Forvitin rauð - 01.10.1980, Qupperneq 16

Forvitin rauð - 01.10.1980, Qupperneq 16
___________________________ 16 Einstæður faðir í Hollywood Þegar myndinni lauk var ekki þurrt auga i salnum. Pólk snýtti sér og snökti og nudd- aði augun með renn- blautum vasaklútum. Svo fór allt í einu einhver að hlæja og innan skamms skelli- hlógu flestir í salnum. Ég hló líka. En svo datt mér í hug að þarna væri okkur mannskepn- unum rétt lýst; öll varnarkerfi sett í gang þegar eitthvað snertir okkur inn í■ kviku. Maður getur auðvitað ekki verið^ þekktur fyrir að gráta í bíó.' Myndin sem olli þessum geðshræringum heitir Kramer gegn Kramer og er lön^u orðin heimsfrseg a^ls- landi þótt ekki sé von á henni hingað fyrr en um næstu jól. Frægðin byggist fyrst^og fremst á einhverjum ósköpum af öskarsverðlaunum sem leikstjórinn, Robert Benton og aðalleikarinn Dustin Hoffman fengu við síðustu úthlutun. Efni myndarinnar hefur einnig vakið óskipta athygli, enda væri synd að segja. að einstæðir foreldrar og vandamál þeirra væru beinlínis vinsælustu yiðfangsefni Hollywood-fleikst jóra. Söguþráðurinn Kramer gegn Kramer er nefnilega þetta sem engum hefði dottið í hug fyrir nokkrum árum að einhverntíma yrði framleitt í Hollywood: vandamálamynd. í henni segir frá hjónunum Ted og JÓhönnu Kramer og syni þeirra Billy. jóhanna er óhamingju- söm í hjónabandinu, Ted er "ungur maður á uppleið" 1 auglýsinga- bransanum og gefur sér engan tíma til að sinna henni og Billy. Hún er að renna saman við veggfóðrið í íbúðinni. Gegn þessu gerir hún uppreisn sem felst í því að hún yfirgefur feðgana og fer til Kaliforníu að leita að sjálfri sér. Ted sit- ur uppi með strákinn og verður að gjöra svo vel og fara að sinna honum. Hann finnur brátt að það samræmist engan veginn að vera framagosi og einstæður faðir. Smám saman fer hann að endurmeta af- stöðu sína til lífsins, til sjálfs sín og sonar síns. Hann missir starfið og fær brátt annað sem er ekki eins vel launað en heldur ekki eins stressað. Myndin lýsir síðan daglegu lífi þeirra feðga og samskiptum þeirra I blíðu og stríðu. Þegar jóhanna. hefur verið að heiman í hálft annað ár kemur hún aft- ur og vill fá Billy til sín. Ted vill fa að halda stráknum og málið fer fyrir dómstóla sem dæmir móðurinni barnið. Þetta er í örstuttu máli söguþráður myndar- innar. Hann segir ekki mikið samt sem áður, einn og sér. Mestu máli skiptir að um þetta efni hefur Robert Benton og leikurum hans tekist að gera mjög sannfærandi mynd sem áhorfendur trúa og lifa sig inn í. Dustin Hoff mann, Meryl Streep og Justin litli Henry eru öll afbragðsleikarar, og sama er að segja um Jane ^Alexander sem leik ur nágrannakonuna Margaret. Handritið er frábserlega skemmtilegt og vel uppbyggt. Mynd- in er hefðbundin að formi, róleg og spenn- andi atriði skiptast á og öll áhersla er lögð á leikinn, persónusköp- unina. Kvikmyndatakan undirstrikar^þetta mætavel. Prásagnarmát- inn er yfirvegaður, af- slappaður án þess að verða hægur, og myndin er aldrei leiðinleg. Spurningar Hins ^vegar vekur myndin ýmsar spurningar. Jafnréttissinnar hafa. bent á þá staðreynd að öldum saman hafi það asvinlega lent á konum að sjá einar fyrir börnum sínum en engum hafi dottið í hug að gera kvikmy.nd um þeirra daglega streð. "Vanda- mál einstæðra foreldra" séu því ekki"spennandi" fyrr en karlmaður fari að glíma við þau. Þetta er sjónarmið út af fyrir^sig og athygl- isvert þótt það dragi ekki úr gildi myndar- innar að mínu mati. Nema ef vera skyldi að í kjölfar hennar fylgdi flóð af kvikmyndum um "vesalings karlmennina'.' Þá hefur verið bent á að hlutur móðurinnar í myndinni sé heldur lítill og fremur nei- kvæður. Það er rétt að áhorfandinn kynnist jó- hönnu lítið, fyrr en í réttaratriðinu sem er síðast í kvikmyndinni. En þá bregður- Meryl Streep upp mjög sannfsar- andi og jákvæðri mynd af henni sem^ég tel að við konur í áhorfenda- hópi getum vei við unað. Reyndar laug því ein- hver að mér að Meryl hefði sjálf samið þetta atriði, þ.e. ræðuna sem hún flytur fyrir rétt- inum. Þar lýsir hún hjónabandi þeirra Ted síðustu fimm árin, hvernig þau hafi stöð- ugt fjarlægst hvort annað vegna þess að^ hann hafði aldrei tima til að sinna henni og hvernig hún missti sjálfstraustið, varð hrædd og óhamingjusöm og fannst hún vera ófær um að gegna móðurhlut- verkinu. Þetta minnir óneitanlega á Nóru í Brúðuheimilinu. Kramerhjónin eru vel efnuð og vel menntuð. Þótt Ted lækki í laun- um virðist það ekki hafa nein sjáanleg á- hrif á lífskjör hans. jóhanna fær starf sem er betur launað en nýja starfið hans Ted, eftir að hún er farin að heiman. Baráttan fyrir brauðinu er víðsfjarri. Sykurhúð Kramer gegn Kramer sver sig í~ætt við ýms- ar aðrar nýlegar banda- rískar myndir - myndir eins og An unmarried woman, Aliee doesn't live here anymore og margar fleiri þar sem samskipti fólks og eink- um samskipti kynjanna eru þungamiðja atburða- rásarinnar og sýnd í nýju ljósi. Það er dá- lítið merkilegt að þessar myndir skuli koma frá Bandaríkjunum og vera framleiddar innan þess kerfis sem um áraraðir hefur verið ein helsta draumafa- brikka heimsins, þaðan sem sykurhúðaðar glans- myndir^af fallegu og ríku fólki haf^ streymt yfir okkur og fyllt okkur af öfund og amer- ískum' draumum. Enn er talsvert eft- ir af glanshúðinni. Fólkið í myndinni er t.d. bæði ríkt og fall- egt, gáfað og gott, skilningsríkt og sið- menntað. Það lifir í heimi þar sem peningar "skipta ekki máli". Það læðist að manni sá grunur að veruleikinn sé allmiklu harkalegri og fáránlegri en hann^ er sýndur 1 myndinni.' ÞÓtt réttaratriðið sé frábærlega vel leikið og áhrifaríkt og aðferð ir lögfræðinganna sví- virðilegar þegar þeir hamast við að "sanna" að sinn skjólstæðingur sé betur fær um að ala upp barn en hitt for- eldrið,þá grunar mann að í raun séu réttar- höld af þessu tagi^ein- hvern veginn öðruvísi. 1 breska bla,ðinu"Spare Rib" sá ég t.d. grein eftir konu sem hafði lent í svipuðu máli í Bandaríkjunum og mót- mælti hún hástöfum þeirri glansmynd sern^ dregin væri upp af rétt- arhöldunum. Tímamót En þrátt fyrir þetta allt er það staðreynd að Kramer gegn Kramer er kvikmynd sem markar tímamót. Eins og ég sagði áðan sýnir hún samskipti kynjanna í nýju ljósi, því lj/si sem jafnréttisbaráttan á liðnum áratugum hefur varpað á þessi sam- skipti. Það sem gerir myndina svo merkilega er þó fyrst og fremst lýsingin á aðalpersón- unni, Ted. Þróun hans úr dæmigerðum karlmanni og framagosa í mann- eskju og föður sætir vissulega tíðindum á kvikmyndatjaldinu. í myndinni endur- speglast þau viðhorf sem hafa verið að ryðja sér til rúms á Vestur- löndum í kjölfar jafn- réttisbaráttunnar. Kynslóð Ted Kramer er áreiðanlega sú fyrsta í mannkynssögunni sem hafnar þeirri karlímynd sem við höfum búið við svo lengi. Það er ó- neitanlega mikils virði að fá þessa ný^u^mynd af karlmanni nútímans beina leið frá Holly- wood, þaðan sem við 7 Að vera í alkóhólinu. . . vegar kemur fram að þessar konur hugsa ekk- ert öðru vísi en aðrar konur, sjálfsálit þeirra er bara í lág- marki. Konur, vinna og áfengi Heimlldir: Ruth Cooper- stock, A Review of Womens” Psychotropic Drug Use. Það sem maður fær. . . . vini sem^styrkja mig; eins og ég styrki þa. Ég hef breyst mikið, fundið jafnvægi sem ég hafði ekki áður og mér finnst, svei mér þá, að ég sé núna fyrst að skilja hvað raunveruleg lífsgleði er. Stundum þarf maður að ganga i gegnum eitt- hvað ljótt til að finna það sem er verulega fallegt. DK. höfum alltaf fengið fyrirmyndir. Við get- um orðað þetta svo: Jöhn Wayne er dauður, len§i lifi Dustin Hoff- man. Ingibjörg Haraldsd. vil ekki gleyma. . . mál að í gegnum allt þetta hafa börnin mín spjarað sig - þau eru falleg og efnileg og góðir krakkar. Þau hafs komið standandi niður þrátt fyrir allt. Meðferðir Árið 1976 var ég sprautuð niður eftir fjögurra daga túr og lögð inná Geðdeild Borgarspítalans í með- ferð. Eg fékk pillur - mikið af þeim - svo að ég var í einhvers konar vímu allan tím- ann. Ég varð mjög ör. Ég sat inni í handa- vinnustofu frá morgni til kvölds og saumaði og föndraði, þrælstress- uð, ég gaf mér varla tíma til að fara £ mat eða kaffi, ég var allt- af að klára eitthvað. Ég sat þarna í vímu og framleiddi eins og verksmiðja í níu daga, þá var ég útskrifuð. Árið 1977 fór ég upp í Reykjadal og aftur árið 1978 Þá var farið að líða mjög langt á milli túranna, margir mánuðir en seinni dvölin í Reykja- dal og Sogni hafði mjög sterk áhrif á mig. Samt datt ég aftur og fór þá á Silungapoll en datt enn einu sinni í vor. Það tekur óskaplega langan tíma og það er^mjög erfitt og mikil átök að viður- kenna, fyrir sjálfum sér að maður sé alkó- hólisti og að vín sé ekkert^fyrir mann. Ég held nú samt að þetta sé að komast inn í kollinn á mér núna. ^Þe§ar ég datt síðast fór eg í meðferð á Göngudeild Landspítal- ans. Þar fékk ég víta- mínsprautur og tvær tegundir af pillum sem ég veit ekki hvað heita, Þetta gekk í viku en mér leið svo undarlega af þeim, ég varð svo æst og óeðlileg o^ þess vegna hætti eg að fara uppeftir. Vinkona mín sækir sér hálfs mánaðar skammta á Göngu deildina og krossar það svo með brennivíni þegar henni sýnist. Pillur Ég veit lítið^um^ pillur eins og þú sérð en þriðji maðurinn minn var á kafi í þeim. Við vorum búin að vera saman í fimm mánuði þegar ég komst að því að hann var dópisti. Þetta var fyrir fjórum árum og ef hann varð lens keypti hann amfetamín á "svörtum". Pillan kostaði fjögur þúsund krónur þá. Hann er dáinn núna, á besta aldri, hjartað í honum f ór. Ég er búin^að vera edrú núna og án vímu- gjafa í nokkra mánuði og er fjári hress. Ég man mjögj vel hvernig ég fór utúr síðasta fylliríi - ég skalf svo ofboðslegja að ég gat ekki stjornað ein- um einasta vöðva lík- amans, ég komst ekki hjálparlaust á klósett- ið. Ég man líðanina mjög vel og ég vil ekki gleyma henni í bráð. Þar að auki hugsa ég eins og við öll: Ég drekk ekki í dag. DK. Sú skýring er oft nefnd á drykkju karl- manna að þeir séu undir svo miklu álagi á vinnu- stað og séu hundleiðir á og firrtir vinnunni. Konur eru stundum tald- ar öfundsverðar ef þær geta "leyft sér að vera heima", en staðreyndin er að margar konur finna til vanmáttar og innilokunar heima. VÍnið er hins vegar ekki viðurkennt sem lausn við slíku stressi. Konur sem drekka vegna álags á vinnustað eru almennt álitnar heldur ókvenlegar. Þær reyna þó hvað þær geta að standa sig í vinnunni og tölur sýna að 80$ kvenna sem eiga við áfengisvanda að stríða stunda. sína vinnu án teljandi vandræða. Vinnan er konum alveg jafn mikilvæg og körl- um. Það kemur fram hér sem víða annars staðar að það gilda ekki sömu reglur um konur og karla., það sem herrun- um leyfist er ekki álit- ið heiðvirðum konum sæmandi, samanber þær venjur sem^víða gilda þar sem kráarmennin^ á sér langa sögu. Bjor- drykkja karlmanna í vinnutímanum þykir nokkuð sjálfsögð en líðst vart á vinnustöð- um kvenna. Eftir þéssar upplýs- in^ar benda^konurnar fra Kanada á að konur þurfi á meðférð að halda og að það verði að sinna þeirra vanda- málum í ríkara mæli en hingað til, þar sem þær ^era meira til að fela áfengisbölið af ótta við viðbrögð fjölskyld- unnar, ótta við að standa einar uppi. K.Á.

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.