Morgunblaðið - 24.12.1928, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
GLEÐILEG JÓL!
Matarbúð Sláturfjelagsins.
gnui!iiiui!iiiniiiHiiimiiimiiiiiii!iniiiiimmiiiiiiiiimiiiii|
| GLEÐILEG JÓL ! |
1 Kaupfjelag Borgfirðinga. j|
S i
1 Kjötbúðin Herðubreið. =
liiunmmiiiiinmmiiimimmimiiiiimimmiimmiiiiimi
GLEÐILEG JÓL !
Hljóðfæraverslun
Hélga Hallgrímssonar.
jiiimiimiimmiiiiiimumimmiimmmimmimmmiiiii|
| GLEÐILEG JÓL! 1
Þórðar Þórðarsonar
frá Hjalla.
m
iimiumiiiiiimumiiimuiimiiiiimmiiiiiniiiimummuuiH
GLEÐILEG JÓL!
G. Fossberg.
$►0000000000000000
GLEÐILEG JÓL!
Versl. Brúarfoss.
ooooooooo
pimmiiiiiuimiiniiimmiiiiiuiiuimmmmmmmimmii|
| GLEÐILEG JÓL! |
=jj EE
s Sigurður Kjartansson. s
EE =
iiiiuuuuuiiuunuuuunuiinmuuumnnumnuuuuuuui
GLEÐILEG JÓL !
Húsgagnaverslun
Kristjáns Siggeirssonar.
<>>ooooooooooooooo< <
GLEÐILEG JÓL!
VersL Fíllinn.
'ÓOOOOOOOOOOOOOOOO o
Verum samtaka.
Þeir kunna að vera margir,
sem eru nú að velta því fyrir
sjer, hvemig þelta megi ske,
að bygð sje ný kirkja hjer í
Reykjavík, þetta sje svoddan
stórvirki og sje okkur algjör-
lega um megn. —- Þessa menn
mætti minna á það sem Björns-
son sagði: „bare vi löfter í flok“,
tökum allir á í einu, — þá má
mörgu til vegar koma. Það kem-
ur ótrúlega mikið undir því að
vera samtaka og því að vilja,
— að einbeita viljanum að tak-
markinu. — Hvernig væri að
hafa upp fyrir sjer þessi erindi
eftir Magnús prúða:
Því skal hugsa hver mann til:
hann af guði skapaður er
föður síns landi víst í vil
að vinna til gagns það þörf til
sjer.-----
Enginn veit hvað miklu má
maðurinn orka ef viljinn er
hörmung landi hjálpa frá;
að höndum eftirdæmið fer.
Quidam.
í kirkju sækja menn
huggun og frið.
Sighvatur Bjarnason júst-
itsráð, fyrverandi bankastjóri,
skrif ar:
Spurningunni um þörf á nýrri
kirkjubyggingu fyrir þjóðkirkju
söfnuðinn í Reykjavík finst mjer
ekki verði svarað öðruvísi en
játandi, aðallega af þessum á-
stæðum.
1. Dómkirkjan sem nú er, og
bygð var fyrir nálægt 80 árum
síðan er að allra dómi og eins
og reynslan oft hefir sýnt, orðin
alt of lítil. Þá voru í söfnuðin-
um töluvert færri hundruð en
nú eru þúsund. Sakir umhverfis
ins verður kirkjan ekki stækkuð,
svo að gagni komi.
2. Kirkja safnaðarins eða
hlutaðeigandi safnaðarhluta þarf
að vera svo stór, að allir þeir,
er kirkju vilja sækja geti komist
þar fyrir án þess að vera trufl-
aðir af miklum troðningi eða
þrengslum. — Þess betur sem
um fólk fer í kirkjunni því meiri
not hafa menn að jafnaði af
því, sem þar fer fram.
3. Kirkjustjórn og allir þeir,
er góðum siðum unna þurfa að
gera það sem frekast er unt til
að efla kirkjuferðir manna. í
kirkjuna sækir hver óspiltur
maður huggun og frið í hjarta
sitt og einkennilega innrættur
má sá maður vera, sem góð
messugjörð hefir engin áhrif á.
4. Því fleiri kirkjur og kirkju-
rúm og þess styttri kirkjuveg-
ur, því greiðari og örari verða
kirkjuferðir almennings. En það
tel jeg til mikilla bóta ekki að-
eins fyrir hvern einstakling,
heldur einnig fyrir þjóðfjelagið
í heild sinni. — Væri vel farið
að menn hefðu það yfirleitt hug-
fast.
Ný kirkja, ný tækifæri.
Sigurbjörn Áetv. Gíslason
cand. theol. skrifar:
Ný kirkja er nýtt tækifæri til
að flytja gleðiboðskapinn, og
nýtt tækifæri fyrir áhugasamt
safnaðarfólk til að vinna að
ýmsum góðum safnaðarmálum.
Enda þótt „öldudalir“ komi
stundum í trúmálum kirkjunnar,
og þá sje lítið unnið bæði af
prestum og safnaðafólki að
kristindómsmálum, sýnir og
sannar margföld reynsla, að aft-
ur koma betri tímar, og er þá
til margfaldra heilla að kirkju-
húsin sjeu mörg og söfnuðir
hæfilega fjölmennir.
I mjög fjölmennum söfnuðum
hlaðast á prestana svo mjög auka
störf að þeir fá sama sem eng-
an tíma til húsvitjana, lítið næði
til verulegs lesturs og engan
tíma til ritstarfa, en þó er svo
margt af þeim heimtað aðkraft-
ar þeirra slitna fyrir aldur
fram, og því verður árangurinn
af æfistarfi þeirra minni en ella
mundi.
Þess vegna óska jeg að dóm-
kirkjusöfnuðurinn eignist nýja
kirkju til viðbótar sem fyrst.
Dómkirkjusöfnuðurinn
lakast settur af öllum.
Sigurður Jónsson skólastj.
skrif ar:
Sumir munu telja óþarft að
efná til nýrrar kirkjubyggingar;
kirkjugestir sjeu ekki fleiri en
það á venjulegum messudögum,
að þeir komist allir inn í þær
kirkjur, sem nú eru. Þetta kann
satt að vera. En jeg tel víst, að
eftir því sem kirkjur verða
fleiri, aukist einnig fjöldi kirkju
gesta. Mun sú hafa orðið raunin
á annarstaðar, og eru til þess
margar ástæður.
Mjer hefir virst þeir söfnuðir
úti um landið hörmulega stadd-
ir, þar sem kirkjan rúmar ekki
meira en sem svarar tíunda hluta
safnaðarins, svo sem t. d. á
Akureyri. Dómkirkjusöfnuður-
inn hjer er þó miklu lakar sett-
ur en þetta.
Nú er hentugur tími.
Sigurður P. Sívertsen pró-
fessor skrifar:
■Hvers vegna þarf að byggja
kirkjuna ?
Af því að sama lögmálið gild-
ir hjer hjá oss, eins og um allan
kristinn heim, að kirkja eða
samkomuhús hvers safnaðar
þarf að geta rúmað þá, er sam-
komur safnaðarins vilja sækja.
Geti kirkja ekki rúmað alla þá,
sem þangað er ætlað að sækja,
er alstaðar reynslan sú sama, að
það sje bæði einstaklingum til
tjóns og safnaðarheildinni. Og
<4
GLEÐILEG JÓL!
Júlíus Bjömsson.
h
GLEÐILEGRA J.ÓLA
óskar öllum viðskiftavinum sínum
H/f. Efnagerð Reykjavíkur.
Jr
••••••••••••••••••••••••••••••••
••••••••••••••••••••••••••••••••
GLEÐILEGRA JÓLA
óskar öllum viðskiftavinum sínum
K. Einarsson <& Bjömsson.
•••••••••••••••••••••••••••••••«
•••••••••••••••••••••••••••••••(
GLEÐILEGRA J,ÓLA
óskum við öllum okkar viðskifta-
vinum nær og fjær
Ásg. G. Gunrílaugsson & Co.
GLEÐILEGRA JÓLA
óskum við öllum
Nathan & Olsen.
GLEÐILEGRAJÓLA
óskar öllum viðskiftavinum sínum
ölgerðin Egill Skállagrímsson.
-3*1
GLEÐILEGRA JÓLA
óskar öllum viðskiftavinum sínum
Efnalaug Reykjavíkur.