Morgunblaðið - 20.06.1915, Síða 7

Morgunblaðið - 20.06.1915, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 Iþróttabókin. í. s. í. Lög, leikreglur og önnur ákvæði um íþróttir inn- an sambandsins. Yerð 50 aurar. Útg. Iþróttasam- band íslands. Fæst hjá llestum bóksölum. Motto: Alt gott endurfœðist. Þá er hér loksins komin bók á markaðinn, sem aliir íþróttamenn og íþróttavinir geta fagnað. Það heíir vanalega verið skortur á leiðbeiningum í þessum efnum — þessvegna eru íþróttir okkar enn- þá á byrjunarstigi. Með góðrí kenslu og leiðbeiningum skapast íþróttamenn. Þessi bók — sem er dálítil byrjun á safni til »íþróttabókar« — er þess verð að henni sé veitt athygli, og ekki siður þar sem reglur allar og leiðbeiningarnar eru ágætar, einn- ig málið og allur frágangur bók- arinnar góður. Þarna hafa líka þeir menn haft umsjón með verkinu, sem kunnað hafa, og má segja að í mikið er ráðist af í. S. í. að gefa út slíka bók (bækur), þar sem það hefir að eins litinn styrk (500 kr.) af lands- fé. Hér vantar fé, eins og í flest góð fyrirtæki, sem þetta. Efni bókarinnar er vel niður raðað, og flestar íþróttagreinar nefndar sem við nú iðkum, nema knatt- spyrna, skauta- og skíðafarir, en vegna stærðar bókarinnar, komst það eigi fyrir — en sannfrétt hefi eg, að eigi líði langt á rnilli þar til einnig koma góðar reglur um þessar iþróttir. íþróttakenslubækurnar verða alt af bezti kennarinn — ekki sízt hjá okkur, þar sem er svo strjálbygt. Að eins tvær meinlausar prent- villur hefi eg rekist á í bókinni, á bls. 9, neðstu línu: atvinumaður f. atvinnumaður, og á bls. 38, 2. línu að neðan: allla f. alla. Og má sjá af þessu, að góður er próf- arkalestur bókarinnar. A bls. 48 ‘i’ getið um »Fimtarþraut« (Penta- nlon), og hafa þeir gjört þar góða reytingu; að í staðinn fyrir 500 stiku hlaup skal koma is- mzk glíma, og er það ágætt eins 'jg allir sjá á því, að 200 stiku hlaup er áður komið í »Fimta,r- 1 rautinni*. Vel á það líka við, að ekki latist þessi eina þjóðariþrótt »Kkar — menn verða að muna, að þessi fagra íþrótt okkar má “kki glatast eða gleymast. T bók þessari er fjöldi af ný- ’ðum, sem við eigum að inn- iða í staðinn fyrir þau mörgu úilendu orðskrípi, sem nú tíðkast meðal íþróttamanna. Að síðustu vil eg þakka stjórn í. S, í. fyrir þann dugnað, að koma þessari bók á prent, og vona að fleiri munu á eftir fara; sérstaklega á formaður í. S. I. (Axel Tulinius) þakkir skyldar fyrir sinn mikla dugnað og áhuga í þarfir íþróttanna, vonandi eig- um við íþróttamenn því láni að fagna, að hans njóti lengi við. Heill þeim, sem vinna að við- reisn þjóðar vorrar. Bennó. t—"> i .1 a « u Ö H I Ív cr=3 Afmæli í dag: GuSrún Eymundsdóttir húsfrú Bjarni Johnson cand. jur. Emil Jensen bakari Friðrik P. Welding skósm. Friðþjófur Nielseu umboðsm. Herbert Sigmundsson prentari H. J. Hansen vélsmiður Jens Jónsson trósmiður Pórður Jóti83on úrsmiður. Tungl f. kv. kl. 1.24 e. h. S Ó 1 a r u p p r á s kl. 2.2 f. h. S ó 1 a r 1 a g — 10.56 sfðd. Háflóð í dag kl. 10.17 og — 10.49 Veðrið í gær: Vm. logn, hiti 10.0. Rv. logn, hiti 9.3. ísaf. logn, hiti 7.7. Ak. n.a. andv. hiti 9.0. Gr. logn, hiti 10.3. Sf. logn, hiti 8.1. Þórsh., F. logn, hiti 11.0. Þjóðmenjasafnið opið kl. 12—2. Náttúrugripasafnið er opið kl. 1V.-2V,. Ingólfur fer til Borgarness á morg- un með norðan- og vestanpóst. Hestur drapst fyrir vagni hérna ofan við bæinn í fyrradag. Átti hann sveitarmaður, sem var á leið hingað. Sennilegt er að ofþreyta hafi valdið, því eigi verða hestar bráðkvaddir áð jafnaði. Gifting. Nýlega voru þau jungfrú Elisabet Einarsdóttir í Laugarnesi og Ben. G. Waage verzlunarmaður gefin samati í borgarlegt hjónaband. Messur í dag, 3. s. e. trinitatis. (Guðspj. Hinn týndi sauður, Lúk. 15, 11—32. Matth. 9, 9—13.). í Frf- kirkjunni í Rvík kl. 12 á hád. síra Ól. Ólafsson, kl. 5 síra Har. Níelsson. í dómkirkjunni kl. 12 á hád. síraJóh. Þork., kl. 5 síra Bjarni Jónsson. Gullfoss er nú f Leith. Skipið er fullfermt af vörum hingað — meira pantað, en hægt var að flytja. BifreiðarsJysið. Mikið var um það talað í gær. Eru allir sammála um, að Jessen vólfræðiskennara sé það að þakka, að ekki varð slysið enn voða- legra en raun varð á. Og þá eru menn eigi síður sammála um, að brýrn- ar á Elliðaánum sóu mesta ómynd. Þar hlýtur að ske stórkostlegt slys fy.r eða síðar. Vór vöktum máls á því í fyrra hér í blaðinu, að nauðsyn bæri til þess að gera breiðari og traustari brýr yfir árnar, þar sem umferðin mun vera meiri en á nokkrum öðrtím þjóðvegi í landinu. Bifreiðar, hest- vagnar og ríðandi menn eru á stöð- ugri ferð yfir árnar, og það þarf vissu- lega sterkar brýr, sem þola eiga þá umferð. Það er ekki óhugsandi að réttir hlutaðeigendur rumski eitthvað við Blys það, sem ef til vill kostar Magnús Bjarnason lífið og komi skriði á það mál, að byggja betri og breið- ari brýr yfir Elliðaárnar. Það er venja hór í þessu landi að byrgja a 1 d r e i brunninn fyr en barnið er dottið í hann — en það væri hart, ef mörg börn þyrftu að detta í brunn- inn, áður hann yrði byrgður. Sigfús Sveinbjarnarson biður oss geta þess, að f gær hafi fallið úrskurð- ur stjórnarráðsins um það, að saka- mál skuli hafið gegn honum út af eldsvoðanum á Arnarstapa 31. marz þetta ár. í gær var farið að rífa niður bruna- veggina, sem staðið hafa milli húsa Gunnars Gunnarssonar og Edinborgar- hússins við Austurstræti síðan bruna- nóttina. Vonandi er það fyrirboði þess, að bráðum verði gerð gangskör að því að hreinsa rústirnar, svo eigi verði þær bænum til stórskammar í marga mánuði enn. Ceres mun halda beint frá Akur- eyri til útlanda. Skipið hefir engan póst og engar vörur meðferðis til Vest- fjarða eða Reykjavíkur. Stúdentspróf stendur nú sem hæðst í Mentaskólanum. Guðfræðispróflnu við Háskólann lauk i fyrradag. Kandidatarnir, sem útskrifuðust, fengu þessar einkunnir: Asg. Asgeirsson i. eink. 1272/3 stig. Friðrik Jónasson 2. betri eink. 86l/s st. Herm.Hjartarson 2. betri eink. 982/8st. Jón Guðnason 2. betri eiok. 84Y3 st Jósef Jónsson 2. lakari eink. 563/3 st. Verkefnin við skriflegn prófið voru þessi: I gamlatestamentisfrœðum: Hverjar voru aðalhátíðir ísraelsmanna ? Hver var hinn upphaflegi skilningur á þeim og hvernig breyttist hann síð- ar ? Hvað er sérstaklega að segja um friðþægingardaginn ? I samstaðilegri guðýraði: Eftir að hafa í stuttu yfirliti lýst aðaltíma- bilum siðgæðisþróunarinnar, sé gerð grein fyrir sjálfsþroskunarskyldu ein- staklingsins. 1 nýjatestamentisfrœðum: Að skýra kaflann Matt. 16, ip—20. I kirkjusögu: Innocentius III. páfi. Prédikunartextar: Jóh. 8, 31.—36. Jóh. 4, 39.— 42. Lúk. 15, 8. — 10. Matt. 13, 33. Matt, 9, 35.—38. Síðusfu símfregmr. í símskeyti frá brezku stjórninni sem oss barst seint í gærkvöldi er sagt: Að 23 franskir og brezkir flug- menn hafi flogið til Karlsruhe og varpað þar niður 130 sprengikúlum og gert mikið tjón. Hji Souchez hefir Frökkum orðið talsvert ágengt. í Vogesa-fjöllum hafa Frakkarnáð hæðunum hjá Fecht-dalnum. í Elsass hafa þeir tekið Alterhof Og Stensbruck og fleiri borgir. ^ *2finna S t ú 1 k a óskast f vist á gott heimili 1. júli. R. v. á. S t ú 1 k a getur fengið heyvinnn hjá Petersen frá Viðey, Iðnskólanum. S t ú k a óskaet mi þegar. R. v. á. G ó ð a n kaupamann vantar sýslumann- inn á Efra-Hvoli. Gott ka*p. Talið við dýralækni Magnús Einarson. Kaupakonu vantar á gott sveita- heimili nálægt Reykjavik. R. v. á. cJlaupsfiapur ^ H æ z t verð á ull og prjónatuskum i »Hlif«. Hringið i sima 503. Fjölbreyttur heitur matur fæst allan daginn á Kaffi- og matsöluhúsinu Laugavegi 23. Kristín Dahlsted. R e i ð h j ó 1 ódýrust og vönduðust hjá Jóh. Norðfjörð, Bankastræti 12. Rúmstæði, vönduð og ódýr, og fleiri húsgögn til sölu á trésmíðavinnustofunni á Laugavegi 1. A 1 f a-L a v a 1 skilvinda, divan, eikar- borð og fjórir stólar, skrifpúlt, rúmstæði, gramofón, karlm. reiðbjól, boxhanzkar, kúluriffill o. fl. selst með sérstöku tæki- færisverði 4 Laugavegi 22 (steinh.). Til sýnis kl. 12 til 1 e. m. Barnakerra litið notuð er til sölu á Barónsstig 12. Gott tveggjamannafar með seglum, árum og stýri er til sölu. Uppl. Baróns- stíg 12. K v e n r e i ð h j ó 1 til sölu með lágu verði. R. v. á. Röskur dre ngur óskast nú þegar. Björn Jónsson, Frakkastíg 14. zŒunóié ^ Peningabudda með peningum í fanst i gær. Vitjist á Skóvörðustíg 33. Yfirlýsing- Að gefnu tilefni lýsum vór undirrit- aðir hér nieð yfir, að það var e k k 1 Knattspyrnufólag Reykjavíkur, heldur »Fram« sem skoraðist undan að keppa á íþróttavellinum 17. júní. En þar eð tilkynningin kom svo seint, var ekki hægt að breyta skemti- skránni öðruvísi, en að láta yngri deildir fólaganna keppa í stað þeirra eldri, sem upphaflega höfðu tekið að sór að gera það. Reykjavík 19. júní 1915. Framkvæmdanefndin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.