Alþýðublaðið - 24.12.1928, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 24.12.1928, Blaðsíða 3
Aðfangadag jólft 1928. ALPÝÐUBLAÐIÐ 3 gnaðiu' ekki sér, inn í ærið nær- Bkornar flikur þeirrar fræðigUcin- ar, sem einn íslenzkur, heiðar- legur prestmann hefir kallað trugsunarfræði í þröngri merk- ingu. Þetta kom flatt upp á Au- gústínus og illa, Honoim fanst nú trúin vera falieg stúlka, sem hann hefði verið skotinn í, en sem guð- fræðipröfessorárnir hefðu tínt af gervihár, gervitennur, gerviauga og gervibrjóst og rúið, unz hann sá, að í raun réttri voru þetta rústir af gamalli, skorpinni kerl- igu, og þar með misli hannn trúna og áhugann. Beinast hefði nú legið við að hætta guðfræðinámi. en gamla anannleysan var risin aftur upp i honum, og hann hafði fengið beiðarlegt oddborgarauppeldi, en þerr hætta ekki við neóitt í miðj- «m klíðum. Það er á þeirra máli kallað ræflaskapur. Og Augúst- ínus sóiti upp frá þessu danz- leiki og annan gleðskap samhliða Itensiunni, en lauk þó námiinu á tilsettum tíma. — Við prófið er nefnilega engin einkunin gefin fyr- ir trú og trúarstyrk. Jón Þorvaldsson hafði, meðan á náminu stóð hug'sað ráð Aug- ústinusar eáns og því var komið, honum þvert um geð. Séra Þör- íólfur dómkirkjuprestur í Reykja- vik var kominn fast að sjötugu »g allhrör, svo Jön þóttist sjá að hann myndi gefast upp þá Dg þegar, og, þá stöðu ætiaði hanin Augústínusi. Jón sagði að sér „þætti helviti hart“ að geta ®kM komið drengnum að, ef hann á kjördaginn legði tii nægar bdf- reiðiT og önnur kjörgögn. Og svo var Augúistínus sendur til útlanda tii framhald.snáms að kallað var. Það er satt, sem sagt er, að það isé mentandi að ferðast víða, en hitt er jafnvist, að eigi að nýitast að ferðalag'i i þeim efnum, þarf annaö og meira til en að hend- ast úr einum stað í annan; það þarf elju og vilja til þess að sjá', heyra og skilja. Ferð og ferð er þvi sitt hvað. Augústínusi var það Ijöst að hann ferðaðist til mála- mynda, og hann var reyndar smám saman koimimi að þeirri miðurstöðu, að alt lífið væri til málmynda og harrn var orðinn bvo öniæmur, að hann veitti því ©kki eftirtökt þó hann yrði fyriir áhrifum og því síöur að þau feætu í honum. Hann sá því hvar eem hann kom það, sem helzt er tranað framan í útlendinga, en það eru veitingahúsinj, fjölleiika- húsin og danzkrárnar. Slíkar stofnanir eru þö svo sviplíkar alls Btaðar, að við lá að Augústínus vaeri orðinn sannfærður um það með sjálfum sér, þegar hann kom heim, að jörðin væri flöt, en ekki hnöttur. Auðkýfingar eru fjarska oft, og Jafnoft og aðrir menn, gæðamenn; gæði þeirra koma oft í rfkum mæli fmm við eimstaklinga. En það er eins og brjóstgæðin nægi ehM til þess að höggva að rötum bölsins, sem bitur marga, þö að þeir eigi ráð á því. Þau hjónin Jón Þorvaldsson og ikona hans höfðu tekið að sér stúlkubarn, sem hét Hildur, og voru henni vel. Augústínus hafði alt af verið vingjamlegur við hana, en aldrei veitt henni neina eftirtekt, því að hún var á gelgju- skeiði, er hann fór utan. Þegar Augúistínus kom heim för þó á annan veg. Hildur var nú orðin gjafvaxta og ljómaði í fegurð æskunnar, bláeyg, bjarthærð, lítil, blíðleg og dul. Augústínus, sem var sérfræðingur að því, er til kvenfölks kom, var einmitt ný- korninn frá helztu fræðabruinnum í þeim efnum og kunni að meta fegurð hennar. Síðan guðfræði- ilámið isæla hafði hami forðast að athuga innxa byrðið á nokkrum hlut, hann vildi ekki verða fyrir slíkum vonbiigðum aftur, hann sá því Hmalagið eiít, en ekki auðimn, sem undir bjó. En Hildur dáðist að hinum gLæsilega, glaðlega unga manni, og hinum ófeimna veraldarmannisbrag, sem á honum var, en sá ekki að bak við gerði glæsimenskunnar var óræktað flag. Hún trúði skilmálalaust eins og öspiltax stúlkur gera, sem elslta, og gaf alt, sem hún átti, af heilum hug, en hann þáði og isagði til málamynda fögru orð- in, sem lesa má í annari hvorri neðanmálíss.ögu. Svo kom hvellurinn. Afleiðing- unum af samförum þeirra varð ekki leynt lengur. Frúin, móðir Augústinusar, sem fyrst veitti því eftirtekt, umhverfðist alveg og nú var góðmenskunni lokið. Hún dásamaði vanþakklæti og spill- ingu Hildar, að hún, eftir að þau hjónin hefðu farið með hana eins og beztu dóttur, skyldi dirfast að tæla son hennax; sér væri hver slægfvdzkan, hún héldi víst að Augústínus myndi ganga að eiga hana úr því svona væri, hana, sem hefði verið tínd upp af göt- unni, — aldrei. Jón Þorvaldsson tók að vísú í fyrstu nokfcuð öðru vísi á málinu. Hann leit yfir æfi Augústínusar og virtist sem hefði hann aldrei getað neitt, og þegar hann sá Augústínuis í fyrsta sinni eftir að hann fékk fréttina, sleit hann út úr sér; „Þetta gaztu.“ Brátt ldt hann þö sömu augum á það og kona hans, og sagðist eins O'g hann kalLaði það skyldu „fernisera helvítis stelpuna“. Svo 'vék hann að Hildi nokkrum penr ingum og rak hana burt, og vissi enginn hvert hún för. Em hinn tældi og afvegaleiddi cand. theol. Augústínus Þorvaldz sat eftir á- hyggjulaus með öspilt manmorð. Dömkirkjupresturinn, séra Þór- ölfur, var lítið hugulsamur við þá feðga, hann gerði hvorki að segja af sér eða hrökkva upp af, karl- skrattinn; hann var ölseigur eins og maxgir prestar. Þá losnaði Skollafjarðareyrin, eitt bezta brauð landsins, og skipaði JÖn Augústinusj að sækja. Sjálfur skrifaði hann helzta útgerðar- manni kaupstaðarins, sem alt af hafði vexið á kúpunni, en lafað á víxlauppáskriftum Jöns, og lét hann vita, að framvegis fraim- lengdi hann engar ábyigðir fyxár hann, nema Augústínus yrði kosr inn. MaðuTinn lét sér þetta að kenningu verða og linti ekki lát- um fyrri en Augústínus náði kosningu. Svo lét Augústínus vígja sig til málamynda, en famn við það tækifæri enga strauma heilags anda fara um sig undan höndum hins háæruverðuga og hávelborna herra biskups, sem ekki var von. Fjórum dögum fyrir jól kom séra Augústínus til hjarðar sinn- ár, sem beið hans með öþreyju, ekki hvað sízt þær heldri frúr, sem áttu gjafvaxta dætur. 1 hjarlta tilvonandi tengdamæðra fellur sæði giftingarvonanna sjaldan í ófrjóan akur. Og þegar hin dýr- mætu húsgögn, sem hann kom með, voru flutt í bústað hans, lá margt tengdamömmuefnið bak við gluggatjöldin og gægðist út, og byggði Loftkastala, þar sem þessum húsgögnum var haglega komið fyrir. Séra Augústínus flýtti sér dag- ana fyrir jól að heimsækja heldri menn kaupstaðarins, — kynnast söfnuðinum kallaði hann það. Honúm var ails síaðar tekið með kostum og kynjum, með aug- um og eyrum á öliuim skráargöt- um og var öspart sýnt framan í heimasæturnar. Hjá Geir lækni,' einum gömlum skólabróður hans, voru viðtökurnar fálegar. Geir svaraði ein satkvæ'ðisoröum og mældi Augústínus hæls og hnakka milli með starandi augum. En Augústínus kipti sér ekki upp við það, hann þekti á Geir, hann hafði alla daga verið sérvitur. Á jölanóttina söng séra Augúst- ínus fyrstu messu. Kirkja kaupstaðar/ns var ný og snotur. Og nú í allri jöladýrð sinni, þegar hún var skreytt greni- viði og ljösum, lagði blýja, vin- gjarnlega birtu út um gluggana og skóp þennan einkennilega, þægilega kyrðarblæ og friðar, sem ömögulegt er að lýsa, en æ fylgir jölunum. Kirkjan var troðfull og allir biðu þess með öþreyju að fá að heyra nýja prestinn messa nema krakkarnir, sem biðu eftiir þvi að guðsþjóniistimni væri lokið, svo að jólatréð gæti komið til skjal- anna. Séra Augústínus stóð fyrir alt- arinu i fullum skrúða, honum hundleiddist. Honum varð það í þessum sporum að spyrja forsjön- ina, hvað hann hefði gert henni að hún skyldi reka upp á hann þennan skratta. „Barn er oss fætt, sonur er oss gefrnm,“ tónaði prestur. Hann hafði laglega rödd, en hún varð loðrn á seinustu orðunum. Eitt andartak, eitt örskot, — hvemig á því stóð vissi harrn ekM, — fiaug honum Hildur í hug er hann tönaði þéssi orð. Svo leit hann upp á altaristöfluna, mynd áf Kristi að reka út úr musterinu, og gleymdi svo Hildi, og för að' hugsa um hvernig öllu þessu sMkkanlega fólki yrði við, ef hann gengi fram og ræki útibús- bankastjóraam og kaupmennina út með hnútasvipum.. Séra Augústínus snéri sér fram og sá blasa við sér heimasæturn- ar, sumar ekki svo slakar, og glaður í geði tónaði hann: „Drott- inn sé með yður.“ Séra Augústínus för í stólinn og hélt predikun um barnið í jötunni, stjörnuna í austri og alt þetta, sem allir prestar hafa sagt á jóianótt síðan stéttin varð trl; ágætis sýnishorn af þeirri ræðu- snild, sem háskóiakennarinn hafði kent honum í guöfræðideildimni. Svo hljömaði jólasáLmurinn: „Heims um bói helg eru jól.“ Guðsþjönustunni var lokið og sém Augústínus og hinir óþolin- móðu krakkar voru leystir úr prísundinni. Það var komið ofsarok og sLag- veður úti, og menn tíndust þvl dræmt úr kirkjunni, mentn kiii- okuðu sér bersýnilega við að fara út i illviðrið. 1 anddyrinu hittust þeir Geir læknir og séra Augústinus. „Gleðileg jöl,“ sagði prestur, en læknirinn leit á hann sem snöggv- ast og ansaði engu. Séra Augúst- ínusi stöð á sama, en mundi þá eftrr því að hann átti enga hress- ingu heima fyrir og beygði sig að lækninum hvislandi: ,„Held- urðu að þú látir það ekki heita hundaskamt í tilefni af hátíð- inni?“ Læknirinn leit svo fast og lengi á prest, að um hann för. Svo svaraði hann: „Getur komið til mála, ef þú fylgir mér í sjúkravitjun suður á fjöruna/ „Ertu hringavitlaus, í þessu of- viðri,“ sagði prestur steingrallarB- laus. „Tempestas miseriae, of- viðri eymdarinnar; en þú ert auðvitað hræddur um pípuhatt- inn og kragann. Sjúklingurinn, sem ég fer tjl, þarf á presti að halda, — þarf á þér að halda,“ sagði læknir. „Já, en það er beð- ið eftir mér hjá bæjarfógeta,“ svaraði séra Augústrnus. „Hvað heldurðu Kristur hefði gert?“ spurði læknir. „Alt af skella þeir Kristi á okkur prestana,“ hugsr aði séra Augústínus, en sagði víð iæknirirm: „Jæja, ég skal koma xne'ð þér, en þú lætur mig þá fá skamíinn.“ Svo lögðu þeir út í veðrið. Það var eitt versta veðrið, sem Augústínus hafði komið út f. Hempan flæktist slydduvot um jfætur honum, og regnið rann af pípuhattböTðunum niður gagnaug- un á honum, og hann fyltist reiði við Geir og sérvizku hans, þegar hann sá skuggana af jölatxjám og kátum börnum é gluggunum, sem Íiann gekk framhjá.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.