Forvitin rauð - 01.01.1982, Page 12

Forvitin rauð - 01.01.1982, Page 12
an lítils metin. Fólkið þarf því að vinna alveg óskaplega til þess eins að hafa ofan í sig og á, og munaðarvörur eru sjald- gæfar nema vinnan sé aukin. í frystihúsum eru konur yfirleitt í meirihluta, en matið á vinnu þeirra er mjög mismunandi eftir því hvernig stendur á á hverjum tíma. Ef þensla er í at- vinnulífinu og mikið er að gera, er hóað í konurnar og þær drifnar út á vinnumarkaðinn t.þ.a. bjarga verðmætunum. En einn daginn fá konur bréf: „Vegna slæmrar veiði hefur verið ákveðið að stöðva vinnu í verksmiðjunni um tíma. Þegar framleiðsla hefst að nýju mun vinna hér í verksmiðjunni að sjálfsögðu standa yður til boða.“ „Semsagt, þurfum ekki að nota ykkur meira í bili, þið eruð velkomnar næst þegar við þörfnumst ykkar.“ í samningi Alþýðusambands Vestfjarða stendur í gr. 12.2: „Verkafólk sem unnið hefur eitt ár samfellt hjá aðilum, sem fást við atvinnurekstur innan sömu starfsgreinar, ber eins mánaðar uppsagnarfrestur frá störfum, enda hafi uppsögn hjá fyrri atvinnurekendum borið að með löglegum hætti.“ Lög sem þessi eru oftar en ekki þverbrotin, og í þessu sambandi er einfaldast að vísa til kjaradeilna sjómanna í sl. mánuði, þar sem fleiri hundruð starfsmönnum var sagt upp án lítils eða nokkurs fyrirvara. Að vísu gat fólk sótt um atvinnu- leysisbætur, sem nægðu þó engan veginn til þess að fram- fleyta viðkomandi aðilum. í þessu sambandi má einnig nefna áströlsku stulkurnar á Flateyri sem var kastað út á kaldan klakann og engin hjálp veitt. Þessar sömu konur eru tældar hingað með loforðum um svimandi kaup í frystihús- um á íslandi og glæsileikinn drýpur af hverju orði í hinum erlendu auglýsingum. Okkur er spurn og því spyrj- um við: „Flvar er réttlætið?“ Er hægt að réttlæta slíkt á grundvelli þeirrar „staðreynd- ar“ að þessar konur hafi unnið það stutt hjá viðkomandi fyrir- tækjum að þær eigi í raun ekki rétt á neinum atvinnuleysisbót- um? í framhaldi af þessu er þá hægt að spyrja hvort réttlætan- legt sé að draga hingað erlendar stúlkur, en skilja síðan við þær allslausar á vonarvöl í ókunnu landi? Á þessum litlu dæmum sést að verkakonur gegna hlutverki varavinnuafls og hafa lítið sem ekkert atvinnuöryggi. Á vertíðum er nóg að gera og þá er ekki verið að tala um „nauðsyn þess að konan sé heima“! Verkakonan er, auk efnahagslegrar kúgunar — eins og allir, sem selja vinnuafl sitt, — kúguð af auðvaldsþjóð- félaginu hvað varðar hlutverk hennar í fjölskyldunni. Flún tekur i raun á sig tvöfalda vinnu, því auk starfs síns í framleiðslunni rekur hún e.t.v. heimili, og þarf þ.a.l. að standa sig á tveimur vígstöðvum. Kona með slíkt vinnuálag og karlinn með sína yfirvinnu geta aldrei orðið virk í sínu verka- lýðsfélagi. Hin borgaralega hugmyndafræði beinist að því að réttlæta og viðhalda þessu ástandi. Þess vegna verður og er stéttabarátta, barátta um völdin í þjóðfélaginu. HVAR ER RÉTTLÆTIÐ? Verkalýðsmál hafa verið mikið rædd í fjölmiðlum undan- farnar vikur, m.a. vegna ný- yfirstaðinna kjaradeilna á Vest- fjörðum. Mikið er skrafað og skeggrætt um þessa hluti, en sjaldan er þó rætt um aðbúnað verkafólks í bókstaflegri merk- ingu. í lögum um aðbúnað og holl- ustuhætti stendur m.a.: grein 6.4. „Unglingar innan 16 ára vinni ekki við flökunarvéla- samstæður hausinga- eða flakningsvélar" En við sem tölum út frá eigin reynslu vitum að þessari laga- grein hefur verið gefinn lítill gaumur hingað til. Unglingum sem ekki hafa náð 16 ára aldri er potað á vélasamstæður í trássi við öll lög. Þetta sætta þeir sig við þar sem þá verður kaupið hærra en ella. Og þetta er einmitt tipiskt dæmi um það hvað fólk lætur bjóða sér uppá til þess að fá laun sín hækkuð, allir virðast ánægðir, og verka- lýðsforystan skiptir sér ekki af þessu því að þetta er hin viður- kennda leið til þess að ná hærra kaupi. Vinnuþrælkunin er gerð að aukaatriði, og í þessu felst mórallinn á vinnustað, þ.e.a.s. að vinna betur og meira en hinir til þess að fá hærra kaup, því það sem fólk hefur til við- miðunar á kaupið er miðað út frá félögum á vinnustað, enda er gefið tækifæri og eiginlega byggt á samkeppnisviðhorfum verkafólksins á ekki stærri vinnustað en 50—100 manna. Þar finnast varla tveir menn sem hafa sama kaup, fyrir vinnu sína þó svo að vinnutím- inn sé sá sami og unnið sé hlið við hlið, það er ekki bara stéttaskipting á milli karla, kvenna og barna, heldur einnig meðal þeirra. Þetta hlýtur og gerir einnig að auka á sundrung verkafólks. Það vinnur hver fyrir sig. Og hver ber ábyrgðina eins og er? Er það verkalýðsforyst- an undir handajaðri hins kapi- taliska þjóðskipulags? Eða er það verkafólkið sjálft sem ber ábyrgðina á ástandi þessara mála? Á Flateyri við Önundarfjörð er eitt frystihús starfandi, þar sem meirihluti þorpsbúa vinn- ur. Þorpið vaknar snemma því að stimpilklukkan bíður. Á mínútunni 8 er allt á fullu í frystihúsinu, konurnar í vinnslusalnum standa hver við sitt borð, og þegar litið er yfir salinn minna þær helst á vélar þar sem þær keppast við vinnu sína. Oft er unnið langt fram á kvöld, og þá sérstaklega þegar „fiskurinn liggur undir skemmdum!“ Eftir slíkar tarnir er fólki stirt um mál, hvað þá að það geti hugsað eitt- hvað af viti. En hvers vegna vinnur fólkið svona eins og skepnur? Er það nauðsynlegt? gæti einhver spurt. Sá sem hefur kynnt sér mál verkalýðsins að einhverju leyti veit það að íslenskur verka- lýður gegnir lægst launuðu störfum í þjóðfélaginu, og enn fremur eru störf hans alla jafn- FIRRING Á hræin leggjast gammarnir og skilja eftir nakin hvít beinin á þurri eyðimörkinni. Hlið við hlið liggja þau sundruð og án samhengis Hvern gæti grunað að ÞAU hefðu einhverntíman verið menn? SKOTTA. FfRVITIN + RAUÐ

x

Forvitin rauð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.