Alþýðublaðið - 21.03.1958, Page 6
6
A1 þ ý 8 n b 1 a 8 I 8
Föstudagur 21. marz 1958
'HINN FYRSTA APRÍL n,k.
munu fulltrúar frá United
Automobile Workers og helzt'
'bifreiöaframleiðendur Banda-
xíkjanna hefja viðræður um
nýja kjarasamninga í stað
þeirra, sem falla úr gildi hinn
30. maí í ár.
Umdeildasta atriðið, sem tek
ið verður fyrir, er sú krafa
verkalýðsfélaganna, að fram-
leiðendur veiti verkamönnum
hlutdeild, sem svarar 25 af
hundraði, í hreinum hagnaði
fyrirtækisins yfir 10 af hundr
aði. Tillaga þessi var borinfram
af Walter Rauther, forseta
United Automobile Workers,
og samþykkt af 3000 fulltrúum
verkalýðsféjagsins á sérstakri
ráðstefnu í Detroit.
Rauther mælti með þrenns-
konar skiptingu á „aukahagn-
aði“ fyrirtækja: að 50 af hundr
aði færu til eigenda og hlut-
hafa, 25 af hundraði til verka-
manna og 25 af hundraði til
niðurgreiðslu til bifreiðakaup
enda. Að þessu sinni verður þó
aðeins krafan um hlutdeild
verkamanna í hagnaði fyrirtæk
isins baráttumál verkalýðsfé-
lagsins.
Hagfræðingar verkalýðsfé-
lagsins skýra svo frá. að ef
þessi tillaga Rauthers hefði ver
ið framkvæmd á tímabilinu
1947—1956 hjá bílaiðnaðarfyr
irtækinu General Nlotors,
hefði hin árlegu arðhlutaskipti
starfsmannanna að meðaltali
numið 278,500,000 dollurum, þ.
e. kringum 31 eent á klst, auk
hinna venjulegu launa.
Stjórnir þeirra þriggja iðn-
fyrirtækja, sem hlut eiga að
máli — General Motors, Ford
og Chrysler — vísuðu tillög-
unni á bug umsvifalaust. Har-
low H. Curtice, forseti Gener-
al Motors, sagði, að hún væri
„róttæk . . og ósamrýmanleg
hinni amerísku hugsjón um
frjálsa samkeppni“. Svipuð
gagnrýni kom fram af hálfu
stjórna Ford og Chrysler.
Afstaða Rawsons Wood, for
manns Council of Profit Shar
ing Industries, var önnur.
Harai skýrði svo frá, að arð-
skiptaskipulag það, sem fram
Walter Reuther.
kvæmt hefði verið við málm-
steypUlfyriirtæki hans í Níew
York og Los Angeles. hefði orð
ið til þess að bæta framleiðslu
fyrirtækisins og auka hagnað
þess og vinnugleði starfsfólks-
ins.
„Ein af beztu leiðunum til
þess að varðveita og bæta hina
frjálsu samkeppni er arðskipí-
ing“, sagði hamr. „Ef hægt væri
að koma tillögu United Auto-
mobile Workers í framkvæmd,
myndi hún geta stuðlað að því
að- stöðva kapphlaupið milli
kaups og verðlags".
Krafa Unit’ed Automobile
Workers ber vott um þýðingar
mikla breytingu á afstöðuverka
lýðsins til arðskipta. Yerka-
lýðsleiðtogar voru vanir að visa
slíkum áformum á bug á þeim
grnudvelli, að af þeim leiddi
aukirrn vinnuhraði og þau væru
í sumum tilfellum notuð til
þess að réttlæta lægri grund-
vallariaun.
En eftir því sem verkalýðs-
félcgum hefur vaxið styrkur,
og þau hafa fengið bolmagn til
þess að veita félögum sínum
vernd gegn ofríki, hefur and
staðan gegn slíkum áformum
smám saman mir.nkað. Hin síð
ustu ár hafa æ fleiri tillcgur
um arðskipti komið til fram-
SPÉSPEGILL
, '/v ý’Cú ’?*£,
I 1 Æ. .
kvæmda og hafa margar
þeirra verið árangur af starfi
verkalýðsfélaga.
Council of Profit • Sharing
Industries, stofnun sú, sem
veitir allar upplýsingar um arð
skilptingu í Bandaríkj unum,
hefur gefið þær upplýsingar,
að kringum 20,000 framleiðend
ur í Bandaríkiunum, hafi nú
samkomulag af einhverju tagi
við starfsfólk sitt um arðskipt
ingu. Nær það til milli 1.500.000
og 2.000,000 starfsmanna. Um
tveir þriðju hlutar allra iðn-
fyrirtækja í Bandaríkjunum
starfa í sambandi við verkalýðs
félög.
Samkvæmt upplýsingum
þessarar stofnunar eru eftir-
farandi þrjár tegundir arð-
skiptinga algengastar.
1. Atvinnurekandi úthlutar
reiðufé mánaðarlega, á þriggja
mánaða fresti, á sex mánaða
fresti eða árlega.
2. Innborgun arðhluta í
styrktarsjóð, en úr honum er
síðan borgað, venjulega þegar
starfsmaður deyr, verður ó-
vinnufær eða hættir störfum
fyrir aldurs sakir eða af ein-
hverjum öðrum ástæðum.
3. Arðhlutum er skipt, þann.
ig að annar hlutinn er borgað
ur í reiðufé í sjóð, sem starfs-
menn fá arðgreiðslu úr, venju
lega einu sinni á ári, og hinn
hlutinn lagður í styrktarsjóð,
sem greitt er úr, þegar starfs-
maður deyr, verður óvinnufær
eöa hættir störfum.
Meðal stærri fyrirtækja er
^ger^gáslt arðskiptí^'yi^rkomu
lagið, sem um getur í annarri
grein. Þekktustu og elztu arð
skiptaáætluninni, sem enn er
í framkvæmd, var komið á ár
ið 1886 af William Procter við
sápufyrirtækið Procter and
Gamble Company.
Önnur þekkt fyrirtæki, sem
framkvæma arðskiptingu á
sama grundvelli, eru: Lever
Brothers, Motorola, Pacific
Finance, Sears-Roebuck, Solar
Aircraft, Union Tank Car,
Jewel Tea og Western Auto
Supply.
Mun færri af hinum stærri
fyrirtækjum framkvæma arð-
skiptingu á grundvelli fyrstu
greinar. Eitt þeirra er fyrir-
tækið Eastman Kodak og var
því komið á árið 1912. Árið
1957 borgaði það 50,000 starfs
mönnum sínum samtals 38,200,
000 dollara í launaágóðahluta.
Auk þessa hefur fyrirtækið ann
an sjóð, sem eftirlaun eru
greidd úr.
Annað dæmi er frímerkja-
mælafyrirtæfkiðl Pitneý-
Bowes. Samkvæmt fyrirkomu-
lagi þess sem gekk í gildi ár-
ið 1946, fara fram greiðslur í
reiðufé á þriggja mánaða fresti
og er úthlutað 25 af hundraði
af hreinum hagnaði af rekstri
fyrirtækisins, áður en skattar
eru frádregnir, til arðskipta og
ellilauna. Árið 1956 námu launa
arðskiptingar 1,400,000 dollur-
um, og svipuð upphæð var
greidd í ellilaunasjóð. Við fyr-
irtækið starfa kring.um 3 900
manns.
Arðskipting hefur verið skil
greínd; þannig, að hún sé „fyr-
irkomulag, þar sem atvinnu-
rekandi greiðir öllu starfsfólki
— auk venjulegra launa •—
Framhald á 8. síðu.
Éslenzk ®g erlend úrvaBslféð:
í GRÆNAN febrúarhimin
stara brostin augu vatnanna
frá kaldri ásjónu landsins.
Af ferðum vindanna eirðarlausu
um víðáttu hvolfsins
hafa engar spurnir borizt.
Litlausri hrímþoku blandið
hefur lognið stirðnað
við brjóst hvítra eyðimarka.
Undir hola þagnarskeliina
leita stakir bassatónar
þegar íshjartað slær.
Á mjóum fótleggjum sínum
koma mennirnir eftir hjarninu
með fjöli á herðum sér.
S
s
s
s
s
s
c
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s,
s
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
i
( Bréfakassinn )
ÞAÐ HEFUR komið í Ijós nú
og á síðustu árum, að eitt af
mestu vandamálum fiski og
síldarútvegsins er, hvað erfitt
er að fá íslenzka sjómenn á
skipin. En við, sem eldri erum,
munum aðra tíma. Fyrst eftir
að hinir stærri vélbátar og tog-
arar komu til sögunnar, fengu
ekki skiprúm á þeim nema
vanir og harðduglegir menn,
enda var- erfiðið og vökur meira
þá, áður en vökulögin komu,
og jafnvel eftir það, á meðan
ekkí var nema 6 tíma hvíld á
sólarhring. Voru menn oft orðn
ir þreyttir og syfjaðir eftir 18
tfma stöðu á dekki, oft í mis-
jöfnu veðri, þó duglegir væru.
En nú síðan. 12 stunda vökulög-
in voru lögfest á alþingi, hef-
ur viðhorfið breytzt mikið til
bóta, bæði hvað svefn, hvíld og
allan aðbúnað snertir, svo að
hraustir unglingar geta vel
komið til greina sem nútíðar
sjómenn. Og það er leiðin, sem
ber að stefna að. Og það verð-
ur ekki gert á annan. farsælli
hátt en að hið háa alþingi taki
rnálið að sér, og lögleiði þegn-
skylduvinnu sjóvinnunámskeið
eða að undangenginni rann-
sókn til hvað margra manna
lögin mundu ná, t.d. 16—18 ára.
Og ef nægilegur fjöldi fengist
með tveirnur árgöngum, yrði
tveggja ára sjóvinnunámskeið
lögleitt á alþingi á vor- og
síldarvertíð. Þetta fyrirkomu-
lag hefði þann kost, að hann
yrði unglingunum góður upp-
eldis- og lærdómsskóli, senx
mundi jafnvel bjarga mörgum
unglingnum frá glapstigum og
gera hann að nýtum og dugleg-
um manni. Við höfum dæmin
fvrir okkur, hvernig aðrar
stærri og voldugri þóðir levsa
svipuð verkefni og lögleiða hjá
sér herskyldu og þykir ekkert
harðræði, en sem betur fer er-
um við Islendingar lausir við
hana. — En við getum ekki
horft upp á það, að aðalatvinnu
vegur vor. sem mesta og bezta
lífsafkomu veitir hinni íslenzku
b.ióð, dragist saman eða bíði
hnekki vegna mannleysis. Og
það er alls ekki vansalaust að
þurfa að manna skipin út með
útlendingum. Og þá vaknar,
spurningin, hvað verður lengi
að bíða þess, að þeir taki yfir-
ráðin á flötanum og því næst á
landinu. Og er því sjálfstæði og
þjóðerní hínnar íslenzku h.ióð-
ar í mikilli hættu, ef ekkert er
• að gert í tíma.
Þór.
nn3 pgfttsffSMir
í Laugarneskirkju sunnudagiim 23. inarz kl. 8,3§.
Páll Kr. Pálsson aðstoðar og leikur orgelsóló.
Áðgöngumiðar seldir hiá Sigfúsi Eymundssyni, Blöndal,
Skólavörðustíg 2 og Vesturveri.