Alþýðublaðið - 24.12.1928, Side 9

Alþýðublaðið - 24.12.1928, Side 9
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9 Þessi djöfulsins pest, sem lagÖi mig í rúímið! .... Ja; ég er nú aldeilis hiss-a! Ég helcl sá svarti sjálfur sé hlaupinn í IiÖ með þeim þama á Máfabergi! . . . En, séra Pétur! Þetta dugir ekki. Dugir hreint ekk-i-i, segi ég. . . . Heyrið þér mig! Gerðuð þér nokkuð . . . nokkuð skriflegt við hann? •— Nei; það gerði ég nú ekki. En ég lufaði honum jörðinni. Og . . . ja; það heyrðu að minsta kosti einir. þrir bændur hérna af innsveitinni á tal okkar. — Hver . . . hverjir vonu það? Prestur hristi höfuðið. .— Nei; þér getið verið vissir um, að það er komið um alla innsveitina. — En blessaðir verið þér prest- ur! Við verðum að hugsa um al- tmenningsheillina! . . . Hugsið yð- ur bara: Barn á ári í ein 20 ár! Og þessir vesalingar! Nei; það má ekki svo til ganga; má ekki', skal ég segja yður, prestur minn! Ég vóna, að þér sjáið það. Við þessir fáu, sem einhverja ábyrgð- artilfinningu höfum, við verðum að gera ait, já, bökstaflega alt, sem í okkar valdl stendur, til þess að sjá almenn’ingsheillinni hoxgið! Hvað hugsa þessir bján- ar? Ekki nokkum hræranlegan hlut! Nú stóð prestur á fætur og stik- aði nokkra hríð fram og aftur urn gólfið. Hann var vandræðalegur og gremjuiegur og gaf Einari oddvita við og við alt annað en vinsamlegt h'omauga. Loks stanz- aði prestur og vék sér að oddvit- anum. — Nei; það er ekki um annað að gera en láta Gunnar hafa jörð- ina. Þér sjáið það sjálfur, að ég get ekki gert mig svo ömerkileg- an að fara að ganga á bak orða minna, sem voiu þá líka töluð í votta viðurvist. .... Og svo er nú þetta: Ég er búinn að lýsa með þeim Gunnari og Ásgerði, — og þó að þau fengju nú aldrei Máfaberg, þá ættu þau börn fyrir því. . . . Ja; ég vil segja, að það sé þö skárra fyrir hreppinn, að þau hafi jarðnæði, — og Gunnar er nú vanur búskaparbasliinu þarna út frá og miandi kann ske klára sig sæmilega, þó að hann sé aldrei nema lítill fyrir sér. Oddvitinn settist niður og sat steinþegjandi og áhyggjufullur. . . En prestur stöð fyrir framan hann, örór og gramur. En alt í einu brá prestur við, höf upp vinstri höndina og blistr- aði lágt. Oddvitinn leit á hann með eftir- væntingu. — Bíðum við, bíðum við! sagði prestur hressilega. — Nú hefi ég fundið lausnina á því öllu sam- an! Oddvitinn greip um rendumar á stölsetunni og hallaði sér á- fram. — Jú, það er ákaflega einfalt. Þér gerið' yður bara ferð út að; Máfabergi og talið við Gunnar. Ég skil ekki í öðru en að yðar orð hafi þau áhrif á svona fólk, að þér getið látið það gera svona nokkumveginn það, sem yður sýnist. . . Auðvitað komið þér ekki að eins sem oddviti, heldur líka sem föðurleg forsjón Gunn- ars og Ásgerðar! Oddvitinn rétti úr sér í sæti sínu, en prestur hélt áfram: — Ja, ég er alveg viss um, að þetta dugir. Og þetta er hreinasta og léttasta leiðin — og í rauninni sú einasta, sem er fær. Þér eruð í yðar rétti, bæði sem oddviti og maður, en ég er bundinn í báða skö. Þar er alt önnur aðstaða. Oddvitinn varð valdsmanns- legri á svipinn, og það var sem hann bæði hækkaði og gildnaðii: — Já, það er náttúrlega alveg hárrétt hjá yður: Ég hefi það tromp á hendinni að taka þau (sjálfur í hnaltkann. Og ætli mað- ur láti það ekki duga, prestur minn? Ég sé, að þér hafið hleypt yður í skrambi vonda klipu, áf því að þér áttuðuð yður ekki strax á málinu. En það er um að gera að taka hvað eina rétt frá byrjun. . . Það var þessi bölv- uð pest, sem þurfti að hlaupa í mig! Þessi orð vora töluð með þeim svip og raddhreim, að ekki gat hjá því farið, að prestur fyndi, að liann hefði keypt friðinn nokk- uð dýrt. . . Og það Iá við, að prest iðraði þess að hafa ekki tekið oddvita öðrum og ömýkrií tökum. VI. Tveim dögum síðar kom Ás- gerður móð og skjálfandi upp í ærhús til Gunnars. Hún deplaði ótt augunum og néri saman hönd- unum. Gunnar blés, skaut húfunni aft- tur á hnakkann og horfði þegjandi á Ásgerði. Nokkur augnablik stóð hún þögul, en óró, en loks sagði hún lágt og vesaldarlega: — Oddvitinn vill finn — finna Þig- . Gunnar stöð grafkyr eitt and,- artak, setti s;ðan frá sér rekuna og hristi höfuððið. að segja prýðisvel efnaður maður; ég gekk því beina leið til hans, tók í hendina á honum og sagði: „Er þér sama í hug til mín og áður?“ „Já," sagði hann; „æ og æfinlega.“ „Viltu eiga stúlku, senr heiðrar þig og virðir, en elskar þig ekki. — Það er nú samt vísast að það geti laga>st.“ „Það mun lagast,“ sagði hann. Og upp á það gáfum við svo hvort öðru höndina, Ég för heim til matmóður minnar. Gull- hringiim, sem sonur hennar hafði gefið mér, bar ég við brjöstið innan klæða; ég gat ekki sett hann upp á dagine, en ég gerði það á hverju kvöldi, þegar ég háttaði. Ég kysti hringinn, svo að mér blæddu varir, og svo fékk ég hann matmöður minni og sagði henni, að um næstu helgi mundi verða Iýst með mér og hanskaranum. Þá faðmaði matmóðir mín mig að sér og kysti mig, og ekki sagði hún það, að ég væri ekki dugs, en það getur verið, að þá hafi ég verið betri, því ég var ekki um það skeið búin að reyna svo mikið veraIdarandstreymi. Brúðkaupið var haldið um kyndilmessu, og fyrsta árið gekk alt vel; við höfðum einn handverkssvein og einn námspilt, og þú, Maren mín, varst vinnukona hjá okkur.“ „Ó; þú varst ágætis húsmöðir,“ sagði Ma- ren, ,,ég gleymi því aldrei, hvað þið hjónin voruð mér góð.“ „Það var nú á góðu árunum, sem þú varst hjá okkur; við vorum þá enn sem komið var, barnlaus. Stúdentinn sá ég aldrei. Jú; eftir á að hyggja; ég sá hann; hann kom hérna til a-ð vera við jarðarför móður sinnar. Ég sá hann standa við gröfina; hann var svo náfölur og sorgbitinn; en það var af móðurmissinum. Seinna, pegar faðir hans sálaðist, var hann erlendis og kom hér ekki og hefir elcki komið síðan. Hann kvæntist aldrei, svo miMð veit ég; hann var, trúi ég, málafærslumaður. Eftir mér mundi hann ekki, og þó hann hefði séð mig, þá nundi hann vist ekki hafa þekt mig aftur, svo Ijót sem ég var orðin. Og það er nú vel farið.“ Og hún talaði um sína þungu andstreymis- og rauna-daga, hvernig það var eins og hvert óláníð elti annað. Þau áttu fimm hundruð ríkisdali, og hús nokkurt þar í strætinu var fáanlegt fyrir tvö hundruð; mundi því öorga sjg að láta rífa það niður og byggja nýtt; varð svo úr, að þau keyptu húsið. Múrari og trésmiður gerðu áætlun um, að það mundi kosta eitt þúsund og tuttugu. dali. Eirík hanskara skorti ekki lánistraustr og fékk hann peningana aö láni frá Kaup- mannahöfn, en skipherranm, sem átti að færa bonum þá, fórst með öllu saman. „Það var einmitt um sama leyti, sem ég átti blessaðan iitla drenginn minin, sem sefur Iwna. Maðurinn minn veiktist af þungum og langvarandi sjúkdömi. Hátt á annað ár yarð ég áð færa hann bæði úr og í. Þaið hrakaði alt af fyrir okkur meir og meir. Við söfnuð'um skuldum; alt varð að selja, laust og fast; og pabbi dö frá okkur. Ég hefi unnið baki brotnu, streitst og sveitst, barns- ins mín vegna, þvegið gólf og tröppur, þveg- ið léreftaþvott, bæði gröfan og fínan, en mér á nú ekki að auðnast betra; það er svo Drottins vilji, en hanm leysir mig vonandi frá þessu lífi og elur önn fyrjr drengnum mínum.“ Og þar með sofnaði hún. — Þegar leið undir morguninn kendi hún sjg hrcssari og nógu styrka, að því er hún hélt, til að ganga að verki sínu. Hún var rétt að eins komin út í lcalda vlatnið, þá! setti að henni skjálfta og ömegin; hún greip hendinni fram fyrir sig eins og í krampaflogi, tók skref upp á við og rauk út af. Höfuðið lá á þurru landi, en fæturnir úti í ánniii, tréskórnir, sem hún hafði staðið í á áp- botninum, — það var sín hálmviskin í hvor- um —, þá rak með straumnum, Svona sótti Maren að henni, þegar hún kom að færa henni kaffið. Það höfðu komið boð frá bæjarfógetanum, að hún skyldi koma til hans tafarlaust; hann hefði nokkuð að segja henrti. Það var um seinan. Rakari var söttur til að taka henni blóð, en hún vár liðin. „Hún hefir drukkið sig í hel,“ sagði bæj- arfógetinn. í tilkynnilngarbréfimu um lát bróð- ursins var skýrt frá innihaldi erfðaskráir- innar, og var hanskaraekkjan, sem fyrrurn hafði verið vinnukona hjá foreldrum hans, arfleidd að sex hundruð rikisdölum;skyldu þeir peningar eftir beztu vitund úthlutast henni og barni hennar í stærri og minmi fjárhæðum. „Það hefir eitthvað verið á mi'lli bröður míns og hennax,“ sagði bæjarfógetinm. „Það er gott, að hún, er frá; drengurinn fær það nú alt. Ég kem honum fyxir hjá göðu fólki og hann getur orðið nýtur handverksmaður.“ Og yfir þau orð lagði drottinn vor blessun sína. Og bæjarfógetimr kallaði drenginn fyrir sig, lofaði að láta sér ant um hann og sagði honum hvað það væri heppilegt, að möðir hans væri dáin, því sú hefði mú ekki verið dugs. Hún var borin út í kirkjugarð, fá- tæklinga kirkjugarðinm. Maren gróðursetti dálítið rósatré á leiðið; drengurinm stóð við hlið henmar. „Elsku mamma!“ sagði hann, og tárim streymdu niður eftir kinnum hans; „er það satt, að hún væri ekki dugs?“ „Jú; víst var í henni dugur,“ sagði Maren gamla og leit til hirnins; „það veit ég frá því fyrir mörgum árum og frá síðustu nótt- unmi, sem hún lifði. Ég segi þér það; hún var þö dugs eftir alt saman, og drottinn vor á himnum segir það llka. Lofum svo heiminum að segja, að hún hafi ekki verið dugs!“

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.