandi hvöt til eining- ar og samtaks, bæði meðal þjóð ar og þings. Það hafi verið sá gamli trausti og harðsnúni Eis- enhower. sem gengið hafi fram fyrir skjöldu þingsins og hlotið makléga hrifningu og lófai.ak að launum. Þjóðin hafi einmitt vonað að ein'hver taéki i taum- ana og boðaði aðgerðir og fram kvæmdir, og nú hafi emmitt sá maður, sem þjóðin hafi tvivegis •kjörið leiðtoga sinn, borið fram djarfar og þaulhugsaðar lillög- ur um tvenns konar frarn- kvæmdir, — öryggi fyrir afl og ráðstafanir til varanlegs íriðar. Bostonblaðið „Christian Sei- enee Monitor" bendir á að hvetjandi tillögur Eisenhowers varðandi aukin fjárframlög til framleiðslu flugskeyta og geim vopna ætti að sanna fjand- mönnum Bandaríkjanna, aö rík isstjórnin teldi nauðsyn taera lil skjótra aðgerða, þegar örýggi þjóðarinnar væri í húfi. Aístaða ríkisstjórnarinnar veki vonir um áð flókkastréitur vérði látnar niður falla, þegar það komi á daginn að flokkarnir eigi að miklu leyti samstööu hvað viðbrögðin snertir, þegar tryggja þurfi öryggi landS og þjóðar, segir í blaðinu. Flest brezk blöð láta yfirieitt í ljós ánægju með tilganginn í ræðu Eisenhowers, en margt gagnrýna þau þó varðandi upp- lýsingar hans um ástandið vest- ur þar. Telja mörg blöðin að menn hafi orðið fýrir vonbrigð um með tóninn í ræðu hans, en þó eru einkum tvö atriði i ræðu hans, sem þau gagnrýna: Að hin til þess að Bandaríkin færist pf mikið í fang í einu, og óskir fdr- áttþætta áætlun hljóti að leiða setans um frið geti orðið tii þess að ljá Sovétríkjunum um of frumkvæðisaðstöðu. Frjálslynda blaðið „Man- chester Guardian1' álítur að ræðan beri vitnj glöggskvggni og jafnvægi. Hins vegar telur blaðið að tillögur Eisenhowers um aukin fjárframlög til eld- flaugavopna og annarrar hern- aðartækni og um leið aukin framlög til aðstoðar við erlend ríki, réttlæti gagnrýni varðandi það að Bandaríkin ætli sér ekki af, en hyggist gera allt í einu. Óháða blaðið „Times" teliir a'ð ræðan hafi ekki hrifiö eins og ráð hafi verið fyrir gert. Einnig það blað telur að Ban,da rikin muni færast of mikiðj í fang. Einnig að Eisenhower hafi um of látið Sovétveldunum eft- ir tækifæri til frumkvæðis, á ýmsum sviðum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.