Alþýðublaðið - 01.05.1958, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 01.05.1958, Blaðsíða 4
■% Alþýðublaðið Fimmtudagur 1. maí 195S. vermMGUk SÆNSKAK BÓICMENNTIR : og sænsk bókagerð standa á mjög háu stigi. Svíar eiga mjög' marga góða rithöfunda — cg hafa alltaf átt. Þeir hafa gert ýmsar tilraunir í skáldskap og • bókmenntum, reynt að finna ný ijá'ningarform og stundum stað- ið' þjóða fremst í þesSsu efni. — Margir íslenzkir rithöfundar hafa sótt þekkingu og hughrif iil þeirra og stundum hefur þetta líkst eftirhermum. Oft hafa ís- lenzkir rifhöfundar hafið þser tilraunir hér, sem Svíar hafa verið að hætta við. En allt hef- ur þetta haft sín áhrif. Það hef- ur átt sér stað að ungir íslenzk- ir höfundar hafa boðað uppá - fyndingar sænskra liöfunda eins og' ný sannindi um sama leyti, sem Svíar hafa yfirgefið þær og ' iiafist handa um nýjar. EN ÞÓ að ýmsir sænskir höf- : undar hafa verið mjög leitandi nð efni og formi, hafa þeir allt- af átt fastmótaða, jákvæða hóf- unda á gamlan mælikvarða — •og þessir höfundar hafa veriö vinsælastir hér. Við þekkjum allmikið til sænskra þókmennla, en samt sem áður skortir mikið 6 að sú þekking sé tæmandi. — Þetta stafar eingöngu af því að okkur hefur virzt sem dönsk og norsk tunga stæði okkur nær, i að Danir og Norðmenn væru okkur skyldari, sem mér virðist | Fagrar bækur til sýnis. Svíar og bókmenntirnar Fegurstu bækurnar eru einfaldar að gerð. Tökum Svía til fyrir myndar í gerð bóka. vera mikið vafamál, að minnsta kosti hvað tunguna snertir. En einnig hefur hér ráðið miklu um val íslenzkra útgefenda á þýddum bókmenntum. Sölu- möguleikinn ræður þar . ailtaf mestu um, og þýðir ekki um að tala svo þýðingarmikill er hann. SÆNSKAR BÆKUR eru ákaf lega fagrar og vel gerðar hvar sem á þær er litið. Það er þö ekki vegna þess, að yfirleitt sé mikið borið í ytri gerð þeirra, því að fegurstu bækurnar á sænsku bókasýningunni, sem nú er í Þjóðminjasafninu, eru þær sem eru einfaldastar að gerð. — Má í því sambandi til dæmis vekja athygli á bókum „Tidens- j forlag“, en það útgáfufélag legg- I | ur mikla áherzlu á að gefa út I bækur til sölu meðal aiþýðu, cnda er það útgáfufélag hennar. Þ:::r eru einfaldar, auðveldar í hendi og fagrar að mínu áliti." ÞAÐ ER ERFITT að slíta sig frá þessari bókamergð. Mann langar til að fá sér sæti með bók í hendi og fara að lesa, en alltaf grípur augað nýja bók, og að lokum eru þær orðnar svo marg- ar, sem mann langar til að kynn ast, að ekki dugir að f sér neina sérstaka til kynningar stutta stund. Maður vill helzt taka þær flestar með sér heim. Ég vil mælast til þess að íslenzk ir bókaútgefendur og rithöfur.d- ar kynni sér gaumgæfilega bóka gerðina á þessari sýningu. MÉR HEFUR verið sagt, að úí gáfufélögin, sem standa að þess- ari sýningu hafa þegar afhent menntámálaráðuneytinu allar þessar bækur til ráðstöfunar. — Menntamálaráðherra mun svo hafa í hyggju að ráðstafa þeim. Ekki finnst mér þó að tæta megi þetta safn í sundur. Þó væri ef til vill ekki úr vegi að taka sér- fræðilegar bækur út úr og koma þeim fyrir í skólum eða stofn- unum þar sem samskonar fræði eru stunduð. Að öðru leyti ættí safnið að fara á einn stað, þar sem almenningur getur átt ao- gang að þeim. Hannes á horninu. Fjölmennum í kröfugöngu fisiítrúaráðs í clag og tökum háfíðahöSdum I * * I «. I ) ) \ s * Læknar kynna sér heiisuvernd. FULLTRÚAR frá heilbrigð- isstjórnum 24 þjóða í Evrópu, þar á meðal frá Sovétcíkjunum, Austur-Evrópuríkjum og öli- um Norðurlöndunm fimnr hítt- ust í Lissábon þann 17. apríl. JÞar ræddu fulltrúarnir um sam eiginleg áhugamál sín. en skipta sér síðan í þrjá hópa og ferðasí um Evrópulönd í mánaðartíma til þess að kynnast af eigin sjón og reynd ástandi í heilsuvernd- armálum. Hópurinn hittist svo á ný í London um miðjan maí- jrnánuð. Það er Alþjóðaheilsuverndar stofnunin —• WHO — sem gengst fyrir þessum fundum og ferðalögum. Hefur stofnunin efnt til slíkra ferðalaga um Ev- rópu síðan 1951 er fulltrúar heilbrigðisstjórnanna ferðuðust um Svíþjóð, Skotland og Eelg- íu. Frá íslandi mætir Sigurður Sigurðsson berklayfirlæknir. ðslandsmeí. Á SUNDMÓTI ÍR í gær- kvöldi setti sveit ÍR nýtt met í 3X50 m þrísundi á 1:33,5 mín. Gamla metið var 1:37,4 og átti Ægir það. Pétur Kristjánsson, Á sigraði í 100 m skriðsundi á 59,1 sek. Annar varð Guðmund ur Gíslason, ÍR á 59,6 og þriðji Lars Larsson, Danmörku 59,8 sek. Ágústa Þorsteinsdóttir sigraði í 100 m skriðsundi kvenna á 1:07,6. Karin Larsson synti á 1:08,0. ókbindarafélag Islands flytur öllum félágsniönnum sínurn beztu árnaðaróskir í tilefni dagsins og hvetur félagsmenn sína til almennrar þátttöku í hátíðarhöldunum 1. maí Á.B.S., félag afgreiðslusfúlkna í brauða og mjólkurbúðum flytur öllum félagskonum sínum beztu árnaðaróskir í tilefni dagsins og hvetur þær til almennrar þátttöku í hátíðar- höldunum 1. maí, Stjórnin. Verkakvennafélagið Framsókn flytur öllum félagskonum sínum beztu árnaðaróskir í tilefni dagsins. Mætum allar undir fána félagsins. Stjórn V. K. Framsókn. Múrarafélag Reykjavíkur flytur öllum félagsmönnum sínum beztu árnaðaróskir í tilefni dagsins og hvetur félagsmenn sína til þess að taka þátt í hátíðarhöldunum 1. maí og ganga undir fána félagsins. Stjórnin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.