Morgunblaðið - 20.06.1915, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.06.1915, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sigurinn undir skotvcpnum kominn. Herþjónustuskylda á Englandi? Ræöa Lloyd George. Þann 4. þ. mán. hélt Mr. Lloyd George, hinn nýi hergagnaráð- herra Breta, ræðu í Manchester um ófriðarhorfurnar og hvað Bretum bæri að gera. Heflr sú ræða vakið mikla athygli víðs- vegar, einkum vegna þess að þar tekur hann að nokkru leyti í sama strenginn og blöð þau, sem hafa borið herstjórninni það á brýn, að hún hafl ekki séð hernum fyrir sæmilegum skot- vopnum. Kæðan er of löng til þess að hún sé birt öll, en útdrátt úr henni þykir oss rétt að flytja: Bretland berst fyrir tilveru sinni. Þetta er ekki í fyrsta skifti, sem eg kem til Manchester. Eg kom hingað fyrst fyrir 42 árum. (Lloyd George er fæddur í Man- chester). Síðan hefi eg oft komið hingað og vanalega, ef eigi altaf, í stjórnmálaerindum. Nú kem eg hingað sem fulltrúi ríkisins og fer með þeim þýð'ingarmestu erind- um, sem nokkurntíma hafa verið flutt Manchesterbúum. Fóstur- jörð vor berst nú fyrir tilveru sinni. Hún berst fyrir frelsi Ev- rópu og það er mest undir þeirn mönnum komið, sem stjórna verksmiðjunum og vinna í þeim, hvort Bretland á að ganga af þessum hólmi bakbrotið og svift heiðri og sæmd, eða það á að hrósa sigri frjálst og óháð og öfl- ugra en nokkru sinni áður. Eg vil jafnvel taka svo djúft í ár- inni og segja, að nú sem stendur sé alt komið undir verksmiðjum Bretlands. Hafið þið lesið frá- sagnirnar um orusturnar í Galiziu_ Lesið þær, lesið þær vel, og þið munuð sjá það sjálfir hvað mikið er undir verksmiðjunum komið í þessum ófriði. Hvað læra má af óförum Rússa. Bandamenn vorir, Rússar, hafa beðið alvarlegan hnekki. Eg er kominn hingað tii þess að segja yður sannleikann. Það er ekki' að ætlast til þess að þið fórnið miklu ef þið vitið hann eigi. Rússar hafa farið hrakfarir. Hvers vegna? Þjóðverjar hafa unriið sigur, stórsigur. Hvers vegna? Ekki vegna þess að herrpenn þeirra séu betri — engir hermenn hafa nokkuru sinni barist af jafn mikilli hreysti sem rússnesku her- mennirnir. Er það þá vegna þess að Þjóðverjar hafi betri hers- höfðingja? í Galiziu hefir her- stjórn Rússa á hendi sá maður, sem er einhver hinn ailra bezti hershöfðingi álfunnar nú sem stendur. Er það vegna þess að Þjóðverjar hafi haft meira lið? Rússar hafa ótakmarkað lið, ágætt lið. Hverju eiga Þjóðverjar þá sigur sinn að þakka? Þeir eiga hann eingöngu því að þakka að þeir hafa miklu meiri og betri hergögn, fallbyssur og sprengi- kúlur. Þennan sigur hafa þeir unnið — eigi fyrir snilli herfor- ingja sinna né heldur framúrskar- andi hreysti hermannanna — held- ur fyrir það, að þeir hafa kunn- að að nota iðnaðarstofnanir sínar og sérstaklega fyrir fram- úrskarandi fyrirkomulag í þýzk- um verksmiðjum. 200 þúsund sprengikúlum létu þeir rigna yfir Rússa á einni klukkustund og 700 þúsund sprengikúlum í einni orustu. Ef við hefðum getað sent Þjóðverjum sams konar kveðjur mundum vér eigi einung- is hafa rekið þá burtu úr Frakk- landi heldur einnig verið komnir inn í Þýzkaland og þá hefði ófriðn- um lyktað fyr. Því hefðu verk- smiðjurnar getað komið til leiðar og ekkert annað en þær. Hvað gera þarf. Nú sem stendur höfum vér yfr- ið nóg af mönnum. Frakkar hafa ágætan her og Rússar hafa óþrjót- andi her. Það er engin hætta á því að oss skorti menn En okk- ur vantar verksmiðjur til að sjá fyrir vopnum, máttinn til þess að brjótast fram og troða hið sví- virðilega heræði undir fótum. Til þess að ná því fagra tak- marki þarfnast rikið hjálpar, hjálpar hvers ykkar, hjálpar ykk- ar allra og allrar þeirrar hjálpar sem hver og einn ykkar getur í té látið. Herskylda. Það hefir inikið verið um það rætt að við ættum að koma á hjá oss herskyldu. Ef nauðsyn krefst þess, þá er eg viss um að eng- inn mundi hafa á móti því. Vér höfum unnið og bjargað frelsi voru í þessu landi oftar en einu sinni með herskyldu. Frakkar vörðu frelsi sitt, sem þeir fengu í stjórnarbyltingunni miklu, ein- göngu með herskyldu. Banda- ríkin náðu sjálfstæði sínu — björg- uðu tilveru sinni — með her- skyldu, og Frakkar og ítalir verja nú tilveru sína með herskyldu. Hún hefir verið hið öflugasta vopn í höndum þjóðanna í bar- áttunni fyrir frelsinu. Samt sem áður mundi það vera ötórt glappaskot að grípa til her- skyldu nema nauðsyn bæri til þess. Eg ímynda mér að þeir, sem eru henni andvígir, geti með sanni sagt að æskumennirnir hafi ekki hikað við að verða við þeim áskorunum, sem til þeirra var beint, að berjast fyrir frelsi ætt- jarðarinnar. Þeir streyma alt af að — fleiri en hægt er að víg- búa. Það væri gott að geta stært sig af því, að þessum ófriði lokn- um, að vér hefðum gert það, sem engin þjóð hefði nokkru sinni gert og það án herskyldu, að æskumenn vorir af öllum stéttum og frá öllum heimilum hefðu af fúsum vilja fórnað lífi sínu fyrir föðurlandið. öðru máli er um það að gegna, hvort eigi bæri að skylda rnenn til þess að vinna í verksmiðjum landsins og að hergagnagerð. Það væri eigi að ófyrirsynju gert. Vér skulum vera alveg hrein- skilnir við sjálfa oss. Þegar þessi ófriður hófst var engin þjóð eins illa undir hann búin og vér. Samt sem áður syrgi eg það eigi svo mjög. Það mun verða vörn sögunnar í vorn garð þegar hún fer að dæma um ófrið þennan. Vér höfðum eigi búið oss undir ófrið. Vér drógum eigi saman lið til þess að standa yfir höfuðs- vörðum Þýzkalands eða Austur- ríkis eða til þess að fótumtroða frjálsræði neinnar þjóðar. En það varð aftur til þess að vér vorum verst undir ófriðinn búnir. Eg hefi eigi staðið í þessari nýju stöðu nema nokkra daga. En það sem eg hefi séð hefir sannfært mig um það, að þjóðin hefir enn eigi lagt fram helijiing iðnaðarkrafta sinna til þess að leiða þennan ófrið farsællega tii lykta. Vér berjumst nú gegn þeirri þjóð, sem komið hefir á hjá sér því fyrirkomulagi, sem er langbezt í heimi, hvort held- ur til friðar eða ófriðar, og vér höfum sýnt svo mikið kæruleysi og hugsunarleysi að að vér hefðum eigi getað haldið sæmd vorri óskertri mikið leng- ur, jafnvel þótt friður hefði hald- ist. Þjóðin þarfnast allra þeirra véla, sem hægt er að nota til framleiðslú skotfæra og hergagna, allrar þeirrar þekkingar, sem þarf til að famleiða það, og allra starfskrafta þegna sinna. Hver einasta sprengikúla er lífvörður þjóðarinnar. Þær eru eigi ein- ungis gerðar til þess að drepa óvini, og það verða menn að hafa hugfast. Vér þurfum eigi annað en lesa sögurnar af orustunum til þess að sjá hvernig stóru fall- byssurnar ónýta vélbyssur óvin- ananna, sem að öðrum kosti hefðu orðið ótal mönnum að bana, hvernig þær sundra gadda- vírsgirðingum og leyfa hindrun- arlaus áhlaup. Eg sný því máli mínu til allra: Leggið fram alla ykkar krafta til þess að verja' líf hinna hraustu hermanna, sei» berjast fyrir frelsi ættjarðar vorrar. En þá kemur spurningin: Get- um við komið öllu því í fraiU' kvæmd, sem gera þarf, án þess að grípa til einhverra óbrigðulla ráða? Ríkið verður að ganga fyrir öllu Öðru. Fyrst og fremst verð- um vér að draga,. meira lið í verksmiðjurnar og í öðru lagi verðúr stjórnin að hafa hönd í bagga með þeirn fremur en ver- ið hefir. Frakkar eru í þessU efni á undan okkur. Það seni eg hefi nú i hyggju að gera sem hergagnaráðherra, var gert í Frakklandi í september og okto- ber í haust. Sá maður, sem kom þvi í framkvæmd, var ungur jafnaðarmaður og hann gerði það eingöngu af umhyggju fyrir föð- urlandi sínu. Hann sameinaði allar hinar stærstu verksmiðjui' í Frakklandi og mér þykir vænt um það að nú hefir hann ná- kvæmlega sömu stöðu á hendi og eg, og eg býzt við því að hitta hann bráðlega til þess að ráðg- ast við hann um það hvað gera skal. Að einu leyti hefir hann staðið betur að vigi en eg. Allir verkamenn í Frakklandi eru verkamenn stjórnarinnar og leið- ir það auðvitað af herskyldu þeirra. Eftir lögum þeirra má senda verkamennina til hvaða verksmiðju sem er, alt eftir því hvar stjórnin heldur að þeir geti orðið að mestu gagni- í Frakklandi og Ítalíu eru og verksmiðjueigendur undir valdi stjórnarinnar, alveg eins og hermennirnir i skotgryfjunuin En eg vil segja ykkur það skýrt og skorinort, að það getui’ orðið hættuiegt að treysta því í þessu landi að framhaldið verði eins og byrjunin. Við höfum fengið mikinn sjálfboðaher, hinn- stærsta snm sögur fara af. Hann skiftir miljónum, en það tók tíu mánuði að safna honum. Vér getum eigi eytt tíu mánuðum í það að safna liði í verksmið- jurnar. Eg vil vekja athygli ykkar á einu: Eins og nú stendur hafu í herinn gengið þeir menn, sem hefðu getað unnið miklu þarfara verk heima. Mér er sagt: Þú getur stöðvað þetta með því að segja þeim mönnum, sem et'U þarfari annarsstaðar, að fara ekki til vígvallarins. En það er ekk’ liægt. Mér er sagt að margi' verkamenn ætli að ganga í her' inn. Þeir segja sem svo: Eg vil ekki að það sé um mig sagi að eg sé verri en félagar míu11' Og þeir ætla að fara. . Þega' svo er ástatt, þarf herskylú^j eigi til þess að senda menn 11 vígvallarins, heldur til þess a varna þeim þess að fara þauga svo þeir séu kyrrir í verksm'ðJ unum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.