Morgunblaðið - 06.09.1914, Side 7
MO RGUNBLAÐIÐ
1415
C=a DAGBÓfflN. C=
Afmæli í dag:
Margrót Þorbj. Jensen húsfrú
Kristín J. Jónsdóttir húsfrú
Ólöf Sveinsdóttir húsfrú
Pótur G. GuSmundsson bókb.
Sólarupprás kl. 5.24.
S ó 1 a r 1 a g — 7.26.
HáflóS kl. 6.10.
og 6.16.
Póstar í dag:
Ingólfur frá Borgarnesi.
Vestanpóstur kemur.
Norðanpóstur kemur.
Á m o r g u n :
Keflavíkurpóstur fer.
Kjósarpóstur fer.
Veðrið í gær:
Rvík s.s.a. andvarij hiti 10.8
ísaf. s.v. kul, hiti 12.5
Ak. s. stinnings gola, hiti 14.8
Gr. s.s.v. stinn gola 11.0
Sf. s. kaldi, hiti 16.0
Vm. logn, hiti 9.7
Þh.F. s.v. kul, 9.0.
Pósthúsið nyja. í dag eru
fánar uppi á hinu nýja pósthúsi, til
merkis um að nú só grind þess full-
ger. Verkinu hefir miðað vel áfram
— svo vel, að maður hefir sóð hið
stóra hús fara dagvaxandi. Nú er
ekki annað ógert að steinsteypu en
gólfið í kjallaranum og lítið eitt uppi
á lofti.
Portið — hinn illi götu-þrándur
Austurstrætis, — sem gert var í vor til
þess að geyma i byggingarefni póst-
hússins het'ir nú verið rofið og mun
margur maðurinn fagna þeirri bæjar-
bót.
S t a t fisktökuskip kom hingað í
gær. Kom það beint frá Spáni til
Vestmanneyja og þaðan hingað. Það
tekur hór fisk hjá verzlun H. P.
Duus cg síðan fer það víðar til fisk-
töku, t. d. til Þorlákshafnar. Skipið
mun að líkindum flytja farminn til
Spánar.
Nokkrir menn af skipinu
)>Caruegie« fóru í gær með bifreið til
Keflavíkur sór til skemtunar. Veður
fengu þeir hið leiðinlegasta, þoku og
iilviðri svo minni varð ánægjan af för-
inni en ella hefði getað orðið. í dag
hafa þeir svo f hyggju að fara til
Þingvalla og ef til vill lengra.
Gamla Bfó. Stóra myndin, sem
þar er sýnd í kvöld, heitir »Léttúð«.
Efni hennar er hvíta þrælaverzlunin,
og eru aðaldrættirnir þessir:
Ung og fögur sveitastúlka trúlofast
ungum listmálara, sem kemur til sveit-
arinnar til þess að mála, Honum er
veitt leyfi til þess að fara með hana
til höfuðborgarinnar og býr hún þar
hjá móður hans. Hana langar til að
kynnast stórborgarlífinu og fer þvf
•ueð unnusta sínum til næturknæpu
einnar. Þar gefur hún uppskafning
uokkrum hýrt auga og hann hennl,
Gengur hann nú á eftir henni með
grasið í skónum og fær hana að lok-
Uur til að lofa þvf að heimsækja móð-
ur hans í Pótursborg. En þá er hún
gengin f gildruna.
Myndin er þannig, að maður stend-
ur oft á nálum og örvæntir um afdrif
stúlkunnar. En að lokum lóttir manni
um hjartað þegar málaranum tekst að
frelsa hana úr klóm þorparanna, sem
ekki bjuggu henni eins gieðilega fram-
tíð og hún hafði vænst eftir.
X.
Guðsþjónustur í dag, 13. s.
d. e. trinitatis (Guðspj. Samariti og
Leviti, Lúk. 10., Matt. 20. 20—28.,
Jóh. 13. 34—35).
í Fríkirkjunni í Reykjavfk kl. 12
síra Jóh. Þork. Kl. 5 síra Bj. Jónss.
Knattspyrnukappleik heyja
í dag »Fram« og »Valur«. Hið síðar-
nefnda er knattspyrnuflokkur K.F.U.M.
og hefir aldrei leikið kappleik fyrri.
En ekki verður sagt að hann ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur þeg-
ar hann byrjar.
Þýzkar ófriðarfregnir.
Símtal við Akureyri.
I gær kom gufusk’p til Akureyrar
beina ieið frá Gautaborg. Meðferð-
is hafði skipstjórinn sænsk blöð frá
26. f. m. og er þai sagt frá viður-
eign Frakka og Breta við Þjóðverja.
Fréttaritari vor á Aknreyri fekk
blöð þessi að láni hjá skipstjóranum
og símaði hann oss þegar það mark-
verðasta í þeim.
»Göteborgs Aftonblad« heitir blaðið
og í skeyti frá Berlin dags. 26. f.
m. er þess getið, að riddaraliðssveit
Breta við Maubeuge hafi verið rek-
in á flótta af Þjóðverjum og að þeir
hafi einnig dreift fótgönguliðssveit
Breta, sem þar var í grendinni. For-
ingjaráð deildarinnar var tekið til
fanga.
Frá Vínarborg er blaðinu simað þ.
26. f. m.:
Opinberlega er tilkynt frá yfir-
stjórn austuríska hersins að 3 daga
orustan við Krasne hafi endað í dag
og að Austurríkismenn hafi sigrað
á Rússum. Rússar voru hraktir aft-
ur alstaðar á 70 kílómetra svæði og
hörfuðu undan til Lublain. Undan-
haldið var likast flótta.
Berlin 26. áqúst. Það er opinber-
lega tilkynt, að sigurfrægð Rússa
yfir 3 þýzkum herdeildum sé enn
ósönnuð og svo sé um fleiri fregn-
ir úr þeirri átt
Fréttaritari blaðsins i Berlinarborg
tilkynnir, að eftir ákafa og mjög
mannskæða orustu við Mons, hafi
Þjóðverjar sigrað svo á Frökkum,
að þeir óhindrað gátu komist gegn-
um varnarlínu Frakka.
Berlin 28. ágúst. Wolfsbureau til-
kynnir að 9 dögum frá því að her-
inn fór áleiðis frá Þýzkalandi hafi
Þjóðverjað getað gengið um í Frakk-
landi á svæðinu frá Cambrai til suð-
ur Vogesafjallanna. Orustan hafi
verið ákaflega skæð, en vegna stærð-
ar ófriðarsvæðisins, sem er fjöllótt
og skógi vaxið, sé eigi enn unt að
segja um mannfall óvinanna. En
fjöídi hermanna hafi verið tekinn
höndum.
í orustunni við Namur og við
Maasfljótið hafi Þjóðverjar gjörsigr-
að á öllum herfylkingum Frakka og
Belga. Voru þeir reknir á flótta.
Namur gafst upp eftir tveggja daga
stórskotahrið.
Áhlaupið á Maubeuge byrjaði í
gær. — ___
Þessar eru aðal fregnir sænska
blaðsins. Eru þær nokkuð á annan
veg en þær fregnir sem hingað hafa
borist i brezkum blöðum.
.......OOO ■ ■ -
Stúika í Hafnarfirði.
Áreiðanleg og dugleg stúlka óskast hálfan daginn við
verzlunarstörf í Hafnaríirði.
Egill Jacobsen.
Siáturfélag Suðurlands
selur íramhluta af frystum
sauöarkroppum,
heildina (í 4 pörtum)
50 aura pr. kgr.
(25 aura pr. pd.)
til 20. þ. mán.
Barnakensla.
Eg undirrituð tek nokkur stúlkubörn á aldrinum 9 —11 ára til
kenslu næsta skólaár. Þeir, sem kynnu að vilja nota það, snúi sér tii
mín sem fyrst,
Hólmfriður Árnadóttir
Laufásvegi 3 (að hitta kl. 4—5 síðdegis).
Heinr. Marsmann’s
vindlar
La Maravilla
eru langbeztir.
Aðalumboðsmenn á Islandi: Nathan & Olsen.
fást beztir og ódýrastir í
T résmíöavinnustofunni Laugav. 1
(Bakhúsinu).
Myndir innrammaðar fljótt og vel.
Hvergi eins ódýrt! Komið og reynið!