Morgunblaðið - 29.01.1928, Qupperneq 6
6
MORGITNBLAÐIÐ
isafoldsrprenfsmiðja h. f.
hefir ávait fyrirliggjandi:
Leiðarbækur og kladdar.
Leiðarbókarhefti.
Vjeladagbækur og kladdar.
Farmskírteini.
Upprunaskirteini.
Manifest.
Fjárnámsbeiðni.
Gestarjettarstefnur.
Víxilstefnur.
Skuldalýsíng,
Sáttakæiur.
Umboð.
Helgisiðabækur,
Prestþjónustubækur.
Sóknarmannatal.
Fæðingar- og skímarvottorð.
Gestabækur gistihúsa.
Avísanahefti.
Kvittanahefti.
Þinggjaldsseðlar.
Reikningsbækur sparisjóða.
Lántökueyðublöð sparisjóða.
Þerripappír i Vi örk. og niðursk.
Allskonar pappír og umslög.
Einkabrjefsefni í kössum.
Nafnspjöld og önnur spjöld.
Prentun á alls konar prentverki,
hvort heldur gull-, silfur- eða lit-^
prentun, eða með svðrtu eingöngu, er
hvergi betur nje fljótar af hendi leyst.
Simi 48.
ísafoldarprentsmiðja h. f.
Líkkistur
h]é Eyvindi
alveg tilbúnar, fóðraðar og án
fóðnrs, af ýmsum gerðum og verði,
-úr Valborðum, bónaðar, einnig úr
Plönkum, Sarkofag ogúrvanalegu
efni. Líkklæði, skrauthankar og
skrúfur. — Sjeð um jarðarfarir
að öllu leyti. — Líkvagn skreytt-
ur blómum. — Kistur má panta
í síma 485.
Laufásveg 52.
PEP
'**gs&t83B
milli dómsmálaráðherra og Ól-
afs Thors.
Ólafur Thors. Kjarni þessa
máls hefir frá upphafi verið
mje'r Ijós. Sömuleiðis hver yrðu
endalok þess hjer á þingi. Hitt
er bert að stjórnarliðið hefir
valið daginn til að þjóna lund
sinni. Þannig hefir dómsmála-
ráðh. gerst dómari og kveðið
upp þann dóm að allir fhalds-
menn sjeu samfeld heild, sem
slái skjaldborg um glæpamenn
og svikara. Jafnframt hefir
hann notað tækifærio til að
~verða á undan sjálfum rannsókn
ardómaranum að dæma í Hnífs-
daismálinu. Slíkt hneyksli mun
engan dómsmálaráðherra hafa
hent fyr, hvorki hjer nje annars-
staðar.
Eins og málið liggur fyrir ber
að athuga 3 höfuðstaðreyndir.
1. Það er viðurkent að mis-
fellur kosninganna hafa ekki get-
að breytt úrslitunum.
2. Rannsóknardómari telur
engan grun á að þingm. sjálfur
sje við riðinn misfellurnar.
3. Mál þeirra sem grunaðir
eru um sviksamlegt athæfi er í
höndum rjettra aðila, dómstól-
anna.
Dómsmálaráðherra viðurkenn
ir nefndar staðreyndir, en vill
þó ógilda kosninguna vegna
svikanna, þótt þau engin áhrif
hafi haft á úrslitin. Vill hann
lögfesta að hvenær sem svik
sje höfð í frammi skuli kosn-
ing ógild. Afleiðing þessara
mjög svo vanhugsuðu tillögu
mundi sú, að óheiðarlegum
mönnum yrði jafnan auðvelt að
eyðileggja fyrir fram vísan kosn
ingasigur andstæðings. Þetta er
því að bjóða prettunum heim.
Haraldur Guðmundsson skýrði
frá því, að við kosninguna á ísa-
firði 1923 hefðu verið höfð í
frammi slík brögð að hann teldi
þau verri en þau er skeð hefðu
i sambandi við kosninguna í N.-
ísafjarðarsýslu.
Nú vill H. G. láta ónýta þá
kosningu. Ekki fyrir það að
svikin hafi breytt úrslitum kosn-
inganna, heldur eingöngu vegna
þess að slík svik sjeu óþolandi.
Hvað gerði nú H. G. 1923?
Þá kærði hann svikin en
heimtaði að kosningin yrði tekin
gild og honum sjálfum dæmd
þingseta.
Nú kærir hann svikin en
heimtar kosninguna ógilda.
Þá vildi hann sjálfur ná þing
setu þrátt fyrir svikin.
Nú vill hann ógilda kosningu
andstæðings vegna svikanna.
Þá voru svikin meinlaus ef
þingmaðurinn mátti heita Har-
aldur Guðmundsson.
Nú eru þau óþolandi af því
þingmaðurinn heitir Jón Auðunn
Jónsson.
Þetta sýnir best einlægnina.
Dómsmálaráðherra heimtaði
sannanir fyrir þVí að honum
væri annað tamara en ,,fair
play“ í stjórnmálabaráttunni.
Af óteljandi sönnunum gríp jeg
eina af handahófi.
Á síðasta þingi fór stjórnin
samkv. ósk Landsb. fram á
heimild til að ábyrgjast lán fyr-
ir Landsb. að upphæð 9 milj.
P’yrir koúningar sagði ráðherrann
oftlega frá því í ,,Tímanum“ að
Jón Þorláksson væri búinn að
sökkva þjóðinni í skuldir. Nú
síðast hefði hann lagt 90 króna
skuldabagga á hvert manns-
i barn í landinu, jafnt barnið í
j vöggunni sem karlægt gamal-
I mennið.
Segjum nú að N. N. lesi þessa
j harmafregn daginh fyrir kosn-
i ingar. Hann hafi ætlað að kjósa
íhaldsmann, en vegna þessa síð-
asta ,,afreks“ Jóns Þorl. kýs
hann Framsóknarmann.
Setjum svo, a^ð daginn eftir
kosningar fái þessi kjósandi
sannar fregnir af málinu, þær
að aoeins 1 af þeásum 9 millj.
hafi verið notuð og að slíkt lán
sje skattborgurum með öllu ó-
viðkomandi. Landsb. noti það til
stuðnings þörfum atvinnurekstri,
og Iántakandi sjálfur endur-
greiði lánið. 5 mánuðum síðar
frjettir hann svo að þessi eina
milj. sje að fullu greidd, og
vesalings kjósandinn harmar að
hann lagði trúnað á frásögn Jón-
asar Jónssonar.
! Er nú slík frásögn staðreynda
I „fair play?“
Og er atkvæði þessa kjósanda
| ófalsað?
Og ef það er falsað, hver er
þá glæpamaðurinn?
Nei, það eru til stórtækari
glæpamenn á þessu sviði en þeir
sem nefndir eru í sambandi við
Hnífsdalsmálið.
Dómsmálaráðh. vill skerpa
refsingu fyrir atkvæðafals. Jeg
vona að hann með sinni víðfrægu
formfestu saumi vel að þeim sem
þjóðfjelaginu stafar mestur voði
af í þessum efnum.
Dómsmálaráðh. Ólafur Thórs
sýnir mannvonsku sína og inn-
ræti. Hann vill girða fyrir að
glæpir sjeu hindraðir. Þessi
heimski og ómentaði götustrák-
ur hefir leitt sorann inn á Al-
þingi. Hann átti togarann sem
með grímu var að stela fiski frá
kjósendum hans.
Hann var að nefna 9 milj.
ábyrgðarheimild. Voru það
kannske ekki 9 milj.? (Löng
þvæla um lánið, um mörg önn-
ur lán og lánsheimildir og um
ýmislegt fleira alveg óskylt).
ólafur Thórs. Ráðherann hef-
ir sýnilega reiðst. Hann fer nú
sem fyr fram hjá kjarna máls-
ins. Það er ekki deilt um það
hver var upphæð ábyrgðarheim-
ildarinnar, en um hitt, hvort, það
sje rjett sem ráðh. hefir sagt
að slík ábyrgðarheimild sje
skuldabaggi á hvert mannsbarn
í landinu. Ráðherra sjálfur skil-
ur nú að honum er ekki undan-
komu auðið, hann er í þessu
máli sem mörgum fleirum stað-
inn að vísvitandi falsi á stað-
reyndum.
Hann segir mig hafa dregið
sorann inn á Alþing. Staðreynd-
ir mæla gegn því. Hann kom á
þingið fýr en jeg, og hver er sá
að hann treystist til að skara
fram úr ráðherranum um dylgj-
ur og óhróður.
Nei, ráðherrann veit og ^jör-
vallur þingheimur veit að ráð-
herrann er þjóðfrægur fyrir
þann óþrifnað sem hann hefir
fært inn í ísl. stjórnmálalíf. Og
þessi mín ummæli eru staðfest
með dómi þess hæstarjettar sem
ráðherrann verður að hlíta.
Þegar Framsóknarflokkurinn
kom saman síðastliðið sumar til
stjórnarmyndunar, er fullyrt að
Jónas Jónsson taldi sig forsætis-
ráðherraefni flokksins. Hann
hafði margt til unnið. Flokkur-
inn er fyrst og fremst hans verk
og um margt er hann jafnoki
; Tryggva Þórhallssonar. En
hvernig fór? „Forsætisráðherr-
ann“ Jónas Jónsson varð bráð-
kvaddur. Enginn flokksmanna
hans nefndi hann til forystu.
Hvers vegna? Vegna þess að
j hann ber á enni sjer smánar-
stimpil ósannsöglasta og óráð-
vandasta stjórnmálamannsins
sem þessi kynslóð þekkir.
Komu þeir þá fram á ræðu-
sviðið Jón Baldvinsson og Har-
aldur Jónasi til stuðnings; og
forsætisráðherrann Tryggvi Þór-
hallsson mun og hafa ætlað að
styðja málstað þeirra. En honum
fórst hrapallega að vanda.
j Forsætisráðherra líkur sjálf-
um sjer.
Ræða hans var stutt. Talaði
hann uní einsdæmi, og að kosn-
inguna skyldi ógilda.
Snjeri hann síðan ræðu sinni
að Magnúsi Guðmundssyni og
lagði fyrir hann þá spurningu
hvort hann, Magnús, hefði vitað
það að atkvæðaseðill hafi verið
; falsaður, sem var í vasa fram-
hjóðandans Björns Magnússon-
ar, er Björn var á iferð með
Magnúsi í sumar?
(Gáfuleg spurning!!!).
Þessu svaraði Magnús er hann
talaði síðar, og sýndi þessum
raunalega framhleypna ráð-
herra fram á, að hann, ráðherr-
ann, væri hjer að dylgja með
s.ð Magnús kynni að vera glæpa
maður. Skoraði Magnús á for-
sætisráðherrann að endurtaka
ummæli þessi utan þinghelginn-
ar svo hann gæti farið í mál
við forsætisráðherraim.
Ráðherrann svaraði þessu
engu orði, enda talaði hann ekk-
ert síðar á þeim fundi.
Leið nú að miðnætti. Rjett
þegar klukkan var 12 var Jón-
as dómsmálaráðherra að enda
eina af sínum mörgu ræðum.
Var hann þá í mælskara lagi.
Lýsti því frá sínum bæjardyrum
hvernig hann stæði, drengskap-
armaðurinn, saklaus og sannsög-
ull, en andstæðingar hans lúa-
legir lubbar, er eitra vildu þjóð-
lífið með því að taka kosningu
Jóns Auðuns gilda.
Valdi hann andstæðingunum
mörg miður ráðherraleg orð. '
Nokkru síðar tekur Magnús
Kristjánsson til máls.
Ræða hans var á þessa leið:
Jeg hefi ekki fundið ástæðu
til þess að taka þátt í undan-
gengnum umræðum, enda hafa
þær snúist um margt annað en
kosninguna í N.-ísafjarðarsýslu.
Vil jeg nú gera grein fyrir
atkvæði mínu, það mun falla á
annan veg en ýmsir hafa húist
við.
Innan Framsóknarflokksins
er gengið út' frá því að þetta sje
ekkert flokksmál, og ber þar
hver ábyrgð á atkvæði sínu. Að
mál þetta er ekki gert að flokks-
máli vil jeg taka sem vott þess
að þar eru frjálslyndir menn í
írjálsum flokki, er fylgja vilja
málum eftir sannfæringu sinni.
Þrjú meginatriði gera það að
verkum, að eklcert vinst við það
að ógilda kosninguna. Af ógild
ingu myndi stafa tímatöf, k -stn
aður fyrir ríkissjóð og erfiðleik
ar fyrir kjósendur.
En kosninguna ber að taka
gilda vegna þess:
1. Að J. A. J. fjekk yfirgnæf-
andi meiri hluta atkv.
2. að engin kæra hefir komið
fram um kosninguna — og er
það míkilvægt atriði.
3. að öllum kemur saman um
að ekkert bendi til þess að J. A
J. hafi átt neina sök á misfell-
um þeim sem orðið hafa á kosn-
ingunrii.
Sú ástæða hefir verið borin
hjer fram, að samþykt sú sem
hjer verði gerð skapaði fordæmi.
Jeg lít svo á, að það stoði lítt að
skapa einveldinu fordæmi. Al-
þingi er einvaldur dómari í þessu
máli. Og hvernig sem úrskurður
fellur hjer nú, er ekki hægt að
búast við að eftir honum verði
farið síðar.
Hvernig atkvæði falla innan
Framsóknarflokksins í þessu
máli veit jeg ekki. En jeg fyrir
mitt leyti vil aðeins segja það,
að jeg vil ekki eiga lengur sæti
hjer á þingi en að jeg geti allan
þann tíma greitt atkvæði eftir
sannfæringu minni.
Frh.
M0H909I96OCI ••••••••••
Hin dásamlega
Talol-handsipa
mýkir og hreinsar hörundið
Verð kr.0,75stk.
og gefur fallegan og bjartan
litarhátt.
Einkasalar:
I. Bryniólfsson S Hvaran.
••••••••••••••••••••••••••
••••••••••••»•••••••••••••
Nýkominn á markaðinn
Super-Skandia,
afar sparsöm og ódýr vjel.
Allar nánari upplýsingar hjá
omboðsmönnum út um land og að-
alumboðsmanni
C. Proppé.
Plasmon hafra-
mjö! 70% meira
næringargiídi
en í venjulegu
haframjöli. Ráð-
laot af læknum.
Veiðapfæri
i heildsöiu
Fiskilínur 1—6 lbs.
Lóðaöngla nr. 7 og 8.
Lóðabelgi nr. 0, 1, 2.
Lóðatauma 16 til 20”
Manilla,
enska og belgíska.
Grastóverk,
Netagarn, ítalskt
Trollgarn 8 og 4 þætt.
Seglgarn í hnotum.
Kr. ð. SkaiHBri,
Sími 647.
Morgunblaðið
fæst á Laugaveg 12.
7jUEVtSC0»STlrtTI0ll
■&5S.