Morgunblaðið - 20.02.1916, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
S *
Landflótta konungur.
Pétur Serbakonungur flýr tir landi á fallbyssuvagni, sem fjórum uxum er beitt fyrir, og eru ekki aðrir í
för með honum en nokkrir hermenn hans. Mynd þessa heflr serbneskur myndasmiður tekið, og var htin
fyrst birt i »L’Illustration«. Lýsir hún vel einum hinna sorglegustu kafla í sögu hins mikla ófriðar.
Þessu leiðir auðvitað, að með fengn-
Ðöi réttindum getur kvennfólkið lika
Se§ið til hljóðs fyrir ýmsum hug-
^yndum og heimtað fé til að koma
Þei» í framkvæmd.
^n þess mundi kvenþjóðin eflaust
^ska að geta fyrir utan þetta sýnt,
hin nýfengna réttarviðurkenning
ei®i líka af sér eitthvað í hreinan
%>ða fyrir landið, og enginn efi er
^ í>vi, að þðtt ekki verði talinn eftir
styrkur úr landssjóði til landsspítala
? s'öum tíma, þá mun allri þjóð-
1Qni þykja því vænna um þessa
st°fnun, því beinni ávöxtur sem hún
Verður af nýrri og aukinni starf-
Semi og fórnfýsi islenzkra kvenna.
Ofriðarsmælki.
Sprenging varð nýlega í skotfæra-
Verksmiðjunni í Tarber í Frakklandi.
®iðu þar 5 menn bana, en 30
s®rðust.
Ffakkar hafa nýlega tekið 10
^fljón sterlingspunda lán i Bretlandi
fteð 58ojo vöxtum.
Liðsforingjar ítala. Síðan Ítalía
8agði Austurríki stríð á hendur hafa
16.000 menn lokið liðsforingjaprófi á
^ermannaskólum þeirra í Turin og
Hodena.
Tyrkir hafa nú 40.000 hermenn hjá
^oryrna í Litlu-Asíu, og þangað hafa
^e'r einnig flutt mikið af fallbyssum
°8 skotfærum. Óttast þeir, að banda-
•nean muni leita þar til landgöngu áð-
nr en langt um líður.
í*úsnnd Þjóðverjar, sem flúið hafa
^rá Kameroon og leitað á náðir Spán-
Verja f Muni, hafa verið fluttir heim
Spánar og eiga að geymast þar
þangað til ófriðnum er lokið.
Ansturríkismenn hafa sent þrjá
nyja kafbáta austur í Marmarahaf,
^yrkjum til trausts.
Hermenn drnkna. Hollenzka frótta-
st°fan >Vaz Dias Agenzy« flytur þá
^egn, að Þjóðverjar hafi nýlega ætlað
gera áhlaup hjá Vínuborg yfir á,
sem var á ísi. En rússneska stórskota-
lót sprengikúlur sínar mölbrjóta
|®'nn og druknuðu þar að sögn 450
njóðverjar.
Ssenskar skipasmíðastððvar eru í
Jaiklum vanda staddar vegna þes6, að
jóðverjar hafa bannað útflutning á
-Vrn8um járnvörum, sem þær þurfa
tla-uðaynlega til skipasmíðanna. Þó er
Qlselt, að undanþágur fáist frá þessu
Qtflutningsbauni, ef andvirði varanna
? goldið í sænskri mynt. Sækjast
lóðverjar nú eftir því, að fá sem mest
^ Sjaldeyri Norðurlanda vegna þess
a® þeirra eigin mynt er í lágu verði.
^zrœnar Baunir
^ Beauvais
eru ljúiiengastar.
Möve.
Mönnum er það ennþá ráðgáta
hvaða skip Möve er. Ef það er
þýzka kaupfarið Möve frá Bremen,
þá er engum blöðum ’um það að
fletta að það hefir komist í gegn um
herskipagirðingar Breta, sem eiga þó
að vera svo öflugar að ekkert skip
geti komist fram hjá þeim. Þykir
það og næsta ótrúlegt og vilja menn
finna aðiar lausnir gátunnar. Hafa
því komið upp margar sagnir um
það að Möve’ hafi aldrei komið frá
Þýzkalandi. Segja sumir það smíð-
að í Ameríku fyrir þýzkt fé, og enn
aðrir segja að Þjóðverjar í Ameríku
hafi látið smiða fleiri skip af sömu
gerð og séu nú nokkur þeirra þeg-
.ar send út í Atlanzhaf til þess að
granda brezkum skipum. Er það
haft eftir einum skipverja á Appam
og segir hnnn að Þjóðverjar hafi
sagt sér. Og brezkur maður, sem
er nýkominn frá Ameríku til Eng-
lands, segir sig ekki furða á þessum
fregnum um Appam og Möve, því að
það sé kunnugt í B mdaríkjunum
fyrir nokkru að Þjóðverjnr hefðu
sent víkingaskip út í Atlanzhaf og
hafi það venjulega gengið undir
nafninu Alabama II., skírt í höfuð-
ið á víkingaskipinu Alabama, sem
mestan usla gerði í þrælastríðinu
forðum. En hvað sem öllu þessu
liður þá vita menn þó eitt með
vissu: Möve er enn út í hafi og sit-
ur fyrir skipum Breta. En Appam
liggur á höfninni í Norfolk og hafa
Bandaríkin enn eigi ákveðið hvað gert
skuli við skipið. Farþegar, skipshöfnin
og skipshafnir hinna skipanna, sem
sökt var, eru nú komnar áleiðis
til Evrópu með skipunum Noordam
og Baltic.
Fréttaritari ameríska blaðsins New
York World átti nýlega tal við Berg
liðsforingja, sem færði Appam til
hafnar og spurði hann hvort hann
héldi eigi að herskip Breta mundu
skjóta Möve í kaf.
Berg svaraði:
Herskipin munu ekki þekkja Möve.
Skipið hefir uppi brezka fánann
og það hefir áður komist í kast við
brezk herskip. Það hefir svarað rétt
öllum merkjum þeirra og sagt þeim
að engin þýzk skip væru i nánd.
Það getur látist heita hvaða nafni
sem er, því að herskipin geta ekki
séð nafn þess.
Ef herskipin skyldu ætla sér að
eltx það, þá verður það falleg kapp-
sigling. Möve mun þá geta hleypt
frá þeim inn á ameríska höfn. Það
er svo hraðskreitt að það hefði get-
að náð Appam, enda þótt það hefði
varað skipstjóra við á 10 mílna færi.
Um orustuna við Clan Mactavish
sagði Berg:
Vér sáum skipið sunnudagskvöldið
16. janúar. Það hafði átt loftskeyta-
skifti við Appam og vér nörruðum
það nær heldur en það mundi hafa
viljað. Það vissi ekki að Appam
var hertekið. Vér komumst að því
áður en það vissi af, vegna þess að
vér höfðum engin ljós, og vér átt-
um engrar varnar von. Samt sem
áður hóf skipið skothríð undir eins
og það vissi að það hafði gengið í
gildru.
Orustan var áköf, en stutt. í
fyrstu tveim skotunum skutum vér
burtu stjórnpall skipsins. Möve
hafði ekkert að óttast. Það er svo
vel varið og kúlurnar frá Clan
Mactavish skrikuðu á brynju þess.
Vér vildum ná skipinu vegna þess
farangurs er það hafði og skoruðum
á það að gefast upp orustulaust.
Hefði það orðið við því, mundum
vér hafa flutt alla skipshöfnina og
liðsforingjana hingað.
Liðsforingjar þess og 10 menn
af skipshöfninni, voru fluttir um
borð í Möve. Eg veit aðeins um
tvo menn, sem biðu bana. Annar
þeirra dó úr sárum á Appam tveim
dögum síðar en orustan varð. Þrjá
sára menn fluttum vér hingað. A
Möve beið einn maður bana og þrír
særðust, en skipið hlaut engar
skemdir. Þegar vér skildum við
það voru skipverjar hinir ánægðustu
og höfðu nóg matvæli og kol á
skipinu.
Síldveiði Svia.
Sviar veiða mikla síld á ári hverju
í Skagerak og Kattegat milli Dan-
merkur og Svíþjóðar. Hafa þeir
á meðalvetri aflað sild fyrir um 2
miljónir króna á þessum stað.
Skýrsla er nýkomin út um sild-
veiðarnar i vetur. Hafa Svíar aflaÖ
meiri síld en nokkru sinni áður, og
verðið er auðvitað afskaplega hátt.
Stundum hefir ekki fengist meira
en 55 aurar fyrir hvern ’nektólitra
af þessari vetrarsild i Sviþjóð. En
nú er verðið 55 krónur. í lok
desember höfðu Svíar aflað sild fyrir
alls 4V2 tniljón króna.