Morgunblaðið - 16.10.1914, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
Bréf frá ísafirði.
(Frá fréttaritara Morgunblaðsins.)
Isafirði i. okt. 1914.
Sumarið hefir orðið bæði stutt og
eftdaslept hér um slóðir, því að fyr-
ir miðjan mánuð gerði norðanstór-
víðri með hríð, svo að snjóaði nið-
ur í sjó. Síðan hafa gengið óþurk-
ar, oftast rignt eitthvað á degi hverj-
um og stundum snjóað, en aldrei
komið þurkdagur. Nokkuð er hér
af óþurkuðum fiski og útfiey rnikið
óhirt og há á túnum, þar sem tví-
síegið var. Gæftir hafa lengi verið
stopular og lítill afli. Verð hefir
heldur hækkað á nauðsynjavörum
vegna ófriðarins; mun þó ekki hærra
hér en í Reykjavík.
Kolaskipið Glen Tanar kom hing-
að fyrir nokkrum dögum með kola-
farm, sem bæjarmenn höfðu pantað.
Voru kolin flutt heim til kaupanda
og kostuðu 4.60 kr. skippundið
(heimflutt).
Unglinga og barnaskóli ísafjarðar-
kaupstaðar var settur á hádegi í dag.
Skólastjóri Sigurjón Jónsson, kandi-
dat, setti skólann með góðri ræðu.
Nokkrir bæjarmenn voru viðstaddir
að vanda, auk nemenda. Aðsókn að
skólanum er svipuð eins og i fyrra
eða um 160 nemendur. Auk skóla-
stjóra eru 2 fastakennarar og 4 tíma-
kennarar. Mér er nær að halda, að
hér sé varið meiru fé að tiltölu til
kenslumála en í öðrum kaupstöðum
landsins.
Auk þessa skóla er hér kvöldskóii
iðnaðarmanna, sem Sigurður Krist-
jánsson veitir forstöðu. Hann tekur
til starfa um miðjan þennan mánuð
og sækja hann unglingar, sem komn-
ir eru yfir kristni.
Loks er hér þriðji skólinn: Hús-
öiæðraskólinn, sem ungfrú Fjóla Stef-
áns veitir forstöðu. Sá skóli er eign
kvenfélags eins hér í bæ, sem »Ósk«
heitir. Hann er styrktur að nokkru
af landsfé og sýslusjóðum Norður
Og Vestursýslnanna. Hann varstofn-
aður haustið 1912, — og er haldinn
frá 15. sept. til 15. maí. Námskeið-
in eru tvö; hið fyrra frá 15. jan.,
en hið síðar frá þeim tíma til vors.
Tólf námsmeyjar eru þar í senu.
Mest áherzla er þar lögð á matreiðslu
og hússtjórn, en kend er þar og
heilsufræði og saumar og kenna tvær
aukakenslukonur þær námsgreinir.
Forstöðukonan, ungfrú Fjóla Stef-
ins, var tvö ár við nám í Danmörku,
gegndi þar umferðakenslustörfum að
þvf Joknu. Skóli þessi verður heima-
^istarskóli i vetur í fyrsta sinni, og
eí haldinn i húsi Magnúsar bæjar-
fógeta Torfasonar. Aðsókn að skól-
*num hefir verið mikil, bæði úr ísa-
^Íarðarsýslum og öðrum landsfjórð-
^ngum, nema Austfjörðum.
Brúðkaup sitt héldu þau hér í
fyrradag (29. sept.) ungfrú Ása Thord-
?rsen og Jón Grímsson, verzlunar-
stÍóri Á. Ásgeirssonar verzlunar á
Suðureyri. Brúðurin er dóttir Finns
Thordarsonar bakara en brúðguminn
er sonur Gríms Jónssonar, cand. theol.
*S95
I
]P
Vöruhúsið
hefir óefað stærst og smekklegast úrval i bænum af alfataefnum, yfirfrakka- og buxnaefnum
margar tegundir af bláum og svörtum efnum, mislitum og hvítum vestisefnum
10—20°|o afsláttur
gegn peningum út i hönd. Frágangur allur hinn vandaðasti.
Pantanir afgreiddar á 1—2 dögum.
Reynið og þið munuð sannfærast um, að hvergi er betra að fá sér föt en í
Vöruhúsinu.
Hinir alþektu Iðunnardúkar seljast með verksmiðjuverði frá kr. 3.80—8.00 pr. meter
$ í Vöruhúsinu. $
1
l^=ni
__ rgarínið þ
aftur komið i „Edinborg“.
DOGrMBNN
yAt^yooinoaií
Sveinn Bjðrnsson yfird.lögm,
Friklrkjuveg (Staðastað). Simi 202.
Skrifstofutimi kl. 10—2 og 4—6.
Eggert Claessen, yfirréttarmála-
flutningsmaður Pósthússtr. 17.
Venjulega heima 10—11 og 4—5. Simi 16.
Olafur Lárusson yfird.lögm.
Pósthússtr. 19. Sími 215.
Venjulega heima 11—12 og 4—5.
cffieyfíið
Spacial Sunripa
(Bicjarettur.
Hjónavígslan fói fram í kirkjunni og
gaf prófastur Þorvaldur Jónsson þau
saman. Að þvi búnu var haldin
fjölmenn veizla, sem stóð lengi næt-
ur með ræðum, söng og rausnar-
legum veitingum. Ungu hjónin héldu
héðan heimleiðis tiJ Suðureyri i gær.
Þau eru bæði uppalin hér í bæ-
num og eiga hér marga vini. Fjöldi
heillaskeyta barst þeim á brúðkaups-
deginum, bæði úr kaupstaðnum og
viðsvegar að.
Silfurbrúðkaup sitt halda þau hér
í kvöld Arni kaupm. Sveinsson og
frú Guðrún kona hans. Eru nokkrir
vinir þeirra i boði hjá þeim í kvöld.
Vátryggið hjá:
Magdeborgar brunabócafélagi
Den Kjöbenhavnske Söassurance
Forening limit
Aðalumboðsmenn:
O. Johnson & Kaaber.
Carl Finsen Austurstr. 1, (uppi).
Brunatryggingar.
Heima 6 r/4—7 r/4. Talsími 331.
ELDIJRI -^01
Vátryggið í »General« fyrir eldsvoða.
Lækkuö iðgjöld. Umboðsm.
SIG. THORODDSEN
Frikirkjuv. 3. Talsimi 227. Heima 8—5
El ds voðaáby rgð,
hvergi ódýrari en hjá
„Nye danske
Brandforsikringsselskab41.
Aðalumboðsmaður er:
Sighv. Bjarnason, bankastj.
Det kgl. octr. Brandassnrance Co.
Kaupmannahöfn
vátryggir: hús, husgögn, alls-
konar vöruforða o. s. frv. gegn
eldsvoða fyrir lægsta iðgjald.
Skrifst. opin kl. 12—1 og 4—5
í Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen).
Pr. H. J. Bryde,
N. B. Nielsen.
Sérréttindi Norðurálfu-
manna í Tyrklandi.
Svo sem getið hefir um í blaðinu
hér áður, lýstu Tyrkir yfir því fyrir
nokkru, að þeir ætluðu 1. október
að afnema sérréttindi þau, sem Norð-
urálfumenn hafa nú um langan ald*
ur notið i Tyrklandi.
Sérréttindi þessi eða Capitulations,
sem þau eru kölluð á útlendum mál-
um, eru frá árinu 15 3 5 og eru snið-
in eftir samningum, sem komust á
milli Múhameðstrúartnanna og Vest-
urþjóðanna á krossferðatímunum.
Réttarfar Tyrkja er bygt á alt öðr-
um grundvelli en réttarfar Vestur-
landa. Það þótti því brotaminst að
hver þjóð réði yfir þegnum sínum
i löndum Tyrkja. Ekki má taka
nokkurn útlendan mann fastan án
þess að leitað sé til ræðismanns
þeirrar þjóðar, er i hlut á. Tyrk-
neskur dómstóll má ekki fjalla um
sakir útlendinga við tyrkneska þegna,
nema ræðismaður sé viðstaddur.
Tyrkneskir dómstólar hafa ekki
dómsvald í málum milli þegna út-
lendra rikja eða milli þegna sama
ríkis. Verði útlendingur sekur um
glæp, er mál gegn honum rekið fyr-
ir ræðismannsrétti og hann dæmdur
eftir lögum sins lands. Sé hann
dæmdur í fangelsi, afplánar hann
hegninguna í fangelsi sem er undir
umsjá heimalands hans.
Kaupið Morgunblaðið.