Morgunblaðið - 22.10.1916, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.10.1916, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 BEZTAR Baðmullarvörur Lé re ft, Flönei, Tvisttau, Morgunkjólaefni — Sængurdúkur — Fóðurtau Slitfata- og Skyrtuefni — Handklæði Dúka- og þerru dreglar — Glugga og dyratjaldaefni m. m. fl Fyrir karlmenn N æ r f ö t, stórt og gott úrval. Sokkar, uliar, baðmullar og silki. Sérlega sterk og góð tegund. 3 pör fyrir kr. 1,50. Slifsi og Slaufur nýjasta nýtt. Höfuöföt. Axlabönd. Gilette, rakvélar og blöð, ágæt Raksápa og m. m. fl. 1*1 Ræða Bethman-Holwegs. Frh. frá 5. síðu. í vetur sem leið báru menn nokkra áhyggju fyrir því, að matvælin mundu ekki endast, en þau entust samt. Uppskeran í sumar gerir oss miklu tryggari heldur en vér vorum í fyrra. Eg veit að margir eru óánægðir með galla þá, sem eru á fyrirkomu- laginu hjá oss. Eg viðurkenni hin miklu vandræði, sem margir eiga við að búa. Eg samhrygg- ist innilega þeim, sem hafa mist sína og eiga við sorg að búa. Eg beygi höfað mitt í lotningu fyrir þeim hetjuhug, sem menn og konur af öllum stéttum sýna með því, hvernig þau bera raun- ir sínar í sameiginlegri ást tíl föðurlandsins. Aðdáanlegt er það og fagurt, en hitt er þó enn feg- urra og aðdáanlegra, hvernig syn- ir vorir og bræður standast hin grimmilegu áhlaup óvinanna á vígstöðvunum og hvílíka dæma- lausa hugprýði þeir sýna. Saga heimsins og saga mannkynsins á ekkert dæmi er jafnist á við það. Hetjudáð þeirra, sem á víg- völlunum eru, verður að þagga niður sorg vora. Engar ásakan- ir mega berast til eyrna þeirra, heldur aðeins þakklæti, innilegt þakklæti við föðurlandið, sem þeir fórna blóði sínu fyrir. Vær- um vér þeirra verðugir ef vér gæfum ekki með glöðu geði alt það, er þeim má til hjálpar verða? Herlánid. Nú gefst þýzku þjóðinni enn tækifæri til þess að sýna þetta í verkinu, sýna það að hún er reiðubúin að leggja alt í sölurnar og treystir á sigur með því að leggja fram fé í herlánið. Eg veit það að oss er óhætt i þessu efni að reiða oss á þá, sem berj- ast að baki vígvallanna. Vér megum reiða oss á hvern einasta Þjóðverja, sem ann föðurlandi sínu, að hann telji það heiður sinn og skyldu að láta af mörk- um alt það fé, er hann má án vera, til þess að hjálpa hersveit- um vorum og þannig leggja fram sinn skerf til þess að flýta fyrir friðnum. Samhentir og einlægir skulum vér standa að baki þeirra eins og ein þjóð og einn maður. Eg hefi nú lokið máli minu. Vér sjáum ófrið framundan. Oss er enn eigi leyft að hugsa um friðarstörf. Eg las nýlega þessa setningu: »Húsið brennur. Vér verðum að slökkva eldinn. Hvern- ig vér síðar endurreisum húsið, verður framtíðin að skera úr.« Þetta getur verið, en samt sem áður hefir þetta ófriðarbál sýnt oss það ljóst á hverjum einasta degi, á hve öflugum og óhaggan- legum grundvelli húsið okkar er reist. Hvað er það annað er gæti skýrt það þrek vort að halda uppi ófriði við nær gervallan heim, ef það er eigi föðurlands- ást vor, sem bindur oss alla ó- rjúfanlegum böndum? Og í friði munum vér eigi fara á mis við neitt það, er styrkti oss til þess að standast þessa eldraun. »Ometanlegt starf bíður mín,< mælti Friðrik mikli þegar sjö- ára-stríðinu lauk. Ometanlegt starf hefir verið árangur allra hinna miklu bardaga, sem vér höfum orðið að heyja fyrir sjálf- stæði voru í 150 ár. Það hefir verið gæfa vor og svo mun verða enn. Hið mikla starf, sem bíð- ur vor á öllum sviðum krefst allra krafta þjóðarinnar til þess að það verði framkvæmt. Frjáls braut fyrir alla — það á að vera orðtak vort. Ef vér framfylgjum þvi frjálslega, þá mun gæfurik framtíð bíða föðurlaDds vors, þá munu allar stéttir manna taka saman höndum og vinna í einingu að friðarstörfum eins óg þær vinna nú eins og einn mað- ur í hinum blóðuga ófriði. Ófriöarsmælki. Herteknir tnenn. I fyrra og hittið- fyrra sendu Frakkar fjölda hertekinna Þjóðverja til Afríku. Þótti þægilegra að geyma þá þar. En þeir þoldu illa loftslagið og sýktust margir og dóu. Þjóðverjum þótti þetta allilr, og til þess að gjalda líku líkt, sendu þeir 10,000 hertekinna Frakka til Póllands. Nú hafa Frakkar ákveðið, að allir herteknir Þjóðverjar, sem fluttir hafa verið til Afríku, skuli sendir til Frakklands aftur, og jafn- framt hafa Þjóðverjar þá flutt hina 10 þúsund herteknu Frakka heim til Þýzkalands frá Póllandi. Hindenburg átti 69 ára afmæli hinn 2. þ. m. Var sá dagur hald- inn hátíðlegur um þvert og endilangt Þýzkaland, og keptust allir við það að hylla hinn mikla hershöfðingja. í aðalherbúðunum hélt keisarinn honum veizlu og talaði fyrir minni hans. Blöðin fluttu langar greinar um Hindenburg, og einkunnarorð hans: »Sá sem vill, kemst sinna. ferða«. „GOLD MEDAL“ HVEITI 0. fl. teg. beint frá Ameríku í heildsölu G. Gíslason & Hay — Y Morgunblaðið bezt. Silkiflauel á peysur falleg og góð, fást hjá Góðar Saumavélar j með hraðhjóli og kassa, 10 ára ábyrgð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.