Alþýðublaðið - 13.04.1958, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 13.04.1958, Blaðsíða 11
Sunnudagur 13. apríl 1958 Alþýðublaðið 11 REVIAN REVIAN Skipstjóra og StýriDiasinaiél. Aldan Árshátíð félagsins verður haldin í Sjálfstæðishús- inu mánudaginn 21. apríl 1958. Skemmtiatriði: Revían: „Tunglið, tunglið, taktu mig“ verður leikin. Áskriftarlistar liggja hjá : Hróbjartj Lútherssyni, Akurgerði 25, sími 10031. Gunnari Valgeirssyni, Hrísateig 24, sími 34121. Guðmundi H. Oddssyni, Dránuhlíð 42, sími 11045. Guðjóni Péturss., Höfðavík V/Borgart, sími 15334. Kolbeini Finnssyni, Vesturgötu 41, sími .13940. SKEMMTINEFNDIN. J. S^agnús Bjarnason: Nr.73 EiRIKUR HANSSON Skáldsaga frá Nýja Skotlandi. í DAG er sunnudaguiinu, 13. aþrí-1 1958. Helgidagsvörður L.R. í dag er María Haligrímsdóttir, Laekna- varðstofunni, aími 15030. Slysavarðstofa Reykjavíkur í Heilsuverndarstöðinni er opin allan sólarhringinn. Læknavörð ur LR (fyrir vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8. Sími 15030. Næturvörður er í Laugavegsapó teki, sírni 24048. Lyfjabúðin Ið- unn, Reykjavíkur apótek, Lauga vegs apóték og Ingólfs apótek fylgja öll lokunartíma sölubúða. Garðs-apótelc og Holts-apótek, Apótek Austurbæjar og Vestur- bæjar apótek eru opin til kl. 7 daglega nema á laugardögum til kl. 4. Holts-apótek og Garðs apó tek eru opin á sunnudögum miíli kl. 1 og 4. Hafnarfjarðar apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laug- ardaga kl. 9—16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16 og 19—21. ■Næturlæknir er Kristján Jóhann esson. Kópavogs apótek, Álfhólsvegi 9, er opið daglega kl. 9—20, nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kl. 13-16. Sími 23100. Bæjarbókasafn E^ykjavíkur, Þinghoítsstræti 29 A, sími 1 23 08. Útlán opið virka daga kl. 2—10, laugardaga 1—4. Les- stofa opin kl. 10—12 og 1—10, laugardaga kl. 1U—12 og 1—4. Lokað á sunnudögum yfir sum- armánuðina. Útibú: Hóimgarði 34 opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 5—7; Hofsvalla götu 16 opið hvern virkan dag nema laugardaga kl. 6—7; Efsta eundi 36 opið mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 5.30— 7.30. LEIGUBÍLAR Bifrtíiðastöð Steindórs 1 Sími 1-15-80 —0— Bifreiðastöð Reykjavíkur Sími 1-17-20 SENDIBÍLAR Sendibílastöðin Þröstur Sími 2-21-75 FIiU G F E R Ð I R Flugféla-g íslands h.f.: Millilandajflug: Hrímfaxj.- er væntanlegur til Reykjavíkur kl. 16.50 í dag frá Harnborg, Kaupmannahöfn og Oslo. Innanlandsflug: í dag er áætl- að að fljúga til Akureyrar og Vestmananeyja. — Á morgun er áaetlað að fljúga til Akureyr- ar, Fagurhólsmýrar. Horna- fjarðar, ísafjarðar, Siglufjarð- ar og Vestmannaeyj s. FCNDIK ■ Bræðrafélag Óháða saínaðar- ins, Fundur verður haldinn í Kirkjubæ í dag kl. 2 síðdegis. Kvenréttindafélag íslands heldur fund briðjudaginn 15. apríl í Félagsheimili prentara, Hvenfisgötu 21. Fundarefni: 1) Paul Miohielsen, garðyrkjumað- ur talar um blómarækt. 2) Önn ur félagsmíál. Kvenfélag Fríkirkjusafnaðar ins Iheldur afmælisfagnað fimmtudaginn 17. þ. m. í Breið- firðingabúð. Upplýsingar í siíma 14233, 14125 og 12032. Barnaverndarfélag Reykja- víkur 'heldur aðalfund sinn á mánudagskvöldið. 14. þ, m. kl. 8,30 e. h. í I. kennslustofu há- skólans. Auk venjulegra aðal- fundarstarfa verður kvikmynda sýning. —o— Sýningarsalurinn. — Góð að- sókn hefur verið að málveika- sýningu Antons Rooskens í Sýningarsalnum við Hverfis- götu, og 1/5 myndanna hafa selst. Þar á meðal eitt málverk sem Listasafsfélagið hyggst gefa listasafni ríkisins. Lista- maðurinn Anton Rooskens er ekki staddur hér á landi, en hefur í hyggju að sækja ísland heim í sumar. Síðasti uagur sýningarinnar er í dag. að hér um bil þrjátsíu þessir sólpar voru á hverri enskri mílu meðfram Intercolonial- járnbrautinni, og þess vegna gat ég líka talið míiurnar, sem lestin fór, og ég vissi. að það voru um. þrjátíu mílur frá Oakfield til Halifax. En þó að stólparnir bærust ótt og títt fyrir gluggann og hver mílan væri fljótt farin. þá fannst mér samt, að ég ekki komast eins fljótt áíram og ég vildi. Ég fór strax að draga upp í huga mínum mynd af húsinu nr. 126 á Har,rietstræti, Það hlaut að vera stórt hús og um leið fallegt og vandað hús, af því að Lalla átti þar heima. Svo fór ég að gera mér hug- mynd um viðtökurnar. Eg var viss um það, að mér yrði vel tekið, og að ég þyrfti aldrei framar að óttast þau Jón Mill- er og frú Patrik. En þrátt fyx- ir það gægðist frú Patrik upp fyrir sjóndeildarhring hugs- ana minna, eins og þríhöfð- ;áður þurs, svo mér stóð stugg- Ur af. Um þetta og ótal margt Annað í sambandi við það, var '4g að hugsa á leiðinni til Hali- fax, en hélt þó jafnframt áfram að telja stólpana og mílurnar. 'Lestin, sem ég fór nú með, var ekki hin sama, er ég hafði far- ið með frá Halifax, og farar- stjórinn var allur annar, með allt öðru útliti og fasi, og þar var heldur enginn eineygur farþegi, sem gexði sér far um að þrátta um orðabók Inter- col'onial-járnbrautarinnar. All- ir sátu hljóðir og siðprúðir, ems og fólk við mes.su. Og loksíns nam lestin staðar inn undir hinni miklu hvelf- ingu á vagnstöðvunum í Hali- fax. Eg var áreiðanlega fyrst- ur af öllum farþegunum að .fara út úr vögnunum. Og af því mér var ekki um það, að neinn af lögregluþjónunum sæi mig, áðu.r en ég var búinn að finna herra Sandford, og af því líka, að ég hafðj, ofurlítil peningaráð, þá gekk ég rak- leiðis til ökuma'nns nokk'urs, sem var þar nærri, og bað hann að flytja mig yfilr að nr. 126 á Harriet-stræiti, en stanza þó ekki beint fram undan dyrunum á þvi húsi, heldur ofuriítið frá til ann- arrar hvorrar handar, því að ég kunni ekki við að lát-a Löllu sjá mig koma akandi heim til hennar, eins og ég væri annað hvort sjúklingur eða þá ein- hver heldri maður, því að í sannleika sagt, þá fannst mér ég vera hvorugt. Ökumaðurmn bað mig unr að borga sér fyrirfram, og gat þess, að sér þætti nokkuð kyn- legt, að ég skyldi ekki vilja, að hann flytti mig að dyrun- um á húsinu nr. 126 á Harriet- stræti, fyrst ég ætlaði þangað endilega. En ég sagði honum, að það kæmi til af því, að ég vildi koma þangað vinum mín- um að óvörurn, og virtist honum það nokkuð und- arlegt ' uppátæki af ung- ling, sem ekki hafði neitt meðferðis, eins og allt annað ahnennilegt , ferðafólk var vant að hafa. En samt Iagöi hann af stað með mig, þegar ég var húinn að fá honum 50 centa pening, sem hann skoð- aði í krók og kring, .eins og hann hefði aldrei á.ður séð þá mynt. Við vorum ekki lengi að komast á Harrietstræti og lét ökumaðurinn mig fara ofan úr 'kerru sinni fram undan þriðja húsi fyrir sunnan nr, 126. Svo sneri hann við óg hélt sína leið, án þess að segja eití einasta orð við mig að skilnaði. Eg gekk svo fáeina faðrna til baka og fór hægt. Það var eins og mig langaði nú, af því að ég var kominn svo nærri tak- markinu, — til að gleyma mér sem allra lengst það augna- bli'k, sem ég hafði svo lengi þráð og svo mjög barist fyrir að ná, -—- augnablikið, sem léti mig ná fundi Uöllu. Eg stað- næmdist við eitt hornið á hús- inu, sem var næst fyrir sunn- an nr. 126. Það var ofurlítið sund á milli húsanna. Eg sá strax, að ég hafði gert mér ranga hugmynd um húsið nr. 126, að því leyti sem stærð þess snerti. því að það var fremur lítið en snoturt og smekklegt timbu-rhús og var málað hvítt. í kringum það var lítill garður og lá gangstétt úr steini frá hliðinu. sem að strætinu vissi, og upp að fram dyrum hússins. Ég sá, að stór maður var að laga til blóma- reit í garðinum, naerrji hliðinu', og þekkti ég strax manninn. Það var herra Sandford. En ekki var hann klæddur ein- kennisbúningi lögregluþjóna. Hjartað í méf höppaðf af kæti, því að ég var nú viss um, að Lalla væri líka koniin heim. Eg var nú ekkf seinn á mér að ganga yfir að hliðinu og fara inn í garðinn til herra; Sandfords. , — Sæll vertu, herra Sand- ford, sagðf ég og rétti honura hönd rnína. — A-hum, sagði herra Sand- ford og leit upp frá verki sínu og tók í hönd mína. Sæll vertu drengur minn. A-hum, er þetta Eiríkur? Ch'ðinn svona stór. — mjög svo. — Eg er Eiríkur — Eiríkur Hansson, sagði ég. — A-hum, sagði herra Sand- ford og brosti. Vertu ævin- lega velliommn. Það gleðnr mig stórlega að sjá þig. Mjög) svo. — Það gleðu;r mig líka afS sjá þig, herra Sandford, sagðii ég. — A-hum, sagði herra SanÆ ford, og hélt eren í hönd mína. Eg átti ekkj beinliínis von á að sjá þig á þessu augnabliki, þó að ég raunar frétti í morgun, að þú hefðir komið hingað til borgai’innar fyrir nokkrum dögum síðan, og svo komstu svo skyndilega inn í garðinna til mín, eins og þú hefðiii? komið ofan úr loftinu á líkars, hátt og skjöldurinn hans Núma. í stuttu máli: þú komst mér alveg á óvart. Mjög svo. — Er ungfrú Sandforct heímá? segði ég. Mér fannst, að mér lægi mest á að vita það. — A-hum, sagði herra Sand- ford. Lalla er nýgengin inn f húsið, og ég get sagt þér, að hún verður fjarskalega glöð að sjá þig, því að hún hefur víst ekki um annað hugsað en þig. síðan við fréttum, að þút hefðir horfið snögglega frá Sailors Home, og ég get líkai sagt þér, að lögi-egluþjónarniE( hafa leitað að þér eins ogj saumnál um alla borgina nú | , nokkra daga. En ég gat þesál til, að þú hefðir farið burt ÚP borginni, sökum þess, að þú varðst var við Jón Miller, og þess vegna sendi ég bréf, þér viðvíkjandi, til póstmeistarans í Gays River. því að ég var viss um, að þú hefðir farið þangað. Það bréf fær póst- meistarinn á morgun, En svo kemur þú allt.-í einu svo skyndilega og á svo dularfull- an hátt, að ég verð hissa. Mjög ■IB ■ ■'■■MP* Að lokum drögnuðust þeir Filippus og Jónas inn í þorpið. „Púff,“ andvarpaði Jónas, — ,,'þetta var nú meiri gangan. — Ég get varla beðið efti.r því að komast á næsta hótei og skríða svo í dúnmjúkt rúm eftir góða máltíð.“ Þið 'hefðuð átt að sjá svipinn á honum, þegar hótel- stjórinn sagði honum, að öll herhergin væru upptekin í hót- elinu. „Þá skulum við bara leigja okkur tjald og setja það upp,“ sagði Filippus glaðlega. „Hvað? Sofa úti undir beru lofti?“ spurði Jónas, „ég dey af kulda, drengur. „En, það var ekki um neitt annað að ræða, jafnvel Jónas skyldi það. „Ég býst við, að við verðurn að setja upp tjald,“ sagði hann veiklu- lega. „Það eru svo margir sem hafa orðið að gera það, Jónas,** sagði Filippus við hann_. , _j

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.