Alþýðublaðið - 11.05.1958, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 11.05.1958, Blaðsíða 7
SunnudagUr 11. maí 1958 7 A I þ ý 5 u b 1 a ð \ ð Áð marggefiiu tilefni v'ilja undixrituð vátiyggingafélög vekja athygli á, að uppsagnarfrestur lögboðinna áby-rðar trygginga bifreiða rann út 1. febr. s.l. Þeir.. sem á einhvern hátt sniðganga þessar reglur eiga á hættu að verða krafðir um iðgiöld ábvrgðartrygginganna af tveimur félögum. Þess er fastlega vænst, að réttir aðilar hlýti framangemdum reglum, svo komizt verði hiá ýmsum leiðindum, stafa af broti á þeim. Reykjavik, 8. rnaí 1958, Samvinnutryggingar, Vátryggingaféfagið. Almennar Tryggingar h.f. S|óvátryggmgafélag fslands h.f, ' „EKKI SEM ÉG VIL, HELD- UR ÞAÐ SEM ÞÚ VILT.“ Kirkjuþáttur: ALMENNIR BÆNADAGAR. VÍÐA UM LÖND er það siður, að sameina allan al- menning t:il bænagjörðar á sérstökum helgidegi. Ganga þá stjómarar landsins gjarn- an til messu til að taka þátt í bænagjörðinni ásamt þeirri þjóð, sem þeir eru kallaðir eða kjörnir til að stjórna. Hér á landi er þetta engín föst venja, og þaðan af síður skyldukvöð í þessu efni, fenda skiptir ekki mestu um em- bætti og titla, þegar komið er fram fyrir altari guðs í bæn, heldur sameining í heilögum- anda. ALLIK HELGIR DAGAR ERU ALMENNIR BÆNA- DAGAR. Að því leyti er 5. sd. eftir páska ekkert frábrugðin öðr- um. En það h'efir þótt hlýða. að velja þennan dag til að vekja sérstaklega athygli á nauosyn bænarinnar fyrir þjóðina, í heild. — Jafnframt hefir biskup landsins óskað þess, að þjóðin minnist barna og unglinga í bænum sínum. þennan dag. Og hver skyldl ekki finna hjá sér löngun til að biðja þeirri kynslóð bless- unar, sem á að erfa landið og taka við ábyrgðinni á kom- andi dögum? ERTU ÓVANUR AÐ BIÐJA TIL GUÐS? Fjöldi manna er mjög sljór og tregur tíl bænar. Bænar- lífið getur líka verið eigin- 'gjarnt. Þú biður fyrir sjálf- um þér, en ekki fyrir öðrum. Sumir virðast líka halda, að foænin sé ekki í öðru fólgin én því að kvabba í Guð, heimta af honum eitt og ann- að, næstum því að hafa hann fyrir sendisvein sem á að koma með þetta og gera hitt, eftir því sem maðurin kann að .óska„ > En, ‘þ'úir1, sem reyrídir eru í heími bænar- innar vita vel, að hún er fyrst <og fremst í því fólgin að ,rtengja“ sínn eigin anda Guðs anda, — og satt að segja finnst mér alltaf, að bænar- laust fólk minni mig á mann, sem situr í myrkri, vegna þess að hann hefir ekki einu sinnu á að opna fyrir ljósið. þó að állár leiðslur séu í lagi. — Einnig má segja, að rétta að- ferðín sé sú, að tala við Guð, éins og barn við góðan föður. Slíkt barn talar oft við föð- Ur sinn án þess að biðja um eitthvað sérstakt. Og það man líka 'eftir að þakka. ævingu í baráttu bænariífs- ins, eins og íþróttamaður- inn þarf að stunda æfingar á hverjum degi. Eitt af sálma- skáidum vorum nefnir bæn- ina íþrótt, og hún er það. ,,EG KANN ENGAR BÆMR.“ Til er eftirtektarverð saga frá Jótlandsheiðum. Ferða- maður gekk fram á lítinn smaladreng, sem kraup á bæn upp við lágan runna. Maður- inn vildi ekki trufla bæna- gjörð drengsins, og nam því staðar, en komst þó ekki hjá því að heyra, hvað hann sagði. En honum brá í brún, er hann hey.rði barnið þylja: A b c d e f g h i j . . .“ — ,,Hvað er þetta? “ spurði mað- urinn. ,,Eg hélt, að þú værir á bæn, og svo krýpur þú hér og ferð með stafróið?" — Drengurinn svaraði: „Ég kann engar bænir, en mér hefir verið sagt, að allar bænir væru búnar til úr stafrófinu, — og ég vona, að Guð búi sjálfur til úr stafróinu mínu þær bænir, sem ég þarf að biðja hann“. ERU BÆNIR ÞINAR ANNAÐ EN SLITRÓTT STAFRÓF? Hvort sem það er prestur fyrir altari, smábarnið í sæng sinni, eða hver sem er á landi eða sjó, sem biður til Guðs, verða bænir vor mannanna aldrei annað en slitrótt hjal frammi fyrir alvizku Guðs, — en vér treystum því, að Giið svari með því að búa sjálfur til þær bænir, sem vér þurf- um að biðja hann. — Hin ís- lenzka þjóð er í óvissu stödd um framtíð sína. Reynt er að finna allskonar ,,bjargráð“ til úrlausnar vandamálum á öll- um sviðum. En það er eins og öllum almenningi vilji gleym- ast, að bjargráð allra bjarg- ráða er trúin á handleiðslu Guðs, — ,,Ef Drottinn bvggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis.“ LÆKNIRINN, SEM FANN LYFSEÐILINN ÓNOT- AÐAN. Það er undarlegt, að sumt fólk vill vera veikt. Það hefir einhv'erja furðulega nautn af því að vera alltaf að leita læknis, en svo þegar læknir- inn gefur ráð eða skrifar ávís un á meðöl, er ekki farið eftir ráðinu og íyfseðillinn liggur ó- notaður á náttborðinu. — Oft kemur mér þetta í hug í sam- bandi við sjúkdóm þjóðlífsins. Það er emjað hástöfum út af allskonar misfellum, vandræð um og þjáningum, en heilræði hins mikla læknis eru lítils metin og lyfseðillinn: Biðjið — knýið á — leitið“, liggur ó- notaður — Nýja testamentið ólesið á náttborði hins sjúka. Og svo eru menn undrandi vfir því, að allt skuli ekki vera í stakasta lagi. Áttatíu ára í dag: Jakob Jónsson. jum I DAG ER rngigerður Brvnj- ólfsdóttir 80 ára. Hún er fædd 11. maí 1878 á Þingskálum í Rangárvallasýslu. Foreldrar hennar voru Brynjólfur Bryn- jólfsson bórídi og kona hans, Guðrún Jónsdóttir. Eignuðust þau 9 börn, en 3 þeirra dóu ung. Hin 6. sem upp komust, voru 3 synir og 3 dætur. Árið 1882 („fellisárið“ svo nefnda) fluttust foreldrar Ingigerðar búferlum frá Þingskálum að Hlemmiskeiði á Skeiðum, og þangað fór hún með þeim. Dvaldist hún þar í 7 ár, en fór að þeim tíma liðnum með foreldrum sínum að Vestur- kot; í sömu sveit, og mun hafa idvalizt þar um 9 ára skeið. — |En 1898 ræðst hún til starfa I hjá sér Ófeigi Vigfússyni, sem þá var prestur í Guttormshaga í Holtum. Hann fékk veitingu fyrir Landprestakalli um alda- mótin, og fluttist þá Ingigerður m&ð honum að Fellsmúla í Landsveit. Þar átti hún eftir að starfa lengj og vel. Var hún „hægri hönd“ húsfreyjunnar, frú Ólafíu Ólafsdóttur, unz hún andaðist árið 1939, og eftir það stóð hún fyrir húsum hjá séra Ófeigi, en hann andaðist 1947. — Tók þá sér Ragnar, sonur hans, við búsforxáðum og kvæntist skömmu síðar. Og enn hélt Gerða, eins og hún var almennt kölluð, áfram að starfa á Fellsmúla með sinni alkunnu ósérplægni og alúð. Séra Ragnar andaðist árið 1955. —• Hafðj þá G’erða starfað í þjónustu sömu fjölskyldunnar í 57 ár, og mun það sjaldgæft. Eftir lát séra Ragnars hefur hún dvalizt með ekkju séra Ragnars, frú Önnu Kristjáns- dóttur. hér í Reykjavík á vetr- um, en á sumrin hefur hún verið á Fellsmúla hjá prestin- þar, séra Hannesi Guð- Ingigerður Brynjólfsdóttir mundssyni, sem hefur reýnzt henni vel. Hér hefur ævisögu Ingigerð- ar Brjmjólfsdóttur verið sögð i mjög stuttu máli, — saga þrot,-; lausri starfs og þjónustu, saga tryggðar og mikillar fórnlúnd- ar, — fögur saga. —Gerða ber aldurinn vel, en nokkuð hefu:” hennj förlast sjón, og þarfnast hún því fvlgdar á ókunnum slóðum. Sálargáfum heldur hún óskertum og heilbrigðum hugs- una-rhætti, vill sem áður lítið láta fvrir sér hafa en t'elur ekki. eftir sér erfiði annarra' vegna. Mun það einkenna hana til hinztu stundar. — Hún e? göfugur fulltrúi hinna, fornu dyggða'1, o.e,' hefir Fellsmúla- heimilið á sínum tíma látið eitthvað gott af sér leiða, átti Gerða áreiðanlega sinn þátt i bví. þótt hún stæði hljóð ac baki, eins og beztu þjónarniíí gera venjulega. — í þessu þjóðfélagi 'eru ým'sir „krossberar", þ.e.a.s. menn, sém hlotið hafa svokallaða riddara- Framhaid á 8. síðu. Þannig bað sjálfur frelsar- inn á einni þýðingarmestu stund lífs síns. Hann heimt- aði ekki af sínum himneska föður, að hann breytti á- kvörðun sinni til að þóknast honurn. Væri það vilji Guðs, að hann bæri krossinn, skyldi það gert. — Það þarf hetju- hug og karlmannslund til að . biðja þannig. Til slíks þarf L ■v

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.