Forvitin rauð - 01.10.1980, Síða 7
7
Laumudrykkja húsmæðra ei
alþekkt fyrirbæri og
umrættj en það er alveg
horft framhjá þeirri
staðreynd að stór hluti
kvenna vinnur utan heim-
ilis, en á við áfengis-
vandamál að stríða samt.
Konurnar leyna ástandi
sínu
Meginvandamál kvenna
í alkohólnum ög þeirra
sem vilja veita. þeim
aðstoð er hve mjög þær
leyna ástandi sínu.
Konur sem drekka hafa
löngum verið fordæmdar
harðlega af samféla^-
inu (sbr.^lýsingar a
þeim í bókmenntum) -
afleiðingin er sú að
konur leita ekki hjálp-
ar fyrr en í ítrustu
neyð. Það sem meira er
allir þeir sem eiga að
aðstoða, allt frá eig-
inmanni og fjölskyldu
til lækna horfa oft
framhjá þeirri stað-
reynd að viðkomandi
kona er alkóhóliseruð.
Eiginmenn hreinlega
neita að viðurkenna
staðreyndir, og þegar
þeir loksins viðurkenna.
hvað orðið er, koma
þeir sér á brott. Af
hverjum lo körlum
skilja 9 við konur sín-
ar ef hún reynist alkó-
hólisti meðan aðeins
1 af hverjum lo konum
skilur við mann sinn
af sömu sökum.
Það er mjög algengt
að horft sé framhjá
vandamálinu á spítulum,
segir í skýrslunum frá
Kanada,.' Konur eru
sjaldan spurðar um á-
fengisneyslu við lækn-
isrannsóknir og könnun
sem gerð var í Ottawa
sýndi að 44$ kvennanna
sem voru til meðferðar
vegna áfengisvandamála
þeirra höfðu EKKI A/ERIÐ
SPURÐAR UM AFENGIS-
NEYSLU SÍNA.
Hið versta sem fram
hefur komið er hve á-
fengisböli kvenna er
oft blandað saman við
taugaveiklun og and-
lega vanlíðan. Afleið-
ingin er sú^að í stað
meðferðar fá þær róandi
lyf. Við frekari^rann-
sóknir kémur í ljós að
allmargar konur hafa
fyrir löngu náð sér í
dóp til að róa taugarn-
ar til viðbótar við vín-
ið. Starfsfólk á stofn-
unum fyrir áfengissjúkl-
inga segir að mjög oft
mæti konurnar með væn-
an skammt af pillum í
nesti. Staðreynd sem
engan ætti að furða á,
þar sem um '{tíjc ailra
róandi lyfja í Kanada
er vísað á konur.,
Konur falla fyrir
víninu mun eldri en
karlar en þróast því
hraðar til áfengissýki.
Þær gefa oft þá skýr-
ingu að einhver ákveð-
inn atburður hafi leitt
þær út í drykkjuna,
dauðsfall, skilnaður,
börnin yfirgefa hreiðr-
ið o.fl. Sumir efast
um þetta og segja að
konur reyni alltaf að
gefa þær skýringar sem
þær vita að samfélagið
tekur góðar og gildar.
Það virðist svo sem
konur í alkóhólnum
vanti allt sjálfstraust
og sjálfsálit og þær^
gangast undir mat þjóð-
félagsins á sér. Hins
Konan má ekki bregðast.
Viðtal við Aðalheiði
Birnu Gunnarsdóttur,
áfengisráðgjafa
Ég fór í heimsókn
til Birnu og sníkti
kaffi og viðtal eitt
kvöldið í tilefni þess-
ara skrifa Forvitinnar
rauðrar um konur dg
vímugjafa. Birna vildi
gera þann fyrirvara við
það sem hún segir hér
á eftir að engar kann-
anir eða beinharðar
tölur eru til hérlendis
um notkun og misnotkun
kvenna á vimugjöfum.
Það sem hún segir er
því allt í senn: "per-
sónulegar skoðanir, það
sem ég hef lært í
Bandaríkjunum þar sem
ég hef fengið þjálfun
í meðferð afengismála,
það sem ég hef sjálf
reynt og það sem ég hef
séð" - eins og hún
sagði.
Hvað geturðu sagt okkur
um drykkjusiði ísl.
kvenna?
Konur leyna drykkju
sinni eins lengi og
stætt er á. Fyrir því
eru margar ástæður en
ég tel, þér að segja
að uppeldið eigi þar
stærstan hlut að máli.
Konurnar eiga að vera
óvirkar og það er ekki
ætlast til þess að þaar
láti til sín taka úti í
þjóðfélaginu - þar eru
karlarnir virkir. Þó
að körlunum leyfist að
vera svolíti^ brokk-
gengir í einkalífinu þá
er ætlast til þess að
konurnar standi eins og
klettur úr hafinu innan
fjölskyldunnar, gagn-
vart eiginmanni og börn-
um. Ef sá klettur mol-
ast niður þá hefur eitt*
hvað hræðilegt gerst.
Fjölskyldan er horn-
steinn þjóðfélagsins og
konan er hornsteinn
fjölskyldunnar er stund-
ur sagt.
Svona skoðar al-
menningsálitið stöðu
konunnar, móðurinnar,
í fjölskyldunni, við
erum öll alin upp við
þennan hugsunarhátt og
ef konurnar bregðast
dæmir almenningsálitið
þær hart - en sjálfar
daana þær sig harðast af
öllum. Þess vegna
neita þaer að horfast í
augu við drykkjuskap
sinn og þess vegna
leyna þær honum fyrir
öðrum. Sektarkenndln
er það sem einkennir
drykkjuskap kvenna um-
fram allt annað. Þegar
konur eru að fela flösk-
una eða glösin eru þær
ekkert síður að fela
staðreyndir fyrir sjálf-
um sér en öðrum.
Hvað getur svona ástand
gengið lengi?
Það getur gengið
lengi. Ég hef séð og
vitað um konur sem
beita ótrúlegum sjálfs-
aga, mæta í boð og
dreypa á einu glasi
allt kvöldið eins og
"ladies". Þær fara
hins vegar snemma heim
- af því að heima eiga
þær flösku.
Konur sem eru alkó-
hólistar eru alls stað-
ar. Alkóhólisminn er
sjúkdómur sem fer ekk-
ert í manngreinarálit.
Mamma þín, systir þín,
kennarinn þinn, konan
sem vinnur við hliðina
á þér, læknirinn þinn
- allt geta þetta ver-
ið konur sem eru að
fela drykkju sina vand-
lega.
Leita konur enn síður
hjálpar vegna alkólhol-
isma en karlar?
Ja, ennþá. ^Það kemur
inn a það sem ég sagði
um harða dóma samfélags-
ins vegna drykkju
kvenna. Ég held að
hlutfallið sé u.þ.b.
ein kona á móti hverj-
um þremur körlum sem
koma til meðferðar.
Standa makar og f.iöl-
skyldur á sama hátt~liieð
áfengissjúkum konum og
körlum?
Nei. Þetta kemur
líka inn á það sem ég
sagði fyrst. Karlmenn
eru mjög háðir þeirri
hugsun að móðirin sé
eitthvað sem ekki
bregst, móðir þeirra er
gjarna hafin yfir gagn-
rýni og þeir vilja að
móðirin sem þeir völdu
börnunum sínum sé
traust og góð. Ef hún
bregst, ef hún verður
drykkjusjúk, þá vilja
þeir ekki sjá það,
víkja því frá sér,
neita því þangað til
því verður ekki neitað,
þá fara þeir. Þann-
ig eru viðbrögðin ansi
oft. Þeir hugsa: "HÚn
og börnin komast betur
af án mín".
En ef konan er veik er
þetta hroðaleg a órök-
rétt.'?
Karlmenn eru ekki
eins rökfastir og kon-
ur. Þeir bregðast við
á siðferðilegan^og til-
finningalegan hátt,
verða gjarna ruglaðir
og missa áttirnar þegar
þeir standa frammi fyr-
ir sjúkdómum og erfið-
leikum innan fjölskyld-
unnar. Ég held að
þetta eigi sér líka
stoð í uppeldi og fél-
agsmótun. Bæði karlar
og konur eru^bæði veik
og sterk, mjúk og hörð
að eðlisfari, en það er
alltaf ýtt undir mýkt-
ina hjá konum, hörkuna
hjá körlum. Konur^
passa allt sem á bágt,
karlarnir vilja oft
gera það en vita ekki
hvernig á að fara að
því.
NÚ segja tölur frá
Kanada að níu af hverj-
um tíu eiginmönnum
skilji við alvarlega
drykkjusjukar konur en
hlutfallið se öfugt
hja konum drykkjumamia.
Heldurðu að þetta se
svipað her?
Það mætti segja mér
það.
í hverju felst meðferð
við alkóhólisma?
Alkóhólismi er sjúk-
dómur, stigversnandi,
ólæknandi og banvænn.
ÞÚ ert aldrei laus við
hann ef þú ert orðin
virkur alkóhólisti, en
þú getur haldið honum
óvirkum. Alkóhólisti
drekkur ekki í dag,~er
sú lífsregla sem menn
verða að setja sér.
MÍn skoðun^er sú að við
höldum alkóhólisma við
á þrennan hátt: í
fyrsta lagi með alkó-
hóli, í öðru lagi með
pillum eða öðrum vímu-
gjöfum og í þriðja lagi
með neikvæðu hugarfari.
Alkóhólisminn er
líkamlegur, andlegur,
félagslegur og að mínu
mati líka trúarlegur
sjúkdómur og það er
EKKI nóg að taka alkó-
hólið frá manneskju,
það verður að fjalla
um allt hitt 'líka.
Það hefur sýnt sig
að það er hægt að
hjálpa fólki alfarið
frá þessum sjúkdómi,ef
það vill losna við
hann og hjalpa ser
sjálftT En fólk verður
einlaqglega að vilja
sjálft og þetta á ein-
kum við um konur með
áfengisvandamál. Það
þýðir ekkert að^bíða
óvirkar eftir því að
einhver geri eitthvað
.í málinu, þær verða að
taka fulla ábyrgð á
eigin vandamáli og
VILJA s^álfar vinna í
því. Þa getum við
hjálpað.
DK.