Alþýðublaðið - 01.05.1958, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 01.05.1958, Qupperneq 7
Fimmtudagur 1. maí 1958. Alþýðublaðið 7 EITT er að minnsta kosti Satt af öUu því, sem sagt. hef- ur verið og skrifað um Sorayu, fyrrverandi drottriingu Persa, •— hún er faileg kona. Það er eins og hún sé sköpuð til að skreyta öll heimsins mynda- folöð. Það hefur hún líka gert Svikalaust. Falleg og hamingju- söm hefur hún horft á mann af litmyndum og svarthvítum myndum prentuðum á allar hugsanlegar tegundir pappírs. Brosað til manns. En enginn hefur mátt ráða það af þessum myndum hvað á bak við bros hennar leynist. Það hafa góð- viljaðir blaðamenn hinsvegar reynt að skýra, hver á sinn hátt. Hver sá maður, sem hefur farið nægilega oft til tann- læknis til þess að. honum hafi unnizt tími til að fletta nokkr- um tylftum vikublaða hefur um leið gefizt. tækfærí til að kynn- ast flestu varðandi Sorayu Persadrottningu og dásamlegri hamíngju hennar fyrst eftir að hún giftist keisaranum. og virða hana fyrir sér sitjandi til foorðs með sínum blessaða sjah úti í unaðslundi, eða þar sem hún sítur á hestbaki eða í flug- ■yél, bifreið eða bát. Það eru aðeins nóbelsverðlaunaþegar eða heímsmeistarar í hnefaleik um sem ná svipaðri hylli folaðamarma, og Ijósmvndara. Ekki verður því sagt að neinum hafi komið á óvart þegar hún varð að segja skilið við alla þessa bamingju og sinn folessaða sjah, þótt flesíir blaða S S s ,s s s ,s s s ,s ,s s s s s s s ,s ,s ,s ,s ;s ,s s s s lesendur hafí eflaust vænt þess að eitthvað kraftaverk gerðist á síðustu. stundu,, er yrði. til þess' að bjarga öllu saman — það hefði orðið mun hugðnæmari endip á þessu'pers neska æfintýri. Jæia, það fór Saroya á hveitibrauðsdögunum. alit á aðra leið. Og enn eru blöðin ekki farin að vmpra neitt á því hver erfa muni hinn sjah blessaða að þessu lifandi og fagra góssi og verða þar með aðalpersónan í síðasta kafla greinarflokksins um sam- búð hennar við sjahinn. Allir vita sem sagt orsök þess að svo fór sem fór. Hið minnsta, sem hægt er að krefj- ast af drottningu er þa'ð að hún ali manni sínum og þjóð ríkis- arfa. Það tókst Sorayu hinni fögru ekki, þrátt fyrir ráð og leiðbeiningar ótal sérfræðinga, — því að vitanlega var það erindið með ferðum hennar til Bandaríkjanna, Þýzkalands og Rússlands. Þeir blaðalesendur, sem bezt hafa fylgzt með þessu vita meira að segja hvað þessir sérfræðingar sögðu. Þeir vita líka hvernig henni leið þ.essa síðustu daga. sem hún dvaldist í Sviss og beið eftir úrslita- svari sjahins. ' Eftir að hún kom þangað var hún öil önnur en hún var vön. Annars hugar og lét sem hún heyrði ekki þótt á hana væri yrt. Sumir álitu að það væri háfjallaloftið, sem gerði. Aðrir bentu á að þannig hefði fram- koma hinnar heimsfrægu leik- konu, Evu Bartok, líka verið eftir að undralæknirinn ind- verski, Park Subuh, fór hönd- um um hana með þeim árangri, . sem frægustu sérfræ'ðingar Ibeimsins náðu ekki, — að hún varð skömmu síðar barnshaf- •andi og enn hamingjusöm móðir. Að vísu hafði sá hinn sami lækniv svarað móður Sor- ayu játandi, er hún bað hann koma og fara höndum um dótt- ur sína, en farið burt í fússi eftir skamma hríð og sagt að frekara handfjatl væri með öllu þýðingarlaust, þar sem Framhald á 8. síðu. snfiíifétð flytur ölíuoi félagsm.öooum sloyoi beztu áro.aðarósklr í tiSefni dagsins og hvetor féSagsmenn sína til þess að taka þátt í hátíoahöldunum I. mai og ganga undir fána félagsins. STJÓRN H. ð. P. s S % 4 s % ) 5 4 ,s .5 4 : 4 4 ■ 4 4 ! A 1 i Verzlunarmaniudélag fíytur öíSum íaunþegum beztu árnaðaróskir í tilefni I. maí. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. flytur öllum félag’smönnum sínum beztu árnaðaróskir í tilefni dagsins og hvetur félagsmenn sína til þess að taka þátt í hátíðahölclunum 1. maí. SVEINAFÉLAG hvetur alla félagsmenn sína til almennrar þátttöku í hátíðahöldunum 1. maí. ÞVOTTAKVENNÁFELAGIÐ FREYiÁ flytur öllum félagsmönnum sínum beztu árnaðaróskir í tilefni dagsin.s og hvetur félagskonur sínar til þess að taka þátt í hátíðahöldunum 1. maí. II flytur öllum félagsmönnum sínum beztu árnaðaróskir í tilefni dagsins og hvetur félagsmenn sína til þess að taka þátt í hátíðahöldunum 1. maí. hvetur félagsmenn sína til þátt- töku í hátíðahöldunum 1. maí.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.