Morgunblaðið - 20.06.1915, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐH)
íþróttabókin.
i. s. 1.
Lög, leikreglur og öunur
ákvæði um íþróttir inn-
an sambandsins. Verð 50
aurar. Útg. Iþróttasam-
band íslands. Fæst hjá
ílestum bóksölum.
Motto:
Alt gott endurfœðist.
Þá er hér loksins komin bók á
markaðinn, sem allir íþróttamenn
og íþróttavinir geta fagnað. Það
hefir vanalega verið skortur á
leiðbeiningum í þessum efnum —
þessvegna eru íþróttir okkar enn-
þá á byrjunarstigi. Með góðri
kenslu og leiðbeiningum skapast
íþróttamenn. Þessi bók — sem
er dálítil byrjun á safni til
»íþróttabókar« — er þess verð að
henni sé veitt athygli, og ekki
siður þar sem reglur allar og
leiðbeiningarnar eru ágætar, einn-
ig málið og allur frágangur bók-
arinnar góður. Þarna hafa
líka þeir menn haft umsjón með
verkinu, sem kunnað hafa, og
má segja að í mikið er ráðist af
í. S. í. að gefa út slíka bók
(bækur), þar sem það hefir að
eins lítinn styrk (500 kr.) af lands-
fé. Hér vantar fé, eins og í flest
góð fyrirtæki, sem þetta. Efni
bókarinnar er vel niður raðað,
og flestar íþróttagreinar nefndar
sem við nú iðkum, nema knatt-
spyrna, skauta- og skiðafarir, en
vegna stærðar bókarinnar, komst
það eigi fyrir — en sannfrétt hefi
eg, að eigi líði langt á milli þar
til einnig koma góðar reglur um
þessar iþróttir.
íþróttakenslubækurnar verða
alt af bezti kennariun — ekki
sízt hjá okkur, þar sem er svo
strjálbygt.
Að eins tvær meinlausar prent-
villur hefi eg rekist á i bókinni, á
bls. 9, neðstu línu: atvinumaður f.
atvinnumaður, og á bls. 38, 2. línu
að neðan: allla f. alla. Og má
sjá af þessu, að góður er próf-
arkalestur bókarinnar. A bls. 48
U'r getið um »Fimtarþraut« (Penta-
nlon), og hafa þeir gjört þar góða
reytingu; að í staðinn fyrir
.500 stiku hlaup skal koma ís-
;nzk glíma, og er það ágætt eins
bg allir sjá á því, að 200 stiku
lúaup er áður komið í »Fimtar-
1 rautinni*.
Vel á það líka við, að ekki
latist þessi eina þjóðariþrótt
»Kkar — menn verða að muna,
að þessi fagra íþrótt okkar má
»kki glatast eða gleymast.
I bók þessari er fjöldi aí ný-
¦'ðum, sem við eigum að inn-
iða í staðinn fyrir þau mörgu
útiendu orðskrípL sem nú tíðkast
meðal íþróttamanna.
Að síðustu vil eg þakka stjórn
,í. S, í. fyrir þann dugnað, að
koma þessari bók á prent, og
vona að fleiri munu á eftir fara;
sórstaklega á formaður I. S. I.
(Axel Tulinius) þakkir skyldar
fyrir sinn mikla dugnað og áhuga
í þarfir íþróttanna, vonandi eig-
um við íþróttamenn því láni að
fagna, að hans njóti lengi við.
Heill þeim, sem vinna að við-
reisn þjóðar vorrar.
Bennó.
Afmæli í dag:
GuSrún Eymundsdóttir húsfrú
Bjarni Johnson cand. jur.
Emil Jensen bakari
Friðrik P. Welding skósm.
Friðþjófur Nieken umboðsm.
Herbeit Sigmundsson prentari
H. J. Hansen vélsmiður
Jens Jónsson trésmiður
Þórður Jónsson úrsmiður.
Tungl f. kv. kl. 1.24 e. h.
Sólarupprás kl. 2.2 f. h.
Sólarlag — 10.56 síSd.
Háflóð í dag kl. 10.17
og _ 10.49
Veðrið í gær:
Vm. logn, hiti 10.0.
Rv. logn, hiti 9.3.
ísaf. logn, hiti 7.7.
Ak. n.a. andv. hiti 9.0.
Gr. logn, hiti 10.3.
Sf. logn, hiti 8.1.
Þórsh., F. logn, hiti 11.0.
Þjóðmenjasafnið opið kl.
12—2.
Náttúrugripasafnið er opið
kl. 1V2-2V2-
Ingólfur fer til Borgarness á morg-
un með norðan- og vestanpóst.
Hestur drapst fyrir vagni hórna
ofan við bæinn í fyrradag. Átti hann
sveítarmaður, sem var á leið hingað.
Sennilegt er aS ofþreyta hafi valdið,
því eigi verða hestar bráðkvaddir stS
jafnaði.
Gifting. Nýlega voru þau jungfrú
Elisabet Einarsdóttir í Laugarnesi og
Ben. G. Waage verzlunarmaður gefin
Baman í borgarlegt hjónaband.
Messnr í dag, 3. s. e. trinitatis.
(Guðspj. Hinn týndi sauður, Lúk. 15,
11—32. Matth. 9, 9—13.). í Fri-
kirkjunni í Rvik kl. 12 á hád. síra
01. Ólafsson, kl. 5 síra Har. Níelsson.
í dómkirkjunni kl. 12 á hád. síra Jóh.
Þork., kl. 5 síra Bjarni Jónsson.
menn eigi síður sammála um, aS brýrn-
ar á Elliðaánum sóu mesta ómynd.
Þar hlýtur að ske stórkostlegt slys fyr
eða 8Íðar. Vór vöktum máls á því í
fyrra hér 1 blaðinu, að nauðsyn bæri
tíl þess að gera breíðavi og traustari
bryr yfir árnar, þar sem umferðin
mun vera meiri en á nokkrum öðrifm
þjóðvegi í landinu. Bifreiðar, hest-
vagnar og ríðandi menn eru á stöS-
ugri ferð yfir árnar, og þaS þarf vissu-
lega sterkar bryr, sem þola eiga þá
umferð. ÞaS er ekki óhugssndi aS
réttir hlutaSeigendur rumski eitthvaS
viS slys þaS, sem ef til vill kostar
Magnús Bjarnason lífið og komi skriði
á það mál, að byggja betri og breiS-
ari brýr yfir Elliðaárriar. Það er
venja hór í þessu landi aS byrgja
a 1 d r e i brunninn fyr en barniS er
dottið í hann — en það væri hart, ef
mörg börn þyrftu aS detta í brunn-
inn, áSur hann yrði byrgSur.
Gullfoss er nú í Leith. SkipiS er
fullfermt af vörum hingaS — meira
pantað, en hægt var að flytja.
Bifreiðarslysið. MikiS var um það
talaS í gær. Eru allir sammála um,
að Jessen vólfræðiskennara só það að
þakka, að ekki varð slysið enn voða-
legra en raun varð á. Og þá eru
Sigfús Sveinbjarnarson biður oss
geta þess, að í gær hafi falliS úrskurð-
ur stjórnarráðsins um það, að saka-
mál skuli hafiS gegn honum út af
eldsvoSanum á Arnarstapa 31. marz
þetta ár. ¦
I gser var farið aS rífa niSur bruna-
veggina, sem staðiS hafa milli húsa
Gunnars Gunnarssonar og Edinborgar-
hússins viS Austurstræti síSan bruna-
nóttina. Vonandi er þaS fyrirboSi
þess, aS bráSum verSi gerS gangskör
aS því aS hreinsa rústirnar, svo eigi
verði þær bænum til stórskammar í
marga mánuði enn.
Ceres mun halda beint frá Akur-
eyri til útlanda. SkipiS hefir engan
póst og engar vörur meSferSis til Vest-
fjarSa eSa Reykjavíkur.
Stúdentspróf stendur nú sem hæðst
í Mentaskólanum.
Síðusfu
símfregnir.
I símskeyti frá brezku stjórninni
sem oss barst seint í gærkvöldi er
sagt:
Að 23 franskir og brezkir flug-
menn hafi flogið til Karlsruhe og
varpað þ3r niður 130 sprengikúlum
og gert mikið tjón.
Hji Souchez hefir Frökkum orðið
talsvert ágengt.
í Vogesa-fjöllum hafa Frakkar náð
hæðunurn hjá Fecht-dalnum.
í Elsass hafa þeir tekið Alterhof
og Stensbriick og fleiri borgir.
-----------------¦» 1 «.-----------------
Guðfræðisprófínu
við Háskólann lauk i fyrradag.
Kandidatarnir, sem útskrifuðust, fengu
þessar einkunnir:
Ásg. Ásgeirsson 1. eink. i272/3 stig.
Friðrik Jónasson 2. betri eink. 86V3 st.
Herm.Hjartarson 2. betri eink. 98a/8st.
Jón Guðnason 2. betri eiok. 84V3 st
Jósef Jónsson 2. lakari eink. 562/3 st.
Verkefntn við skriflega prófið voru
þessi:
/ qamlatestamentisfrœðum: Hverjar
voru aðalhátíðir ísraelsmanna ? Hver
var hinn upphaflegi skilningur á
þeim og hvernig breyttist hann síð-
ar ? Hvað er sérstaklega að segja um
friðþægingardaginn ?
/ samstœíihgri %uSjrœði: Eltir að
hafa í stuttu yfirliti lýst aðdtíma-
bilum siðgæðisþróunarinnar, sé gerð
grein fyrir sjálfsþroskunarskyldu ein-
staklingsins.
1 nýjatestamentisfraðum: Að skýra
kaflann Matt. 16, 13.—20.
/ kirkjusögu: Innocentius III. páfi.
Prédikunartextar: Jób. 8, 31.—36.
Jób. 4, 39—42. Lúk. 15, 8. —10.
Matt. 13, 33. Matt. 9, 35.-38.
*&;
iiinc
«
S t ú I k a óskast i vist á gott heimili
1. júlí. R. v. á.
S t ú 1 k a getar fengio" heyvinnn hja
Petersen frá Vio"ey, Iðnskólannm.
S t ú k a óakast tui þegai\ R. v. á.
G ó 0 a n kanpanaann vantar sýslnmann-
inn á Efra-Hvoli. Gott kaiip. Talið vi6
dýralsekni Magnús Einarson.
Ranpakonn vantar á gott sveita-
heimili nálægt Reykjavik. R. v. á.
y dlaupsRapur w
H m z t verð á ull og prjónatnsknm í
»Hlif«. Hringið i sima 503.
Fjölbreyttnr heitur matnr fæst
allan daginn á Kaffi- og matsi'dnhúsinu
Langavegi 23. Rristín Ðahlsted.
R e i ð h j ó 1 ódýrust og vönduðust hja
Jðh. Norðfjörð, Bankastræti 12.
Rúmstæði, vönduð og ódýr, og fleiri
húsgögn til sölu á trésmiðavinnnstofunni
k Langavegi 1.
A 1 f a-L a v a 1 skilvinda, divan, eikar-
borð og fjórir stólar, skrifpúlt, rúmstæði,
gramofón, karlm. reiðbjól, boxhanzkar,
kúluriffill o. fl. selst með sérstöku tæki-
færisverði á Langavegi 22 (steinh.).
Til sýnis kl. 12 til 1 e. m.
Barnakerra litið notnð er til sölu
& Barðnsstig 12.
G o 11 tveggjamannafar með seglum,
árum og stýri er til sölu. Uppl. Baróns-
stíg 12.
Kvenreiðhjól til söln með lágu
verði, R, v. á.
Röskur drengnr óskast nú þegar.
Bjorn Jónsson, Frakkastíg 14.
^ slunéið ^j?
Peninga bndda nw peningum í
fanst í gær. Vitjist á Skóvörðustíg 33.
Yfirlýsing.
Að gefnu tilefni lýsum vér undirrit-
aðir hór með yfir, að það var e k k 1
Knattspyrnufólag Reykjavíkur, heldur
»Fram« sem skoraðist undan aS keppa
á lþróttavellinum 17. júní.
En þar eð tilkynningin kom svo
seiut, var ekki hægt að breyta skemti-
skráuni öðruvísi, en að láta yngri
deildir fólaganna keppa í staS þeirra
eldri, sem upphaflega höfðu tekið að
sér að gera það.
Reykjavík 19. júnl 1915.
Framkvæmdanefndin.