Morgunblaðið - 24.12.1919, Page 7

Morgunblaðið - 24.12.1919, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 Þa<5 var aðfangadagskvöld jóla 1918. í Reykjavík var alt á flugi og ferð. Menn vorn í léttara skapi lieldur en þeir höfðu verið itndan- farandi jól, því að nú var stríðinu lokið. Þungu áhyggjufargi var létt af hugum manna og þeim fanst vor- angan friðar og farsældar í loftinu. Það var, líka uppgerðarlaus gleði- hreimur í röddinni, er menn buðu hver öðrum gleðileg jól á götunni um leið og þeir mættust. Sjálf var borgin ekki í neinum hátíðarskrúða. Styrjöld og við- skiftateppa höfðu sett innsigli sitt á hana. Hún var ljóslaus að kalla. Og eftir því sem lengra leið á dag- inn, varð hún dapurlegri. Allir höfðu kepst við að komast í búðir áður en dimdi og i rökkurbyrjun varð tæplega þverfótað á aðalgöt- unum fyrir körlum, konum og börn- um, sem voru með fangið fult af stórum böglum. Það voru jólagjaf- irnar, sem menn höfðu valið vinum og kunningjum og voru nú að bera heim, örþreyttir eftir hlaup á milli ótal búða, því að nú vai af það sem áður var, að menn vissu svona hér um bil hvar þeir gátu fengið það sem þeir girntust. Stríð og við- ; skiftateppa hafði líka sett mark sitt á viðskiftalíf bæjarins. Jólavörurn- ar höfðu ekki komið að þessu sinni nema þá í mjög smáum stíl. Bn nokkrir kaupmenn voru svo forn- býlir, að þeir áttu fyrningar og því var fólksstraumur um allan bæ að leita þá kaupmenn uppi. Svo datt myrkrið á. Fólkið hvarf af götunum að mestu leyti. En hing- að og þangað sáust þó unglings- drengir með sleða og smávagna, hlaðna ýmiskonar farangri. Það voru sendisveinar kaupmanna. Þeir höfðu ekki átt sjö dagana sæla, en nú kastaði þó fyrst tólfunum. Þeir höfðu ekki undan þó að þeir keptust við, svo að svitinn bogaði af þeim i stórstraumum. Og þeir liugsuðu til þess með skelfingu, að þurfa að hamast þannig í myrkrinu fram á sjálfa jólahelgina. Og í hvert skipti sem þeir skiluðu af sér farangri sínum, og yl og Ijós lagði á móti þeim úr opnum dyrum, öfunduðu þeir sárt, þá sem voru svo lánsamir að mega sitja inni í ljósi og hita. —• í myrkri þvergötu hittust þrír menn. Þeir þektust og buðu hver -öðrum gleðileg jól. Allir voru þeir á unga aldri. Tveir þeirra voru víst að ganga saman til snæðings, en um hinn þriðja varð ekki sagt á hvaða leið hann var. Tveir' þeirra voru í sparifötum, en hinn þriðji var frem- nr fátæklega til fara og föt hans ó- hrein. Hafði hann augsýnilega ver- ið í erfiðisvinnu um daginn og ekki farið heim enn þá. Þeir tóku tal með sér og spurðust i'yrst almæltra tíðinda og skröfuðu um daginn og veginn — Við verðum að flýta okkur, sagði annar hinna sparibiínu eftir nokkra stund, annars komum við of seint. — Já, svaraði hinn. Og svo rétti hann þeim þriðja hendina og sagði: Gúða nótt og gieðileg jól! — Ekkert liggur nú á. Viltu ekki fá þér hressingu, af því að það er þessi dagur. Eg liefi ofurlitla lögg hérna á mér. Og liann klappaði á buxnavasann að aftanverðu því til áréttingar. Það kom hik á hina og framrétt höndin seig niður aftur. Jú, ekki skeindi það nú svo sem að fá sér einn sopa. Það hresti þó og kæmi manni í betra skap. Og svo varð það iir að þeir gengu allir inn í port,sem þar var. Rétt á eftir heyrð- ist dálítill holgóma smellur. — Nei, hún er þá full! — Auðvitað. Gerið svo vel. Svo varð nokkur þögn. Flaskan gekk milli þriggja manna og fékk h.ver drjúgan skerf af innihaldi iiennar. Og hvep þeirra þakkaði með langdregnu og ánægjulegu: Ahhh! — Þetta er gott í kuldanum. Hvar fékstu þetta, Siggi? Siggi hneggjaði drýgindalega. — Það kemur ekki málinu við. Heldurðu að eg fari að koma upp um nokkurn mann ? Er það ekki full- gott ? Og aftur fór flaskan einn hring rangsælis og aftur lækkaði í henni til sannindamerkis um að það væri ekki svo vont. — Ertu að koma úr vinnu? — Ja, eg veit ekki hvað eg á að segja. Það er nokkuð langt síðan eg hætti, en eg hefi þurft að snúast hitt og annað, sækja kaupið mitt og ná í peninga hjá manni, sem eg átti hjá. — Þú eyðir nú ekki miklum pen- ingum eftir þetta í kvöld. Alls stað- ar er lokað. — Nema þá að þú kaupir þér aðra flösku. — Kaldranalegur hlát- ur fylgdi. — Hvorugt kemur ykkur við, sagði Siggi. Ánnars þurfið þið ekki að hafa neina samvizku af því að súpa á þessari. J3g get náð í aðra, ef eg kæri mig um. Já, mörg lmndr- tið, ef því væri að skifta. — Hvaða vitleysa. Þessi eina næg- ír. Gefðu okkur einn sopa enn og svo förum við. Flaskan gekk enn á milli og þar sem þetta átti að vera seinasti sop- inn, varð hann stærstur og nú var flaskan hálf. —- Vitleysa! sagði Siggi með liægð Heldurðu að eg geti ekki náð í kundrað flöskur, ef eg hefði pen- inga? — Vertu nú ekki að þessu, Siggi, gi eip liinn fram í. Þér er nær að fara heim til hennar móður þinnar og vera hjá henni í kvöld. — Móður minnar, gall Siggi við og hækkaði róminn. Hvað kemur hún þér við? Hvað viltu vera að skipta þér af því, hvort eg er heima hjá henni eða ekki ? Þér kemur það ekkert við. Eg fer minna ferða og krefst þess að aðrir sé ekki að sletta sér fram í það hvað eg geri. Þú get- ur farið þinna ferða fyrir mér. Eg skal ekki sletta mér fram í það sem þér einum kemur við. — Hægan, hægan, vertu ekki að þjóta upp á nef þér fit af þessum smámunum. — Smámunum? Já, þetta kallið þið smámuni.Ekki hafið þið fyr far- ið með manni inn í portogslokaðhjá honum áfengi njeð góðri lyst, held- ur en vændlætarinn og siðameistar- inn kemur upp í ykkur! ,Þú ættir heldur að vera heima hjá henni mömmu þinni1 ! Það heíðuð þið rétt til að segja ef eg hefði sezt að öðr- um hverjum ykkar og verið að sníkja áfengi. Hefir mamma nokkuð kvartað um við ykkur? Segið mér það ! Hefir hún beðið vkkur að vaka yfir mér svo að eg lenti ekki út á giapstigu ? — Þú veizt, sjálfur að þetta er vitleysa-------- — Vitleysa, kemurðu með vit- leysuna aftur? Nei, það eruð þið, sem emð vitlausir. Þýkjast vera mentaðir menn, klæðast á jólunum í fín föt, skoða sig í spegli til þess að sjá að hvergi sé nú blettúr eða hrukka, setja svo upp helgidags- svip og leggja svo á stað í matinn. — Sannarlega fyrirmynd ungra manna! En í myrkrinu á leiðinni mætið þið manngarmi, töturlega búnum og illa til reika. Og þið get- ið, þrátt fyrir alla ykkar miklu mannkosti, verið þektir fyrir það, að laumast með honum inn í óþrif- legt port og drekka með honum úleyfilegt áfengi af stút. En ekki hafið þið fyr fengið nægju ykkar heldur en þið farið að vanda um við þennan vesaling og prédika það- fyrir honum að haim eigi að haga sér öðruvísi en hann gerir. — Þú hefðir ekki átt að bjóða okkur þetta fyrst þú ferð nú að telja það eftir. Annars þökkum við fyrir. Gleðileg jól! Röddin var köld og út snöruð- ust ]>eir úr portinu — Verði ykkur að góðu. — Svo saup Siggi vænan teig úr fiöskunni og gekk út úr portinu. Hann var í æstu skapi. Hvað kom það þessum slæpingum við hvort hann var heima eða ekki? Svei! Eins og, þeim væri ekki nákvæm- 'lega sama hvort móður hans leið vel eða illa----------- Og í stað þess að fara heim eins og hann hafði ætlað sér, sneri hann þvert úr leið. Hann gat ekki komið heim í þessu skapi á jólakvöldið. Þá var betra að láta mömmu ebki sjá sig. ------- Hann gekk alla 'leið suður í Öskj- uhlíð, settist þar á stein og gremj- an sauð í hug hans. Hann tók flösk- una. Þannig leið og beið. En eftir því sem lækkaði í flöskimni mýkt- ust skapsmunir hans. Og hann fór að velta því fyrir sér, af hverju hann hefði reiðst svona. Var þetta annars nokkurt gremjuefni? Eftir því sem hann hugsaði lengur um það,fanst honum að hann hefði hag- að sér eins og asni. Og svo þetta, að þjóta burtu úr bænum og upp í Öskjuhlíð, sitja þar tímunum sam- an á steini í kulda og myrkri og drekka. Var nokkurt vit í þessu — á sjá'lfa jólanóttina. Það var satt, sem maðurinn sagði Hann hefði heldur átt að vera heima hjá mömmu — aumingjanum sem nú beið hans með óþreyju og kvíða. Var þáð rétt af honum að láta hana sitja eina heima alt jðla- kvöldið ? Nei, og þúsund sinnum nei! Hann var vondur maður og þeim verstur, sem hann átti bezt upp að unna. Hver mundí hafa ■breytt þannig?-------- Ef einhver hefði farið um Hafn- arfjarðarveginn seint þetta kvöld, mundi hann hafa getað grilt svarta þústu rétt hjá veginum. Það var Siggi, sem sat þar með hendur fyrir augum og táraðist. f þröngu og köldu herbergi sat gömul kona og prjónaði. Hún sat á rúmi sínu og fyrir framan það var lítið borð, og stóð á því eld- húslampi. Við ánnan hvern prjón 'lagði konan -sokkbölinn í kjöltu sér og vermdi stirða fingurna við lampáljósið. Þetta voru dauf jóf. Drottinn. minn! Daufustu jólin sem húnhafði lifað, eða það fanst henni. Aumast var, að sonur hennar skyldi nú ekki vera heima. Hann var einkayndi hennar, þrátt fyrir alt. Hún hafði heyrt ýmislegt misjafnt um hann, en hún hafði aldrei viljað trúa því. Hann hafði þó altaf verið góður við hana og hann vann fyrir þeim báð- um. Vann —? Jú, víst gerði hann það. Hann hafði jafnvel verið í vinnu í dag. En hvernig stóÖ á þvi, að hann kom ekki heim? Vinnu var

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.