Forvitin rauð - 01.01.1982, Qupperneq 2
2 FORVITIN RAUÐ
Útgefandi: Rauðsokkahreyfingin, Skólavörðustíg
12, 4. hæð, sími 28798.
Ábyrgðarmaður: Kristín Jónsdóttir
Merktar greinar eru á ábyrgð höfunda.
Húsnæði Rauðsokkahreyfingarinnar, Sokkholt,
er opið alla virka daga kl. 17—18.30. Þar er hægt
að fá ráðleggingar og upplýsingar um ýmis mál er
varða allar konur. Einnig erum við með opið hús
kl. 14—17 alla laugardaga. Sími 28798.
ímiðstöð
Rauðsokkahreyfingarinnar
eru nú:
Anna Karin Júlíussen
Hildur Jónsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Margrét Rún Guðmundsdóttir
Martha Sverrisdóttir
Sigríður Albertsdóttir og
Sigurbjörg Árnadóttir
Endurreisn
Lesandigóður!
Eins og þér mun vera kunn-
ugt, kom fram uppástunga um
að leggja Rauðsokkahreyfing-
una niður fyrir jól. Með því
markmiði var fundur haldinn
15. desember sl. Sem betur fór
voru skiptar skoðanir um málið
og er þetta blað árangur af því.
Stofnuð var ný, 7 manna
miðstöð, sem þegar hóf störf af
miklum krafti. Mun hún
starfa, til að byrja með, fram
að ársfjórðungsfundi í mars
nk. Byrjað var á að ræða
skipulag hreyfingarinnar og var
miðstöð skipt niður í embætti:
formann, gjaldkera, ritara,
menningarfulltrúa og 2 skipu-
lagsstjóra og lögð mikil áhersla
á ábyrgð hvers embættis, því
miðstöð var sammála um að
orsökin fyrir athafnaleysi
hreyfingarinnar undanfarin ár,
sé að miklu leyti stjórnleysi að
kenna; hver og ein hefur getað
gert — eða látið ógert — það,
sem hún hefur viljað og einung-
is átt það við eigin samvisku.
Meginverkefni nýju mið-
stöðvarinnar eru, fyrir utan út-
gáfu þessa blaðs, að undirbúa
8. mars og ræða stefnuskrá og
skipulag hreyfingarinnar, sem
svo verður tekið til umræðu og
ákvörðunar á ársfjórðungs-
fundinum í mars nk.
8. mars verður að þessu sinni
helgaður kröfum um frið og
næga atvinnu og er undirbún-
ingurinn undir þann dag í full-
um gangi. Dagskrá verður flutt
frá kl. 20.30 að Hótel Borg og
er verið að æfa sönghóp, mála
á borða vinna að skreytingum
hússins, semja ræður o.fl.
Umræður eru í gangi um
pólitískan grundvöll Rauð-
sokkahreyfingarinnar — allir
eru sammála um að hann haldi
áfram að vera sósíalískur og að
við leggjum áherslu á að styðja
og starfa með verkakonum og
öðrum láglaunakonum, en
auðvitað er hreyfingin vett-
vangur allra framsækinna
kvenna, sem vilja berjast gegn
misrétti og kúgun, sem þetta
þjóðfélag beitir konurnar.
Risaveldin standa andspænis
hvort öðru, grá fyrir járnum og
skekja sig ógurlega, svo undir-
tekur í öllum heiminum.
Vopnaskak risanna vekur ugg í
brjóstum alls venjulegs fólks og
spurningar vakna í hugum
okkar: fáum við að lifa í friði?
Munum við sjá börnin okkar
vaxa úr grasi — eignast þau
framtíð?
Um þetta munum við fjalla
8. mars.
Annað, sem snertir okkur
síst minna og er nátengt vopna-
skakinu er kreppan og afleið-
ingar hennar fyrir okkur kon-
ur. Við höfum orðið sögulega
yfirsýn yfir, hvað gerist á
krepputímum: samdráttur
verður í framleiðslunni og
fjölda fólks er sagt upp störf-
um og þá konum ævinlega
fyrst. Og til þess að við sættum
okkur betur við hlutskipti okk-
ar, erum við undirbúnar ræki-
lega andlega með áróðri um
kynhlutverk okkar — við eig-
um að vera sætar og þýðar,
grannar og góðar matseljur,
mæður og ástmeyjar, tískupæj-
ur og iðnar við skúringarnar
o.s.frv. o.s.frv. — og ef okkur
tekst illa að sameina öll þessi
hlutverk, þá verðum við svo
óánægðar með okkur sjálfar,
að við hugsum ekki um annað á
meðan — og þá er tilganginum
náð.
8. mars verður einnig helg-
aður baráttunni gegn þessu
ástandi.
Að lokum vil ég skora á þig
að koma og taka þátt í barátt-
unni fyrir frelsi og jafnrétti og
stuðla að endurreisn Rauð-
sokkahreyfingarinnar.
Anna Karin Júlíussen
KONA
Gleymdist þú
í önnum hversdagsleikans
eða ert þú aðeins
í lítillæti þínu
að breiða yfir hetjudáðirnar?
Gleymdist réttur þinn
eða breiddir þú
yfir hann
með þögn og
þolinmæði?
Gleymdust spor þín
og fyrri barátta
eða ert þú aðeins
að þóknast fjöldanum?
Hvert forstu
með verkin þín,
vonirnar, þrána?
Hvar er trúin
viljinn og krafturinn?
Kona!
hvar er lífið þitt?
SKOTTA