Morgunblaðið - 29.01.1928, Page 5
Sunmidagimi 29. janúar 1928.
Umræður í sameinuðu þingi.
Frh. frá bls. 3.
in, einkum Alþbl. og eins dóms-
malaráðherra hafa margsinnis end
urtekið þau ósannindi vísvitandi,
að Mbl. hafi verið á móti rann-
sókn málsins. Þau ósannindi end-
urtók dómsmálaráðherrann í sí-
fellu á þessum fundi, alt þangað
til hann var orðinn grænn í fram-
an af geðvonsku.)
Næstur talaði
Hjeðinn Valdámarsson. Itæða
hans snerist fyrst og fremst um
sögusagnir ýmsar, er lutu að mis-
fellnm á kosningunum vestra 1919
og 1923. Að Sigurjón Jónsson
iiefði að rjettu lagi ekki átt að- fá
saúi á þingi, og- þannig hefði
meiri hlut,i ílialdsfloltksins á þingi
1924 verið rangfenginn.
(Er rjett að geta þess hjer um
leið, að alt skraf sósíalista, Tíma-
sósíalista og annara um rangfeng-
inn mei'ri hluta 1923 er vísvitandi
hlekking. Allir vita, að hafi kosn-
ting Sigurjóns verið vafasöm, þá
var kosning Be'rnharðs Stefánsson-
ar það ekki síður. Bernharð fekk
sýnilega færri atkvæði en Stefán
heit. í Fagraskógi. En formgall-
ar voru á kosningu Stefáns, sem
gc rðu kosningu hans vafasama.)
í endalok ræðu sinnar reyndi
Hjeð/inn að fitja upp á dylgjum
sínum til Jóns Auðuns í máli
þessu, og endurtók gamlar' full-
yrðingar sínar um það, að íhalds-
flokkurinn ætti sök á ltosninga-
svikunum og jafnvel einnig á því,
að rannsókn hefði eigi leitt fullan
sannleika í ljós x málinu.
Magnús Guðmundsson: Skýrði
iiann fyrst frá störfum kjörbrjefa-
nefndar, er honum þóttj eigi hafa
verið veigamikil, og óþarft hefði
verið að tefja tímann til þess að
fá upplýsingar frá rannsóknadóm-
ara, er hefði verið hægt að fá gegn
um símann.
Aðalatriðið væri, að rannsókna-
dómari hefði skýrt. og skorinort
lýst því yfir, að Jón Auðunn væri
ekkért við atkvæðafölsunax-málið
riðinn.
Benti hann síðan á með skýrum
rökum, hve fávíslegt það væri, að
æt.la. sjer að blanda, kosningum
1919 og 1923 í úirskurð þess, hvort
Jón Auðunn Jónsson væri nú rjett
kosinn þingmaður Norðurlsfirð-
inga.
Þá tók Jónas dómsmálaráðherra,
til máls.
Tók hann sem væftta mátti al-
~veg í streng með jafnaðarmönnum.
Fyrsta ræða, hans var löng, og kom
hann víða við, að vanda.
Byrjaði hann með því að fjöl-
yrða um, að íslendingar ættu að
taka Englendinga sjer til fyrir-
myndar í opinberum viðskiftum
og stjórnmálalífi. Hjer sem' þar
ætti drengskapurinn að ráða.
Hóf hann síðap máls á kosning
um vestra 1919 og' 1923, og tal-
aði lengi, um, enda þótt honum ‘
aldrei tækist að sýna fram á, að ^
þær kosningar ættu neitt skylt
við kosningu Jóns A. Jónssonar
síðastl. sumar.
Fjölyrti hann síðan um „af-
skifti íhaldsflokksins“ er hann
nefndi svo,; af Hnífsdalsmálinu,
og var Ú honum að heyra, sem
hann væri sannfærður um, að
Ihaldsflokkurinn stæði óskiftur
að svikunum. Þó J. A. J. hefði
áreiðanlega fengið mikinn meiri
hluta löglega greiddra atkvæða,
þá ætti samt að gera hann aftur-
rækan til þess að kenua mönnum
við ísafjarðardjúp að hafa rjett
við í kosningum. Kvað hann það
rjett samkvæmt enskri venju, ef
ekki, að farið væri svo langt, að
reka Jón og taka Finn póstmeist
ara inn í þingið í hans stað. Var
svo á honum að skilja, sem helst
kysi hann þá aðferð, þó ekki
vildi hann gera það beinlínis að
tillögu sinni.
Með þessari ræðu dómsmála-
ráðherra voru umræðurnar um
þingsetu Jóns A. Jónssonar orðn-
ar að
almennum eldhúsdegi
þar sem fjölmörg alóskyld mál
fljettuðust inn í umræðumar, um
viðskifti stjórnmálaflokkanna
undanfarin ár.
Hitnuðu nú umræðurnar jafnt
og þjett úr þessu alt þangað til
að þær um kl. 2 um nóttina voru
komnar í þann blossa, að slíks
munu fá dæmi. Talaði dóms-
málaráðherra hvað eftir annað,
og spanaði menn til þess að
léngja umræðurnar. Við og við
komu jafnaðarmenn honum til
aðstoðar. Eru eigi tiltök að rekja
allan þann ræðufjölda. Skal því
aðeins stuttlega drepið á nokkr-
ar helstu ræðurnar, sem gefa les
endunum hugmynd um meðferð
þess máís, sem fyrir lá. En
minna verður hirt um þann ara-
grúa óskyldra mála sem drógust
inn í umræðurnar.
Sig Eggelrz. Er hjer klíkuþing
eða sannkallað Alþingi íslend-
inga? Á að brjóta þá megin
reglu að láta arm hegningarlag-
anna ná lengra en til þeirra
seku?
Dómsmálaráðherrann sjálfur
virðist ætlast til þess, að Alþingi
kveði upp dóm í sakamáli. Og
hann fer feti lengra. Hann reyn-
ir hjer á Alþingi að varpa grun-
semdablæju yfir Jón Auðunn í
sambandi við mál sem er undir
sakamálsrannsókn.
Samkvæmt gildandi lögum,
eiga þingmenn að kveða upp úr-
skurð í þessu máli, sem frjálsir
menn en ekki sem þrælbundir
flokksmenn.
Haralður Guðmundsson hólt
langan fyrirlestur un^ kosningar
vestra, einkum í ísafirði 1923,
er þeir Sigurjón Jónsson og hann
voru í kjöri.
En það má Haraldur eiga, að
hann fór ekki út í þá sálma, að
bera fram dylgjur á Jón Auð-
unn. Ræða hans var meira sem
almennur fyrirlestur um kosning
ar þar vestra, þ. e. a. s. um kosn-
ingaathafnir' andstæðinga hans
þar. Eru líkur til að Harald hafi
lengi langað til að halda fyrir-
lestur þenna.
Hann vildi ónýta kosninguna
í sumar vegna kjósenda í N.-lsa-
fjarðarsýslu, vegna Alþingis og
vegna Jóns Auðuns. v
Næstur talaði Jón Þorláksson.
Honum fórust orð á þessa leið:
Mönnum kann að virðast, að
slík ummæli hafi fallið hjer í
dag í garð íhaldsflokksins, að
mjer sem formanni flokksins sje
skylt að fara um þau nokkrum
orðum. Sný jeg mjer aðallega ti'
dómsmálaráðherra J. J.
Hann byrjaði ræðu sína með
því, að sveipa yfir sig skikkju
siðgæðis og vandlætingar er fór
honum ekki sjerlega vel.
Hann tók með rjettu fordæmi
Englendinga um það, hvernig
beri að haga sjer í opinberu lífi
yfirleitt, að Englendingar leggja
áherslu á, að enginn hafi rangt
við í leiknum, hvorki í þeim póli-
tíska leik eða öðrum.
Er eigi nema lofsvert, að á
þetta sje bent.
En þegar þesskonar vísbend-
ingar koma frá Jónasi Jónssyni
dómsmálaráðherra, þá hugsa
menn hver fyrir sig, hvernig hon
um, núverandi dómsmálaráð-,
herra, hafi tekist að fylgja
drengskaparreglu Englendinga.1
Jeg skal ekki fara langt út í
þessa sálma, aðeins geta þess,
að eitt er það, sem gerir það ao
verkum að Englendingar standa
Öðrum framar á þessu sviði. j
Þeir þola ekki hlutdræg ósann-
indi í blaðamensku. Þeir telja
áríðandi að satt sje sagt frá.
Á þetta hefir brostið hjer, i
sem kunnugt er, og það veit
hvert mannsbarn á laiidinu, að
einmitt Jónas Jónsson núverandi
dómsmálaráðherra h^fir gengið
flestum, ef ekki öllum íslenskum
blaðamönnum framar í því að
misbjóða þessari grundvall&r-
reglu í opinberu siðferðislífi
Englendinga.
Það tekur sig ekki vel út, er
J. J. segist vilja ónýta kosningu
Jóns A. Jónssonar af uppeldis-
ástæðum.
I síðari hluta ræðu sinnar
varpaði ráðherrann af sjer van i-
lætinga skikkjunni, og kom
fram sem hinn ósvífni ádeilu-
maður er menn kannast við.
Sagði hann þá m. a. ýmislegt
um íhaldsflokkinn, sem hann
með engu móti getur staðið við.
Hann sagði m. a. að
Ihaldsflokkurinn hefði gert það
að flokksmáli að hindra fram-
gang Hnífsdalsmálsins.
Hjer gæti verið um tvent að
ræða, þingflokkinn, eða þann
helming þjóðarinnar er styður
flokkinn.
Nú hlýtur dómsmálaráðherr-
ann að vita, að flokkurinn hefir
alls ekki blandað sjer í rannsókn
þessa máls, og hefir slíkt aldrei
komið nje getur komið til mála.
Þegar á það er litið, hvernig
dómsmálaráoherra hefir tekist
að fylgja drengskaparreglunni
hjer, þá verður ekki annað sagt,
en honum, og fylgismönnum
hans í þessu máli hafi tekist
hrapallega. Þeir flytja hjer lang
orðar frásagnir af kosningunum
vestra, eftir að þeir með atkvæði
sínu hafa útilokað þann mann úr
andstæðingahóp, sem bestan hef
ir kunnugleik á þessum málum.
Hversvegna kom ráðherrann
og fylgismenn hans ekki fram
með frásagnir þessar á fyrsta
þingfundi, er Jón Auðunn Jóns-
son átti hjer sæti?
Jeg fyrir mitt leyti hef ekki
hirt um að kynna mjer Hnífs-
dalsmálið nákvæmlega. Hefi á-
litið að beðið gæti dómsúrSkurð-
ar. Ætla jeg ekki að minnast á
rannsóknina hjer, nema aðeins
tvö atriði hennar. (Rakti J.
Þorl. síðan atburðina í Bolung-
Fyrirliggf andi:
Epli 3 teg. Jaffa-appelsínur. Kartöflur, Sveskjur m..
stein. og steinal. Rúsínur m. stein. og steinal. Epli, þurk.
Ápricots þurk. Blanclaðir ávextir þurk. Kúrennur, Kirsu-
ber, Döðlur, Gráfíkjur, Niðursoðnir ávextir allar teg. —
Sultutau, blandað og Jarðarberja.
Eggert K» istjánsson & Co.
Simi 1317 og 1400.
Tnxbam
bátss- og EaíidmétoPðs*
es*u Abyggilegustu, sterkustu og sparneytnustu
mótorar, sem hægt er að fá, og mjög auðvelt að hirða þá
og stjórna þeim. Hinir endurbættu Tuxham mótorar, með
„rúllulegum“, nota mjög litla áburðarolíu og ekki nema ca.
220 gr. sólarolíu á hvern hestaflstíma, og er það minna én
nokkur annar bátamótor notar.
Tuxham bátamótor endurborgar andvirði sitt með olíu-
sparnaði á örstuttum tíma, borið saman við olíueyðslu
annara mótora. — Varastykki jafnan fáanleg með litlum
fyrirvara.
Leitið upplýsinga hjá umboðsmanni verksmiðjunn^r,
G. J. Johnseci.
Reykjavík og Vestmannaeyjum.
arvík, þar sem sannast hefir, að
tvö gamalmenni þorðu ekki fyrst
í stað að segja satt fyrir rjetti).
Þessi atburður gæti bent til
þess, að rannsóknardómarinn
hafi eigi haft sem besta trygg-
ingu fyrir því að hann fengi
sannleikann í dagsljósið. — Það
skal þó sagt honum til hróss, að
hið sanna kom að lokum fram í
þessu atriði.
Þá <var annað. Jeg tók svo
eftir að þegar rannsóknardóm-
arinnfjekk svar frá Jóni A. Jóns-
syni, er hann var leiddur sem
vitni fyrir rjett, þá hafi rann-
sóknardómarinn svarað: „Þetta
er hið ósvífnasta svar sem jeg
hefi heyrt í þessu máli.“ — Jeg
á bágt með að trúa því, að hjer
sje rjett hermt, að dómarinn
hafi við haft þessi orð. en sje
svo að rjett sje, þá finst mjer sú
virðing sem rjettvísin á að hafa í
kring um sig ekki hafa þarna
verið eins mikil og vera ber. Jeg
lít svo á, sem þetta tilsvar dóm-
arans, sje ekkert líkt því, sem
menn verða að vænta sjer aí fyr-
irgangsmanni rjettvísinnar.
Jeg er ánægður yfir því, að
þeir tveir Framsóknarmenn
Sveinn Ólafsson og Gunnar Sig-
ursson hafa komist að þeirri
sömu niðurstöðu og jeg í þessu
ináli, að atkvæðafjöldi J. A. J.
verður að skera úr um það, að
liann er rjettkjörinn, og glæpa-
málið, sem er undir rannsókn
kemur J. A. J. ekkert við. Þykir
mjer eðlilegt að Framsóknar-
menn komist að þeirri niðurstöðu
í málinu, sem er í samræmi við
lög og landsvenjur, að afl lög-
lega greiddra atkvæða sker úr
um það hver rjett er kosinn.
Þessi lög eru ein af megin-
stoðum núverandi þjóðskipulags.
| Ef á þau er ráðist, og þessa meg-
inreglu er og ráðist á einn hyrn-
I ingarstein þjóðfjelags vors.
Hitt kemur engum á óvart, að
þeir sem vilja rífa niður núver-
Búlar
verda seldir
á morgun.
Verslun
Egill lacobsen.
Niðursoðinn ísl. lax fæst í versl.
Guðm. J. Breiðfjörð, Laufásveg
4. Sími 492.
Sjeiss Okorb
myndvjelar.
Mest úrval. Lægst verð.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
(Einar Björnsson).
andi skipulag vilji m. a. brjóta
niður þc ssa stoð.
Síðan talaði dómsmálaráð-
herra um stund, endurtók fyrri
ummæli, talaði um hve sannsög-
ull hann sjálfur væri, sanngjarn
og duglegur. Skoraði hann á and
stæðingana að nefna eitt einasta
dæmi þess að hann hefði sagt
ósatt. (Almennur hlátur).
Síðan urðu harðar sviftingar