Alþýðublaðið - 25.01.1958, Blaðsíða 1
(
I
i
I
j
!
XXXIX. árg.
Laugardagur 25. janúar 1958
18. tbl.
Ávarp til reykvískra kjósenda frá framhjóðendum Álþýðuflokksins
Þá er hagsmunum reykvískrar alþýðu bezí borgið
ALÞÝÐUFLOKKURINN er flokkur lýðræð-
isjafnaffiarstefnunnar á íslandi. Á liðrnun áratug-
um hefur alþýðan fengið langmestu áorkað í
kjaramálusn sínum, réttindabaráttu og menning-
arviðleitni fyrir fulltingi hans. í fullu samræmi
við grondvallarhugsjónir jafnaðarstefnunnar
valdi haw.ii sér það hlutverk í upphafj að bæta
hag þeirra, sem ranglát þjóðfélagsskipan hafði
dæmt til örbirgðar, samtímis því sem hann und-
irbjó og Meyptj af stað hægfara en markvissri
byltingu í þjóðfélagsmálum.
Með stuðningi alþýðunnar tókst Alþýðu-
flokknum að hrinda í framkvæmd mörgum stór-
virkjum til hagsbóta fyrir almenning á íslandi.
Minnumst þess, þótt margt hai’i áunnizt, þá er
fleira enn ógert. Til þess að koma því í fram-
kvæmd þarf Alþýðuflokkurinn enn á öflugum
stuðningi hins vinnandi fólks að halda. Við heit-
um á alla alþýðu að veita Alþýðuflokknum þann
styrk, sem til þess þarf að gera ísland að far
sældarrfki jafnaðarstefnunnar.
Alþýðuflokkurinn leggur höfuðþunga á þá
þjóðfélagslegu nauðsyn, að allir þegnar þjóðfé-
lagsins búi við jöfn skilyrði og hver einstakling-
ur megi mjóta sín innan þeirra takmarka, sem
hróðurskyldan setur mönnum. Þess vegna miðar
liann stefunskrá sína í bæjarmálum fyrir þessar
kosningaur, eins og ævinlega, við hag f jöldans. —
Öllum vinnufærum bæjarbúum skal tryggð næg
atvinna við þjóðnýt störf og atvinnumöguleikar
auknir með öflun nýrra atvinnutækja í sjávar-
útvegi og íðnaði. Heildaráætlun sé gerð um
framkvæmdir þæjarins, svo að unnt sé að gæta
meiri hagsýni og jafna vinnumarkaðinn. Kapp
sé lagt á að leysa húsnæðisvandræðin, stórauka
byggingu verkamannabústaða og útrýma heilsu-
spiliandi húsnæði algerlega á kjörtímabili því,
sem nú fer í hönd. Hitaveitan sé aukin, svo að
allir bæjarbúar geti haft af henni not. Leitað sé
samstarfs við ríkið um virkjun Þjórsár með það
fyrir augum aðkoma á fót stóriðju. Stakrar hag-
sýni sé gætt í rekstri bæjarins og nýir tekju-
stofnar fundnir til að létta útsvarsbyrðina.
Þetta er það í fáttm orðum, sem Alþýðuflokk
urinn vill til leiðar köma í bæjarstjórn Reykja-
víkur. Starf sitt allt miðar hann við þær grund-
vallarliugsjónir, sem 3águ að alþýðuhreyfingunni
í upphafi. Sú hugsjónaarflf ifð gerir hann sterk-
ari og traustari en aðra flokka, þolbetri, fram-
sýnnj og heilsteyptari. Hún cr það hjarg, sem
1 dægurmálastefnuskráin grundvallast á. Alþýðu-
flokkurinn eggjar nú reykvíska kjósendur lög-
eggjan að veita sér brautargengi við þessar
kosningar, eggjar þá til að Ijá sér lið til að
hrinda jafnréttishugsjónunum í framkvæmd,
eggjar þá til að gera hlut hans svo stóran, að ,
hann fáj úrslitaálirif á stjórn bæjarfélagsins,
um leið og bæjarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðis-
flokksins er að velli lagður.
Reykvískir kjósendur! Þið stjórnið bæjarfé-
laginu heilt kjörtímabil með því að kjósa einn
dag. Gerið sigur Alþýðuflokltsins sem mestan.
Þá er bezt séð fyrir stjórn’’ bæjarfélagsins næstu
fjögur ár.
Sigur Alþýðuflokksins er sigur Reykjavíkxu*.
Jl/La^
k.....................
' ‘ '' .
f : - j , y ' . *
■ "■ "'.V / / /
Til vansæmdar fyrir sljórn Isæjarins a§ láfa siíki viðgangast.
EINHVEK sjálfsagðasta
framkvæmd í hverri horg er,
að fráremnsli frá íbúðarhverf
unum sé veitt til sjávar í lok
uðum holræsum, enda munu
heilbrigðissaniþykktir allra
menningai’horga mæla fyrir
um, að svo skuli gert.
Eins ®g allir vita, er þó
fjarri því, að ráðamönnnm
Reykjavíkurbæjar hafi tekizt
að fullnæ-gja þessari sjálf-
sögðu heilbrigðis- og menn-
ingarkröfu, og er það ,svo, að
heil bæjarhverfi verða árum
sainan að búa við þau ósköp,
að frárennsli frá húsum þar
séu leidd í opnum skurðum
til sjávar. í braggahverfunum
eru þess jafnvel dæmi, að frá
rennslið rennur á milli íbúð-
arskáJanna, þar sem börn eru
að leik og fólk á ferli.
Slíkri ómenningu er ekki
hægt að una til lengdar, en
verður því erfiðara sem
lengra líður úr að bæta, ef hol
ræsagerð er ekki látin hald-
ast í hendur við vöxt byggð-
Framhald á 8. siðu.
Kjósendur í Kópavogi
istinn
KOSNINGIN í KÓPAVOGI á morgun
stendur um úrslitaaðstöðu Alþýðuflokksins í
hinni nýju bæjarstjóm kaupstaðarins eða hvort
kommúnistar eigi að hafa þar meirihluta áfram.
Kópavogsbúar ættu sannarlega að hafá fengið
nóg af óstjórn og vanefndum Finnboga Rúts
Valdemarssonar og fylgifiska hans. Kommún-
istar í Kópavogi gerðu sameminguna við Reykja
-vík að aðalmáli sínu við síðustu kosnmgar. Þá
sögðu þeir vitað, að Gunnar Thoroddsen væri
því mjög hlynntur, að sameiningin tækist. Síðan
hefur ekkert í málinu gerzt. Og á framboðs-
fundinum fyrir nokkmm dögum hafði Finnbogi
Rútur sér það eitt til afsökunar, að hann skildi
ofurvel þau sjónarmið borgarstjórans í Reykja-
vík að vilja ekki fá Kópvogsbúa á kjörskrá í
höfuðstaðnum! Mennimir hafa orðið innilega
sammála um svikin!
Finnbogi Rútur hafði ekki meiri áhuga á
lausn húsnæðismálanna í Kópavogi en svo, að
hann gleymdi að brýna fyrir Hnnibal, bróður
sínum, að mmia eftir fólkinu hinum megin við
Fossvogslækinn. Hingað til hefur þó Finnbogi
fengið orð fyrir að vera ráðríki bróðirinn. En
hann missti skapsmunina, þegar umbjóðendur
hans í Kópavogi þurftu á liðveizlu hans og for-
ustu að halda. Á framboðsfundinum stóð Finn-
bogi varnarlaus í þessu máli. Hann man eftir
því einu, að koma fjölskyldu sinni í allar trún-
aðarstöður í Kópavogskaupstað. Maðuriim virð-
ist sem sé hata andstæðingana, en fyrirlíta sam-
herjana.
Olluin Kópvogsbúum er Ijóst, að eina
tækifærið til að hnekkja einokunaraðstöðu
Finnboga Rúts og Marbakkafjölskyldunnar
er að Alþýðuflokkurinn KÁÐI ÚRSLITUM
við bæjarstjómarkosningarnar á morgun.
Þeir, sem kjósa A-listann, velja atvinnuör-
yggi, framfarir, bætt skipulag kaupstaðarins,
heill og hag bygðarlagsins. Stefnuskrá A-list-
ans túlkar vilja og óskir Kópavogsbúa. Þess
vegna þarf að tryggja henni sigur á morgun.
Hinir kjósa kyrrstöðu fráfarandi meirihluta
eða úrræðaleysi íhaldsins.
Veljið Kópavogi lýðræðislega stjórn. Kjósið
!
\
$
V
"s
s
\
s
\