Morgunblaðið - 24.12.1919, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Erl. símfregnir.
Khöfn 22. des.
Kolaverkföll í Þýzkalandi.
Frá Berlín er símað að kola-
námumannaverkföllm í Ruhr-hér-
aði aukist stórum.
Ábyrgð stríðsins.
Franska blaðið „Echo de Paris'
segir frá því, að það sé 1500 Þjóð
verjar sem bandamenn heimta fram
selda til að bera ábyrgð á upptök
írm ófriðarins og grimdarverkum
í stríðinu.
írska deilan.
Frá London er símað að Sinn
Feinar hafi stofnað til morðtil
raunarinnar á French hershöfð
ingja, en alþýða neiti algerlega að
hjálpa lögreglunni til þess að finna
tilræðismanninn. Bonar Law hefir
lýst yfir því, að írska málið sé hið
mesta vanda mál, sem nokkur
stjómmálamaður hafi orðið að
fást við.
Nýtt bandalag.
Frakkar hvetja Austurríkismenn
Czecho-Slava og Jugo-Slava til þess
að ganga í þrenningar-bandalag.
Góðar gjafir
hefir ungfrú Sigríður, dóttir síra
Sigurðar Gunnarssonar præp. hon.,
gefið Þjóðm.safninu fyrir skemstu;
eru það ýmsir merkisgripir úr dán-
arbúi fósturforeldra hennar, Eiríks
meistara Magnússonar og frú Sig-
ríðar konu hans, þar á meðal silfur-
skál mikil á háum fæti, smíðuð af
Ásbirni gullsmið Jakobsen í Khöfn
og gefin meistara Eiríki af Múl-
sýálingum 1875, olíumálverk af Ei-
ríki, stórt og vandað, eftir enskan
málara, kotra, sem Ámi biskup
Helgason átti fyrmm og gaf Eiríki
Magnússyni; „Tólf álna iangt og
tírætt kvæði“ og annað afmælis-
kvæði, er Ben. Gröndal orkti til
frú Sigríðar, skrautbúningur, er
frúin hefir borið, mjög prýðilegur,
verðlaunapeningar, heiðursskjöT,
skrautrituð ávörp, myndir o. fl.
M. Þ.
Lud en dorff
tekur af skaríð.
Fred. Roberts, fréttaritari easka
blaðsins „Daily Express“ hefir eigi
a'.Js fyrir löngu r.áð tali af Luden-
dorff, og mælti þá hershöfðinginn
á þessa leið:
— Það bíður engin framtíð
Þýzkalands, ef Erzberger og klíka
hans fær leyfi til þess að halda ó-
stjórn sinni áfram nokkra lengur.
Það er mjög erfitt að segja hvorir
verri eru, Spartakistar eða jafnað-
armenn. Sjálfur ber eg virðingu
fyrir Spartakistum, því <að þeir
berjast þó fyrir hugsjón, en jafn-
aðarmenn em ekkert annað en æf-
intýramenn, sem keppa að því að
ná einhverju happi sér til handa.
Eg fæ ekki betur séð, en að alt
það, sem hin núverandi stjórn hefir
gert, sé það að láta altaf undan
verkamönnum og undirskrifa þá
friðarsamninga, sem eru það við-
bjóðslegasta skjal, sem nokkru
sinni hefir verið skrifað. Ef við
hefðum haft aðra eins stjómmála-
menn eins og Lloyd George og
Clemenceau, þá mundi horfurnar
áreiðanlega hafa verið betri en nú,
en við höfum ekki átt neinn dug-
legan stjórnmálamann síðan Bis-
marck leið.
Ef Bretar halda að her þeirra
hafi unnið sigur í stríðinu, þá
skjöplast þeim hrapallega. Það
voru hinir hyggnu „diplomatar“
þeirra og „agitatorar“ sem unnu
meira á heldur en herinn. Það var
þeim að kenna á aðra hlið og
Bölzhevikkum á hina, að svo fór
9. nóvember 1918. Herir mínir vom
nógu öflugir til þess að halda víg-
stöðvum sínum eins lengi og okkur
þóknaðist. En eg átti eigi aðeins í
höggi við heri Bandamanna, held-
ur einnig við heimskuna hjá þeim
löndum mínum heima fyrir, sem
héldu að þeir styddi mig. Hin mesta
skammsýni, sem þeim varð á að
senda til vígstöðvanna þá æsinga-
menn, sem prédikuðu það að vér
ættim að semja frið hvað sem það
kostaði.
Á annan dag jóla kl. 11 síra Jó-
hann Þorkelsson, kl. 5 síra Bjami Jóns-
son.
í Fríkirkjumii:
Á aðfangadagskvöld:
í Fríkirkjunni í Rvík kl. 6 síöd
síra Ólafur Ólafsson.
í Fríkirkjunni í Haí'narfiröi kl. 9
síðd. síra Ólafur Ólafsson.
Á jóladaginn:
í Fríkirkjunni í Rvík kl. 12 á hád.
síra Ólafur Ólafsson, og kl. 5 síðd. síra
Magnús Jónsson.
Á annan í jólum:
í Fríkirkjunni í Rvík kl. 2 síöd.
skírnarguðspjónusta. Síra Ólafur Ólafs-
í Jesú Hjarta kirkju (Landakoti):
Á jóladag kl. 6, 6y2, 7, 9 og 9%
Lágmessur, kl. 10 Levít-messa og kl. 6
e. h. Levít-guðsþjónusta og hátíðar-
prédikun.
Á annan dag jóla kl. 6V2 og 8 Lág-
messur, kl. 10 hámessa og kl. 6. e. h.
hátíðarguðsþjónusta og prédikun.
f Garðaprestakalli:
Á aðfangadag kl. 7 í Hafnarfjarðar-
kirkju síra Ámi Bjömsson.
Á jóladag kl. 12 á Kálfatjöm sr.
Á. B.
Á jóladag kl. 1 í Hafnarfiröi síra
Fr. Fr.
A annan í jólum kl. 12 a Bessastöðum
sr. Á. B.
Á annan í jólum kl. 5 í Hafnarfirði
sr. Á. B.
Samkomur á jólunum.
Kl. 7 fyrsta jóladag í hinu nýja húsi
okkar Ingólfsstræti 21B. Efni: Fnður
á jörðu.
Kl. 7 annan jóladag. Efni: Þúsunda-
áraríkið.
Allir velkomnir.
O. J. Olsen.
Jólamessur.
f Dómkirkjunni:
Á aðfangadagskvöld kl. 6 síra Jóh.
Þorkelsson. (Aðfangadagskvöld kl. 6%
almenn guðsþjónusta í húsi K. F. U.
M.; síra Friðrik Friðriksson.)
Jóladag kl. 11 síra Bjami Jónsson,
kl. 2 biskupinn (dönsk messa), kL 5
síra Jóhann Þorkeisson.
g| fcfr A tfr Ci m
Edda 591912306i/2 s:. h:.
Veðrið í gær:
Reykjavík: A. st. gola, hiti 2,8
ísafjörður: NA. st. gola, hiti -4- 1,5.
Akureyri: Logn, hiti -4- 6,0.
‘Seyðisfjörður: Logn, hiti -4- 2,0
Þórshöfn: Logn, hiti -4- 0,3.
Síra Magnús Jónsson dócent prédik-
ar í Fríkirkjunni á jóladaginn kl. 5 e.
h. í stað síra Har. Níelsson, sem liggur
veikur í lungnakvefi.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur hefir nú
endurnýjað samninga þá, er það gerði
við læknafélagið í apríl. Verða sam-
lagsmenn að tilkynna gjaldkera fyrir
áramót hvaða lækni þeir kjósa sér.
Skipaferðir. Rollo fór héðan í fyrra-
kvöld og Geysir í gær.
Gullfoss mun ekki fara héðan fyr en
26. eða 27 desember. í Hafnarfirði á
hann að taka talsvert af fiski.
í dag verður búðum lokað kl. 4 sam-
kvæmt samþykt um lokunartima sölu-
búða.
Lagarfoss fer héðan til Ameríku á
annan jóladag. Farþegar verða að taka
farseðla í dag.
Jólaveður. Að undanförnu hafa ver-
ið hér verstu umhleypingar og storviðri
meiri en flestir muna. En í gær brá til
stillingar og sögðu gamlir menn, að nú
væri hann að búa sig undir jólaveðrið
— og fátækraþurkinn, því að það
bregst aldrei, hversu vond og hvikul,
<sem tíðin er, að á Þorláksmessu eða
aðfangadag kemur þurkur handa þeim,
sem ekki eiga til skiftanna.
Næsta blað Morgunblaðsins kemur
út á sunnudag.Þetta eru lesendur og
auglýsendur beðnir að athuga. — Ný-
ársauglýsingum verður veitt móttaka í
prentsmiðju ísafoldar og afgreiðslu
blaðsins á laugardag til kvölds.
Jólablaðið. Þeir <sem vilja fá jóla-
blað Morgunblaðsins til að senda það
kunningjum sínum út á landi, geta
fengið það keypt á afgreiðslunni og
kostar hvert eintak 25 aura.
1 ofviðrinu um daginn slitnuðu öll
símanetin á Seyðisfirði og um 20 síma-
staurar brotnuðu. Einnig allmargir
rafmagnsstaurar. Samskonar bilanir
áttu sér og stað víðar á Austfjorðum.
J